Morgunblaðið - 26.04.1986, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986
55
Hörmuleg
útreið
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í I mönnum og endaði hann með sigri
körfuknattleik tekur nú þátt í þeirra, 112:32 en síðari leikurinn
Norðurlandamótinu sem fram fer var gegn Finnum. Þá fengu þaer
í Svíþjóð. Liðið lók tvo leiki í gær enn verri útreið, Finnar eru mjög
og gekk vægast sagt mjög illa. sterkt landslið og unnu 120:32.
Fyrri leikurinn var gegn Norð- I
Uerdingen
í 3. sætið
Bayer Uerdingen, lið Lárusar
Guðmundssonar og Atla Eðvalds-
sonar í vestur-þýsku knattspyrn-
unni, á mikilli velgengni að fagna
um þessar mundir, og á fimmtu-
dagskvöldið bar það sigurorð af
Eintracht Frankfurt með einu
marki gegn engu. Lárus skoraði
markið.
Hann tryggði liði sínu sigurinn
með marki strax á sjöundu mínútu
leiksins. Aðeins átta þúsund og
fimm hundruð áhorfendur sáu leik-
inn á heimavelli Uerdingen, enda
Uerdingen búið að tryggja sér
Evrópusaeti, og nánast formsatriði
fyrir leikmenn liðsins að Ijúka deild-
arkeppninni. Sigurinn á fimmtu-
dagskvöldið lyfti liðinu í þriðja
sætiö í deildarkeppninni — á eftir
Werder Bremen og Bayern
Munchen, sem berjast um sigurinn
Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð handknattleiks-
deildar Fram verður í Tónabæ á
morgun og hefst klukkan 15.
• Lárus skoraði gott mark
í dag. Bremen leikur gegn Stutt-
gart á útivelli, en Bayern á heima-
velli gegn Mönchengladbach.
Leiðrétting
í blaðinu hjá okkur á fimmtudag-
inn sögðum við að fyrirliði 3. flokks
Stjörnunnar í handknattleik héti
Björn Benediktsson en hið rótta
er að hann heitir Bjarni Benedikts-
son og er beöist velvirðingar á
þessu.
Drengjahlaup Ármanns
DRENGJAHLAUP Ármanns verð-
ur haldið samkvæmt venju fyrsta
sunnudag í sumri. Fer það fram
á svonefndu Gerisnefi í Elliðaár-
ósum og hefst klukkan 14.
í hlaupinu, sem haldið hefur
verið ár hvert í áratugi, veröur
keppt í tveimur karlafiokkum, 14
ára og yngri og 19 ára og yngri,
og flokki 18 ára kvenna og yngri.
Auk þess sem keppt er um ein-
staklingsverðlaun i öllum flokkum
er jafnframt um 3ja og 5 manna
sveitakeppni að ræða. Væntanleg-
ir keppendur geta skráð sig á
keppnisstað.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
• Harpa Hauksdóttir sigraði af miklu öryggi í stórsvigi 12 ára á fimmtudaginn — og var með betri tíma
en bestu strákarnir í þeim flokki, en þau kepptu í sömu braut. Hór er Harpa á fleygiferð í brautinni.
Hátíðarstemmning
íHlíðarfjalli
Andrésar andar-leikarnir haldnir í 11. sinn
AN DRÉSAR-AN D AR leikarnir
voru settir í 11. skipti á miðviku-
dagskvöldið. Keppni hófst á
fimmtudagsmorgun og hélt síðan
áfram í gær. Mótinu lýkur í dag.
Að vanda er mikið fjör f Hlíðar-
fjalli meðan mótið fer fram en
þetta er stærsta hátíð skíða-
krakkanna á vetri hverjum.
