Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986
45
-—
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Nokkrar spurningar varð-
andi Lánasjóð námsmanna
TU Velvakanda.
Mikið er nú rætt og ritað um
starfsemi Lánasjóðs náms-
manna, og ekki eru allir sam-
mála og kemur reyndar fram í
umræðum almennings, að svo
virðist vera að enginn viti raun-
verulega hvemig þessi viðskipti
farafram.
Þar eð hér er um vaxandi
fúlgu fjár að ræða, sem rikissjóð-
ur leggur árlega fram til fram-
færslu námsfólks, sem að fjölda
til er orðinn meiri en íbúar
fimmta stærsta bæjar landsins,
er orðin nauðsyn á því, að skatt-
borgarar, sem inna féð að hendi
fái nokkra vitneskju um gang
mála. Er óskað eftir því með
þessum 'lfnum að ráðamenn
Lánasjóðsins svari eftirfarandi
spumingum, og birti niðurstöður
á síðum Velvakanda Morgun-
blaðsins.
1. Hvaða ár var Lánasjóður
(slenskra námsmanna stofnaður,
og hvað hefur ríkissjóður lagt árstekjum sínum, hver borgar farandi dæmi, sem undirritaður
mikið fé í sjóðinn frá upphafi til þá það sem eftir kann að verða hefur samið.
Ónýt spil
til spila-
safnara
Kæri Velvakandi.
Við erum hér nokkrir krakkar
sem söfnum spilum. Öll spil eru vel
þegin, notuð sem ný, jókerar, stök
spil eða heilir stokkar. Hendið ekki
spilum, gefið þau frekar söfnurum.
Ef þið sem lesið þetta viljið gefa
spil þá sendið þau til:
Guðrúnar Þórhildar Emilsdóttur,
Uppsalavegi 16,
Húsavik.
Svör við nokkrum
spurningum um LIN
1. Lög um Lánasjóð íslenskra
námsmanna voru fyrst sett árið
1961. Fyrr á öldinni var stúdent-
um úthlutað styrkjum sam-
kvæmt fjárlögum hvers árs. Árið
1952 voru sett lög um Lánasjóð
stúdenta við Háskóla íslands og
árið 1960 lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna erlendis.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna tekur árið 1961 við verk-
efnum þessara tveggja sjóða.
Þessum lögum var svo breytt
árin 1967, 1968, 1972, 1976 og
nú síðast árið 1982. Framlög úr
ríkissjóði hafa numið um 6,9
milljörðum króna frá árinu 1971
til og með ársins 1986 miðað
við verðlag á árinu 1985 (meðal-
framfærsluvísitölu). Þá eru ótal-
in langtímalán sem sjóðurinn
skuldar eða um 1,7 milljarðar á
sama tíma samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri sjóðsins pr. 31/
12 1985 og áætluðum lántökum
áárinu 1986.
2. Já, námsmenn í Stýrimannaskól-
anum og Vélskólanum eiga rétt
á aðstoð úr sjóðnum samkvæmt
þeim reglum, sem nú er unnið
eftir.
3. Já, einn ábyrgðarmann þarf til
tiyggingar greiðslu verðtryggð-
ar upphæðar. Um verðtrygging-
una segir svo í núgildandi lögum
um lánasjóðinn (72/1982) 7. gr.
„Reiknast verðtryggingin frá
fyrsta degi næsta mánaðar eftir
að lán er tekið eða einstakir
hlutar þess greiddir út til fyrsta
dags þess mánaðar er greiðsla
fer fram.“ „Lán“ þessi bera ekki
vexti.
4. Greiðsla afborgana hefst þrem
árum eftir námslok. Afborganir
greiðast í 40 ár eftir að endur-
greiðslur heljast.
5. I 9. gr. núgildandi laga segir:
„Endurgreiðslur, sem falla í
gjalddaga eftir að lánþegi and-
ast, falla sjálfkrafa niður."
6. EndurgTeiðslan miðast annað
hvort við fasta krónutölu árlega
eða ákveðið hlutfall af útsvars-
stofni næsta árs á undan endur-
greiðsluári. Endurgreiðslan
verður aldrei hærri en 3,75% af
útsvarsstofninum að frádreginni
föstu upphæðinni. Nái náms-
maður ekki að greiða til baka á
40 árum þá upphæð sem honum
var úthlutuð eru eftirstöðvamar
óafturkræfar. Slíkar upphæðir
greiðir þá ríkissjóður fyrir hönd
skattgreiðenda í landinu.
7. Já, eftirstöðvar fymast að lokn-
um 40 ára endurgreiðslutíma.
8. Heildaraðstoð til einstaklinga er
ekki takmörkuð nema af náms-
lengd, framfærslumati Qöl-
skyldu viðkomandi námsmanns
að frádregnu tekjutillitinu (þá
er miðað við að námsframvinda
sé í samræmi við reglur sjóðs-
ins). Samkvæmt núgildandi
reglugerð (B. 578/1982) 20. gr.
getur enginn námsmaður fengið
aðstoð úr sjóðnum til náms á
háskólastigi lengur en í 12 að-
stoðarár alls.
