Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
31'
St)örnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Vatnsberi (21. jan. — 19. feb.)
ogNaut (20. apríl — 20. maí).
Hér á eftir er einungis fjallað
um hið dæmigerða fyrir merk-
in. Þegar þú, lesandi góður, ert
að athuga hvort lýsingin á
merkinu eigi við þig eða vin
þinn, verður þú að hafa í huga
að þið eruð samsett úr mörgum
merkjum.
Fasteignasali og
Ueknifrυingur
Vatnsberi og naut eru í
grunnatriðum ólík merki og
þeim lyndir yfirleitt ekki. Áður
en öll hjón í Nauti og Vatns-
bera tjúka upp til handa og fóta
og sækja um skilnað vil ég
benda á það að þessi merki
geta átt ágætt ástalíf ef aðrir
þættir eiga vel saman. Auk
þess má segja að ólíkir ein-
staklingar geti myndað sam-
starf sem styrkir báða aðila.
Styrkur annars er veikleiki
hins.
StöÖuglynt fólk
Orðalagið hér að framan, það
að rjúka upp til handa og fóta,
á í raun ekki við um þessi
merki. Hvorugt þeirra rýkur út
í eitt eða neitt. Nautið er eitt
þijóskasta og stöðugasta fyrir-
bæri hér á jarðarkringlunni.
Aldan er þung og hæg í Naut-
inu, það er lengi að taka
ákvörðun og lengi að skipta
um skoðun. Nautið er tvö ár
að ákveða hvort það sé hrifið
af Vatnsberanum og tuttugu ár
að viðurkenna ósamlyndið (ef
slíkt er fyrir hendi). Og þó illa
gangi, hnyklar það brýmar,
keyrir herðamar saman og
segin „Það skal vist ganga."
Vatnsberinn er einnig fastur
fyrir. Hann myndi í þessu dæmi
seijast niður og hugleiða málið
vel og vandlega, án alls asa
og óðagots. Það eru Hrútamir
og Bogmenn sem fá skyndi-
hugmyndir og ijúka upp. Að
vísu vilja þeir Hrútar sem
undirritaður þekkir ekki viður-
kenna á sig fljótfæmi, en það
er nú eins og það er.
Mismunurinn
Helsti munurinn á Nauti og
Vatnsbera er sá að Nautið er
jarðbundið og þungt, en Vatns-
berinn loftkenndur og svífandi.
Nautið lifir fyrir áþreifaniegar
og hagnýtar framkvæmdir,
einnig líkamann og jarðneskar
nautnir. Vatnsberinn lifir fyrir
það að hugsa málin, ræða við
fólk og láta sig dreyma um
betri og réttlátari heim. Þegar
Vatnsberinn vill sitja við hring-
borð og ræða heimsmálin yfir
kaffibolla, vill Nautið fara á
veitingahús, panta safaríka
stórsteik og fyrsta flokks rauð-
vín, eftirrétt og írskt kaffi. Að
sjálfsögðu getur Nautið haldið
uppi andríkum samræðum, en
þá helst um vinnuna og matinn.
Hugsun —
framkvcemd
Framangreint dæmi er kannski
eitthvað ýkt. Aðalatriðið er að
hér er annars vegar maður sem
lifir í hugarheimi og hins vegar
maður sem lifír í jarðneskum
heimi þess áþreifanlega og
„hagnýta". Þeir geta lært tölu-
vert hvor af öðrum. Hinn
dæmigerði Vatnsberi er hug-
myndaríkur og víðsýnn, hann
er einnig frjálslyndur og sjálf-
stæður. Hann getur hrist upp
í Nautinu og gefið þvl siðferði-
legt aðhald. Nautið fram-
kvæmir og kemur hlutum í
verk, en það skortir oft yfirsýn
og sjón á tilgang verka sinna
og það hefur oft óljósa sið-
ferðiskennd. Nautið getur aft-
ur á móti dregið Vatnsberann
niður á jörðina og hvatt hann
til að koma hugmyndum sínum
í verk.
X-9
l/4/Y£M/#£fí/// £RU
/fí/fí <i,0-
'ÞJTT/I £R AWf/A y
'&UB/SSA, SKOT
• FR/H£HDAMtx
ás£T/ //R/T
H//R/P
♦ts*9
© 198S King Features Syndicale. Inc World nghls reserved
:::: : ::::::: ::::::: : : :::: ::: • '
DYRAGLENS
......
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
IM HERE,MAAM..I DONT
KNOU) IF l'M FACIN6 THE
RIGHTUIAV, BUT l'MHERE!
Ég er héma, kennari ...
ég veit ekki hvort ég sný
rétt, en ég er hérna!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur spilar hlutlaust út
trompi gegn sjö spöðum suðurs:
Norður
♦ KD108
VÁK74
♦ 92
♦ Á54
Suður
♦ ÁG94
¥ 108
♦ ÁD
♦ KD872
Ef laufið fellur 3—2 og tromp-
ið ekki verr en 4—1 er spilið
auðunnið. Tromp er tekið þrisvar
— og ef spaðinn er 4—1 eru
tveir efstu í hjarta teknir og
hjarta stungið. Síðan er farið inn
á laufás, síðasta trompið tekið
og tíguldrottningunni kastað
heima. Þannig fást fimm slagir
á tromp, tveir á hjarta, einn á
tigul og fimm á lauf.
En hvað ef laufið er 4—1? Þá
er auðvitað hægt að trompa eitt
í blindum og reyna við 13. slag-
inn með þvl að svína í tígli. En
svíningar eru ekki vinsælar í
alslemmu, a.m.k. ekki ef betri
leiðir eru færar.
Norður
♦ KD108
¥ ÁK74
♦ 92
♦ Á54
Vestur
♦ 76
¥D652
♦ KG10
♦ G1093
Austur
♦ 532
¥G93
♦ 876543
♦ 6
Suður
♦ ÁG94
¥108
♦ ÁD
♦ KD872
Áttan í blindum á fyrsta slag-
inn. Sfðan er ÁK í hjarta teknir
og hjarta trompað með ás. Þá
er laufi spilað á ás blinds og
síðasta hjartað trompað. Nú er
tímabært að taka tvisvar spaða
og henda tiguldrottningunni
heima: Sagnhafi þolir nú að
laufið sé 4—1. Hann getur
trompað flórða laufið og á inn-
komu heima á tigulás til að taka
það fimmta.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu skákmóti i V-Berlin í
sumar kom þessi staða upp i skák
Viktors Korchnoi, sem haföi hvitt
og átti leik, og heimamannsins
Lieb.
-
...» mm. ^ 'wm
8\kW m*m
Ww,
-4
m&m m. m
Wm wmm
" ■ Hal
25. Bxf7+! og svartur gafst upp.
Eftir 25. - Hxf7, 26. Rxf7 hefur
hann tapað skiptamun og peði.