Á fimmtudaginn var keppt í
stórsvigi í flokki 7, 8, 9, 11 og 12
ára og stökki. Sigurvegarar í 7 ára
flokki urðu Sturla M. Bjarnason,
Dalvík, og Ólöf Björg Þórðardóttir,
Húsavík og Arna Rún Guðmunds-
dóttir, Akureyri, sem urðu hnífjafn-
ar í stelpnaflokki. Brynja Þorsteins-
dóttir, Akureyri og Grímur Rúnars-
son, ísafirði, sigruðu í 8 ára flokki,
Hjálmdís Tómasdóttir og Grétar
Jóhannsson í 9 ára flokki, Birgir
Karl Ólafsson, Seyðisfirði og Eva
Jónasdóttir, Akureyri í 1 í ára flokki
og Harpa Hauksdóttir, Akureyri og
Sigurður Hólm Jóhannsson,
ísafirði.
Meðfylgjandi mynd tók Skapti
UM ÞESSAR mundir fer fram f
Danmörku annar riðill f C-keppn-
inni f Evrópukeppninni í körfu-
knattleik en eins og menn muna
eflaust unnu íslendingar fyrri
riðilinn nokkuð óvænt hér fyrir
stuttu.,
Úrslit leikja í Danmörku til þessa
hafa orðið:
England—Kýpur 95:61
Danmörk—Lúxemborg 91:56
Hallgrímsson, blaðamaður Morg-
unblaðsins á Akureyri, á fimmtu-
daginn. Að vanda segjum við nán-
ar frá leikunum í blaðinu á þriðju-
daginn.
Austurríki—Danmörk 67:46
Lúxemborg—Kýpur 86:81
Úrslit í síðasta leiknum fengust
ekki fyrr en eftir að framlengt hafði
verið í þrígang. Þegar 20 sekúndur
voru eftir af síöustu framlenging-
unni var leikurinn stöövaður þar
sem Kýpurbúar voru allir komnir
útaf með fimm villur nema einn
og hann gat ekki haidið leiknum
áfram.
EM í körfu:
Einn Kýpurbúi eftir
HM ísjónvarpi:
Knattspyrnuveisla
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á
fundi sínum í gær að sjónvarpið
sýni 29 leiki frá Heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu á tíma-
bilinu frá 29. maf til 29. júnf
næstkomandi. Þrettán leikir
riðlakeppninnar verða sýndir,
m.a. þrír leikir með danska
landsliðinu, allir átta leikirnir f
16 liða úrslitunum, allir fjórir
leikirnir f átta liða úrslitum, báð-
ir undanúrslitaleikirnir, leikur-
inn um þriðja sætið og að lokum
sjálfur úrslitaleikurinn. Tuttugu
og tveir þessara leikja verða í
beinni útsendingu, en sjö verða
teknir upp og sendir út skömmu
sfðar, yfirleitt sfðar sama dag
ogþeireru leiknir.
Þessar útsendingar nema alls
um 50 klukkustundum, en það
er svipað magn og sýnt var frá
Heimsmeistarakeppninni á
Spáni 1982. Þá voru hinsvegar
aðeins 3 leikir sýndir beint.
Eftir keppnina 1982 gekk ís-
lenska sjónvarpið inn í samning
sem Evrópusamband sjónvarps-
stöðva gerði fyrir hönd allra að-
ildarstöðva sinna við FIFA um
sýningarrétt á öllum leikjum
heimsmeistarakeppninnar, 52
talsins. Greiða allar sjónvarps-
stöövarnar tiltekna upphæð fyrir
mótið í heild, hvort sem þær sýna
fleiri eða færri leiki. í greinargerð
frá Pétri Guðfinnssyni, fram-
kvæmdastjóra sjónvarpsins, til
útvarpsráðs kemur fram að
greiðslur íslenska sjónvarpsins
hófust strax árið 1983, en upp-
hæðin vegna þessa samnings
er krónur 2.020 milljónir — burt-
séð frá því hve marga leiki ís-
lenska sjónvarpið sýnir.
Við þennan kostnað bætist
fast gjald vegna leigu á breyti,
sem breytir sjónvarpsefninu úr
amerísku kerfi yfir í evrópskt og
kostnaður hór heima við leigu á
Skyggni, sem áætlað er að nemi
58 þúsund krónum á hvern leik.
