Morgunblaðið - 26.04.1986, Qupperneq 30
MORG tjNBLÁÐÍÐVLXtrtíA RD AGtJR! 26. A^RÍÍ^ Í986
30
JB
Opin ráðstefna stang-
veiðimanna um helgina
VEIÐIMANNARAÐSTEFNA verður haldin að Hótel Loftleiðum
i fyrsta sinn um helgina, en það er Landssamband Stangveiðifé-
laga sem stendur fyrir henni. Ráðstefnan stendur bæði laugardag
og sunnudag og fjöldi fyrirlesara úr hópi veiðimanna flytja erindi
á ráðstefnunni.
Raunar hefst þessi ráðstefna
ekki í fyrirlestrasalnum, heldur á
íþróttasvæði í Laugardal, þar sem
kastmót verður haldið. Verður
keppt með tví- og einhendisflug-
stöngum og kaststöngum með 18
gramma lóðum. Tæki eru á staðn-
um, en skráning hefst klukkan
9.00 á kastvellinum fyrir sunnan
sundlaugina.
Því næst tekur við ráðstefnan
sjálf og hefst hún með ávarpi
Gylfa Pálssonar formanns Lands-
sambandsins. Á blaðamannafundi
fyrir skömmu lýsti hann innihaldi
þeirra fyrirlestra sem fluttir verða
með eftirfarandi orðum: „Það er
óhætt að segja að víða verði komið
við, komið verður inn á raunvís-
indi, heimspeki, útivist og líkams-
rækt, atvinnumál, tæknileg mál,
slysavamir og raunar allt þar á
milli. Allt er þetta gert til þess
að auka hróður stangaveiðinnar,
en hún á vaxandi vinsældum að
fagna meðal almennings í landinu.
Það er að verða æ ljósara meðal
fólks að stangaveiði er ekki ein-
ungis laxveiði stunduð af auð-
mönnum og hátekjumönnum,
þvert á móti. Könnun hefur sýnt
að milli 50.000 og 60.000 íslend-
ingar stunda veiðiskap sjálfum sér
til ánægju tvo daga á ári eða
meira."
Að loknu ávarpi Gylfa koma
fyrirlestamir hver af öðmm. Vil-
hjáimur Lúðvíksson ríður á vaðið
með tölu um „veiðiheimspeki" og
síðan tekur Rafn Hafnfjörð við
með litskyggnusýningu og lýsing-
um á veiðistöðum og veiðisögum
í bland. Eftir kaffíhlé flytur Jón
Kristjánsson fyrirlestur sem ber
heitið, „Af hveiju tekur ’ann?“. Á
eftir Jóni ræðir Skúli Hauksson
bóndi í Útey við Apavatn um ný
viðhorf silungsveiðibænda og
dagskrá laugardagsins lýkur síð-
an með verðlaunaafhendingu fyrir
kastkeppnina, sem dagurinn hófst
á. Ávarp formanns er klukkan
13.30.
Sunnudagsdagskráin hefst
klukkan 13.30 á fyrirlestri norska
líffræðingsins Hans Nordeng um
nýjar kenningar í fískilíffræði.
Nordeng starfar við Háskólann í
Osló og er hér í boði Landssam-
bands Stangveiðifélaga. Hannes
Hafstein fulltrúi Slysavamafélags
íslands tekur við af Nordeng með
fyrirlestri um öryggisvamir við
veiðivötn. Eftir kaffíhlé ræðir
Stefán Jónsson um veiðibók-
menntir og eðli veiðisagna og loks
ræða Kolbeinn Grímsson og Þor-
steinn Þorsteinsson um veiðitæki
og notkun þeirra.
Báða dagana munu fluguhnýt-
ingamenn sýna listina, veiðim}md-
bönd munu renna sleitulaust í
gegn um tækin og veiðitímaritin
þijú sem gefín em út hér á landi
munu liggja frammi mönnum til
handargagns ef þeir vilja hvíla sig
á fyrirlestrunum. Þess ber að geta
að lokum, að ráðstefnan er öllum
opin og aðgangseyrir er enginn.
