Morgunblaðið - 26.04.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986
Sjávarútvegsráðherra ofsækir
selabændur enn einu sinni
eftir Játvarð Jökul
Júlíusson
Það er eðlisfar aðal selategunda
við ísland, landsels og útsels, öðrum
nöfnum vorsels og haustsels, að
kóparnir fæðast á landi og alast
upp á landi. Þetta er með þeim
hætti um vorkópana, að urturnar
gefa þeim að sjúga upp á skeijum,
en láta þá fylgja sér þess á milli á
iygnum sundum og vogum. Þar sem
landselur á heimkynni á brim-
ströndinni, eru kóparnir meira að
staðaldri á landi fyrstu vikurnar.
Landselurinn er einstaklega trygg-
ur við átthagana og það svo, að
leitun mun á dýrategund sem tekur
honum fram í því. Eru þess mörg
dæmi, að sömu urtumar halda til
með kópana við sömu skerin vor
eftir vor, en við önnur sker veiðist
ekki fyrr en kópar eru villtir undan.
Selir hafa frá öndverðu verið bú-
stofn bændanna á selveiðijörðunum.
Sá bústofn gengur sjálfala og
ómerktur, en er veruleiki rétt eins
og búfé í högum. Það tók selabænd-
ur jafn sárt, ef ekki sárara, ef urta
kafnaði í neti, eins og það tók þá
að missa góða á í dý eða í sjóinn.
Utsels- eða haustselskóparnir eru
enn grónari landdýr í uppvextinum.
Þeir heita líka bólselir. Urturnar
fæða þá af sér og geyma þá fyrir
ofan stórstraumsflæðarmál þangað
til þeir eru famir úr hámm. Þetta
er aðalreglan. Hins munu þó dæmi,
að haustkópar skrimti, þó þeir lendi
í sjónum af einhveijum ástæðum.
Útselir eru einnig tryggir átthögum
sínum og hliðstæður bústofn bænda
á selajörðum, líkt og landselurinn.
En hann gerir viðreistara en land-
selurinn.
Selveiði bænda á hlunnindajörð-
um er eingöngu kópaveiði. Hún var
og er enn metin til verðs í verði
bújarða. Er því skattstofn. Bæði
goldin fasteignagjöld og eigna-
skattur af matsupphæðunum, rétt
eins og af sérmetnum hlunnindum
af laxveiði, dúntekju og reka. Fram
hjá þessari staðreynd verður ekki
gengið með nokkru móti. Þarna fer
allt saman: Ákvæðin í stjórnar-
skránni um eignarréttinn, aldagöm-
ul hefð við að nytja gæði náttúmnn-
ar og loks það órofa samræmi lands
og lífríkis, sem áður er lýst.
Leitað að syndasel
Nú er sótt að þessu öllu af
dæmafáu offorsi. Nógu andstætt
og bölvað var að verða fyrir tiltækj-
um harðsnúinna hópa „náttúm-
vemdarfólks", sem eyðilagði mark-
að fyrir kópaskinn. Það dugnaðar-
fólk athugaði ekki, að það kemur
fram í seinna verkinu sem gert er
í því fyrra. Þegar kópaskinnin urðu
verðlaus, dró mjög úr kópaveiðun-
um. Við það hlaut sel að fjölga
meira en áður, þó annað vegi á
móti, sem seinna verður nefnt. Þá
blossaði upp ofstækisáróður gegn
selum, sem svipar til galdrabrennu-
aldarinnar.
Játvaröur Jökull Júlíusson
Selum einum er kennt um hring-
orma í fiski. Og nú er sagt að selir
eti þvílík dómadags kynstur af fiski,
og þá þeim dýrasta, þorskinum,
því skuli selir réttdræpir og friðlaus-
ir: „Drepum selinn strax,“ sagði í
sumar í blaði sjávarútvegsráðherr-
ans, meðan náttúmverndarfólkið
uggir ekki að sér og er upptekið
við að vemda hvali. Þetta aðvaraði
okkur bænduma.
Auðvitað eta selir fisk. Þeir
sækja í skelfisk, einkum krækling,
en landselurinn beitir sér á krækl-
„Komið er á eileftu
stundu fyrir selabænd-
ur að ná hópnum sínum.
A undanf örnum árum,
eftir að seladráp hring-
ormanefndar komst í
algleyming, hefur orðið
gífurleg röskun á viss-
um svæðum. Dæmin
hafa verið að koma
fram eitt af öðru. Utsel-
ur er nær alveg horf inn
þar sem dauðasveitir
hringormamafíunnar
hafa haft sig mest í
frammi.“
ingaskerin, segja þeir sem best
þekkja. Næsta góðmeti landselsins
er marhnúturinn, fiskur sem fylgir
sjávarföllum og allt morar af á
grunnsævinu, þar sem selimir halda
sig mest. Eins kunna selir að meta
hrognkelsi, ekki síst lifrina. Trúi
þv'hver sem trúa vill, að selir viti
ekki hvemig krabbar og rækjur em
á bragðið. Gefur auga leið, að það
léttir á flatfiski og öðmm nytja-
fiskum á grannsævinu. Það liggur
í hlutarins eðli, að þar mæðir mikið
á uppsjávarfískum, lonu og sfld,
sem oft er hvað mest af. Það er
mesta rangfærsla, að selir lifi alveg
á botnfíski.
