Morgunblaðið - 09.03.1986, Qupperneq 62
62
•(" vfy\ / enjí>A0im:m,2K /aiamic->:ov
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ1986
IÞROTTIR UNGLINGA
UMSJÓN/ VILMAR PÉTURSSON
Körfuboltaúrslit
3. flokkur pilta, A-riöill, 3. umferð: (R-Valur 52-54
KR-lBK 56:68
Ir-kr 73:43
Valur-lBK 52:74
IR-IBK 77:67
KR-Valur 81:86
Valur, ÍR og ÍBK eru öll jöfn og efst meö 4
stig. 4. flokkur pifta, B-riðlll, 3. umferð: lA —Þór 56:43
lA-Valur 38:51
Valur — Þór 62:48
lA—(R-b 61:25
UBK-lR-b 32:40
UBK-Valur 16:51
iR-b-Þór 41:49
Þór-UBK 45:35
Valur-lR-b 48:17
ÍA-UBK 45:15
Sigurvegari Valur með 8 stig. 4. flokkur pilta, B-rlðlll, 2. umferð: Tindastóll — Víkingur Ól. 41:63
Þór — Tindastóll 44:37
Þór — Víkingur Ól. 28:36
Sigurvegari Víkingur, Ólafsvík, með 4 stig.
4. flokkur pllta, C-riðill, 2. umferð: lA-lR-b 62:21
iR-b-UBK 33:47
UBK-lA 23:42
Slgurvegari (A með 4 stig. 5. flokkur pltta, A-riðill, 2. umferð: IBK-UMFN 25:33
KR — Haukar 10:42
(R-UMFN 30:33
(BK — Haukar 28:49
IR-KR 37:27
|R — Haukar 26:39
KR-UMFN 28:34
ÍBK-KR 28:18
UMFN —Haukar 38:30
(BK-lR 32:15
Sigurvegari UMFN með 8 stig.
5. flokkur pltta, C-riðlll, 2. umferð:
ÍR-b-UMFS 25:32
ÍA — ÍR-b 20:24
UMFS-lA 25:20
UMFS sigurvegari með 4 stig.
6. flokkur pitta, B-riðlll, 3. umferð:
Valur-KR 24:40
Valur—Haukar-b 36:34
Haukar-b — KR 21:33
KR-UMFS 70:30
Valur —UMFS 42:23
Haukar-b — UMFS 53:13
Sigurvegari KR með 6 stig.
MorgunblaðiA/VIP
• Þeir Ami Ævarsson t.v., Þórólfur Gufinason í mifiifi og Pétur
Þórðarson einbeittir á svip enda er myndin tekin rótt fyrir úrslitaleik
á móti UMFG.
• Þrátt fyrir afi vera höffiinu
lœgri en allir mótherjamir smýgur
hann á milli þeirra allra og undir-
býr körfuskot af einbeitingu ungl
Grindvíkingurinn sem vifi sjáum
á þessari mynd innan um frum-
skóg af Haukamönnum.
Höfum unnið
seinustu 5 leiki
- segja ÍA-strákarnir Ární, Þórólfur og Pétur
SKAGASTRÁKARNIR Ámi Æv-
arsson, Þórólfur Guðnason og
Pátur Þórfiarson eru í S. flokki
körfuknattleiksdeildar ÍA og voru
þvf afi sjálfsögöu mættir til leiks
þegar lokaumferfi í B-rifili 5.
flokks fór fram í Grindavfk dagana
1.—2. mars. Þeir voru spurðir um
hvernig körfuboltanum vegnaði f
fótboitabænum þar sem sá frægi
kútter Haraldur lagðist löngum
afi bryggju.
„Það er nú meiri áhugi á fótbolta
en körfubolta," svöruðu kapparnir
og héldu að einungis væru 3 flokk-
ar starfræktir í körfubolta á Akra-
nesi. „En okkur hefur gengið vel.
Við mættum ekki í fyrstu umferð-
ina því við vorum ekki byrjaðir að
æfa. I annarri umferð unnum við
C-riðilinn og höfum keppt í B-riðlin-
um síðan og höfum unnið 5 síðustu
leiki okkar þar,“ bættu Skagastrák-
arnirvið.