Peningamarkaðurinn
GENGIS-
SKRANING
Nr. 77. - 25. apríl 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,900 41,020 41,720
SLpund 62,769 62,953 61,063
Kan.dollari 29,500 29,586 29,931
Dönsk kr. 5,0277 5,0424 4,7919
Norsk kr. 5,8583 5,8755 5,7335
Sænsk kr. 5,7752 5,7921 5,6735
Fi.mark 8,1980 83221 7,9931
Fr.franki 53241 5,8412 5,5420
Belg. franki 0,9094 0,9121 0,8654
Sv.franki 22,2071 22,2723 21,3730
Holl.gyllini 16,4554 16,5037 15,6838
V-þ. mark 18,5740 18,6285 17,8497
Itlíra 0,02705 0,02713 0,02579
Austurr.sch. 2,6417 2,6494 2,5449
Port escudo 0,2773 0,2781 03660
Sp. peseti 0,2916 0,2924 0,2788
Jap.yen 0,24108 0,24179 0,23346
Irskt pund 56,323 56,489 54,032
SDR(Sérst 48,0916 483327 47,3795
INNLÁNSVEXTIR:
Sparisjóðsbækur
Landsbankinn................ 9,00%
Útvegsbankinn............... 8,00%
Búnaðarbankinn............. 8,50%
Iðnaðarbankinn.............. 8,00%
Verzlunarbankinn............ 8,50%
Sanwinnubankinn............ 8,00%
Alþýðubankinn.............. 8,50%
Sparisjóðir................ 8,00%
Sparisjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 10,00%
Búnaðarbankinn.............. 9,00%
Iðnaðarbankinn.............. 8,50%
Landsbankinn................ 10,00%
Samvinnubankinn............. 8,50%
y Sparisjóðir..................... 9,00%
Útvegsbankinn............... 9,00%
Verzlunarbankinn........... 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 12,50%
Búnaðarbankinn.............. 9,50%
Iðnaðarbankinn.............. 10,50%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Verzlunarbankinn............ 12,00%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýöubankinn............... 14,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Útvegsbankinn............... 12,60%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravísitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,00%
Búnaðarbankinn............... 1,00%
Iðnaðarbankinn............... 1,00%
Landsbankinn................. 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóðir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn..... ....... 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 3,00%
Búnaöarbankinn............... 2,50%
Iðnaðarbankinn............... 3,00%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 2,50%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn............. 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Að loknum binditíma 18 mánaða og
24 mánaða verðtryggðra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávísana- og hlaupareikningar:
Alþýðubankinn
- ávísanareikningar........... 6,00%
- hlaupareikningar............ 3,00%
Búnaðarbankinn................ 2,50%
Iðnaðarbankinn................ 3,00%
Landsbankinn.................. 4,00%
Samvinnubankinn............... 4,00%
Sparisjóðir................... 3,00%
Útvegsbankinn................. 3,00%
Verzlunarbankinn )............ 3,00%
Eigendur ávisanareikninga í Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveöna
lágmarksinnstæðu á reikningi sinum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjörnureikningar:
Alþýðubankinn )............ 8-9,00%
Alþýðubankinn býður þrjár tegundir
Stjörnureikninga og eru allir verð-
tryggðir. I fyrsta lagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraöa —
lífeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og
verðbætur eru lausar til útborgunar í
eitt ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin i tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar í eitt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn............... 7,25%
Afmæiisreikningur Landsbankans er
bundinn í 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus í tvo mánuði eftir að binditíma lýk-
ur. Heimilt er að leggja inn á reikninginn
til31.desember1986.