En hvemig fara aðrir með físk?
Er ekki fleygt í sjóinn því sem
skemmist í netum? Er ekki talað
um að dauðum smáfíski sé mokað
fyrir borð? Er ekki jafnvel talað um
að stórfíski sé fleygt á frystitogur-
um, ef hann er of stór fyrir vélam-
ar? Eða þá lifrinni og hrognunum?
Maður, líttu þér nær í leit að synda-
sel.
Undir sjóræningjafána
Selir em hlekkir í lífkeðju strand-
ar og gmnnsævis áþekkt og sjófugl-
ar. Nytjar beggja tegundanna land-
nytjar. Bændur uggðu ekki að sér
fyrr en allt í einu að Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra og
varaformaður Framsóknarflokksins
dró sjóræningjafána að húni: Hann
bar fram fmmvarp til laga um að
selir skuli réttdræpir og allt um
seli heyri undir ráðuneyti hans.
Um leið vitnaðist, að sjávarút-
vegsráðherrann á undan honum,
Steingrímur Hermannsson þing-
maður okkar Vestfirðinga og for-
maður Framsóknarflokksins, hafði
látið semja fmmvarpið. Með því
hafði hann lúmskast á bak við
landbúnaðarráðherrann, sem þá var
Pálmi Jónsson. Eins hafði Halldór
farið á bak við Jón Helgason land-
búnaðarráðherra, sem ætti vitan-
lega að verja hagsmuni hlunninda-
bænda. Fmmvarpið og yfírgangs-
stefna þess mætti strax mótspymu.
Bent var á að það væri meingallaður
óskapnaður stjómarfarslega. Líf-
fræðingar drógu í efa einhæf vísindi
hringormanefndar, því ýmsir sjó-
fuglar og smáhvalir séu hýslar
hringorma engu síður en selir.
Árið 1984 var frumvarpið stöðv-
að í þinginu. Þá þegar höfðu a.m.k.
Fermingar á morgun
Digranesprestakall.
Ferming í Kópavogskirkju
sunnudaginn 27. apríl kl. 10.30.
Prestur sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
Drengir:
Brynjólfur Gísli Eyjólfsson,
Hrauntungu 23.
Kjartan Þórólfsson,
Hrauntungu 23.
Gísli Sigurgeir Jensson,
Reynigmnd 33.
Ingólfur Jörgensson,
Selbrekku 38.
Jóhannes Hjaltason,
Efstahjalla lc.
Jón Geir Sigurbjömsson,
Birkihvammi 17.
Sigurður Kristján Hjaltested,
Vatnsenda.
Viðar Þór Viðarsson,
Hjallabrekku 23.
Stúlkur:
Áslaug Traustadóttir,
Vallargerði 22.
BrynjaJónsdóttir,
Starhólma 4.
Claudía P. Sigurbjömsdóttir,
Engihjalla 7.
Elín Amdís Valtýsdóttir,
Álfatúni 11.
Eva Rut Eyjólfsdóttir,
Engihjalla21.
Guðríður Alda Guðmundsdóttir,
Digranesvegi 89.
Gunnur Steinunn Nikulásdóttir,
Stórahjalla 15.
Herdís Lilja Jónsdóttir,
Litlahjalla 5.
Herdís Stefánsdóttir,
Álfhólsvegi 46a.
Ingibjörg Þórsdóttir,
Nýbýlavegi 58.
Jóhanna Selma Sigurðardóttir,
Stórahjalla 29.
Jóna Þóra Jensdóttir,
Löngubrekku 15a
Klara Katrín Friðriksdóttir,
Brekkutúni 22.
Kristín Eva Þórhallsdóttir,
Víðihvammi 27.
Mary Björk Þorsteinsdóttir,
Löngubrekku 18.
Soffía Sóley Þráinsdóttir,
Dalbrekku 4.
Þómnn Jónsdóttir
Víðigmnd 1.
Digranesprestakall.
Ferming í Kópavogskirkju
sunnudaginn 27. apríl kl. 14.00.
Prestur sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
Drengir:
Ásbjöm Olafsson,
Stórahjalla21.
Bjami Antonsson,
Rauðahjalla 9.
Björgvin Þór Björgvinsson,
Birkihvammi 1.
Guðmar Ómarsson,
Reynigmnd 15.
Guðni Öm Finnbogason,
Álfhólsvegi 145.
Haukur Öm Dýrfjörð Kristjánsson,
Álfatúni 31.
Hjörtur Magnússon,
Smiðjuvegi 23.
Jóhann Helgi Ólafsson,
Fumgmnd 50.
