Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986 Morgunblaðið/Árni Sæberg- Rádstefnan á Kjarvalsstöðum var fjölsótt. I ræðustól er Hulda Valtýsdóttir, formaður umhverfis- málaráðs Reykjavíkurborgar. Ráðstefna um umhverfismál RÁÐSTEFNA um stefnu sveit- arfélaga í umhverfismálum stendur nú yfir á Kjarvalsstöð- um. Hún hófst í gærmorgun og stendur fram eftir deginum í dag. Kl. 9.00 fjallar Elín Pálmadótt- ir, varaformaður Náttúruvemdar- ráðs, um náttúruvemd og útivist við þéttbýli. Síðan verður rætt um framkvæmdir sveitarfélaga í umhverfísmálum og samstarf þeirra og áhugamannafélaga á því sviði. Frummælendur verða þeir Oddgeir Þór Ámason garð- yrkjustjóri Akranesi og Sigurður Ágústsson formaður Skógræktar- félags Stykkishólms. Síðast á dagskrá ráðstefnunnar munu umræðuhópar fjalla um afmörkuð efni svo sem stefr.u sveitarfélaga í umhverfísmálum, mótun og markmið, starfsmanna- hald og efniskaup; fyrirkomulag á samstarfi sveitarfélaga og ann- arra á sviði umhverfísmála; ár- angur uppgræðslu og tijáræktar við ólík skilyrði auk annarra umhverfísþátta. „Getur komið öllum neytendum til góða“ Þrír vegheflar og dráttarbíll losuðu Öskju af sandrifinu í Borgarneshöfn. Morgunblaðið/Theodór Askja losnar af strandstað í Borgarnesi Borgarnesí. Á fimmtudagsmorgun um kl. 06:00 tókst að ná strandferðaskipinu ms. Öskju á flot við höfnina í Borgar- nesi. En skipið strandaði rétt utan við höfnina síðdegis á miðvikudag. Við verkið voru notaðir þrír vegheflar og einn dráttarbíll frá Vegagerðinni í Borgarnesi. Einnig notaði skipið eigið vélarafl. Með samstilltu átaki náðist skipið á flot í fyrstu atrennu. Talið er að skipið sé með öUu óskemmt. — TKÞ Siglufjörður: Enn ekki búið að ryðja Lágheiðina Siglufirdi. SIGLFIRÐINGAR eru fremur óhressir með að Lágheiðin skuU ekki vera rudd. Þar er nú lítill snjór og myndi eitt snjóruðnings- tæki leika sér að þvi að opna heiðina á 5—6 klukkutimum. Siglfírðingar líta á það sem sann- gimiskröfu að fá Lágheiðina opn- aða, en hún hefur ekki verið rudd í allan vetur þrátt fyrir loforð þar um. Leiðin til Akureyrar er 70 km styttri um Lágheiðina og munar það okkur því 140 km í hverri ferð að komast þar yfír. Enn meiru munar að sjálfsögðu fyrir Ólafsfírðinga. Vegurinn inn í Fljót er illfær orðinn vegna lélegs viðhalds og liggur við að maður þurfí beltabfl til að komast þangað, þó ekki sé snjókom á veginum. Þetta gæti Vegagerðin auðveldlega lagað með því að hefla veginn nú einu sinni. — Matthías. — segir Jóhannes Gunnarsson formaður Neyt- endasamtakanna um ferðaskrifstofudóminn Gleðibankinn í efsta sæti GLEÐIBANKINN er nú kom- inn í efsta sæti vinsældalista rásar 2, en lagið var í þriðja sæti í síðustu viku. Fjögur fyrstu lögin skipta um sæti eins og sjá má á listanum: 1. (3) Gleðibankinn ICY 2. (4) Önnur sjónarmið Edda Heiðrún Bachmann 3. (2) Little girl Sandra 4. (l)La-líf Smart Band 5. (7) Brother Louis Modem Talking 6. (13) Fright Night J. Geils Band 7. (5) Absolut Beginners David Bowie 8. (6) Waiting for the moming Bobbysocks 9. (28) Someone to somebody Fergal Sharkey 10. (8) Move away Culture Club „ÉG FAGNA mjög þessari niðurstöðu og tel að hún geti komið öllum almennum neytendum til góða. Dómurinn sýnir að neytendur geti náð fram rétti sínum fyrir dómstólum ef þeir á annað borð sækja hann,“ sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, þegar leitað var álits hans á dómi sem kveðinn var upp í bæjarþingi Reykja- víkur, þar sem Ferðaskrifstofa ríkisins var dæmd til að endurgreiða viðskiptavini hluta ferðakostnaðar vegna þess að ferðin hafi ekki staðið undir auglýsingu um aðbúnað ogþjónustu. Jóhannes sagði að þessi dómur ferðaskrifstofumar fari varlegar en væri svipaður og niðurstaða kvört- unamefndar Félags ferðaskrif- stofueigenda og Neytendasam- takanna, en Ferðaskrifstofa ríkisins ætti ekki aðild að þeirri nefnd. Um áhrif þessa dóms sagði Jóhannes: „Hann hlýtur að verða til þess að áður í fullyrðingar í auglýsingum um gæði ferða sinna. Hann getur einnig orðið á vissan hátt stefnu- markandi hjá fleirum en ferðaskrif- stofunum í þá veru að draga heldur úr gífuryrðum í auglýsingum." „Ég er einnig sannfærður um að ferðaskrifstofumar muni í framtíð- inni leysa betur þau vandamál sem upp koma í samskiptum við við- skiptavini. Það sýndi sig þegar að kvörtunamefndin var sett á lagg- imar dró mjög úr kvörtunum á ferðaskrifstofumar en það bendir til að þær hafí veitt óánægðum viðskiptavinum betri úrlausn," sagði Jóhannes einnig. Eldur í fjöl- býlishúsi ELDUR kom upp í fjölbýlishúsi við Neðstaleiti