Safnlán - heimilislán - IB-lán - plúslán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Alþýðubankinn............... 10-13%
Iðnaðarbankinn............... 8,50%
Landsbankinn................. 10,00%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn............... 13,00%
Iðnaðarbankinn............... 9,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Sparisjóðir ................ 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Innlendir gjaldeyrísreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................ 7,50%
Búnaðarbankinn............... 6,50%
Iðnaðarbankinn............... 7,00%
Landsbankinn................. 6,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 6,75%
Útvegsbankinn................ 7,00%
Verzlunarbankinn............. 7,00%
Sterlingspund
Alþýðubankinn............... 11,50%
Búnaðarbankinn.............. 10,50%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Landsbankinn................ 11,50%
Samvinnubankinn............. 11,50%
Sparisjóðir................. 10,50%
Útvegsbankinn............... 11,50%
Verzlunarbankinn............ 11,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn............... 4,00%
Búnaðarbankinn............... 3,50%
Iðnaðarbankinn............... 4,00%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 4,00%
Sparisjóðir.................. 3,50%
Útvegsbankinn................ 3,50%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................ 8,00%
Búnaöarbankinn............... 7,00%
Iðnaðarbankinn............... 8,00%
Landsbankinn................. 7,00%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 7,00%
Útvegsbankinn................ 7,00%
Verzlunarbankinn............. 7,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25%
Skuldabréf, almenn................. 15,50%
Afurða- og rekstrarlán
í íslenskum krónum.......... 15,00%
í bandaríkjadollurum......... 8,25%
í sterlingspundum........... 111,5%
í vestur-þýskum mörkum..... 6,00%
iSDR......................... 8,00%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
í allt að 2 / ár................ 4%
Ienguren2/ár.................... 5%
Vanskilavextir................. 27%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84 ... 20,00%
Skýringar við sérboð
innlánsstof nana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
13,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn-
stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaöri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liðins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum
reikningum og þriggja mánaða verðtryggðum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aðareikninga ervalin.
Búnaðarbankinn: Gullbók ber 13,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem
innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
um vöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxtun
6 mánaða verðtryggðra reikninga og Met-
bókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari en
ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Þá
ársfjórðunga (jan.—mars o.s.frv.) sem inn-
stæða er óhreyfö eða einungis ein úttekt (eftir
að lausir vextir hafa verið teknir út) fylgja
vextir þeim sparifjárreikningum bankans sem
hæsta ávöxtun gefa. Af úttekinni fjárhæð
reiknast almennir sparisjóðsvextir. Innstæða
á Kaskóreikningi, sem stofnaður er í síðasta
lagi á öðrum degi ársfjórðungs og stendur
óhreyfð út ársfjórðunginn nýtur Kaskókjara
með sama hætti og innstæða á Kaskóreikningi
sem til hefur verið heilan ársfjórðung og fær
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í
innleggsmánuði. Stofninnlegg siðar á ársfjórð-
ungi fær hæstu ávöxtun í lok þess næsta á
eftir sé reikningurinn í samræmi viö reglur um
Kaskókjör. Ef fleiri en ein úttekt er á ársfjórð-
ungi, eftir að lausir vextir hafa verið teknir út,
fær reikningurinn almenna sparisjóðsvexti.
Vextir og verðbætur leggjast við höfuðstól í
lok hvers ársfjórðungs hafi reikningurinn notið
Kaskókjara. Vextir eru ávallt lausir og úttekt
vaxta skerðir aldrei Kaskókjör.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Eftir tvo mánuði 12% vextir, eftir
þrjá mánuði 13% o.s.frv. uns innstæða hefur
verið óhreyfð í 6 mánuði þá reiknast 18%
vextir. Áunnar vaxtahækkanir reiknast alltaf
frá því að lagt var inn. Vaxtafærsla á höfuð-
stólereinu sinniáári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir því sem innstæða
er lengur. Hver innstæða er meöhöndluö sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá er einnig gerður samanburður
á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og sú hagstæðari valin.
