Morgunblaðið - 07.02.1986, Page 48
HLEKKURIHBMSKBMU
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Sænsk yfirvöld framselja mann til íslands:
Handtekinn með
•stolið greiðslukort
LIÐLEGA tvitugur maður var í liðinni viku handtekinn á
hóteli í Svíþjóð grunaður um misnotkun með greiðslukort.
Hann var tekinn þegar hann hugðist framvísa stolnu
greiðslukorti til greiðslu reiknings. Maðurinn var framseld-
ur til íslands og fóru tveir rannsóknarlögreglumenn um
helgina til Svíþjóðar og komu með hann á þriðjudag. Hann
hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. mars næst-
komandi að kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins, en ekki
er vitað um umfang svikastarfsemi hans. Þetta er í þriðja
sinn sem maðurinn er handtekinn fyrir að stela greiðslu-
korti og í annað skiptið, sem það gerist erlendis.
Óttast er að svik mannsins nemi
j^mtalsverðum flárhæðum. Hann
Getekki
lifað af
laununum
— segir Guðrún Helga-
'dóttir alþingismaður
GUÐRÚN Helgadóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins,
sagði í umræðum um bflafríð-
indi ráðherra á Alþingi i gær,
að hún gæti ekki Iifað af laun-
um sínum sem alþingismaður.
Óskaði hún eftir þvi, að Alþingi
tæki til umræðu störf og kjör
þingmanna.
Guðrún sagði, að laun þing-
manna væru ekki nógu há. Hún
upplýsti að laun þingmanna væru
nú 68.128 krónur á mánuði og sjálf
fengi hún um 40.000 krónur greidd-
ar út, þegar skattar hefðu verið
dregnir af henni. Hún nefndi að
L þingmannslaun væru mun lægri en
laun ýmissa annarra, svo sem
embættismanna hjá ríkinu, verka-
lýðsforingja og þingfréttaritara.
Sjá bls. 28: Ráðherrabílar
með einkabflstjórum nauð-
synlegir
fór til Norðurlanda þann 4. janúar
síðastliðinn með stolna greiðslu-
kortið. Greiddi flugfarseðil til Norð-
urlanda með kortinu og falsaði
undirskrift korthafa. Maðurinn
hefur um mánaðarskeið ferðast um
Norðurlönd, búið á hótelum og
greitt reikninga með greiðslukort-
Sem fyrr segir er þetta í þriðja
sinn, sem honum tekst að stela
greiðslukorti. í fyrsta skiptið sveik
hann út vörur og þjónustu fyrir um
25 þúsund krónur. f vetur komst
hann yfír annað kort og þá tókst
honum að svíkja út fé fyrir liðlega
200 þúsund krónur. Þá eins og nú,
fór hann úr landi og var handtekinn
í Kaupmannahöfn.
Drengir á Djúpavogi með tvö duflanna.
Morgunblaðið/Ingimar
Fjögur dufl á Djúpavogi
ÞRJÚ dufl hafa fundist rekin
á fjörur í nágrenni Djúpavogs
og hluti úr þvi fjórða kom í
troll togarans Sunnutinds. Að
sögn Sigurðar Gíslasonar lög-
reglumanns á Djúpavogi virð-
ast þau öll vera einhverskonar
hlustunardufl og að minnsta
kosti eitt framleitt í Bandaríkj-
unum.
Duflin sem fundust rekin voru
á fjörum við Framnes inni í Beru-
fírði, á söndunum fyrir utan flug-
völlinn á Djúpavogi og á söndun-
um í Þvottáreyjum í Álftafirði.
Sagði Sigurður að Landhelgis-
gæslan hefði verið látin vita og
tækju sprengjusérfræðingar
hennar duflin í sina vörslu við
hentugleika.