Ekki töldu strákarnir aö það
væri mjög dýrt fyrir fjölskyldur
þeirra að styrkja þá í að fara
keppnisferðir sem þessar því þeir
fengju ókeypis rútuferðir og þyrftu
ekki nema svona 300 krónur í
vasapening. Það er ekki óhófinu
fyrir að fara hjá Skipaskagastrák-
unum.
Morgunblaðið/VIP
• „Ég var að háma f mig braufi og þetta skeður alltaf," gæti raufii klárinn hér á myndinni verið
afi hugsa þegar hann fylgist með Þráni Frifirikssyni rogast út með afurðir næturinnar.
Unglingahesthús í Kópavogi:
Krakkarnir skiptast á
um að hirða hestana
í VETUR hefur viðrað einstak-
lega heppilega fyrir þau fjöl-
mörgu ungmenni sem leggja
stund á hestamennsku og ekki
er lakari tfmi framundan þegar
björt vorkvöldin freista hesta-
manna tii að rfða klárum sfnum
fram á nætur.
Hafi krakkarnir farið rólega af
stað í byrjun og gætt þess aö
ofgera ekki klárunum sínum ættu
þeir að vera komnir í fljúgandi
form um páska vel viljugir og
færir um að uppfylla óskir eig-
enda sinna.
En ekki geta þó allir þeir krakk-
ar sem hafa áhuga á hesta-
mennsku lagt stund á hana m.a.
vegna þess að þau hafa ekki
aðgang að þeirri aðstöðu sem
ungum hestamönnum er nauð-
synleg.
Hestamannafélagið Gustur i
Kópavcgi og tómstundaráð þar
í bæ gefa ungum hestamönnum
sem ekki eiga í nein hús að venda
með hesta sína kost á plássi fyrir
þá auk þess sem þeir fá aðstoð
og leibeiningu um hina fjölmörgu
þætti hestamennskunnar.
Krakkarnir sem taka þátt í
þessum samyrkjubúskap skipta
með sér verkum á þann hátt að
fimmtu hverja viku þarf hver og
einn að sjá um að gefa hrossun-
um og moka flórinn.
Einn kaldan laugardag íjanúar
voru þessir krakkar heimsóttir
og þau tekin tali.
Danskir
hestar
hálfgerðir
aumingjar
— segja systurnar Birgitta og Silja
SYSTURNAR Silja Björg og
Birgitta Róbertsdætur eru með
sinnhvorn hestinn í unglinga-
húsinu hjá Gusti og voru þær
spurðar hvenær þær hefðu
fengið áhuga á hestamennsku.
„Við áttum heima í Danmörku
og vorum í reiðskóla þar. Dönsku
hestarnir eru nú hálfgerðir aum-
ingjar og ekki nærri því eins
sterkir og íslensku hestarnir. Ef
það er kalt mega þeir ekki vera
úti, þeir geta bara verið úti ef
það ersól.“
( fyrra fengu systurnar síöan
sinnhvorn hestinn að gjöf, annan
skjóttan 4 vetra og er hann ekki
fulltaminn enn og sögðust þær
þurfa aðstoð við að fulltemja
hann. Hinn hesturinn er rauður
9 vetra. Báðir eru hestarnir tölt-
arar.
Systumar voru ekki búnar að
fara á bak þegar unglingaíþrótta-
síðan hitt þær enda nýbúnar að
láta járna. „Við förum á bak í
næstu viku,“ sögðu þær systur
hressilega.
Gripinn í
gegningum
í flórnum í unglingahúsinu stóð
Þráinn Friðriksson og þeytti
hrossaskit af mikium móð uppí
hjólbörur og var atgangurinn
svo mikill að félagi hans Kristján
Benjamínsson mátti hafa sig
allan við að fá ekki á sig ilmandi
hrossaskítinn.
Þráinn sagðist vera með hest
þarna í húsinu en Kristján hefði
komið með til að hjálpa honum
við skyldustörfin því það væri
hans vika í gegningunum. „Ætli
maður verði ekki að leyfa honum
að fara á bak að launum fyrir
hjálpina," sagði Þráinn þegar
hann var inntur eftir hvernig hann
ætlaði að launa félaga sínum
aðstoðina.
—