Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1986
33
Rithöfundasióður íslands:
24 höfundar fá
70.000 kr. hver
STJÓRN Rithöfundasjóðs fs-
lands ákvað á fundi sínum, 17.
apríl síðastliðinn, að úthluta 24
rithöfundum í viðurkenningar-
skyni úr rithöfundasjóði árið
1986, hveijum um sig 70 þúsund
krónum.
Álfheiður Kjartansdóttir
Birgir Svan Símonarson
Bolli Gústavsson
Bryndís Víglundsdóttir,
Einar Ólafsson
Einar Páisson
Guðmundur L. Friðfinnsson
Heiðdís Norðflörð
Herdís Egilsdóttir
Hilmar Jónsson
Inga Huld Hákónardóttir
Indriði Indriðason
Kristján Albertsson
Kristján Jóhann Jónsson
Líney Jóhannesdóttir
Magnea J. Matthíasdóttir
Magnús Þór Jónsson (Megas)
Sigurbjörn Einarsson
Sigurður Á. Friðþjófsson
Tryggvi Emilsson
Úlfar Þormóðsson
ÞóraJónsdóttir
Þröstur Karlsson
Omólfur Amason
Stjóm Rithöfundasjóðs íslands
skipa nú þessir mepn:
Olga Guðrún Ámadóttir rithöf-
undur, Hjörtur Pálsson rithöfundur
og Runólfur Þórarinsson deildar-
stjóri, sem er formaður stjómarinn-
3r. (Fréttatilkynning)
Norræn vika á Húsavík
„Norræn vika“ stendur yfir á
Húsavík frá og með deginum í
dag til 2. maí. Hún hefst kl. 16.00
með móttöku í Safnahúsinu og I
Ferming- í Saur-
bæjarprestakalli
Leirárkirkja. Ferming sunnu-
dag 27. aprU kl. 11. Prestur sr.
Jón Einarsson. Fermdar verða:
Anna Elín Daníelsdóttir,
Skarðsbraut 17, Akranesi.
Anna Sigfríður Reynisdóttir,
Geldingaá.
Heiða María Guðlaugsdóttir,
Hagamel 8.
Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir,
Neðra-Skarði.
Þórunn Elfa Magnúsdóttir,
Efra-Skarði.
Innra-Hólmskirkja. Ferming
sunnudag 27. apríl kl. 14. Prestur
sr. Jón Einarsson.
Fermd verða:
Steinunn Fjóla Benediktsdóttir,
Eystri-Reyni.
Kolbeinn Ámason,
Ásfelli.
kvöld kl. 20.00 verður opnuð
Kalevalasýning, sem er um
finnsk ljóð.
Á morgun kl. 16.00 heldur
sænska ljóðasöngkonan Maria
Eklov tónleika í félagsheimilinu og
á mánudagskvöld kl. 20.30 íjalla
þeir Karl Guðmundsson og Hall-
freður Öm Eiríksson um Kalevala-
kvæðin. Þriðjudagskvöldið verður
helgað Grænlandi. Ólafur Halldórs-
son flytur erindi um Grænland og
grænlensk rit, sýnir litskyggnur,
fjallar um ferðamöguleika þar í
landi og fleira. Á miðvikudagskvöld
flytur Hjörtur Pálsson erindi um
Færeyjar, lesið verður úr færeysk-
um skáldverkum og kvikmynd um
landið verður sýnd. Kvikmyndasýn-
ingar verða í bíóhúsinu á fímmtu-
dag en á föstudag, síðasta dag
norrænu vikunnar, verður haldin
kvöldvaka. Þeir Páll H. Jónsson og
Garðar Jakobsson flytja dagskrá
um tónmannlíf í Suður-Þingeyjar-
sýslu á 19. og 20. öld og síðan
munu þeir Baldur og Baldvin Krist-
inn Baldvinssynir, Rangárbræður,
syngja. Píanóleik annast Úlrik Óla-
son.
Skagf irska söngsveitin og Drangey:
Tónleikar í Keflavík
SKAGFIRSKA söngsveitin og
Söngfélagið Drangey halda tón-
leika í Félagsbíói í Keflavík í dag
klukkan 15.
Á söngskrá era innlend og erlend
lög og era m.a. framflutt lög eftir
Sigvalda Snæ Kaldalóns og Þorkel
Sigurbjömsson. Söngstjóri er
Björgvin Þ. Valdimarsson, undir-
leikari Ólafur Vignir Albertsson og
einsöngvarar Halla S. Jónsdóttir og
Óskar Pétursson.
Kóramir hafa að undanfömu
sungið á nokkram skemmtunum,
m.a. í Skagafírði og hlotið góða
aðsókn og undirtektir.
