Morgunblaðið - 26.04.1986, Side 6
MORGiINBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR26. APRÍL1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Harpa lifandi
strengja
Menn efast stundum um hvort
ástkæra ylhýra málið okkar haldi
sínum hlut á gervihnattaöld. Vissu-
lega er hér þörf árvekni. En geta
ekki blessaðir ljósvakafjölmiðlamir
eins eflt málkennd vora? Hvað til
dæmis um síðustu Kvöldstund með
listamanni.
Sjaldan mætir maður jafn mál-
högum manni og Hannesi Péturs-
syni skáldi. Hér á ég ekki bara við
skáldskap Hannesar er því miður
fór forgörðum í þessum annars
ágæta þætti, nei ég á við að Hannes
rabbaði við þáttarstjórana Áma
Siguijónsson og Ömólf Thorsson á
svo skínandi góðri íslensku að mér
leið sem í Akademiu.
Því miður er allt of algengt að
fólk er mætir í sjónvarpi jafnvei dag
hvem, hnjóti um íslenskuna líkt og
nýfætt lamb um þúfutetur.
Bomir og bamfæddir Skagfirð-
ingar em hins vegar eins og stríð-
aldir stóðhestar í málfarslegu tilliti.
Einn slíkur er Hannes Pétursson
og þótt hann hafi kosið að festa
vængi á hest sinn, þá vex ætíð í
hóffarið kjammikið gras úr norð-
lægri sveit.
Haustkvöld. Langvegir.
Ljósaípd sveitanna slokknuð
ogalltþagnað
nemaeinn lækur
einnhestursem þræðir
beinan stíg,
ogbermigídimmunni
yfir heiðalönd feðra minna
til fjarlægs staðar.
Svanasöngur Ó-A-S
Ljóðlínumar hér á undan eru
teknar úr ljóðabók Hannesar; Inn-
löndum, en nú vindum við okkar
kvæði í kross og skoðum seinasta
þátt þeirra skötuhjúa Ómars, Agn-
esar og Sigmundar Emis Á líðandi
stundu en mér skilst að þar með
sé leiknum lokið í bráð að minnsta
kosti...
Ekki er ofmælt að fáir sjónvarps-
þættir hafa vakið þvílíkan úlfaþyt
og þátturinn Á líðandi stundu. Sá
er hér ritar hefír auðsið ómældri
prentsvertu jrfír lesendur í tilefni
þessa umdeilda sjónvarpsþáttar en
nú er sum sé brunnurinn þurrausinn
og vil ég svona í kveðjuskyni
skyggna þáttaröðina og þá einkum
þáttastjórana: Agnes er fýrst á
beinið. Helsti ókostur Agnesar sem
spyrils er sá hversu erfitt henni
veitist að teygja lopann. Sjónvarps-
menn verða að vera skjótir til
andsvara og tilbúnir að hnýta aftan
við svör sinna mótheija. Þá gerði
Agnes upp á milli gesta eins og
frægt er orðið þannig var greinilegt
að hann Steingrímur var í „silki-
hanskadeildinni". Annars fannst
mér Agnes öllu liprari og óþvingaðri
er leið á þáttaröðina. Sigmundur
Emir er einn af þessum þægilegu
sjónvarpsmönnum er vinnur sitt
verk átakalaust. Hann hefur dálítið
skemmtilegan kæk er heldur _sjón-
varpsáhorfandanum vakandi. Ómar
er auðvitað sér kapítuii. Hann er
afar samviskusamur ríkisstarfs-
maður en líka einn dugmesti
skemmtikraftur landsins. Ég er viss
um að ríkið myndi spara stórar
fúlgur ef menn á borð við Ómar
Ragnarsson tælq'u að sér rekstur
báknsins, í það minnsta er ekki að
efa að Ómar hefir sparað íslenska
sjónvarpinu stórfé með Frúnni. Þá
hefír púl Ómars í skemmtibransan-
um lífgað uppá dagskrá ríkissjón-
varpsins okkar blessaða, til dæmis
í þættinum Á líðandi stundu þótt
þar hafí nú stundum verið skotið
yfír og undir markið, einkum í
myndbrotunum frá söguöldinni.
Hvað um það þá er ekki svo lítið
afrek að tæma stræti borga og
bæja og sæl er sú þjóð er bergir
af einum og sama brunni.
Ólafur M.
Jóhannesson
Atriði í kvikmyndinni Innrásin frá Mars. Gene Barry og Ann Robinson í hlutverk-
um sinum.
