Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
23
Kuldakast í Evrópu
Sovétríkin:
16 félagar í friðar-
hreyfingu handteknir
Moskvu, 6. febrúar. AP.
SEXTÁN félagar hinnar óopinberu friðarhreyfingar í Moskvu voru
handteknir á þriðjudag þegar þeir reyndu að halda fund. Nokkrir
fengu óblíða meðferð í höndum lögreglunnar, að sögn eins félaga
hreyfingarinnar, Yuri Medvedkov.
Medvedkov sagði að áaetlað hefði
verið að senda bréf á 27. þing
kommúnistaflokksins, sem fram fer
í þessum mánuði, og þetta bréf
hefði átt að ræða á fundinum.
Mennimir sextán vom handteknir
á leið til íbúðar Medvedkovs, þar
sem halda átti fundinn.
„Nina Kovalenko’ var barin til
óbóta meðan hún var í haldi og
henni ekki sleppt fyrr en síðdegis
í dag, miðvikudag," sagði Medved-
kov. Hann kvað þrjá aðra einnig
hafa verið beitta ofbeldi, en ekki
væri vitað hvar þeir væru niður-
komnir.
Að minnsta kosti einn félagi
hreyfíngarinnar var settur inn á
geðspítala og þrír voru fluttir um
15 km leið út fyrir Moskvu og
skildir þar eftir á sveitavegi.
Vetraríki hefur verið íEvrópu undanfama daga meðan hlýindi hafa verið hérá landi. Spáð er
áframhaldandi frostveðri á meginlandinu næstu daga. Meðfylgjandi mynd var tekin á Jótlandi í
miðri vikunni og er heldur kuldalegt þar um að litast.
Bandaríkin:
Demókratar óánægð-
ir með stefnuræðuna
Afvopnunartillögur Sovétmanna:
Reagan undir-
býr svar sitt
Washington, 6. fcbrúar. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, sendi á miðvikudag Paul
H. Nitze og Edward L. Rowny til þeirra ríkja, sem eru banda-
menn Bandaríkjanna og Kína, til viðræðna. Tilgangurinn er
að komast að því hvað umheimurinn heldur lun afvopnunar-
tillögur Mikhails Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, og vinda
bráðan bug að svari við þeim.
Washington, 6. febrúar. AP.
DEMÓKRATAR í Bandaríkj-
unum eru lítt hrifnir af stefnu-
ræðu Ronalds Reagan, forseta,
og segja að hann hafi í ræð-
unni reynt að fela gífurlegan
halla fjárlaga, slæman efna-
hag bænda og mikinn við-
skiptahalla. Sögðu þeir þetta
merki um slæmar horfur í
efnahagsmálum, sem ógnuðu
einmitt viðurværi þess fólks,
sem Reagan þættist vera að
verada.
Meðal þess sem Reagan nefndi
í ræðunni var að ijölskyldugerð
þeirra sem nytu félagslegrar að-
stoðar í Bandaríkjunum væri í
hættu og sagðist myndu vinna að
því að breyting yrði á. Hann sagði
að halli á fjárlögum ógnaði framtíð-
inni og ekki yrði um breytingar að
ræða nema það kerfi yrði afnumið,
þar sem dölum og rhannlegum eig-
inleikum væri kastað á glæ. Sagði
hann að þrátt fyrir að hundruðum
milljóna dala hefði verið veitt til
velferðarkerfisins, væri ok hinna
fátæku ekki minna. „En eyðsla á
peningum fölnar við hliðina á sorg-
legasta missinum: hina syndsam-
legu eyðileggingu á mannlegum
eiginleikum og mannsandanum
sjálfum. Við getum ekki litið fram-
hjá þessum hræðilega sannleika
lengur," sagði Reagan meðal ann-
ars í ávarpinu.
George Mitchell, öldungadeildar-
þingmaður demókrata frá Maine,
sagði, að stefna stjómvalda kallaði
erfíðleika yfír íjölskyldur og
splundraði þeim auk þess sem at-
vinnutækifæri flyttust í sífellu úr
landi. Þá var ráðist á aukin útgjöld
til vamarmála og sagði Charles S.