Bílsljóri hjá Mjólkursamsölunni handtekinn:
Segist hafa selt stolna
vöru í um 20 verslanir
UNGUR fyrrum starfsmaður
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
hefur viðurkennt að hafa stolið
mjólkurvörum og selt á allt að
hálfvirði í um 20 verslanir á
Reykjavíkursvæðinu. Maðurinn
var handtekinn eftir að Rann-
sóknarlögreglu rfldsins barst
beiðni frá forráðamönnum
Mjólkursamsölunnar um opin-
bera rannsókn á þvi, hvort mjólk-
urvörum hafi verið stolið og þær
seldar kaupmönnum, jafnvel á
hálfvirði.
Ungi maðurinn hefur verið úr-
Borgarsljóri býður
ASI bárujárnshúsið
við Bergþórugötu
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík, Davíð Oddsson, hefur boðist tíl
að beita sér fyrir þvi í borgarstjórn, að Alþýðusambandi íslands
verði gefið umtalað bárujárnshús við Bergþórugötu í Reykjavík
gegn þvi skilyrði, að hreyfingin láti gera húsið upp og sjái um
vemdun þess. Svar hefur ekki borist við boði borgarstjóra, að
þvi er hann sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær.
Umrætt hús við Bergþórugötu
er eitt fyrsta húsið, sem byggt
var á félagslegum grundvelli fyrr
á öldinni fyrir forgöngu Alþýðu-
sambandsins. Það stendur nú á
skjön við skipulag og hafa verið
uppi um það hugmyndir í borgar-
kerfínu að láta rífa húsið. Davíð
Oddsson, sem nýlega gerði fræg-
an dægurlagatexta um „báni-
járnshús við Bergþórugötuna",
sagðist hafa haft samband við
Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ,
og tjáð honum að fyrst húsið
væri verkalýðshreyfingunni svo
mikils virði, þá myndi hann vera
fús til að beita sér fyrir því að
hreyfingunni yrði gefíð húsið með
nefndum skilyrðum.
„Mér fínnst rétt að koma til
móts við verkalýðshreyfínguna að
þessu leyti fyrst talið er að húsið
sé svo gagnmerk menningarsögu-
leg heimild," sagði hann. „Ég hef
rætt þessa hugmynd við formann
umhverfísmálaráðs borgarinnar
og fengið mjög jákvæðar undir-
tektir."
Borgarstjóri kvaðst ekki vita
hversu mikill kostnaður væri því
samfara að gera húsið upp en
samkvæmt þeim skýrslum, sem
hann hefði fengið, þá væri það
mjög illa farið.
Morgunblaðið/Emilfa
Bárujárnshúsið við Bergþórugötu, sem borgarstjóri vill gefa
Alþýðusambandi íslands vegna menningarsögulegs gildi þess.
skurðaður í gæsluvarðhald til
mánudagsins að kröfu Rannsóknar-
lögreglu ríkisins vegna rannsóknar
málsins. Hann starfaði sem bflstjóri
hjá Mjólkursamsölunni og sá því
um dreifingu mjólkurvöru. Hann
mun hafa hafíð störf fyrir um sex
mánuðum. Rannsókn er á frumstigi
og varðist RLR frétta af henni, en
staðfesti að játning lægi fyrir. í gær
voru allmargir kaupmenn kallaðir
til yfírheyrslna hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins vegna rannsóknar
málsins.
Grunur leikur á, að einkum mjólk
og ijómi hafí verið tekin óftjálsri
hendi og seld kaupmönnum. Mjólk-
ursamsalan er sjálfseignarstofnun
bændasamtakanna og dreifír mjólk-
urvöru á höfuðborgarsvæðinu.
Fiskverðs-
fundur í dag
ERFIÐLEGA gengur nú að ná
samkomulagi um fískverð. Veldur
því bág staða fiskvinnslunnar og
óvissa um áframhaldandi þróun ol-
íuverðs. Ennfremur telja sjómenn
erfítt að ganga til samkomulags,
þegar almennir kjarasamningar
liggja ekki fyrir^ en laun þeirra taka
mið af þeim. Á hinn bóginn telja
menn erfítt að ná almennum kjara-
samningum, þegar fískverð liggur
ekki fyrir. Yfímeftid Verðlagsráðs
sjávarútvegsins kemur saman til
fundar i dag.
)