Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 47
Frábær árangur
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986
EINAR Ólafsson skíðagöngumað-
ur frá ísafirði hefur verið heldur
betur í sviðsljósinu á sænska
meistaramótinu í norrænum
greinum sem fram fer um þessar
mundir. í gær varð hann níundi í
50 kílómetra göngu og sýndi þar
með að hann er kominn í röð
fremstu göngumanna Norður-
landa ef ekki heimsins. Hann
sannaði það með þessari göngu
að það var enginn tilviljun að
hann varð í áttunda sæti í 15 kíló-
metra göngunni á þriðjudaginn.
„Ég er alveg í sjöunda himni.
Þetta var alveg frábært," sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Árangur hans er mjög
góður ekki síst fyrir það að Svíar
eiga harðsnúna göngugarpa og
allir tóku þeir þátt í þessu móti
Þjálfarinn færði
KR bæði stigin
ÞJALFARI KR-inga, Haukur Ott-
esen, sýndi leikmönnum sínum
gott fordæmi á síðustu mínútu
leiksins við HK í keppninni um
„hugsanleg" aukasæti f fyrstu
deild á næsta keppnistímabili.
Hann galopnaði þá vörn and-
stæðinganna með snaggaralegri
gabbhreyfingu, skaust inn á lín-
una og skoraði sigurmarkið.
Leikið var á heimavelli HK í
Kópavogi, og lengi framan af virt-
ust HK-menn sigurstranglegri.
Vörn KR-inga var langt í frá góð,
og þar sem ekki gekk vel í sókninni
hjá þeim heldur var HK yfirleitt 2
til 4 mörkum yfir, eða þar til um 5
mínútur voru eftir, að KR tókst að
jafna, 21-21.
Þessi tvö lið virðast áþekk að
getu, og í svipuðum gæðaflokki
og Haukar og Þróttur. Sennilega
ættu KR-ingar þó að geta hrist af
sér slenið og sigrað í þessari
skrýtnu keppni, sem ef til vill er
ekki um neitt. Engin formleg
ákvörðun hefur nefnilega verið
tekin um fjölgun liða í fyrstu deild
á næsta ári.
Stefán Arnarson KR-ingur var
áberandi besti sóknarmaöurinn á
vellinum, en auk hans áttu Jóhann-
es Stefánsson og Haukur þokka-
legan leik með KR. Af HK-mönnum
bar mest á gömlu jöxlunum, Ragn-
ari Ólafssyni og Birni Björnssyni,
en Ólafur Pétursson var einnig líf-
legurá línunni.
Mörk HK: Björn Björnsson S/1. Ólafur Pét-
ursson 4, Ragnar Ólafsson 3, Rúnar Einarsson
3, Gunnar Gylfason 3, Jón Einarsson 2, Berg-
sveinn Þórarinsson 1.
Mörk KR: Stefán Arnarson 6, Jóhannes
Stefánsson 4/3, Ólafur Lárusson 4/1, Haukur
Ottesen 3, Páll Björnsson 2, Björn Pétursson
1, Baldur Hermannsson 1.
nema Gunde Svan. Alls kepptu 99
göngumenn í gær.
„Ég sagði við þjálfarann minn
fyrir gönguna í dag (í gær) að ég
gerði mig ánægðan með að vera
fyrir neðan 20. sætið en hérna eru
göngumenn mjög jafnir og allt að
25 manna hópur sem hefur skipst
á um að vera í efstu sætunum. Ég
gerði mér vonir um að komast í
15. sætið en þetta var alveg stór-
kostlegt og ég held aö ég hafi
sannað að árangurinn á þriðjudag-
inn var engin tilviljun."
Einar sagðist hafa verið í 5.
sæíi eftir 30 kílómetra en í því
sjötta eftir 40 kílómetrana. „Það
er ekki nokkur vafi á að þrotlausar
æfingar eru að skila sér núna, að
vfsu dálítið fyrr en ég reiknaði með
en það er bara betra," sagði Einar.
