Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 1
56 SÍÐXJR OG LESBÓK STOFNAÐ1913 91.tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Evrópubandalagsríki auka refsiaðgerðir gegn Líbýu London, Madrid, Tripoli. AP í vopnafylgd Mikil gæsla var um líb- ýsku námsmennina 22, sem fóru frá Bretlandi í gær en þá var einnig til- kynnt að aðrir 340 yrðu að koma sér á brott. AP/Símamynd BRESKA stjórnin tilkynnti í gær, að 340 libýskum flugnemum hefði af öryggisástæðum verið bannað að vinna við flugvélar og að þeir yrðu að fara úr landi. Spánverjar visuðu í gær 11 Líbýumönnum úr íandi og Danir fimm. í fjölmiðlum í Líbýu segir, að Khadafy hafi sent Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, mjög áríðandi orðsendingu. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, tilkynnti í gær, að 340 líbýskum flugnemum hefði af öryggisástæðum verið bannað að vinna við eða fljúga breskum flugvél- um og að þeir yrðu að fara af landi brott. í gær voru aðrir 22 líbýskir námsmenn fluttir um borð í líbýska flugvél, þar á meðal flugnemi, sem hafði boðist til að vera 1 fararbroddi i sjálfsmorðsárás á bandarískar her- stöðvar í Bretlandi. Spánarstjóm vísaði í gær 11 Líbýu- mönnum á brott í samræmi við ákvörðun Evrópubandalagsins um refsiaðgerðir gegn Líbýu. Sagði í til- kynningu utanríkisráðuneytisins, að mennimir hefðu gerst sekir um at- hæfí, sem ekki samræmdist stöðu þeirra og starfi. Þá var sendiráði Morðið á Olof Palme: Eru gleraugu lyk- illinn að gátunni? Stokkh&lmi. AP. Líbýu í Kaupmannahöfn einnig skip- að að fækka starfsliðinu um fímm menn en sex leyft að vera um kyrrt. í þessum ríkjum og öðmm innan EB hefur ferðafrelsi líbýskra sendimanna verið takmarkað við höfuðborgimar. Pjölmiðlar í Líbýu sögðu í gær, að Moammar Khadafy hefði sent mjög áríðandi skilaboð til Gorbachevs, leið- toga Sovétríkjanna, en ekki var sagt hvert efni þeirra væri. Frakkar og ftalir hafa komið fyrir mjög fullkomnum flugskeytum gegn flugvélum á ströndunum, sem vita að Líbýu, og þeir fyrmefndu raunar með endilangri Miðjarðarhafsströnd- inni. Sögðu franskir embættismenn, að þetta væri gert í varúðarskyni. Skotið var í gær á bandarískan sendi- ráðsmann í Norður-Jemen og særðist hann nokkuð en þó ekki alvarlega. Þá sprakk sprengja fyrir utan skrif- stofur saudi-arabíska ríkisflugfélags- ins í Vín en engan sakaði. Noregur: Hryðjuverk íMadríd Fimm spænskir þjóðvarðliðar létust og fjórir slösuðust í Madríd í gær þegar sprengja sprakk í kyrrstæðum bíl, sem þeir óku framhjá. Á myndinni sést hvernig billinn þeirra af gerðinni Land Rover var útleikinn eftir sprenginguna. Talið er vist, að baskneskir hryðjuverkamenn beri sök á ódæðinu. Sjá „Fimm þjóðvarðliðar bíða bana...“ á bls 25. Evrópa: Alnæmi sækir á París. AP. VfSINDAMENN hafa skrád 22.780 alnæmistilfelli í heiminum. Þeir telja samt, að þau séu raun- verulega yfir 25.000, samkvæmt tölum sem Alþjóða heilbrigðis- stofnunin gaf út á fimmtudag. Sérfræðingamir segja, að vegna tímasetningar skýrslna frá ýmsum löndum og grunar um að sumar skýrslnanna séu ófullnægjandi, séu hinar raunverulegu tölur hærri en þar komi fram. Aðeins 31 staðfest alnæmistilfelli var skráð í allri Afríku til 31. janúar sl. samkvæmt þessum tölum. í Evrópu höfðu 2.244 tilfelli verið skráð um miðjan aprílmánuð, en sér- fræðingar telja þau hafa verið 2.600 í endaðan mars. Sérfræðingamir segja, að sjúk- dómurinn sé í