Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986
27
„Grundvallarmunur hvort
Gæslufokkerinn er leigð-
ur innan lands eða utan“
í UMRÆÐUNUM á Alþingi sl.
þriðjudag um væntanlega leigu
á Fokker Landhelgisgæslunnar
til Flugleiða gagnrýndu ýmsir
þingmenn það að leigja ætti
Gæslufokkerinn til flugs milli
Islands, Færeyja og Skotlands.
Nú hafa Flugleiðir sent frá sér
tilkynningu þess efnis að það
hafi ekki staðið til að láta Fokker
Gæslunnar í millilandaflug held-
ur ætti hún að sinna innanlands-
flugi og vera þannig til taks fyrir
Landhelgisgæsluna með stuttum
fyrirvara ef slík staða kæmi upp.
Arni Johnsen alþingismaður
sagði í gær, að þessi misskilning-
ur hefði komið fram í fréttum
og dómsmálaráðherra hefði ekki
leiðrétt hann á Alþingi og því
hefðu umræðuraar snúist á þann
veg, sem varð.
„Það er grundvallarmunur á því,“
sagði Arni, „hvort vélin er leigð til
flugs innanlands eða milli landa.
Það hefur lengi verið mitt sjónarmið
Leiðrétting
í MORGUNBLAÐINU í gær var
sagt frá frumsýningu á kvikmynd-
inni „Veiðihár og baunir" en meðal
leikenda þar er Lena Nyman sem
kom hingað í tilefni sýningarinnar.
Myndin var frumsýnd í gærkvöldi
í Regnboganum en ekki Háskólab-
íói eins og stóð í fréttinni.
að flugfloti Gæslunnar, sérstaklega
þyrlur, eigi að afla meiri tekna fyrir
Landhelgisgæzluna en verið hefur.
Þegar heimild var veitt fyrir
skömmu til kaupa á nýrri þyrlu af
minni gerð var það skilyrt að
Gæslan gæti aflað tekna til að brúa
þar bilið. Það er ætlað að gera með
þessum leigusamningi. Nú hefur
það verið staðfest að Gæsluvélinni
er ætlað að fljúga innanlands.
Fréttir um annað reynast rangar
og þar með er unnt með tiltölulega
stuttum fyrirvara að grípa til vélar-
innar ef með þarf, því það tekur
vart meira en liðlega klukkustund
að setja í hana þau tæki sem eru
fjarlægð vegna sætaraða í far-
þegaflugi. Þetta fyrirkomulag getur
því bæði nýst Flugleiðum og Land-
helgisgæslunni, en stóri kosturinn
við Gæslufokkerinn sem neyðar- og
öryggisflugvél er sá að vélin hefur
mikið flugþol, 10 tíma, mikið burð-
arþol, unnt er að koma frá henni
björgunarbátum á flugi og öðrum
björgunarbúnaði og vélin er eina
innanlandsflugvélin sem getur haft
samband bæði við skip og flugvélar
og önnur íslenskra flugvélin sem
getur miðað út gúmmíbjörgunar-
báta. Hún getur þannig verið björg-
unarstjómstöð í lofti. Þess vegna
þarf að vera tryggt að mínu mati
að unnt sé að grípa til vélarinnar
með stuttum fyrirvara, en á hinn
bóginn er full ástæða til þess að
reyna að ná inn tekjum á vélakost
Gæslunnar."
Stuðmenn i góðu formi. Myndin er tekin áður en Sigmar slóst í hópinn.
Stuðmenn og Sigmar í Sigtúni
HLJÓMSVEITIN Stuðmenn
munu skemmta í veitingahúsinu
Sigtúni nú um helgina og hefur
af því tilefni verið smíðað vandað
og vel vaxið svið í húsinu, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá Stuðmönnum og Sigmari í
Sigtúni.
Aðstaðan verður vígð nú um
helgina, 7. og 8. febrúar, þar sem
Stuðmenn munu leika og syngja
og Sigmar Pétursson sjá um allar
framkvæmdir utan sviðs og neðan.
Hefur samkomunni verið valið
nafnið „Stuðmenn og Sigmar í
Sigtúni". í fréttatilkynningunni
segir meðal annars að aðstandendur
vonist til að þessi framkvæmd, það
er hönnun sviðsins, megi verða lif-
andi tónlist í höfuðborginni lyfti-
stöng en það hafi háð mjög bítla-
hljómsveitinni Stuðmönnum hversu
fá frambærileg svið hafi verið til
reiðu í veitingahúsum borgarinnar.
Fjögur þorrakvöld í Tónabæ
„FEBRÚARKVÖLD" er yfir-
skrift skemmtikvölda fyrir ungl-
inga í Tónabæ nú á þorranum.
Unglingar í Reykjavík hafa að
öllu jöfnu ekki aðgang að þorra-
blótum sem haldin eru fyrir full-
orðna. Þess vegna heldur ungt
fólk á aldrinum 13—16 ára sér-
stök skemmtikvöld í febrúar-
mánuði þar sem mikið er lagt í
dagskrá með bæði heimatilbúnu
og aðkeyptu efni, segir í frétta-
tilkynningu.
Á fyrsta febrúarkvöldinu í kvöld,
7. febr., verða gestir m.a. hljóm-
sveitin Grafík, sem kemur nú fram
í fyrsta skipti eftir langt hlé, dans-
hópurinn „Screaming People", og
Abdou frá Kramhúsinu sem
skemmtir með dansi og bongó-
trommuleik.
Febrúarkvöldin eru haldin 4
föstudaga í febrúar og verður
unglingum úr einum skóla boðið
sérstaklega sem heiðursgestum
hvers kvölds. Febrúarkvöldin he§-
ast stundvíslega kl. 20.30 og standa
til 00.30.
Prófkjör Alþýðuflokksins:
Stjórn fulltrúaráðs þingar um helgina
„ÞAÐ verður fundur í stjóra
fulltrúaráðsins um helgina. Ég
hef ekkert um málið að segja
fyrr en eftir þann fund.“
Svo mælti Björgvin Guðmunds-
son, formaður fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna í Reykjavík, er
Morgunblaðið innti hann eftir því
hvemig fulltrúaráðið hyggðist
bregðast við beiðni Sigurðar E.
Guðmundssonar, borgarfulltrúa
Alþýðuflokksins, um rannsókn á
því hvort Bryndís Schram og Bjami
P. Magnússon hefðu brotið grund-
vallarreglur um einstaklingsbundið
prófkjör.
látum
3 bakkar ó verði tveggja!
ÍÞú tekur þér 3 bakka, en borgar bara 2 þeirra)
Opiö til kl. 20:00 í kvöld
og kl. 10:00 til 16:00
ó morgun, laugardag.
Armúla og Eiðistorgi
■■