um klukkan 15.00 á föstudag. Engan sakaði en ein íbúð í húsinu skemmdist mikið af sóti og reyk. Þegar slökkvilið kom á vettvang lagði mikinn reyk úr gluggum á einni íbúðinni á efstu hæð hússins. Eldur hafði komið upp í þvottaher- bergi, líklega í þurrkara, sem þar var, en greiðlega gekk að ráða niðurlögum hans. Eldurinn hafði ekki náð að komast í íbúðina sjálfa, en hún var mikið skemmd af sóti og reyk. Hef beðið um skýring- ar skipherra og áhafnar - segir Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar um ásakanir Jóns Sveinssonar „ÉG TEL að Jón Sveinsson sé ekki beint að deila á mig per- sónulega sem yfirmann Land- helgisgæzlunnar, en hlýt þó að taka til min ádeilu á starfsmenn hennar. Hann er fremur að deUa á ákveðna skipshöfn, sem hann hefur siglt með. Hún er tUtölu- lega lítiU hluti starfsmanna Gæzlunnar og hann hefði átt að skýra mér frá því hvað honum fannst áður en hann kaus að segja frá þessu í grein í Morgun- blaðinu. Ég get ekki með góðu móti skýrt hvað það er, sem fyrir Jóni vakir með þessari grein, en því miður virðist hann ekki hafa haft þolinmæði til að sinna því hlutverki, sem honum var ætlað,“ sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, í samtali við Morgunblaðið. í grein eftir Jón Sveinsson, menntaðan sjóliðsforingja frá Nor- egi og fyrrum starfsmann Land- helgisgæzlunnar, sem birtist í Morgunblaðinu 24. apríl síðastlið- inn, er Gæzlan borin þungum sök- um og sögð vanmáttug að sinna verkefnum sínum af ýmsum sökum. Vegna þessa var Gunnar Berg- steinsson inntur álits á ummælum Jóns. Hann sagði, að eins og Jón Sveinsson hefði minnst á í byijun greinar sinnar hefði hann gert sér vonir um að njóta reynslu hans og starfskrafta til þess að lagfæra ýmislegt, sem betur mætti fara í starfí Landhelgisgæzlunnar. Því miður hefði þolinmæði Jóns ekki reynzt meiri en svo, að hann yfirgaf skip sitt fyrirvaralaust og hefði hætt störfum hjá Landhelgisgæzl- unni án þess að greina sér eða öðrum frá ástæðum þess, fyrr en í áðumefndri grein. „Ég tel mér ekki fært að tjá mig um ásakanir Jóns á hendur skips- höfn þeirri, sem hann sigldi með þijár ferðir, fyrr en ég hef fengið í hendur skýringar skipherra og áhafnar varðskipsins, sem ég hef þegar beðið um,“ sagði Gunnar. „Mér var ókunnugt um fullyrð- ingar af því tagi að áfengisneyzla tíðkaðist um borð í varðskipum úti á sjó og það var eitt af því, sem ég bjóst við að Jón myndi láta mig vita af hefði hann orðið var við að svo væri. Ég sé þetta ekki frá honum fyrr en í greininni. Þessar ásakanir eru á hendur starfsmönn- um Landhelgisgæzlunnar og ég verð auðvitað að fá skýringar þeirra á þessu áður en ég get um það rætt. Hann deilir á lög um Land- helgisgæzluna og segir þau nánast úrelt. Það kann að vera að einstakar greinar laganna eigi ekki lengur við og þurfí endurskoðunar við, en ég held þó að þama sé sá starfs- rammi, sem reynt hefur verið að vinna eftir og ég held ennfremur að hann nái yfír flest svið, sem Gæzlunni hefur verið ætlað að vinna. Ég tel að þessar ásakanir séu til komnar, vegna þess hve vera Jóns var stutt hjá okkur, hann hafí ekki kynnzt starfseminni allri, sem ætlunin var áður en hann hjálpaði bokhlöðu kom saman á miðviku- daginn tU að fagna frumvarpi þvi til laga um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu, er samþykkt var á Alþingi daginn áður. Nefndin sendi Sverri Hermanns- syni menntamálaráðherra þakkir fyrir forgöngu hans í þessu máli til við úrbætur þess, sem hann teldi ekki í lagi og aðrir gætu verið sammála um að laga þyrfti. Því miður reyndist tíminn of stuttur til þess og mér þykir leitt að hann skyldi alhæfa alla starfsemi Gæzl- unnar í lq'ölfar þeirra áhrifa, sem hann hefur orðið fyrir á tiltölulega stuttum tíma. Hann minnist reyndar á að ýmsir hafí verið sammála honum, en mér fínnst þetta leitt, vegna þess að ég hafði bundið vonir við að fá þama nýtt blóð inn til breytinga á skipu- lagningu og starfsháttum. Hann hefur greinilega skort þolinmæði til að kynna sér málin, en var alls ókunnugur störfum landhelgis- gæzlu hér og annars staðar," sagði Gunnar Bergsteinsson. og Alþingi brautargengið. Hönnuðir bókhlöðunnar hafa að undanfömu haft uppi viðbúnað vegna næstu áfanga, en stefnt er síðan að fullnaðarhönnun hennar. Unnið hefur verið inni í bók- hlöðunni í vetur að múrverki og undirbúningi einangrunar og hita- lagnar og býr sú vinna í haginn fyrir frekari framkvæmdir. Þj óðarbókhlaðan: Byggingarnefnd sendi ráð- herra og Alþingi þakkir BYGGINGARNEFND Þjóðar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.