verulegri sókn í Evr- ópu. Þar sé Frakkland fremst í flokki með 134 ný tilfelli frá 31. desember 1985 til 31. mars 1986. Á sama tíma hafi 62 ný tilfelli verið skráð á Spáni, 61 í Vestur-Þýskalandi, 57 á Ítalíu, 50 í Svíþjóð, sex í Portúgal, fjögur í Noregi, tvö á íslandi og eitt í Finnl- andi, GrikklandiogJúgóslavíu. í Sovétríkjunum hafa fundist tvö meint tilfelli og var þar um að ræða erlenda námsmenn. SÆNSKA lögreglan hefur fengið gleraugnasala í landinu til liðs við sig í leitinni að morðingja Olofs Palme. Rétt við morðstaðinn fundust gler- augu og leikur grunur á, að banamaður Palmes hafi misst þau á flóttanum. Sænsku blöðin skýrðu frá þessu í gær, föstudag, og höfðu það eftir talsmönnum lögreglunnar, að gler- augun gætu hugsanlega verið lykillinn að morðgátunni enda em þau dálítið sérstök smíði. í Svíþjóð ber gleraugnasölum skylda til að skrá nöfn þeirra, sem fá gleraugu samkvæmt tilvísun læknis, og sagði Kjell Carlsson, sem starfar við rannsóknastofnun sænsku lög- reglunnar, að stundum hefðu gler- augu, sem afbrotamenn hefðu týnt, orðið til, að mál leystust. Gleraugun, sem lögreglan hefur Morðstaðurinn: Gleraugun fundust skammt þar frá. undir höndum, eru ítölsk að gerð og hafa allir gleraugnasalar í Sví- þjóð, sem þessi gleraugu selja, verið beðnir um að fara gaumgæfi- lega yfir skrámar. Sérfræðingar telja, að eigandi gleraugnanna sé á fertugsaldri, nærsýnn og óvenju langt á milli augna. Verkfalli lokið á olíuborpöllum Willoch hótar afsögn ef þingið fellir sparnaðartillögnr Osló. AP. ÞRIGGJA vikna löngu verkfalli á norsku olíuborpöllunum lauk í gær þegar 675 matreiðslumenn ákváðu að hætta verkfaUinu og snúa aftur til vinnu ásamt 3.700 verkamönnum, sem hafa verið i verkbanni. Willoch, forsætisráð- herra, hótaði í gær að segja af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt ef sparnaðartillögur stjómarinnar yrðu ekki samþykktar á þingi eftir helgi. Verkalýðsfélögin, sem aðild áttu að deilunni, ákváðu í gær á sameig- inlegum fundi í Stafangri að hætta verkföllum en þá hafði Ame Rette- dal, atvinnumálaráðherra, lýst yfir, að stjómin hygðist vísa deilunni til kjaradóms en niðurstöðu hans verða deiluaðilar að hlíta. Höfðu vinnuveit- endur áður tekið verkamennina úr verkbanni. Káre Willoch, forsætisráðherra, kvaðst í dag reiðubúinn að segja af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt ef þingið felldi spamaðartillögur stjómarinnar en þær munu koma til atkvæða á þriðjudag. Er í þeim m.a. kveðið á um 42 norskra aura hækk- un á bensínlítra og minni útgjöld til vamarmála. Á þennan hátt á að spara 1,2 milljarða nkr. Verka- mannafiokkurinn vill ekki fallast á tillögumar nema skattar á hátekjur verði auknir en stjómin er því mót- fallin. Tveir þingmenn Framfara- fiokksins geta komið stjóminni til bjargar en þeir setja hins vegar fyrir sig bensinhækkunina. Enginn norsku stjómmálaflokkanna kærir sig um kosningar nú og binda allir vonir við, að málið leysist. Ame Skauge, fyrrum verslunar- og siglingamálaráðherra, tók í gær við af Rolf Presthus sem Qármála- ráðherra en Presthus tók aftur við af Anders C. Sjaastad sem vamar- málaráðherra. Sjaastad lætur af ráð- herradómi og tekur sæti sitt á þingi sem fulltrúi fyrir Osló. Fyrir viku var sú breyting einnig gerð á stjóm- inni, að Astrid Nöklebye Heiberg tók við af Astrid Gjertsen sem neytenda- málaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.