Sparisjóðir: Trompreikningar eru verð-
tryggðir og bera auk þess grunnvexti 6 mán-
aða verðtryggðra reikninga. Vextir eru færðir
á höfuðstól fjórum sinnum á ári. Hreyföar
innstæður innan mánaðar bera sérstaka
Trompvexti 12,5% ef innstæða hefur verið
óhreyfð i þrjá mánuði eða lengur, en annars
almenna sparisjóðsbókarvexti. Sparisjóður
vélstjóra er einnig með Sparibók, sem er
bundin í 12 mánuði og eru vextir 15,5%.
Ávöxtun er borin saman við ávöxtun á sex
mánaða verðtryggöum reikningum og sú
hagstæðari valin. Þá bjóða Sparisjóður
Reykjavikur og nágrennis, og Sparisjóðir
Kópavogs, Hafnarfjarðar, Sparisjóður Mýrar-
sýslu og Sparisjóðurinn i Keflavfk svokallaða
toppbók. Þetta er bundinn reikningur i 18
mánuði og er þá laus í einn mánuð, þá binst
innistæðan á ný og er laus til útborgunar i
einn mánuð á sex mánaða fresti. Vextir eru
14.50% og eru færðir á höfuðstól tvisvar á
ári. Ávöxtun Toppbókar er borin saman við
ávöxtun sex mánaða verðtryggðra reikninga
og sú hagstæðari valin.
Iðnaðarbankinn. Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 3% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 10,5% á ári. Mánaöar-
lega eru borin saman verðtryggð og óverð-
tryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau
kjör sem eru hærri á hverjum tima. Hreyfðar
innstæður bera sérstaka vexti. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári. Heimilt er að
taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili.
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starf smanna rikisins:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lánið vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstimi er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg,
þá getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins í tvö ár og tvo mánuði, miðað við
fullt starf. Biðtími eftir láni er fjórir mánuðir
frá þvi umsókn berst sjóðnum.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir 3ja ára aðild að lifeyr-
issjóðnum, 216.000 krónur, en fyrir hvern árs-
fjórðung umfram 3 ár bætast við lánið 18.000
krónur, unz sjóðsfélagi hefur náð 5 ára aðild
að sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóðs-
aðild bætast við höfuðstól leyfilegar lánsupp-
hæðar 9.000 krónur á hverjum ársfjórðungi,
en eftir 10 ára sjóðsaðild er lánsupphæðin
orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára aðild bætast
við 4.500 krónur fyrir hvern ársfjórðung sem
líður. Því er í raun ekkert hámarkslán í sjóðn-
um.
Höfuöstóll lánsins er tryggður með láns-
kjaravisitölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstiminn er 10 til 32 ár að vali
lántakanda.
Þá lánar sjóðurinn með skilyrðum sérstök
lán til þeirra, sem eru eignast sína fyrstu
fasteign og hafa greitt til sjóðsins samfellt í
5 ár, kr. 590.000 til 37 ára.
Lánskjaravísitala fyrir apríl 1986 er 1425
stig en var 1428 stig fyrir mars 1986. Lækkun
milli mánaðanna er 0,2%. Miöað er við vísi-
töluna 100 í júní 1979.
Byggingavísitala fyrir apríl til júní 1986 er
265 stig og er þá miðað við 100 i janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteignaviðskipt-
um. Algengustu ársvextireru nú 18-20%.
Sérboð Nafnvextir m.v. óverdtr. verótr. Verðtrygg. Höfuðstóis fœrsi.
Óbundið fé kjör kjör tímabil vaxta á ári
Landsbanki, Kjörbók: 1) ?—13,0 3.5 3mán. 2
Útvegsbanki, Ábót: 8-12,4 1,0 1 mán. 1
Búnaðarb., Gullbók 1) ?—13,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-12,0 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4
Sparisjóðir, Trompreikn: Bundiðfé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 14,50 3,5 6mán. 2
Iðnaðarbanki, Bónus: 10,5 3,0 1 mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
1) Vaxtaleiðrétting (uttektargjald) er 0,75% hjá Bunaðaörbanka og 0,7% i Landsbanka.