Innrásin frá Mars
■■■■ Innrásin frá
0050 Mars (The War
of thé Worids),
bandarísk bíómynd frá
1952, er á dagskrá sjón-
varps í kvöld. Myndin er
gerð eftir vísindaskáldsögu
H.G. Wells. Efni myndar-
innar er á þá leið að Mars-
búar eiga í erfíðleikum
heima fýrir þar sem súrefni
er að ganga til þurrðar á
plánetu þeirra og hitastig
hefur fallið mikið. Þeir
ákveða að leggja undir sig
jörðina og ráðast til atiögu
búnir fullkomnum vígvél-
um. Svo virðist sem þá bíti
engin vopn en fámennur
hópur vísindamanna lætur
ekki deigan síga. Kvik-
myndahandbókin okkar
gefur þessari mynd eina
stjömu og telur hann
sæmilega.
Listagrip
Þáttur um listir og menningarmál
■■■■ Listagrip, þátt-
1 /* 20 ur * umsJá Sig-
A O rúnar Bjöms-
dóttur, er á dagskrá rásar
eitt síðdegis í dag, en þátt-
ur þessi er tvisvar í viku
hverri, á laugardögum og
fímmtudögum. í þáttum
sínum fjallar Sigrún um
það sem er efst á baugi
hveiju sinni í listalífí land-
ans. í því skjmi mæta jafn-
an ýmsir mætir gestir til
viðtals og ennfremur eru
þar fluttir pistlar sérfróðra
manna í einstökum list-
greinum. Þar er til að
mynda gert skil tónlistar-
viðburðum og leikhússýn-
ingum á laugardögum, en
aftur myndlist og 'kvik-
myndum á fímmtudögum.
Leifur Þórarinsson segir
frá tónieikum sinfóníu-
hljómsveitarinnar í þessari
viku og greinir frá þvf sem
í vændum er. Eins Qallar
Oddur Bjömsson um af-
mælissýningu Þjóðleik-
hússins, en fmmsýning
verður á sumardaginn
fyrsta. Að lokum er að
geta pistils um listir og
menningu á líðandi stundu
í París.
„Lögregla
og fólk“
■■■■ „Lögregla og
01 35 fóik“ nefnist
þáttur sem er á
dagskrá rásar eitt í kvöld.
„í þættinum mun ég lesa
frásögn sem ég skrifaði
fyrir 22 árum þegar ég var
í blaðamennsku á Vísi“,
sagði Steingrímur Sigurðs-
son í samtali við Mbl. „Þá
fékk ég að vera í bflunum
með lögreglunni og fékk
til þess leyfi lögreglustjóra
en þá var gamla lögreglu-
stöðin í Pósthússtræti enn
við lýði. Þetta er svona
svipmynd af vinnubrögðum
lögreglunnar á þessum
tíma og ég held að þetta
sé alveg óvilhöll frásögn
því ég lagði mig fram um
að greina frá því sem fyrir
augu bar á eins hlutlausan
hátt og kostur var. Ég valdi
músík með frásögninni sem
ég reyndi að láta falla að
efninu, og hún er að sjálf-
sögðu frá þessum tíma.
Djassspjall
Rætt við Svein Ólafsson
og leikinn fyrirstríðsáradjass
■■■■ Djassspjall er á
Ol 00 dagskrá á rás
“ A tvö í kvöld. „Við
Islendingar erum ein fárra
þjóða sem eiga sinn elsta
djassleikara enn á lífí, en
það er Sveinn Ólafsson,
fyrrum tenórsaxófónleikari
á Borginni hér fyrir stríð.
Ég mun spjalla við hann í
þættinum í kvöld," sagði
Vemharður Linnet í sam-
tali við Mbl. „Sveinn hefur
leikið á lágfiðlu með Sin-
fóníuhljómsveitinni eftir að
hún var stofnuð, en hann
er hættur að spila núna
sakir aldurs - þó Sveinn
sé nú öðrum mönnum
hressari. Sveinn lék m.a.
með Arthur Rosbery, það
var enskur djassleikari sem
stjómaði hér hijómsveit á
Hótel Borg um 1930. Við
munum leika djass frá
þessum tíma og ef upptök-
ur með Sveini Ólafssyni
finnast munum við leika
þær í þættinum."
UTVARP
LAUGARDAGUR
26. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.20 Morgunteygjur.
7.30 fslenskir einsöngvarar
og kórarsyngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.16 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áöur
sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
Óskalög sjúklinga, fram-
hald.