Sigurvegari í gær varð landsliðs-
maðurinn Torgen Morgren og var
hann 1,50 mínútu á undan næsta
manni og 5 mínútum og 48 sek-
I úndum á undan Einari.
West Ham og
Watford áfram
Frá Bob Hennesy, fróttamanni Morgun-
blaösins á Engiandi.
ÞEGAR Tony Cottee skoraði fyrir
West Ham á móti Ipswich í ensku
bikarkeppninni f gærkvöldi, höfðu
liðin leikið í samtals rúmlega 5
klukkustundir til að fá úr því
skorið hvort þeirra kæmist í
fimmtu umferð. Sigurmarkið kom
aðeins átta mínútum fyrir lok
framlengingar í þriðja leik liðanna
á fimm dögum. Fyrst varð jafn-
tefli f Ipswich á laugardaginn,
aftur í London á mánudagskvöld
og nú loks fengust úrslit.
I öðrum samskonar langlokuleik
sigraði Watford Manchester City
á útivelli. Sá sigur var þó snöggtum
öruggari. Neil Smiley, John Barnes
og Worrel Stirling komu Watford í
3—0 með mörkum í síðari hálfleik
áður en varamaðurinn Steve Kins-
Ósigrinum tekið
óvenjuvel á Ítalíu
EFTIR ósigurinn gegn Vestur-
Þjóðverjum í knattspyrnu í fyrra-
kvöld, er Ijóst að Enzo Bearzot,
þjálfari ítala, á enn langt f land
með að mynda heilsteypt lið til
að verja heimsmeistaratitilinn f
Mexfkó.
Leikið var á forugum velli í
Avellino, og þó ítalir lékju vel,
einkum framan af, þá vantaði þá
baráttugleðina sem Vestur-Þjóð-
verjar höfðu nóg af. Sigurinn var
kærkominn fyrir þýska, því þeir
höfðu ekki náð að sigra í sex leikj-
Sjónvarpsleikir
SJÓNVARPIÐ á nú aðeins eftir
að sýna tvo leiki frá ensku knatt-
spyrnunni f vetur: Leik West Ham
og Man. United annan laugardag,
og leik Everton og Liverpool 22.
feb. Þá taka við beinar útsending-
ar frá HM í Sviss.
um í röð fyrir leikinn á ítalíu.
Aldo Serena náði forystu fyrir
Ítalíu snemma í leiknum, en félagi
Lárusar Guðmundssonar og Atla
Eðvaldssonar hjá Bayern Uerding-
en, Herget, jafnaði fyrir Þjóðverja,
og sigurmarkið skoraði svo Matt-
haus 15 mínútum fyrir leikslok.
Eftir þessi úrslit er búist við að
aukið líf færist í fyrstudeildarleiki
á (talíu á næstunni, því ýmsar
lykilstöður liðsins eru enn á lausu.
Miðherjanum Altobelli var t.d.
kippt útaf í hálfleik, og líklegt er
talið að liðsstjórnandinn, Ancelotti
frá Roma, missi sæti sitt, líklega
til Di Gennaro, sem leikur með
Verona.
Annars þykir það tíðindum sæta
á Italíu — og í Englandi — að Paul
Ridout, sem leikur með Bari, skuli
hafa náð að skora 6 mörk í deild-
inni, eða fleiri en hinir frægu landar
hans, Mark Hately og Trevor Fran-
cis, til samans.
ey náði að minnka muninn fyrir
City 7 mínútum fyrir leikslok.
í fimmtu umferð keppninnar fá
leikmenn West Ham kollega sína
í Manchester United í heimsókn
og Watford leikur gegn Bury á
heimavelli.
Morgunblaöið/Júlíus
• ívar Webster treður hér knettinum f körfuna hjá Kóflvfkingum og
það er ekki annað að sjá en Sigurður Ingimundarson klappi fyrir
honum.
