Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 9
MORtíUNBLAÐIÐ, LAUGARDAtíUR 26. APRÍL 1986 9 Framhaldsaðalfimdur Sambands fiskvinnslustöðva verður haldinn mánudaginn 28. apríl nk. kl. 15.00 á Garðastræti 41. Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar mun mæta á fundinn og fjalla m.a. um afkomu fisk- vinnslu og útflutning á ferskum fiski. Samband fiskvinnslustöðva. SKIPSTJORAR OG SKIPII Skipstjórar og skip II er afmælisrit Skipstjórafélags íslands 1986. Bókin er aukin og endurbætt útgáfa af Skipstjórum og skipum sem kom út 1971 og er þar um nær heimlngs aukningu að ræða. Rakin er saga Skipstjórafélags islands i hálfa öld, sagt frá islandssiglingum frá i fornöld til vorra daga, æviágrip 250 skipstjóra eru i bókinni og tækni- legar upplýsingar um 280 verslunar- og varðskip ásamt sögu þeirra. Myndir eru af öllum skipstjórunum og flestum skipanna. Myndasyrpa er aftast í bókinni með tugum mynda af skipum og höfnum á ýmsum tímum. Alls er á sjöunda hundraö mynda í bókinni. Ritstjórinn, Jóhanes Ingólfsson, hefur verið skipstjóri og hafnsögumaður við Reykjavikurhöfn um árabil og er því þaulkunnugur þeim skipstjórum og skipum sem hann fjallar um. Hér er um góðan feng að ræða fyrir þá sem áhuga hafa á verslunar- og varðskipum og skipstjórum þeirra. Bókin, sem kostar 3000 krónur, fæst aðeins á skrifstofu Skipstjórafélags íslands að Borgartúni 18 í Reykjavík. Sími 29933. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 13.00 til 16.00. FLUGLEIDIR Selur og bjór á Alþingi Alþingi var slitið á miðvikudag og þá voru að venju miklar annir í þinghúsinu við Austurvöll. Mörg stór mál voru til umræðu og afgreiðslu í báðum þingdeildum, s.s. húsnæðisfrumvarp ríkis- stjórnarinnar, Seðlabankafrumvarpið og frumvarp um málefni Arnarflugs. Tvö minni mál vöktu þó líklega meiri athygli: selveiði- frumvarp sjávarútvegsráðherra, sem var stöðvað í efri deild, og þingmannafrumvarp um áfengan bjór, sem öllum að óvörum var fellt í sömu deild. í Staksteinum í dag er fjallað um þessi tvö mál. Þóf um sel Sclveiðifrumvarp sjáv- arútvegsráðherra dagaði í þriðja sinn uppi á Al- þingi skönunu fyrir þing- iausnir á miðvikudag. Nokkrir þingmenn i efri deild höfðu uppi málþóf eða hótuðu málþófi til að stöðva framgang máls- ins. Þegar reynt var að fá tafarlausa atkvæða- greiðslu um frumvarpið, eins og heimilt er að óska eftir samkvæmt 43. grein þingskapa, voru ekki nægilega margir þing- deildarmenn þvi hlynntir og tillaga þar að lútandi náði ekki fram að ganga. Afdrif selveiðifrum- varpsins á Alþingi vekja upp ýmsar spumingar um vinnubrögð á þing- inu. Það var ljóst, að meirihluti þingmanna í báðiun deildum var sam- þykkur frumvarpinu, enda hefur það sem fyrr segir tvisvar sinnum áð- ur verið lagt fram og þingmenn eru vel kunn- ugir efnisatriðum þess. Mikill meirihluti efri deildarmanna (þó ekki tilskilinn / hluti) vildi líka ganga til atkvæða um málið á miðvikudag og afgreiða það sem lög. Á hinn bóginn er á það að lita, að frumvarpið kom að þessu sinni ekki fram fyrr en um páska og ríkisstjórnin — og þá einkum sjávarútvegsráð- herra — getur sjálfum sér um afdrif þess kennt. Hvers vegna i ósköpun- um var það ekki lagt fram miklu fyrr, ef það var svona mikilvægt að fá það samþykkt? Málþóf er ekki skemmtileg eða sérlega rismikil aðferð til að sýna andstöðu við eitthvert málefni, en getur stundum verið réttlætanleg. Það eru hins vegar takmörk fyrir þvi hversu lengi unnt er halda uppi málþófi og hefði t.a.m. selveiðifrum- varpið komið nokkrum vikum fyrr fram, væri það án nokkurs vafa orðið að lögum núna. Skiljanlegt er, að sjávar- útvegsráðherra hugsi málþófsmönnum í efri deild þegjandi þörfina, þvi selveiðifrumvarpið var honum mikið kapps- mál, en i rauninni getur hann ekki sakast við neinn