11.00 Á tólfa tímanum. Bland-
aöur þáttur úr menningartíf-
inu í umsjá Þorgeirs Olafs-
sonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur
Ivikulokin.
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfónía í g-moll eftir Ernest
John Moeran. Enska sin-
fóníuhljómsveitin leikur;
Neville Dilkes stjórnar.
15.50 íslenskt mál. Guðrún
Kvaran flytur þáttinn.
18.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón. Sigrún Björnsdóttir.
17.00 „Kattarloppan", saga af
stígvélaða kettinum eftir
Marcel Aymé. Jón B. Guð-
laugsson þýddi. Kristján
Viggósson les.
17.40 Síödegistónleikar
a. „Boðið upp í dans",
konsertvals eftir Carl Maria
von Weber. Útvarpshljóm-
sveitin í Berlin leikur; Robert
Hanell stjórnar.
b. „Létta riddaraliðiö", for-
leikur eftir Franz von Suppé.
Sinfóníuhljómsveitin í Detro-
it leikur; Paul Paray stjórnar.
c. „Espana", hljómsveitar-
verk eftir Emanuel Chabrier.
Sinfóníuhljómsveit spánska
útvarpsins leikur; Igor
Markevitsj stjórnar.
d. „Stundadansinn", ballett-
tónlist eftir Amilcare Ponc-
hielli. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Sama og þegið".
Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson,
Sigurður Sigurjónsson og
Örn Árnason.
20.00 Harmoníkuþáttur. Um-
sjón: Sigurður Alfonsson.
20.30 Atvinnusaga frá kreppu-
árunum. Guðrún Guðlaugs-
dóttir ræðir við Boga Jóns-
son. Áður útvarpað 4. febrú-
arsl.
21.05 Óperettutónlist.
21.35 „Lögregla og fólk"
Steingrímur Sigurðsson les
þátt úr bók sinni, Spegill
samtíðar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.25 I hnotskurn — Rauða
myllan. Umsjón: Valgaröur
Stefánson. Lesari með
honum: Signý Pálsdóttir.
(Frá Akureyri).
23.05 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
SJONVARP
16.00 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
19.20 Búrabyggö
(Fraggle Rock)
Fimmtándi þáttur.
Brúöumyndaflokkur eftir Jim
Henson.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttirog veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Dagbókin hans Dadda
(The Secret Diary of Adrian
MoleAged 133/«)
Fimmti þáttur.
Breskur myndaflokkur í sjö
þáttum, geröur eftir bók Sue
Townsends.
Leikstjóri Peter Sasdy.
Aðalhlutverk: Gian San-
marco, Julie Walters, Step-
LAUGARDAGUR
26. apríl
hen Moore og Beryl Reid.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.05 Ævintýri í Austurlanda-
hraðlestinni
(Minder on the Orient Ex-
press)
Ný bresk sjónvarpsmynd
um söguhetjur vinsælla
sjónvarpsþátta.
Leikstjóri Francis Megahy.
Aöalhlutverk: DennisWater-
man og George Cole.
Söguhetjunum, Terry og
Arthur, býðst óvænt tæki-
færi til að feröast meö
Austurlandahraölestinni. En
böggull fylgir skammrifi.
Þeir blandast i illdeilur
glæpamanna og lögreglan
er heldur ekki fjarri góðu
gamni.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.50 Innrásin frá Mars
(The War of the Worlds)
Bandarisk bíómynd frá
1952, gerð eftir visinda-
skáldsögu eftir H.G. Wells.
Leikstjóri Byron Haskin.
Aðalhlutverk: Gene Barry og
• AnnRobinson.
Marsbúar búnir fullkomnum
vígvélum ætla að leggja
undir sig jörðina. Svo virðist
sem þá biti engin vopn en
fámennur hópur vísinda-
manna lætur ekki deigan
siga.
Þýðandi Baldur Hólmgeirs-
son.
00.25 Dagskrárlok
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00
LAUGARDAGUR
26. apríl
10.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blön-
dal.
12.00 Hlé
14.00 Laugardagurtillukku
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00 Hringborðið
Erna Arnardóttir stjórnar
umræöuþætti um tónlist.
18.00 Hlé
20.00 Bylgjur
Ásmundur Jónsson og Árni
Daniel Júlíusson kynna
framsækna rokktónlist.
21.00 Djassspjall
Umsjón: Vernharöur Linnet.
22.00 Bárujárn
Þáttur um þungarokk í
umsjá Siguröar Sverrisson-
ar.
23.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Ánæturvakt
með Þórarni Stefánssyni.
03.00 Dagskrárlok.