Morgunblaðið - 05.04.1986, Side 3

Morgunblaðið - 05.04.1986, Side 3
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL1986 Háskólinn og atvinnulífið STÚDENTAFÉLAG Reykjavíkur efndi í gær til ráðstefnu um Háskóla íslands og atvinnulifið. Fór ráðstefnan fram í Kristalsal Hótels Loftleiða. Flutt voru 9 erindi um efni ráðstefnunnar. Samningamál flugmanna: Viðræðum frest- að fram á vorið ÚTLIT er fyrir að samningavið- ræðum Flugleiða og Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna (FÍA) muni verða frestað næstu vik- urnar, að því er Morgunblaðið fregnaði i gær. Það varð niður- staðan af fundi stjórnar og trún- aðarmannaráðs FÍA í fyrra- kvöld. Eins og fram kom í frétt í Morg- unblaðinu í gær hafa viðræður flug- manna og Flugleiða staðið yfir undanfamar vikur án þess að veru- lega hafi miðað í samkomulagsátt. Flugmenn, sem eru utan Alþýðu- sambands íslands, gera kröfu um verulegar launahækkanir umfram það, sem samið var um á milli launþegasamtakanna og vinnuveit- enda fyrir fimm vikum. Nú telja flugmenn, skv. upplýs- ingum blaðsins, að samningsstaða þeirra muni verða betri þegar kemur fram á vorið og meira verður að gera í farþegaflugi. Hefur því ekkert verið ákveðið um frekari fundahöld samninganefndar FÍA og stjómenda Flugleiða. Ríkissáttasemjari: Arangnrslaus fundur í deilu skipstjóra ENGIN niðurstaða varð af fjög- urra stunda löngum sáttafundi i deilu Skipstjórafélags tslands og skipafélaganna hjá ríkissátta- semjara í gærmorgun. Nýr fund- ur hefur ekki verið boðaður. Skipstjórafélagið ldauf sig út úr samningum Farmanna- og fiski- mannasambandsins fyrr í vetur og hefur leitað eftir sjálfstæðum samningum við skipafélögin og ríkið (fh. Landhelgisgæslunnar og Ríkisskipa). Þær viðræður hafa verið án árangurs til þessa. Eftir helgi verður boðaður fundur í deilu Sambands veitinga- og gisti- húsa (SVG) og Félags starfsfólks í veitingahúsum, sem boðað hefur sólarhrings verkfall frá hádegi næsta föstudag. Veitingamenn og fulltrúi Vinnuveitendasambands ís- lands hittust í gærmorgun til að ræða stöðu mála en af þeim fundi varð engin sérstök niðurstaða, að sögn Skúla Þorvaldssonar, for- manns SVG. „Við getum ekkert gert nema beðið eftir verkfallinu," sagði Skúli í gær. „Það er búið að gera þjóðarsátt um kjaramál í landinu og við getum því ekkert boðið þessu fólki umfram aðra. Það hefur það enda ekki slæmt." Þá hefur ríkissáttasemjari boðað sáttafund í deilu bílstjórafélagsins Sleipnis og Félags sérleyfishafa á þriðjudaginn. Sleipnismenn felldu nýgerðan samning ASÍ og vinnu- veitenda í atkvæðagreiðslu. Einnig hafa bílstjórar hjá Land- leiðum (sem eru utan ASÍ) fellt samninginn. Viðræður bílstjóranna og fyrirtækisins standa yfir en ekki er talið ólíklegt, að deilunni verði visað til ríkissáttasemjara. Munum ræða niður- greiðslur Norð- manna í skipasmíði — segir Albert Guðmundsson, iðn- aðarráðherra sem sljórnar ráð- herrafundi EFTA „VIÐ munum að sjálfsögðu bera upp mál sem snerta hagsmuni íslands og meðal annars munum við ræða niðurgreiðslur Norð- manna á skipasmíðatilboðum,“ sagði Albert Guðmundsson, iðn- aðarráðherra, en hann er nú á förum til Genfar, þar sem hann mun stýra ráðherrafundi EFTA. I föruneyti ráðherrans verða fulltrúar íslenskra atvinnuvega, Guðmundur H. Garðarsson full- Sænska aka- demían 200 ára SÆNSKA akademían á 200 ára afmæli í dag 5. apríl. Af því til- efni sendir íslensk málnefnd henni svo hljóðandi skeyti: íslensk málnefnd ámar yður allra heilla á merkum tímamótum. Stór- brotið starf yðar til eflingar tungu og bókmenntum vekur aðdáun vora og má vera oss íslendingum og öðrúm þjóðum lýsandi fordæmi. i Genf trúi ASÍ, Finnur Geirsson frá Verslunarráðinu, Magnús Gunn- arsson fulltrúi VSÍ og Ólafur Davíðsson frá Iðnrekendum. Albert kvaðst ekki hafa undir höndum endanlega dagskrá ráð- herrafundarins. „Eg mun á mánu- daginn ræða við embættismenn Fríverslunarbandalagsins til að undirbúa ráðherrafundinn, sem verður haldinn dagana 8. og 9. apríl. Skipasmíðatilboð Norðmanna verða annaðhvort sett á dagskrá fundarins eða þá rædd á sérfundum. Við munum leggja áherslu á að fá umræðu um þessi mál og við munum þar setja fram okkar sjón- armið", sagði iðnaðarráðherra. Albert sagði að hann hefði átt fundi með fulltrúum atvinnuveg- anna hér heima til að undirbúa viðræðumar í Genf og jafnframt myndu þeir eiga frekari viðræður saman úti í Genf til að bera saman bækur sínar um þau mál,_sem sér- staklega snerta hagsmuni íslands. DAIHATSU Allirgæðabílarnirfrá Daihatsu Daihatsuumboðið Ármúla 23, s. 685870 -681733

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.