Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986
fclk f
fréttum
Irland
Tefla
V-Þyskaland 4*--..-
Kýpur lFRIIl SlIlUin
Austurríki______lnmiTYI
lUg LIIIl
Sjónvarpið sýndi í gærkveldi
þriðja þáttinn þar sem lögin
er írland, Belgía, Vestur-Þýska-
land, Kýpur og Austurríki senda í
Eurovision-keppnina voru kynnt.
Við höfum getað aflað okkur upp-
lýsinga viðkomandi öllum lögunum
nema því frá Belgíu.
Framlag íra að þessu sinni er
lagið You can count on me, sungið
af Luv Bug hópnum, lagið eftir
Kevin Sheerin. Luv Bug koma frá
Newry í County Down. Hópurinn
samanstendur af tveimur stúlkum
og þremur piltum. Þau hafa leikið
saman í tæp fjögur ár og átt nokkur
metsölulög á írlandi. Majella Grant
og Max Cunningham stóðu fyrir
stofnun hópsins á sínum tíma.
Majella leikur á trommur og syngur.
Hún hefur innréttað bílskúrinn hjá
sér þannig að þar getur hópurinn
æft sig, sungið, dansað og stundað
líkamsrækt. Max er vélfræðingur
að mennt og var kennari um hríð.
Hann hefur lengi fengist við tónlist
og lærði á klassískan gítar. Ricky
Meyler syngur og leikur á hljóm-
borð. Hann stundaði nám við „The
London College of Music" í tvö ár.
June Cunningham er aðalsöngvari
hópsins og hefur unnið til margs
konar verðlauna fyrir söng. Hún
og Majella forma sviðsframkomu
Luv Bug. Söngvarinn Hugh Cunn-
ingham er þriðji meðlimur Cunning-
ham-fjölskyldunnar í hópnum.
Hann hefur leikið á gítar í hljóm-
sveitum síðan hann var 15 ára
gamall.
Vestur-Þýskaland sendir í ár
Úber die Brúcke geh’n, sungið af
Ingrid Peters, lag og ljóð eftir Hans
Blum. Segja má að Ingrid hafí
slegið í gegn árið 1975 er útvarpið
í Saarbriicken útnefndi hana efni-
legasta unga söngvarann það árið
og fleiri tóku undir það. Hún hefur
átt vaxandi vinsældum að fagna
gegn um árin í heimalandinu og
erlendis, vann m.a. til verðlauna á
„The International Seoul Song
Festival" í Suður-Kóreu í maí 1983.
Hans Blum fæddist 1928 í Hannov-
er og hefur um margra ára skeið
verið í fremstu röð þýskra tónlistar-
manna, hann syngur, semur lög og
Ijóð og annast í þetta skipti hljóm-
sveitarstjómina. Lög eftir hann
hafa þrisvar sinnum áður verið
fulltrúar V-Þýskalands í Euro-
vision-keppninni. Hann hefur unnið
til íjölda verðlauna og samið fyrir
marga fræga söngvara s.s. Ivan
Rebroff, Boney M og Hildegard
Knef.
Frá Kýpur kemur lagið Tora zo,
sungið af Elpida o.fl., lag eftir
Petros Yiannaki, ljóð eftir Phivos
Gavris. Elpida, sem á grísku þýðir
von, er mjög vinsæl söngkona á
Kýpur og í Grikklandi. Hún byijaði
snemma að fást við söng og sín
fyrstu verðlaun fékk hún 1972 í
söngkeppni í Þessalóníku. Arið
1973 var hún útnefnd vinsælasta
ggíska söngkonan af gríska ríkisút-
Ingrid
Peters:
V-Þýska-
land.
■
-I
Kýpur.
LuvBug
hópurinn:
írland.
Timna
Brauer:
Austurríki.
varpinu. Elpida hefur haldið tón-
leika víða um heim og unnið til
margs konar verðlauna í ýmsum
löndum. Hún hefur sungið inn á
margar plötur og var fulltrúi Grikk-
lands í Eurovision-söngvakeppninni
1979. P. Yiannaki fæddist í London
1953 og lagði stund á auglýsinga-
tækni og markaðsmál við „Kingston
Polytechnic". Hann flutti til lands
feðra sinna, Kýpur, árið 1983. Tón-
listamám hóf hann ekki fyrr en
1982, en vann til verðlauna í
söngvakeppninni í Þessalóníku
1985, er lag hans varð í þriðja
sæti af 300. P. Gavris fæddist í
Nikósíu 1951 og stundaði nám í
grísku og bókmenntum í Aþenu.
Hann er ljóðskáld og hafa ljóð hans
verið gefín út og samin lög við
mörg þeirra.
Austum'ska lagið heitir Die Zeit
ist einsam, sungið af Timnu Brauer,
lag eftir Peter Janda, ljóð eftir Peter
Comelius. Brauer-fjölskyldan var
vön að syngja og spila saman fram
eftir kvöldi a.m.k. einu sinni í viku,
þannig að það lá beint við að Timna
legði stund á tónlist. Hún hefur
m.a. áhuga á jazz og hefur sungið
töluvert af slíkri tónlist. Timna var
við nám við Sorbonne í París þegar
henni var boðið að taka þátt í
sönglagakeppninni fyrir hönd lands
síns. Lagasmiðurinn P. Janda fædd-
ist í Vínarborg árið 1955 og stund-
aði píanónám og lagasmíð við „The
High School for Music and Perform-
ing Arts“ í Vín. Hann þykir mjög
góður hljómborðsleikari og hefur
leikið undir á mörgum plötum. Þá
vitum við það, hvað varðar þessa
ágætu listamenn.