9. í grundvallaratriðum er tekið
tillit til tekna námsmanna og
maka þeirra annars vegar og
hinsvegar til framfærslu fjöl-
skyldu þeirra og búskaparhátta
við úthlutun.
10. Svar við þessari spurningu
birtist síðar.
Árdís Þórðardóttir,
formaður stjómar LÍN
Þessir hringdu . .
Farandi á
bjórhátíðina
Lisa Weishappel hjá ferðaskrif-
stofunni Farandi hafði samband
við Velvakanda, vildi benda
Kristni Sigurðssyni á að ferða-
skrifstofan byði upp á ferðir á
bjórhátíðina miklu í MUnchen.
Honum þótti ferðaskrifstofur hér
sofandi og ekki bjóða upp á fjöl-
breyttar ferðir, sem dæmi neftidi
hann bjórhátíðina í Munchen og
ferðir á frjálsíþróttamót.
Skrautdúfum
stolið
Berglind hríngdi:
Um fimmleytið síðastliðinn
mánudag urðum við ljölskyldan
vör við að brotist hafði verið inn
í læstan dúfnakofa, sem níu ára
sonur minn á, og stolið þaðan 10
skrautdúfum, einni villidúfu og
einu eggi. Nú höfum við leitað
eins og okkur er unnt í nágrenninu
en ekkert fundið. Ef einhveijir
foreldrar verða varir við að bömin
þeirra séu með skrautdúfur bið ég
þá vinsamlega að hafa samband
við okkur í síma 53342.
1800 lírur og
240 krónur
Reykvíkingur hringdi:
„Ég kaupi oft ítalskt tímarit
sem heitir ÖGGI. Á titilsíðu þess
stendur, að blaðið kosti 1800 ít-
alskar Jírur í lausasölu — sem eru
um 47 íslenskar krónur. Hér
kostar blaðið hins vegar 240 krón-
ur. Mig langar gjaman að fá
einhver haldbær svör við því,
hvemig standi á þessum gífurlega
mun.
Ég les einnig annað tímarit sem
er íslenskt og nefnist „Dynskóg-
ar“. Þegar eru tvö tölublöð komin
út en mig er farið að lengja eftir
því þriðja. Ég hef reynt að hafa
upp á forsvarsmönnum blaðsins
en það hefur ekki tekist. Þess
vegna langar mig að spyrja hvort
og hvenær sé von á næsta tölu-
blaði.
Sitja ekki allir
við sama borð?
Arni Jóhannsson starfsmaður
hjá Áburðarverksmiðjunni
hringdi:
„Mig langar að beina þeirri
spumingu til fjármálaráðherra,
Þorsteins Pálssonar, hvort ekki
sitji allir ríkisstarfsmenn við sama
borð?
Við erum tólf starfsmennimir,
sem vinnum í vetnissai verksmiðj-
unnar, og í þau 21 ár sem ég hef
unnið hér hefur okkur aldrei verið
boðið að snæða með öðmm starfs-
mönnum fyrirtækisins. Nýlega
var reist 2-300 manna salur við
skrifstofuna en þangað fáum við
ekki að koma nema með miklum
fortölum. Markús Öm Antonsson
úvarpsstjóri skoðaði verksmiðjuna
árið 1982 er hann var borgarfull-
trúi og sagði hann þá hvergi
annars staðar hjá ríkisfyrirtæki
hafa séð að starfsmenn neyttu
matar síns úr skrínu í kjöltu sér.
Aldrei hefur fyrirtækið boðið
upp á svo mikið sem svart og
sykurlaust á stórhátíðum, svo sem
jólum eða við önnur tækifæri.
Nú þegar líður að samningavið-
ræðum fínnst mér að foringjar
verkalýðsins ættu að gæta þess
vel að allir félagar þeirri sitji við
sama borð. Til að slá botninn í
þetta langar mig einnig að vita
hvað viðbyggingin kostaði. Ég
held að starfsmenn verksmiðjunn-
ar«igi fullan rétt á að vita það.
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Einkaumboð á íslandi.
Atlas hf
Borgartún 24, sími 26755.
Pósthólf 493 — Reykjavík.
Háþrýstislöngur
og tengi.
Atlas hf
Borgartún 24, sími 26755.
Pósthólf 493 — Reykjavík.
WAliNER-
sjálfstýringar
qhr"
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskaö er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auðveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiösluskilmálar.
Atlas hf
Borgartún 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
STEYPIBAÐ
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtur síðan
steypibaðsins vel og lengi.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SÍMI 24260
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjáifstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á
móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boöiö aö notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 8. febrúar veröa til viðtals Ingibjörg J. Rafnar
formaður félagsmálaráðs og hafnarstjómar og Þórunn
Gestsdóttir ■ stjóm Reykjavikurviku, æskutýðsraðs og bama-
7