Jónas Páll Bjömsson,
Fumgmnd 73.
Stúlkur:
Anna Jóna Baldursdóttir,
Álfatúni 15.
Áslaug Ólafsdóttir,
Þverbrekku 4.
Berglind Rán Ólafsdóttir,
Efstahjalla 16.
Ellen Eliza Meiling,
Daltúni 5.
Eyrún Pálsdóttir,
Hrauntungu 13.
Hjördís Einarsdóttir,
Hlíðarvegi 38.
Hugrún Björk Hafliðadóttir,
Efstahjalla 11.
Nanna Lilja Níelssdóttir,
Brekkutúni 12.
Rebekka Jóhannesdóttir,
Eskihvammi 2.
Sóley Erla Ingólfsdóttir,
Hlíðarvegi 18.
Þórama Ý r Oddsdóttir,
Borgarholtsbraut 25.
Fella- og Hólakirkja.
Ferming og altarisganga sunnu-
daginn 27. apríl kl. 14.
Prestur: sr. Hreinn Hjartarson.
Fermd verða:
Ásta Ósk Skaftfells,
Austurbergi 28.
Berglind Hulda Jónsdóttir,
Hólabergi 62.
Eggert Garðarsson,
Fannafold 95.
Elías Samúelsson,
Hólabergi 10.
Guðmundur Guðmundsson,
Hólabergi 60.
Guðni Sigurður Þórisson,
Hólabergi 44.
Gunnar Óli Erlingsson,
Krammahólum 2.
Heiður Reynisdóttir,
Háaleitisbraut 54.
Helga Eygló Guðjónsdóttir,
Gaukshólum 2.
Hrefna Guðmundsdóttir,
Hólabergi 60.
Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir,
Hábergi 5.
Katrín Perla Gunnarsdóttir
Suðurhólum 8.
Knútur Guðjónsson,
Hábergi 3.
Rúna Björk Smáradóttir,
Hábergi 3.
Rúnar Þór Bergþórsson,
Hamrabergi 18.
Þómnn Marsibil Eggertsdóttir,
Smyrilshólum 4.
Þorvaldur Jónsson,
Hólabergi 16.
Ferming I Þingmúlakirkju
sunnudaginn 27. apríl kl. 14.
Prestur sr. Vigfús Ingvar Ing-
varsson. Fermd verða:
Erla Snorradóttir,
Grímsárvirkjun.
Eyrún María Rúnarsdóttir,
Fumgmnd 64, Kópavogi.
Sigríður Hreinsdóttir,
Amhólsstöðum.
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Sýnd í Bíóhöllinni. Stjömugjöf:
**
Framleiðandi Joel Silver. Hand-
rit: Steven E. da Souza og fleiri.
Tónlist: James Homer. Kvik-
myndataka: Matthew F. Leonetti.
Leikstjóri: Mark L. Lester. Aðal-
hlutverk: Amold Schwarzenegger.
Það er aðeins eitt, sem Amold
Schwarzenegger getur ekki í hlut-
verki John Matrix í myndinni
„Commando" og það er leikið. En
það háir honum að sjálfsögðu
ekkert í afar viðburðaríkum elting-
arleik hans við ofbeldismennina,
sem rænt hafa dóttur hans. Hann
hefur ekki mikið við þá að segja
og þar fyrir utan lifa þeir svo stutt
eftir að hann hittir þá að þeir
geta varla sagt „svei þér“ áður
en hann sendir þá inn í Edens fína
rann. Það er greinilegt að
Ofurmenni
bregður á leik
samræður við morgunverðarborð-
ið. („Þegar rokkið kom til Austur-
Evrópu sögðu menn það vera spill-
ingu“) á miili þess sem hann segist
elska hana og aldrei ætla frá
henni. En þá er henni rænt og
upphefst eftir það sérstaklega
skemmtilegur eltingarleikur,
raunar sá fróðlegasti sem sýndur
hefur verið hér lengi. Einræðis-
herrann vill að Matrix drepi leið-
toga Val Verde svo hann geti tekið
sess hans og orðið einræðisherra
aftur, en Matrix er ekki á þeim
buxunum og ekkert fær stöðvað
hann í leit að dótturinni.
Hann hleður á sig heilu vopna-
Szhwarzenegger þekkir sín tak-
mörk hvað listræna hæfíleika
snertir, ólíkt kollega sínum, Stall-
one, sem aldrei getur látið hjá líða
að reyna við listagyðjuna, með
hræðilegum árangri.
f „Commando" gerist sá ógur-
legi atburður að andfélagslegir
menn undir stjóm fyrrum ein-
ræðisherra í smáríkinu Val Verde
í Suður-Ameríku, ræna dóttur
John Matrix, sem er fyrmm stríðs-
hetja í stórveldinu Bandaríkjunum.
Hann hefur þó dregið sig í hlé
frá argaþrasi hins daglega lífs og
býr einn í fjallakofa með dóttur
sinni og á við hana uppbyggilegar