Morgunblaðið - 26.04.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986
Sjónvarpið sýnir
29 leiki frá HM
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gaer að sjónvarpið sýni
29 leiki frá Heimsmeistarakeppninni í Mexíkó í júní. Hreinn kostnað-
arauki sjónvarpsins vegna þessara útsendinga er áætlaður um þijár
milljónir króna.
Greidd voru atkvæði á útvarpsráðs-
fundinum um þessar útsendingar
og voru 5 fulltrúar samþykkir, Inga
Jóna Þórðardóttir, Magnús Erlends-
son, Eiður Guðnason, Markús A.
Einarsson og Ámi Bjömsson. Har-
aldur Blöndal sat hjá en Ingibjörg
Hafstað, fulltrúi kvennalistans,
greiddi atkvæði á móti. Taldi Ingi-
björg það hneyksli að sýna svona
Þorlákshöfn:
265 hestar
f luttir út
með gripaflutn-
ingaskipi
Gripaflutningaskip á veg-
nm búnaðardeildar SÍS fór
á föstudag frá Þorlákshöfn
með 265 hross; 215 reiðhesta
og 50 sláturhross. Skipið fer
með reiðhestana á hafnir í
Noregi, Danmörku og Belg-
íu, en afsláttarhrossin fara
öll í sláturhús í Belgiu.
Búnaðardeildin vinnur að þessu
máli eins og öðmm hrossamálum
í góðri samvinnu við Hagsmunafé-
lag hrossabænda, eins og Magnús
G. Friðgeirsson, framkvæmda-
stjóri deildarinnar, orðaði það í
samtali við Morgunblaðið. SÍS er
ekki útflytjandi á reiðhestunum,
er eingöngu verktaki við flutning-
inn og selur seljendum eða kaup-
endum hrossanna ýmsa aðra þjón-
ustu.
Sláturhrossin voru notuð til að
fylla skipið eftir að búið var að
smala saman öllum reiðhestunum.
Bændur fá um 12 þúsund krónur
fyrir hvert sláturhross. Útflutn-
ingsbætur eru greiddar og nema
þær um 60% af verðinu.
marga knattspymuleiki.
Alls verða 22 leikir sýndir í beinni
útsendingu, en sjö verða teknir upp
og sendir út skömmu seinna, oftast
samdægurs. Leikimir verða yfirleitt
sýndir kl. 18 og kl. 22. Þrettán
leikir úr riðlakeppni verða sýndir,
þar á meðal þrír leikir danska lands-
liðsins, allir átta leikimir í 16 liða
úrslitum, allir fyórir leikimir í átta
liða úrslitum, báðir undanúrslita-
leikimir, leikurinn um þriðja sætið
og að lokum sjálfur úrslitaleikurinn,
sunnudaginn 29. júní kl. 18.00.
Hljóðvarpið mun ekki gera keppn-
inni nein sérstök skil, önnur en í
fréttum.
Beinn kostnaður vegna útsend-
inganna verður 4,1 milljón króna,
en spamaður á öðru efni er metinn
til frádráttar á 1,2 milljónir. Meðal-
kostnaður á leik er áætlaður tæpar
140 þúsund krónur.
Sjá frétt á bls. 55 -
veisla“.
.Knattspymu-
V estmannaeyjar:
Frá slysstad við Herkastalann.
•Morgunblaðid/Júlíus
Reykjavík:
Ovenju margir árekstrar í gær
— Hjóireiðamaður í slysadeild
FULLORÐINN maður á reið-
hjóli varð fyrir strætisvagni við
Herkastalann, á mótum Aðal-
strætis og Túngötu, um klukk-
an 16.00 í gær. Maðurinn var
fluttur í slysadeild, en meiðsli
hans reyndust minni en á horfð-
ist í fyrstu.
Mikil og þung umferð var í
Reylq'avík í gær og um klukkan
18.00 höfðu orðið 30 árekstrar
frá því um morguninn, sem er
óvenju mikið miðað við árstíma,
enda svipað því sem verst gerist
á vetuma í fljúgandi hálku. Ekki
var vitað um önnur slys á fólki
en því er hjólreiðamaðurinn lenti
í.
Hugmyndir um finnskt
íslenskt listamannahús
NOKKRAR líkur eru á því að reistur verði finnsk-íslenskur lista-
mannabústaður í Vestmannaeyjum áður en langt um líður, í samvinnu
Finna, Vestmannaeyjakaupstaðar og hugsanlega fleiri aðiia. Bæjar-
stjóm Vestmannaeyja hefur fyrir sitt leyti samþykkt að gefa lóð
undir bústaðinn, og Finnar hafa sýnt áhuga á að styrkja bygging-
una, en ekki gefið endanlegt svar þar um, né með hvaða hætti það
yrði.
