Morgunblaðið - 09.03.1986, Qupperneq 30
ífí
30
88€i SHÍJ4 .P. ItUPA<lUHWU2.SldAJa'/IUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDAGUR9. MARZ 1986
Á
gömlum vöruloftum haf a
gerst ótrúlegustu
atburðir. Rykfallnar
útstillingarbrúður hafa
risið upp við dogg og
farið að tala. Inn í
þéttvöfnum
efnisströngum úr
kínasilki hafa fundist
uppdrættir af löngu
gleymdum fjársjóðum.
Svo ekki sé minnst á
draugana, sem ganga þar
ljósum logum, því
einhvers staðar verða
þeir jú að eiga heima.
„Veit mamma
hvað ég vil?“
— er nafn á unglingaleikhúsi í Reykjavík, sem hefur innan sinna vébanda
90 félaga. Um midjan mars frumsýnir hópurinn sakamálaleikritið
jBeðið í myrkri“ eftir Prederick Knott undir leikstjóm Péturs Einarssonar
Á þessu vörulofti sem við erum nú
stödd, er búið að hreinsa út alla
dulúð og draugagang og mála hvítt.
í staðinn ríkir þama æskublómi af
bestu gerð. Því þama er til húsa
unglingaleikhús, sem er rekið eins
og hvert annað leikhús, sem auk
þess verður að standa undir sér.
Verið er að undirbúa sýningu á
sakamálaleikrítinu „Beðið í myrkri"
(Wait until Dark) eftir Frederick
Knott. Að unglingaleikhúsinu, sem
kallar sig :„Veit mamma hvað ég
vil?“, standa 90 manns á aldrinum
14-23 ára. Það sem bindur þau
saman er brennandi áhugi á leiklist.
Ekki bara því að leika, heldur öllu,
sem þar kemur við sögu, eins og
sviðsmjmd, búningum, ljósatækni,
tónlist og leikritun.
Þau hafa mörg einhveija reynslu
af leiklist. Hafa verið á leiklistar-
námskeiði í skólunum eða leikið í
leikriti. Frumkvöðlamir hafa meira
að segja tekið þátt í leiklistarhátíð.
Sú var haldin í Lapperanta í Finn-
landi í tilefni af ári æskunnar undir
heitinu Unge Norden.
Einn þessara ungu manna, sem
fluttu listina út er Felix Bergsson.
Honum segist svo frá: „Okkur var
boðið að fara á þessa hátíð með
leikrit sem við höfðum samið sjö
skólafélagar úr Hagaskóla. Það
fjallaði um stráka, sem fluttu að
heiman og segir frá því hvemig
þeim gengur að pluma sig eftir að
hafa losað sig við það sem bagaði
þá heimafyrir.
Leikritinu var vel tekið, en við
héldum þama eina sýningu. Textinn
komst líka ágætlega til skila, því
við notuðum látbragð til að styðja
hann.“
Já, þannig kviknaði áhuginn.
Felix og félagar hann ræddu iðu-
lega þann möguleika að stofna
unglingaleikhús, þar sem saman
væri kominn blómi ungs áhugaleik-
fólks. Það varð úr að þeir auglýstu
stofnfund þessara samtaka í skól-
unum í september síðastliðnum.
Þórunn Helgadóttir Inga Björk Hjaltadóttir
„Við vissum ekki á hveiju við
ættum von og vorum bæði undrandi
og ánægð þegar 40 manns mættu
á fundinn og síðan hefur flölgað
sífellt og nú em 90 félagar skráðir,
sem em þó mis virkir, segir Felix.
En það er fleira, sem hékk á
spýtunni, en einber áhugi á leiklist.
„Við vomm nokkur skólasystkini
að tala um þetta ár æskunnar.
Voram við öll sammála um að það
hefði nákvæmlega ekkert komið út
úr því. Við töluðum um allar
mömmumar, sem vora í nefndinni,
sem áttu að skipuleggja þetta ár.
Þær höfðu ekki hugmynd um hvað
við vildum," segir Felix.
„Hvemig hefðu þær svosem átt
að vita það, þær töluðu aldrei við
okkur!" grípur Vilhjálmur Hjálm-
arsson fram f, hann er formaður
leikfélagsins.
„Það var einmitt, þegar við vor-
um að ræða þetta, sem nafnið á
leikhúsinu okkar varð til „Veit
mamma hvað ég vil?,“ heldur Felix
áfram.
„Því þessar mömmur vissu ekki,
að við höfum þörf fyrir að gera
hlutina sjálf án afskipta þeirra full-
orðnu. Við viljum ekki láta hugsa
né framkvæma fyrir okkur. Við
viljum reyna okkur sjálf."
Þó að hér sé verið að gagnrýna
er engan nöldurtón að finna, miklu
fremur blásið í lúður.
„Við ætlum að standa að einni
sýningu á ári og virkja eins marga
og mögulegt er í þeirri sýningu.
Við viljum sýna hvað í okkur býr.
En leikritið, „Beðið í myrkri" er
tæknilega mjög erfitt og ef okkur
tekst að koma því vel til skila þá
getum við hvað sem er,“ segir Felix.
„Við höfum líka í hyggju að vera
með götuleikhús og uppákomur
ýmiss konar," segir Þórann Helga-
dóttir, en hún fer með aðalhlutverk-
ið í þessari fyrstu uppfærslu ungl-
ingaleikhússins.
„Auk þess er verið að vinna að
Til hagræðis fyrir þá sem eru að
byggja - breyta - eða bæta.
20% afsláttur
Grensásvegi 18, sími 82444.
Líttu inn í Litaver, því það hefur ávallt
borgað sig.
Sendum í póstkröfu.
Litaver — Litaver — Litaver
Ekki vikið frá
áætlunum um
aukið sjálfræði
á vesturbakkanum
Tel Aviv, 6. mars. AP.
SHIMON Peres, forsætisráð-
herra ísraels, sagði á fimmtudag
að hann myndi ekki vikja frá
áætlunum um að veita Palestínu-
mönnum á vesturbakka árinnar
Jórdan, sem ísraelar hertóku,
aukið sjálfræði. Hann sagðist
hins vegar ekki samþykkja að
þar yrðu haldnar bæjar- og
sveitastjórnarkosingar nú.
Peres sagði að sorgin vegna
morðsins á Zafer Al-Masri, borgar-
stjóra í Nablus, bæri því órækt vitni
að hann hefði notið lýðhylli. ísraels-
stjóm skipaði borgarstjórann í
embætti.
„Fjöldinn vó ekki Al-Masri, það
vora þijár byssukúlur,“ sagði Peres
á blaðamannafundi: „Haldið þið að
ég skípti um skoðun vegna þriggja
byssukúlna."
NÁMSKEIÐ
Myndræn tjáning —
„Art TherapyM-tækni
Námskeiðið er ætlað kennurum, þroskaþjálfum, fóstrum, fangelsis-
vörðum og fólki úr heilbrlgðisstéttum.
Byggt er á þvi viöhorfi að mikils ósamræmis gæti á milli hinna andlegu
og veraidlegu þátta í lífi nútímamannsins.
Á námskelöinu kynnast þátttakendur:
★ Markvissri sjálfstjáningu I eigin myndsköpun.
* Markvissri sjálf sskoðun (gegnum eigin myndsköpun.
Námskeiðið verður haldið aö Klapparstíg 28 hvert miðvikudagskvöld
milli kl. 18 og 2119.3-23.4. nk.
Leiðbeinandi veröur Sigríöur Björnsdóttir listmeöferöarfræöingur. Inn-
ritun og upplýsingar i síma 17114 fyrir hádegi.