nema sjálfan sig. Bjórinn felld- ur Frumvarp Stefáns Benediktssonar og Bjöms Dagbjartssonar um að leyfa bruggun og sölu á áfengum bjór og um þj óðaratk væða- greiðslu tíl að staðfesta jiaö náði ekki fram að ganga. Það var ljóst fyrir nokkrum dögum, að það yrði ekki afgreitt á Jæssu þingi, en engu að siður fylgdust menn spenntír með atkvæðagreiðslu um það í efri deild á miðviku- daginn. Eins og fram hefur komið hér i blaðinu var frumvarpið fellt með 10 atkvæðum gegn 9 að viðhöfðu nafnakalli, en flestir höfðu liklega átt von á þvi að það yrði samþykkt. Segja má, að það hafi verið afstaða Sigriðar Dúnu Kristmundsdóttur, þingmanns Kvennalist- ans, og Sturlu Böðvars- sonar, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem réð úrslitum. Þau greiddu bæði atkvæði gegn frumvarpinu. Sig- ríður Dúna var ekki við- stödd atkvæðagreiðslu um bjórfrumvarpið á síð- asta þingi og varamaður hennar sat þá hjá. Menn áttu von á þvi, að hið sama myndi hún gera. Valdimar Indriðason, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Vesturlands- kjördæmi, greiddi at- kvæði með bjómum á sið- asta þingi og menn virð- ast hafa átt von á því, að varamaður hans væri sama sinnis. Svo reyndist ekki og dagar bjórfrum- varpsins vom taldir. Þegar Sigriður Dúna Kristmundsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sinu lýstí hún sérstakri and- stöðu við hugmyndina um þjóðaratkvæði um bjórinn. Taldi hún að allt eins mættí þá bera hin stóm mál þingsins undir dóm kjósenda. Auðvitað er hér um mikið álitamál að ræða, en Morgun- blaðið hefur haldið þeirri skoðun fram, að þjóðin sjálf eigi að skera úr um í þessu máli. Fyrir þvi em tvenn rök einkum. Ann- ars vegar er hefð fyrir almennum atkvæða- greiðslum um áfengismál hér á landi, þótt að vísu hafi ekki verið gengið til atkvæða áður um ein- stakar áfengistegundir. Hins vegar hefur Alþingi af einhveijum ástæðum ekki treyst sér til að taka afstöðu til málsins efnis- lega og ein ástæðan fyrir þvi að bjórfrumvarpið var fellt í efri deild var einmitt sú, að þingmenn töldu að atkvæðagreiðsl- an breyttí engu um það hvort hér á landi væri leyfð bmggun og sala áfengs öls. Egill Jónsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, sat t.d. lijá við atkvæðagreiðsluna og gerði þá grein fyrir af- stöðu sinni, að i rauninni væri ekki verið að af- greiða málið þinglega heldur aðeins kanna skoðanir einstakra þing- manna. Ef Alþingi treyst- ir sér ekki til að skera úr um mál, sem almenning- ur hefur mikinn áhuga á, virðist þjóðaratkvæði réttlát úrlausnarleið. meginþorra þjóóarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er22480 3B$g0tttt|rI&frffr TSíltamatka?utLnrL ^■luttisgötu 12-18 M. Bens2501980. Rauður 6 cyl. beinskiptur, rafm. rúður ofl. Fallegur bíll. Verö 550 þ. Toyota Corolla liftback 1984 Drappsans. Góöur bill. Ekinn 42 þ.km. Verð 350 þús. Mitsubishi Cordia 1983 Hvitur. Ekinn 40 þ.km. Sjálfskiptur m/overdrive. Verð 320 þús. Toyota Tercel 1984 Grásans. 5 gira, 5 dyra. Skemmtilegur bíll. V. 320 þ. Höfum kaupendur að: Escort '83-'86, Corolla '83-'86, Honda Accord '83-86, Honda Civic '83-'86, Golf '84-'86, Saab '83-86, Charade '83-86 og nýlegum jap. jeppum. Mazda 626 (2000) 1985 5 dyra. Ekinn 8 þ.km. V. 430 þ. Citroén Reflex 1982 Gullfallegur bíll. V. 365 þ. BMW 520 i 1982 Sjálfskiptur m/öllu. Ekinn 45 þ. km. V. 485 þ. Nissan Cherry 1,5 1985 Sjálfsk. Ekinn 14 þ. km. V. 335 Þ- Peugeot 305 GR stat- ion 1982 Ekinn 67 þ. km. V. 245 þ. Subaru Hatcback 1983 Grásans. Ekinn 34 þ. km. V. 340 þ. GalantGLX 2000 1982 Hvitur. 5 dyra. V. 270 þ. BMW 320Í1983 Drappl. Ekinn. 35 þ.km. V. 560 þ. Landcruiser XL1985 Grár/brúnn, aflstýri, rafm. rúð- ur ofl. Ekinn aðeins 14 þ. km. Algjör gullmoli. Verö 780 þ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.