Seljaskóli:
Sýning í teng’slum við
afmæli Reykjavíkur
200 ára afmælis Reykjavíkur
verður minnst í Seljaskóla í dag,
laugardag og á morgun, sunnu-
dag.
Sýnd verður vinna nemenda for-
skóla — 8. bekkja.
Aðaláhersla hefír verið lögð á
vinnu um verslun í borginni, gömul
hús og trjárækt. Yngri nemendur
hafa unnið um skólann og nánasta
umhverfi sitt. Sett hefír verið upp
listsýning nemenda. Starfrækt
verður veitingahús og í íþróttahúsi
verður sýnd leikfimi og dans kl.
15.00 báða dagana. Lúðrasveit Ár-
bæjar og Breiðholts mun leika við
skólann kl. 13.30 á sunnudag.
Sýningin verður opin frá kl.
13.00—17.00 báða dagana.
Nemendur Seljaskóla ganga frá líkani af Bernhöftstorfu.
Við Frostakjól fóru fram útiskemmti-
atriði í rigningunni.
Sumarið
heilsar með
rigningu
SUMARDAGURINN fyrsti var
haldinn hátíðlegur um land allt
þótt veðurguðirnir hafi ekki
verið í hátíðarskapi, a.m.k. ekki
í Reykjavík og nágrenni.
Skrúðgöngur og skemmtiatriði
fóru fram þrátt fyrir talsverða
rigningu.
I Kópavogi vora famar skrúð-
göngur frá Menntaskólanum að
íþróttahúsinu við Digranesskól-
ann og um morguninn var farið
í skátamessu, gengið frá Kópa-
vogsskólanum að kirkjunni. Að
sögn lögreglunnar var fjölmennt
í skrúðgöngunum, en skemmtiat-
riði fóra fram í íþróttahúsinu.
Hafnfírðingar fóra í skrúð-
göngu fyrir hádegið og víðavangs-
hlaup eftir hádegið. Um 300
manns tóku þátt í hlaupinu og
að sögn lögreglunnar var þátttaka
í skrúðgöngunni einnig nokkuð
góð.
Sumardagurinn fyrsti fór frið-
samlega fram i Reykjavík, gengið
var í skrúðgöngu frá Melaskólan-
um að nýja félagsheimilinu við
Frostaskjól, og önnur ganga var
í Breiðholtinu. Að sögn lögregl-
unnar gekk allt mjög vel.
Skrúðganga i Hafnarfirði.
Morgunblaðið/^jarni
Seyðisfjörður:
Sj álf stæðisflokkurinn
opnar kosningaskrifstofu
Seyðisfirði.
Sjálfstæðisflokkurinn á Seyð-
isfirði hefur opnað kosninga-
skrifstofu vegna komandi bæjar-
stjórnarkosninga. Er hún til húsa
í Firði 3. Skrifstofan verður opin
laugardaginn 26. apríl kl. 13—19,
sunnudaginn 27. apríl 13—19,
þriðjudaginn 29. kl. 20—23,
fimmtudaginn 1. maí kl. 20—23
og síðan alla laugardaga og
sunnudaga klukkan 13—19 og
aðra daga kl. 20—23, fram að
kosningum.
Kosningastjóri er Guðjón Harð-
arson kaupmaður og mun hann
starfa á skrifstofunni og stjóma
kosningabaráttunni. Að sögn Guð-
jóns hefur undirbúningur að kosn-
ingastarfínu farið mjög vel af stað,
mikill áhugi og mikill hugur í
mönnum. Nýtt fólk er í ölium efstu
sætunum og er þetta ungt fólk,
eins og alli sem era á D-listanum.
Meðalaldurer31 ár.
Guðjón sagði að um 700 manns
væra á kjörskrá og þar af 140—150
kjósendur í fyrsta sinn. Guðjón
sagði ennfremur að búið væri að
senda öllum þessum ungu kjósend-
um bréf þar sem boðað er til rabb-
fundar með frambjóðendum D-list-
ans á kosningaskrifstofunni í Firði
3, sunnudaginn 27. apríl klukkan
15.
Sú nýbreytni er einnig, sagði
Guðjón, að útbúin hefur verið sér-
stök leikaðstaða fyrir böm á kosn-
ingaskrifstofunni, svo fólk sem
kemur þangað geti haft bömin með
sér. Að lokum sagði kosningastjór-
inn að hann biði alla Seyðfírðinga
velkomna á kosningaskrifstofuna
þar sem alltaf yrðu einhveijir af
frambjóðendum listans til viðræðna
við fólk um málefni bæjarins.
Garðar Rúnar