Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1986 45 10' ' ■ , Búrið á þaki bílsins Egfer í ferðalag með húsbónda mínum.. o° uppá hundinn °9 StÖ,druðu margir við Anna Dóra Theódórsdóttir fréttaritari Morgunblaðsins í Frakklandi sendi okkur eftirfarandi pistil um illa meðferð á gæludýrum þar og úrræði sem hugvitsmaður þar í landi hefur hugsað upp til að hjálpa dýrunum. „Það eru árlega þúsundir katta og hunda, auk annarra gæludýra, í Frakklandi sem missa heimili sín, þegar Iiða fer að sumarfríum", skrifar Anna Dóra. „Fólk tekur að sér gæiudýr að vetrinum, en þegar sumarfríin nálg- ast eru dýrin skilin eftir á víða- vangi, keyrð út í skóg og skilin eftir húsbónda- og matarlaus. Ein- staka dýr eru heppin og fínna annan húsbónda, en mörg eru þau dýr sem hreinlega veslast upp úr hungri og vosbúð eða verða undir bílum. En hvers vegna gerir fólk þetta e^.r að hafa tekið á sig þá ábyrgð oð taka dýr inn á heimilið. Jú, það er stórborgin sem skapar þetta ástand, a.m.k. að einhverju leyti — fólk vill ekki trufla nágranna, vini eða ættingja með því að biðja um gæslu fyrir dýrin í fjarveru sinni. Auðvitað eru til stofnanir sem geyma dýr fyrir fólk, en upphæðin sem sett er upp fyrir geymsluna þykir mörgum há. Og þá er gripið til þess ráðs að skilja dýrin eftir á víðavangi. Og auðvitað er þetta einnig gert af fleiri ástæðum. Dýravemdunarfélögin eru mörg og vinna mikið starf og gott héma í Frakklandi en það nægir ekki til að koma í veg fyrir þessa illu meðferð á vesalings dýmnum. En til hvaða ráðs á að grípa til að stöðva þetta? Þekktur skúlptúristi að nafni Francois Melin, sem býr í litlum bæ Francois Melin situr þarna aft- aná bil sínum og virðir fyrir sér ferðafélaga sinn. rétt fyrir utan París, fékk þá hug- mynd að smíða lítið einfált hús eða búr sem hann kom fyrir á þakinu á bíl sínum. Svo fékk hann hund að láni og keyrði um allar helstu breiðgötur Parísarborgar sunnu- daginn 20. apríl sl. - og að sjálf- sögðu hafði hann hundinn í búrinu á þakinu. Þar gat að líta þessa áletr- un: „Ég fer í ferðalag með húsbónda mínum . .. hann sagði mér að hann hefði hringt í sjónvarpsstöðvamar til að skýra þeim frá hugmynd sinni, og bætti því við (með krossað- an litlaputta) að Brigitte Bardot hefði lofað að vera fyrir utan Notre Dame kirkjuna málinu til stuðnings, en auðvitað var honum ekki trúað!“ En ijöldi manns veitti þessari ný- lundu athygli, margir lásu áletmn- ina og einstaka gaf sér tíma til að kjassa hundinn þegar Melin stöðv- aði bílinn einhvers staðar". „Plötusnúður ársins 1986“: „Þarf að hafa góðan tónlistarsmekk og láta lögin falla vel saman“ Fyrir skömmu lauk diskó- tekarakeppni fé- lagsmiðstöðva sem staðið hefur fi-á því í janúar. Var keppt í öllum sex félagasmið- stöðvum í Reykja- !t vík og í Hafnar- HlynurSölvi fírði um 12 sæti í Jakobsson undanúrslitum. Þessir 12 keppend- ur reyndu síðan með sér innbyrðis og komust hinir fjórir sem hlut- skarpastir urðu áfram á úrslita- kvöld diskótekarakeppninnar, sem fram fór í nýju og glæsilegu diskó- COSPER (C)PIB — Reyndu ekki að skæla þig neitt, vertu bara eðlileg. teki félagsmiðstöðvarinnar Frosta- skjóls. Úrsiitin urðu þau að Hlynur Sölvi Jakobsson hreppti fyrsta sæti. í öðm sæti varð Kristján B. Ásgeirs- son, í þriðja sæti Hörður Guðjóns- son og í fjórða sæti Gunnar Páll Jónsson. Dómnefnd var skipuð með nokkuð sérstökum hætti - þeir keppendur sem ekki komust áfram í úrslitakeppnina sýndu skemmti- legan keppnisanda með því að skipa dómnefndina. Varð dómnefndin sammála um niðurstöður sfnar. Hlynur S. Jakobsson ber því titil- inn „Plötusnúður ársins 1986“. Vegleg verðlaun fylgdu þessum titil: Power, 7-rása diskómixer frá Japis. Jafnframt hlaut Hlynur veg- lega plötuúttekt frá Kamabæ eins og allir þeir sem komust í úrslita- kepgnina. „Ég byrjaði í þessum diskóbransa fyrir einu og hálfu ári og hef verið að fikta í þessu síðan“, sagði Hlynur Sölvi í samtali við Mbl. „Ég vinn á diskótekinu í æskulýðsmiðstöðinni í Frostaskjóli 2 til 3 kvöld í viku þannig að maður hefur sæmilega æfingu". — Hvað skiptir mestu máli til að komast langt í þessu starfí? „Ætli það sé ekki að æfa sig nógu mikið og reyna að vanda framkom- una. Maður þarf auðvitað að hafa góðan tónlistarsmekk og láta lögin falla vel saman. Einnig skiptir miklu að stjóma ljósunum rétt og svo öll umgengni við tækin." - Hvaða aldursflokkur sækir diskótekið í Frostaskjóli mest? Það er mest sótt af krökkum á aldrínum 13 til 16 ára. Aðsóknin hefur verið góð í vetur enda er diskótekið nýtt og búið góðum tækjum", sagði Hlvnur. Menntaðu þig í Bygginga- og iðnfræði Kennsla hefst 24. júni 1986. Innritun á sama tima. Hringið og fáið sendan upplýsingabækling i síma 05-625088 eöa sendiö úrklippuna til: Byggteknisk Hejskole Slotsgade 11-8700 Horsens — Danmark Vinsamlegast sendiö mér eintak af upplýsingabæklingnum BTH Nafn: Heimilisfang: Póstnúmer: ............ Borg: ................................... A *♦ f »Ypsilon SANNKÖLLUÐ KRÁARSTEMMNING Það er óhætt að fullyrða að fjör verði í kvöld, því að hinir vinsælu Gosar spila og syngja til kl. 3:00. OPIÐ: í hádeginu alla daga kl: 11.30 - 15. á kvöldin sunnudaga - fimmtudaga kl: 18-01. og á föstudögum og laugardögum kl: 18 - 03. Ölver, Glæsibæ, Álfheimum 74 s: 866220
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.