Morgunblaðið - 09.03.1986, Page 47

Morgunblaðið - 09.03.1986, Page 47
 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1986 47 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Iðnfræðingur 24 ára iðnfræðingur með sveinspróf í húsa- smíði óskar eftir fjölbreyttu starfi tengdu byggingariðnaðinum. Getur hafið störf strax. Upplýsingar í síma 11933. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVlK Staða forstöðumanns Auglýst er til umsóknar ný staða forstöðu- manns sambýlis fyrir fatlað fólk í Reykjavík. Ráðgert er að heimilið taki til starfa þ. 1. júlí nk. Væntanlegur forstöðumaður mun annast undirbúning starfseminnar í samráði við viðkomandi aðila. Laun skv. kjörum opin- berra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendistfyrir21. mars nk. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Hátúni 10 105 Reykjavík. Viðskiptafræðingur Framkvæmdastjóri Fyrirtækið er öflugt þjónustufyrirtæki í Reykjavík sem m.a. tengist útgáfustarfsemi. Starfið felst í stjórnun á daglegum rekstri fyrirtækisins, skrifstofuhaldi, fjármálastjórn- un og samningagerð, auk annarra stjórnun- arstarfa. Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé við- skiptafræðingur eða hafi sambærilega menntun. Leitað er að dugmiklum karli eða konu sem hefur reynslu af rekstrarstjórnun og hæfileika til að takast á við krefjandi starf. Ráðning er sem fyrst eða eftir nánara sam- komulagi. Umsóknarfrestur ertil 14. mars 1986. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstof unni frá kl. 9-15. Afleysinga- og rádnmgaþjónusia Lidsauki hf. Skólavörðustig ta - IOI Reykjavik - Simi 621355 9 Dagvistarheimili — störf Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir- taldar stöður lausar til umsóknar: Við Dagvistarheimilið Marbakka sem tekurtil starfa í maí n.k. 1. Fóstrur. 2. Starfsfólk við uppeldisstörf. 3. Matráð. Upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í síma 41570. 4. Staða fóstru á leikskólann Kópahvol. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 40120. 5. Staða fóstru á dagvistarheimilinu Kópa- seli. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 84285. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmála- stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Umsóknarfrestur er til 19. mars n.k. Nánari upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í síma 41570. Félagsmálastjóri. Sölumaður Við ætlum að ráða hæfan sölumann (eða konu) til að selja ritföng ofl. Fyrirtækið hefur mjög góð umboð og er þekkt fyrir góða þjónustu. Góð laun fyrir réttan aðila og góð vinnuaðstaða. Umsóknir ásamt meðmælum, ef til eru sendist augl.deild Mbl. fyrir 12. mars, merkt: „Sölustarf — 0345". Ritari aftur á vinnumarkaðinn Heildverslun, staðsett í Skeifunni vill ráða konu til að sjá m.a. um vélritun- skjalavörslu- telex. Enskukunnátta nauðsynleg. Tilvalið fyrir konur með reynslu, sem eru að fara aftur á vinnumarkaðinn. Um er að ræða fullt starf en til greina kemur að ráða tvær konur í hálft starf. Umsóknir er tilgreini aldur og starfsreynslu sendist skrifstofu okkar, fyrir 14. marz nk. GijðntTónsson RAÐCJOF & RAÐN I NCARÞJON USTA TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322 Starfsfólk óskast í eftirtalin störf: 1. Afgreiðslumaður í varahlutaverslun (raf- tækja — heimilistækja o.fl.). 2. Vandvirkur og þolinmóður maður í sauma- vélaviðgerðir. 3. Rafeindavirki á hljómtækjaverkstæði. 4. Laghentur og vandvirkur maður í útvarps- ísetningar í bíla o.fl. 5. Símavarsla, hálft starf. Skriflegar umsóknir sendist sem fyrst til Einars L. Gunnarssonar þjónustustjóra, sem einnig veitir nánari upplýsingar. ]unnai Sfysehtöon Lf. Suðurlandsbraut 16, sími 35200. Rafeindavirki Raftækn if ræði ng u r Við leitum að rafeindavirkja eða raftæknifræðingi til starfa hjá IBM á íslandi við tæknisvið þess. Starfið felst m.a. í viðhaldi, uppsetningu, breytingum og eftirliti tölvubúnaðar. Leitað er að aðila með trausta og örugga framkomu, sem er þægilegur í allri um- gengni, er stundvís og reglusamur og hefur til að bera lipurð og snyrtimennsku. Enskukunnátta nauðsynleg. Starfsþjálfun í upphafi starfs fer fram að hluta erlendis. Æskilegur aldur 22-28 ára. Góð laun í boði fyrir réttan aðila ásamt þægilegri og skemmtilegri vinnuaðstöðu. Þar eð hér er um að ræða sérstakt tækifæri til að öðlast gott framtíðarstarf hvetjum við alla þá er vilja takast á við nýtt og krefjandi verkefni, að hafa samband og ræða málin í algjörum trúnaði. Eiginhandarumsóknir er tilgreini aldur, menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir 15. mars nk. ClJÐNT TÓNSSON RÁÐCJ ÖF & RÁÐN l N CARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra á vörubíl. Umsóknir sendist auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 11. mars nk. merktar: „B-1046". Starfskraftur Okkur vantar starfskraft til vinnu við léttan iðnað. Uppl. í síma 83519 mánudaginn 10. mars. Etna hf., Grensásvegi 7. Skrifstofustarf Rótgróið iðnfyrirtæki nálægt Hlemmi vill ráða stúlku á skrifstofu. Verksvið: vélritun, innsláttur á tölvu, gerð iaunaseðla, útskrift reikninga, smávegis bók- hald. Þarf að hafa starfsreynslu og bókhalds- kunnáttu, vera hress og kát og hafa frum- kvæði. Góð laun. Umsóknir sendist skrifstofu okkar sem fyrst. QjðntTónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN l NCARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 óskar að ráða sölumann til að kynna og selja framleiðsluvörur fyrirtækisins, brauð og kökur. Starfið felst í að heimsækja viðskiptavini og halda vörukynningar. Starfið krefst þess að væntanlegur starfs- maður: — Hafi frumkvæði og geti unnið sjálfstætt. — Komi vel fyrir og eigi auðvelt með að umgangast fólk. í boði er áhugavert og lifandi starf hjá traustu fyrirtæki með vörur í sérflokki. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf skulu sendar fyrirtækinu fyrir 13. mars nk. Brauð hf., Skeifunni 11. Kópavogur— sumarstörf Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir starfsfólki til eftirtalinna sumarstarfa: 1. íþróttavellir: Aðstoðarfólk. 2. íþróttir og útilíf: íþróttakennari og leið beinendur. 3. Leikvellir: Aðstoðarfólk. 4. Skólagarðar: Leiðbeinendur og aðstoð- arfólk. 5. Starfsvellir: Leiðbeinendur. 6. Vinnuskóli: Flokksstjórar. 7. Siglingaklúbbur: Aðstoðarfólk. í sumum tilfellum gæti verið um að ræða starfsfólk með skerta starfsorku. Sótt skal um hjá Vinnumiðlun Kópavogs, Digranes- vegi 12 og eru nánari upplýsingar gefnar þar, sími 46863. Aldurslágmark umsækjenda er 16 ár. Umsóknarfrestur er til 14. apríl nk. Innritun í vinnuskóla Kópavogs fer fram í maímánuði. Nánarauglýstsíðar. Félagsmálastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.