Robb fyrrum ríkisstjóri í Virginíu
að herstyrkur byggðist ekki einung-
is á því að veita sífellt meiri pening-
um til vamarmála, heldur byggðist
hann einnig á skynsamlegri stefnu,
vopnum sem hægt væri að beita í
bardögum og hersveitum sem
myndu nota vopnin.
Nefndu forsvarsmenn demókrata
að Bandaríkin yrðu að auka fram-
leiðslu sína og samkeppni á heims-
markaði. Þá ætti það að vera víst
að allir Bandaríkjamenn, jafnvel
þeir valdamestu, léku eftir sömu
leikreglunum. Sögðu þeir að undan-
farin fjögur ár hefðu 50 af stærstu
fyrirtækjum Bandaríkjanna, sem
samtals hefðu 57 milljarða dala í
gróða, ekki borgað neinn tekjuskatt
til sambandsríkisins. Bentu þeir á
að það sama hefði gilt um 3 þúsund
manns árið 1983, sem hefðu haft
yfir eina milijón dala í tekjur.
Haft er eftir háttsettum embætt-
ismanni í Washington að Reagan
muni svara Gorbachev innan viku
ef þeir aðiljar, sem fulltrúar hans
munu ræða við í ferðinni, eru forset-
anum samhljóða.
Nitze ræðir við leiðtoga Atlants-
hafsbandalagsríkja í höfuðborgum
þeirra og Rowny fer til Japan, Kína,
Australíu og Suður-Kóreu.
Tillögur Gorbachevs hljóða upp
á að meðaldrægar eldflaugar Sovét-
manna og Bandaríkjamanna verði
§arlægðar úr Evrópu. En hann
bauðst ekki til að taka niður rúm-
lega 130 færanlegar SS-20-flaugar,
sem beint er að Asíu.
Ef Reagan sendir svar um miðja
næstu viku verður Gorbachev ljós
afstaða Bandaríkjamanna þegar
þing Kommúnistaflokksins hefst í
febrúarlok.
ERLENT
«9
V
Yöruúrval við vesturhöfnina
Utgerðarvörur
Veiðarfæralásar — Víraklemmur — Baujuluktir og baujustangir — Bambus —
Tóg — Línuefni — Blý — Teinatóg — Flotteinn — Landfestar — Stálvír —
Belgir allskonar — Önglar — Taumar — Netahringir — Netakeðja — Netalásar
og kóssar — Fiskikörfur — Goggar og stingir — Hnífabrýni — Fiskihnífar og
vasahnífar — Blakkir ótal gerðir.
Skipaskoðunarvörur
Frá Pains Wessex — Línubyssur — Flothausar — Handblys — Svifblys — Bjarghringsljós — Manoverboard og flestar aðrar skoðunar-
vörur, m.a.: Björgunarvesti — Björgunarhringir — Slökkvitæki — Dælur alls konar — Brunaslöngur og tengi — Siglingaljós —
Radarspeglar — Þokulúðrar — Akkeriskeðjur — Öryggishjálmar o.m.fl.
d> Verkfæri o.fl.
Víraklippur — Olíuluktir með neti — Urvalsverkfæri frá USAG — Krafttalíur og lásar frá Durbin Durco — Allar tegundir af borum
— Plötublý — Minkagildrur — Rottugildrur — Músagildrur.
Fatadeildin
Norsku ullarnærfötin — Há og lág klofstígvél — Vinnubuxur — Jakkar — Skyrtur — Peysur og margt annað.
Ananaustum, Xvp/ Grandagarðí 2, sími 28855.
REKSTRARVÖRUR FYRIR ÚTGERÐ OG FISKVINNSLU.
VINNU- OG SJÓFATNAÐUR — VERKFÆRAÚRVAL —
MÁLNING Á ALLA FLETIÚTIJAFNTSEM INNI.