Ótrúlegir yfirburðir er
Haukar burstuðu ÍBK
HAUKAR sýndu Keflvfkingum svo
sannarlega í tvo heimana er liðin
mættust í úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi. Haukar unnu leikinn með
42 stiga mun, skoruðu 93 stig
gegn 51 stigi ÍBK. Staðan í leik-
hléi var 41:26. Hreint ótrúlegir
yfirburðir Haukanna f þessum
leik.
Já, Haukarnir voru svo sannar-
lega í essinu sínu í gærkvöldi. Þeir
héldu uppi miklum hraða í leiknum
og Keflvíkingar áttu einfaldlega
ekkert svar við mjög góðum leik
Hafnfirðinganna. Haukarnir höfðu
mjög mikla yfirburði, eins og töl-
urnar bara með sér, og þá var
sama á hvaða sviöi það var. Vörnin
var betri, sóknin var betri, hittnin
var betri, sendingarnar voru betri
og svo mætti lengi telja.
Keflvíkingar hófu leikinn að vísu
vel. Þeir komust í 4:9 eftir þrjár
mínútur en síðan ekki söguna
meir því Haukarnir jöfnuðu fljót-
lega og juku síðan forskot sitt út
allan leikinn.
Vörn Keflvíkinga var slök í þess-
um leik. Það sama má segja um
sóknarleikinn hjá þeim. Þar var
allt í molum og þegar þeir sáu að
þeir gætu ekki brotið góða vörn
Hauka á bak aftur létu þeir reyna
á einstaklingsframtakiö og ekki
tókst það frekar en annað sem
þeir reyndu.
Allir leikmenn Hauka léku vel í
gær. Pálmar og ívar Webster voru
góðir en léku ekki mjög mikið
með. Webster var eins og klettur
í vörninni, tók aragrúa frákasta og
lék mjög vel. Eyþór Árnason,
Henning Henningsson og ekki síst
Ólafur Rafnsson áttu góðan leik,
bæði í sókn og vörn.
Lítið var um fína drætti hjá
Keflvíkingum að þessu sinni. Liðið
lék langt undir getu og víst er að
varla eiga þeir eftir að leika jafn
illa það sem eftir er vetrar.
Stig Hauka: Ólafur Rafnsson 21, Pálmar
Sigurðsson 19, Henning Henningsson 18,
Eyþór Árnason 15, ívar Ásgrímsson 8, ívar
Webster 8, Kristinn Kristinsson 2, Bogi Hjálm-
týsson 2.
Stig ÍBK: Siguröur Ingimundarson 11,
Guðjón Skúlason 10, Hreinn Þorkelsson 9,
Magnús Guöfinnsson 6, Jón Kr. Gislason 5,
Hrannar Hólm 4, Þorsteinn Bjarnason 4, Ing-
ólfur Haraldsson 2.
- ágás
Paul Walsh
tekinn í sátt
Prá Bob Henneaay, fréttaritara Morgun-
blaðsinsáEnglandi.
PAUL Walsh, miðherji Liverpool,
hefur nú bundið enda á nokkurra
mánaða deilu við forystumenn
félagsins með því að óska eftir
'að verða tekinn af sölulista.
Walsh fór fram á að vera seldur
til annars fólags þann 5. október
sl. þegar hann var tekinn úr lið-
inu, en eftir marga frábæra leiki
að undanförnu, og 18 mörk í
vetur, hafa nú tekist sættir með
honum og Dalglish, fram-
kvæmdastjóra liðsins.
Reading, langefsta liðið í þriðju
deild, hefur fest kaup á hinum 27
ára fyrirliða Brentford, miðjuleik-
manninum Terry Hurlock. Kaup-
verðið, 90 þúsund pund, er eitt
hið allra hæsta sem um getur hjá
þriðjudeildarliði í Englandi.
Paul MacGrath, miðvörður
Manchester United, undirritaði f1
gær nýjan 5 ára samning við félag-
ið. Hann er fjórði leikmaður liðsins
á skömmum tíma sem gerir lang-
tímasamning sem þennan. Áður
hafa Bryan Robson, Gary Baily og
Norman Whiteside gert 5—6 ára
samninga.
— varð níundi í 50 kílómetra göngu
Einars Ólafssonar