Jóhanna Bogadóttir listamaður,
sem ættuð er frá Vestmannaeyjum,.
er upphafsmaður þessarar hug-
myndar og hefur unnið ötullega að
því að reyna að hrinda henni í
framkvæmd. Hún sagði í samtali
við Morgunblaðið að upphaflega
hefði verið hugmyndin að byggja
lítið hús, sem gæti verið aðsetur
og vinnustaður fínnskra og ís-
lenskra listamanna til skiptis. „En
þeir fínnsku aðilar sem sýnt hafa
málinu áhuga vilja frekar reisa hús
með tveimur íbúðum, svo þar gætu
búið samtímis finnskir og íslenskir
listamenn. Það er enn betra og
vonandi líður ekki á löngu þar til
Finnar gefa endanlegt svar, svo
þessi hugmynd geti orðið að veru-
leika," sagði Jóhanna.
Það mun fyrst og fremst vera
Finnlandsdeild Norræna hússins
sem sýnt hefur áhuga á að styðja
málefnið. Finnski sendiherrann,
Anders Hulden, sagði blaðamanni
Morgunblaðsins, að hann hefði leit-
að til fínnskra menntamálayfírvalda
og biði eftir svörum þeirra. Hann
hefur einnig rætt við Sverri Her-
mannsson menntamálaráðherra, og
sagði hann að Sverri hefði litist vel
á hugmyndina og væri hugsanlega
tilbúinn til að leggja henni lið.
Ólafur Elísson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði að bæjar-
stjóm hefði samþykkt samdægurs
og erindið barst henni, að veita lóð
undir húsið og veita málinu aðra
þá fyrirgreiðslu, sem í valdi bæjar-
ins væri.
Lífsblómið
vökvað
tsafirði.
SUMARIÐ er komið og grund-
imar gróa. Guðimir vökva út-
hagann með volgri rigning-
arskúr en efstu bekkingar í
Menntaskólanum á ísafirði
dimittera í gær við lok skóla-
kennslu. Þau fóm syngjandi
um bæinn á palli vömbUs frá
einni rækjuverksmiðjunni og
vökvuðu lifsblómið með suð-
rænum veigum. Framundan er
uppskerutíminn hjá æskunni og
gróandinn í náttúmnni.
Morgunbladið/Úlfar
Stefnt að öflun 95 milljóna króna hlutafjár á 2—3 vikum.
Mynda þarf breiðfylkingu til
að koma Amarflugi í loftið
— segir Helgi Jóhannsson
„Við litum svo á að hlutverki
„níu mannahópsins" svokallaða
sé lokið sem slíku og nú sé tíma-
bært að mynda breiða samfylk-
ingu um að koma Amarflugi í
loftið. Það verður unnið að því
af kappi að reyna að afla loforða
fyrir 95 milljóna króna hluta-
fjáraukningu á næstu tveimur til
þremur vikum,“ sagði Helgi Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Sam vinnuf erða/Landsýnar f
samtali við Morgunblaðið.
í gær ákváðu þeir aðilar sem að
undanfömu hafa haft til athugunar
að beita sér fyrir hlutafjáraukningu
Amarflugs, að hefjast handa við
að safna hlutafjárloforðum upp á
a.m.k. 95 milljónir króna. Sú hluta-
fíáraukning er lagalegt skilyrði þess
að ríkið gangi í ábyrgð fyrir 2,5
milljóna dollara láni til Amarflugs.
Helgi sagði að „níumenningam-
ir“, auk Ferðaskrifstofunnar Terra
og Helga Þórs Jónssonar verktaka,
myndu leita til ýmissa áhugasamra
aðila annarra um þátttöku í hluta-
fjáraukningunni. Helgi sagði að nú
þegar ríkisábyrgðin væri f höfn og
fyrir lægi samþykki meirihluta
hlutafjáreigenda Amarflugs um að
færa niður hlutafé sitt í 10% af
nafnverði, væri næsta skrefíð að
reyna að ná viðunandi samningum
við helstu lánardrottna Amarflugs.
Sagðist hann ekki sjá ástæðu til
að ætla annað en að slíkir samning-
ar tækjust.
Verulegar
breytingar
gerðar á
Margréti
EA í Noregi
Akureyri.
MARGRÉT EA 710, togarinn sem
Samheiji hf. á Akureyri keypti
af Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
og hét áður Maí, siglir til Bergen
í Noregi á morgun, sunnudag,
þar sem honum verður breytt
mikið.
Margrét er nú 300 tonn, 46
metrar að lengd — „en verður lengd
mikið,“ sagði Þorsteinn Vilhelms-
son, skipstjóri, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Auk lengingarinnar
verður skipt um vél í skipinu og
einnig skrúfubúnað.
Að sögn Þorsteins verða sett
frystitæki í skipið „sem verða notuð
til að frysta rækju“. Hann sagði
að skipið myndi veiða upp í þorsk-
kvóta en stunda einnig rækjuveiðar.
Breytingamar taka langan tíma
að sögn Þorsteins, hann reiknaði
með að skipið yrði tilbúið til veiða
á ný í september eða október.
Samheiji hf. á ffystitogarann
Akureyrina auk Margrétar. Þá er
fyrirtækið eignaaraðili að Oddeyri
hf., sem stofnað var um rekstur
raðsmíðaskipsins sem keypt var af
Slippstöðinni hf., og skv. heimildum
Morgunblaðsins mun Samheiji sjá
um rekstur þess skips.