Þar sem fasti kostnaðurinn
vegna þessara útsendinga er
mun hærri en sá breytilegi fer
kostnaður á hvern leik lækkandi
eftir því sem þeim fjölgar. Þannig
yrði kostnaður á ieik, ef 10 leikir
yrðu sýndir, kr. 300 þúsund, en
um 140 þúsund á hvern leik ef
sýndir verða 29 leikir, eins og
stefnt er að.
í greinargerð Péturs Guðfinns-
sonar kemur fram að timasetn-
ing leikjanna hentar vel fyrir ís-
lenska sjónvarpið og íslenska
sjónvarpsáhorfendur. Hag-
kvæmt er fyrir sjónvarpið að nýta
þetta efni sem mest innan hefð-
bundins dagskrártíma og spara
með því kaup á öðru efni fyrir
1,2 milljónir króna. „Einnig ber á
það að Iíta,“ segir í greinargerð
Péturs, „að þessi keppni fer fram
í bjartasta langdeginu, á þeim
tíma árs sem ætla má að menn
sætti sig helst við að efni af
þessu tagi sé fyrirferðarmikið í
dagskránni."
Fyrsta útsendingin verður frá
opnunarhátíð keppninnar, laug-
ardaginn 31. maí kl. 15. Strax
að henni lokinni verður fyrsti leik-
ur keppninnar, milli núverandi
heimsmeistara itala og Búlgara,
sýndur. Hann hefst klukkan 18.
Dagskrá sjónvarpsins frá keppn-
inni verður annars sem hér segir
— útsending hefst tíu mínútum
fyrir leik.
Riðlakeppni
Laugard. 31. maí kl. 15.00, Opnunarhátið
Laugard. 31. maí kl. 17.50 ftalía — Búlgaría
Sunnud. 1. júní kl. 17.50 Brasiiía — Spánn, (samdægurs)
Þriðjud. 3. júní kl. 22.50 England — Portúgal
Miðvikud. 4. júní kl. 17.50 V-Þýskaland — Uruguay
Miðvikud. 4. júní kl. 21.50 Skotland — Danmörk
Laugard. 7. júní síðdegis Ítalía — Argentína, (frá 5.6.)
Laugard. 7.júní kl. 17.50 Spánn — N. írland
Sunnud. 8. júní kl. 17.50 V-Þýskaland — Skotland, (samdægurs)
Sunnud. 8. júní kl. 22.50 Danmörk — Uruguay
Mánud. 9. júní kl. 17.50 Frakkland — Ungverjaland
Miðvikud. 11. júní kl. 22.50 England — Pólland, (samdægurs)
Föstud. 13. júní kl. 17.50 V-Þýskaland — Danmörk
Laugard. 14. júnísíðdegis Brasilía — N-írland, (frá 12.6.)
16 liða úrslit
Sunnud. 15. júní kl. 17.50 leikur 37
Sunnud. 15. júní kl. 22.50 leikur 38 (t.u.s.kv.)
Mánud. 16. júní kl. 17.50 leikur 39
Þriðjud. 17.júníkl. 17.50 Ieikur41
Miðvikud. 18. júní kl. 17.50 Ieikur43
Miðvikud. 18. júní kl. 21.50 leikur 44
Laugard. 21. júní síðdegis leikur 42, (frá 17.6.)
8 liða úrslit
Laugard. 21. júni kl. 17.50 leikur 45
Laugard. 21. júní kl. 21.50 ieikur 46
Sunnud. 22.júníkl. 17.50 Ieikur47
Sunnud. 22. júní kl. 21.50 leikur 48
Undanúrslit — úrslit
Miðvikud. 25. júní kl. 17.50 leikur 49
Miðvikud. 25. júní kl. 21.50 leikur 50
Laugard. 28. júní kl. 17.50 keppni um 3. sæti
Sunnud. 29. júní kl. 17.50 úrslitaleikur