Morgunblaðið - 05.04.1986, Síða 7

Morgunblaðið - 05.04.1986, Síða 7
. mf iíwio tyMMW&h ,c«q A\ts vnjwíWfi MORGUNBLABIÐrhAUGARDAGUR 5. APRÍL1986 Æfingum á II Trovatore eftir Verdí fer nú senn að ljúka. Frumsýn- ingin í íslensku óperunni verður föstudaginn 11. apríl. Á þessari mynd sem tekin var á æfingu nýlega eru þau Hrönn Hafliðadóttir í hlutverki Azucenu og Garðar Cortes í hlutverki Manricos. Islenska óperan: II Trovatore frumsýnd 11. apríl ÆFINGAR á óperu Verdis, II Trovatore, standa nú yfir hjá ís- lensku óperunni. Hljómsveitarstjóri verður Ger- hard Deckert og leikstjóri er Þór- hildur Þorleifsdóttir. Æfíngastjórar eru: Peter Locke og Catherine Williams. Una Collins hannar leik- mynd, svo og búninga ásamt Huldu Kristínu Magnúsdóttur. Lýsing er í höndum David Walters og sýning- arstjóri er Kristín S. Kristjánsdóttir. Í aðalhlutverkum eru Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir, Elísabet F. Eiríksdóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Garðar Cortes, Viðar Gunnarsson, Elísabet Waage og Stefán Guðmundsson. Auk þeiiTa koma fram kór og hljómsveit ís- lensku óperunnar. Óperan gerist á fyrri hluta 15. aldar í Biscay fjöllum og Aragon. Hún var fyrst sýnd í litlu leikhúsi í Róm árið 1853 og er ein af ástsæl- ustu óperum fýrr og síðar. Sauðárkrókur: Sæluvika Skagfirð- inga hefst um helgina Sauðárkróki. SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst hér á Sauðárkróki um helgina. Dagskrá hennar er fjölbreytt að vanda, leiksýningar, kvikmynda- sýningar, dansleikir og fjölmargt fleira. Messað verður í Sauðárkróks- kirkju klukkan 14 á sunnudag, þar sem sóknarpresturinn séra Hjálmar Bautinn á Akureyri býður öllum í af- mælisveislu: A aðra milljón gesta á 15 árum Akureyri. VEITIN G AHÚ SIÐ Bautinn á Akureyri er 15 ára á morgun, sunnudaginn 6. april. í tilefni dagsins gangast eigendur staðar- ins fyrir opinni afmælisveislu frá kl. 14-17 i Bautanum. „Það eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir," sagði Stefán Gunn- laugsson, einn eigenda Bautans, i samtali við Morgunblaðið. „Það hafa komið til okkar talsvert á aðra milljón gesta síðan við opnuðum þannig að okkur datt í hug að bjóða þeim sem eru tíðir gestir og öðrum - við verðum þama með afmælis- tertu og sitthvað fleira á boðstól- um,“ sagði Stefán. Meðan afmælisveislan stendur yfir verður ekkert annað afgreitt á Bautanum nema „afmæliskaffíð" og meðlætið. Þegar veislunni lýkur lokar síðan staðurinn og Smiðjan einnig vegna afmælishófs sem hald- ið verður fyrir starfsfólk um kvöld- ið. Jónsson prédikar. Klukkan 16 verða tónleikar í safnahúsinu, þar sem fram koma tveir ungir tónlistar- menn frá Bretlandi, Timothy Beil- by, fíðluleikari, og Christopher Collies, píanóleikari. Um kvöldið frumsýnir leikfélag Sauðárkróks Spanskfluguna eftir Amold og Bach. Leikstjóri er Jón Ormar Ormsson. Á þriðjudagskvöld fmm- sýnir leikhópur Fjölbrautaskólans sjónleikinn Sjö stelpur eftir Erik Thorstenson undir leikstjóm Geir- laugs Magnússonar. Hitt leikhúsið úr Reykjavík sýnir Rauðhóla- Rannsý á þriðjudag og miðvikudag og leikfélag Hofsóss sýnir Sauma- stofnuna eftir Kjartan Ragnarsson laugardaginn 12. apríl. Leikstjóri er Rósa Þorsteinsdóttir. Auk annars efnis, sem boðið er upp á, má nefna, að í Safnahúsinu sýnir Kári Sig- urðsson frá Húsavík 52 myndverk. Skagfírzka söngsveitin syngur í íþróttahúsinu á föstudag, stjómandi er Björgvin Þ. Valdimarsson. Jass- klúbbur Skagafj'arðar sér svo um lokaþátt Sæluvikunnar, sem er jass- kvöld, sunnudaginn 13. apríl. Fleira mætti telja upp, en félags- heimilið Bifröst gefur út sérstaka Sæluvikudagskrá, þar sem er að fínna nánari upplýsingar um at- burði vikunnar. Því má svo bæta við að Sæluvikudagana verður svo- kölluð opin vinnuvika hjá nemend- um Fjölbrautaskólans. Verður þar ýmislegt til fróðleiks og skemmtun- ar, sem örugglega mun setja mikinn svip á bæjarlífíð. Nemendur gefa út dagblað, sem borið verður í hvert hús og frá 9. til 13. apríl verður útvarpsstöð í gangi. Væntanlega verður sagt nánar frá þessu fram- taki fjölbrautaskólanema í Morgun- blaðinu síðar. SVEITARSTJÓRNAR- KOSNINGARNAR1986 Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd 1. Kjörskrá skal lögð fram 2. Sveitarstjórnarmaður, sem ekki vill endurkjör, tilkynni það yfirkjörstjórn eigi síðar en 3. Kjörskrá liggur frammi til 4. Framboðsfrestur rennur út 5. Yfirkjörstjórn úrskurðar, merkir og auglýsirframboðslista 6. Yfirkjörstjórn læturgera kjörseðla 7. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla hefst eigi síðar en 8. Kærufrestur til sveitarstjórnar vegna kjörskrár rennur út 9. Afrit af kæru sendist þeim, sem kærður er út af kjörskrá fyrir 10. Sveitarstjórn boðar kæruaðila á fund eigi síðar en 11. Sveitarstjórn úrskurðar kjörskrárkærur eigi síðar en 12. Sveitarstjórn undirritar kjörskrá eigi síðar en 13. Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi yfirkjörstjórn kjörskrárúr skurð 14. Dómari tilkynni hlutaðeigandi yfirkjörstjórn kjörskrárdóm 15. Yfirkjörstjórn auglýsir kjörfund og atkvæðatalningu fyrir 16. Kjördagur 17. Talning atkvæða hefst 18. Kjörstjórn innsiglar notaða kjörseðla eftirtalningu 19. Kosningarnar má kæra skriflega fyrir sveitarstjórn innan 14 daga frá því lýst er úrslitum kosninga Kosningar 31. maí 14. júní 1. apríl 14. apríl 4. maí 18. maí 28. apríl 11. maí 7. maí 22. mai 17. maí 31. maí 16. maí 30. maí 19. maí 2. júní 20. maí 4. júní 23. maí 7. júní 23. maí 7. júní 23. maí 7. júní strax strax 28. maí 11. júní 31. maí 14. júní Félagsmálaráðuneytið, 26. mars 1986 HUGSKOTS Námskeið í boði hjá HUGSKOTI frá og með mánudeginum 7. aprfl ••• •••••• ••••••••••• ••••••••••• ••••••• ••• ••••• ••• •••• •••••••••• •••••••••• HUGSKOThi Veltusundi 3b Sími 24790 Kári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.