Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 68
jjjJffUGGUR ttrjgtmMiifrtfr \£j wnaoaroan«inn MIÐVTKUDAGUR 21. MAÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Forráðamenn Hafskíps handteknir í gaermorgun: Gæsluvarðhalds kraf- ist yfir sex mönnum Sakadómur úrskurðar í dag um kröfu RLR — Rannsókn beinist einnig að þætti Útvegsbankans í DAG verður tekin afstaða í sakadómi Keykjavíkur til krðfu Rann- sóknarlögreglu rikisins um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sex forráða- mðnnum skipafélagsins Hafskips hf. RLR krafðist þess í gær að þeir yrðu úrskurðaðir i gæsluvarðhald til 25. júni eða i fímm vikur. Dómarar i sakadómi tóku sér frest þar til í dag til að úrskurða i málnnnm Sexmenningarnir voru handteknir á heimilum sínum á sjöunda timanum í gærmorgun. „Rannsóknin beinist einkum að ætluðum brotum fyrirsvarsmanna og tiltekinna starfsmanna Hafskips hf. á 26. kafla almennra hegningar- laga, sem Qallar um auðgunarbrot," sagði Hallvarður Einvarðsson, rannsóknarlögreglustjóri rlkisins, f samtali við blm. Morgunblaðsins f gær. „Þá eru og viss rannsóknarefni á ætluðum brotum á 15. og 17. kafla almennra hegningarlaga og loks er rannsóknarefnið það enn- fremur hvort einhver eða einhverjir starfsmenn Útvegsbanka Islands hafi gerst brotlegir við 14. kafla hegningarlaga, sem fjailar um brot f opinberu starfi." Rannsóknarlögreglu8tjóri vildi ekki tilgreina hvaða greinar um- ræddra kafla hegningarlaga sex- menningamir væru grunaðir um að hafa gerst brotlegir við. 15. kafli laganna flallar um rangan fram- burð og rangar sakargiftir, sá 17. um skjalafals og önnur brot er varða sýnileg sönnunargögn og sá 26. um auðgunarbrot. Hallvarður Ólafur Helgason, banka- stjóri Útvegsbanka: Engin vís- bending um rannsókn á bankanum Mikil ótíðindi, segir Matthías Bjarnason „VIÐ f Útvegsbankanum hðfum ekki fengið nokkra vfsbendingu um að Rannsóknarlðgregla rfkis- ins hyggist beina rannsókn sinni að bankanum og starfsmönnum hans,u sagði Ólafur Helgason, bankasfjóri Útvegsbankans f gær- kvðld. Alits hans var leitað á handtðkum forráðamanna og starfsmanna Hafskips og krðfu rfkissaksóknara um að kannað verði hvort einhver eða einhveijir starfsmenn bankans hafí gerst brotlegir við 14. kafla hegningar- laga, sem fjallar um brot f opin- beru starfí. „Við mættum hjá skiptaráðanda til yfirheyrslu og greindum ftá því, sem við vissum best," sagði Ólafur ennfremur. „Að öðru leyti hefur ekkert verið talað við okkur og við vitum ekkert hvað er átt við með þessum orðum um brot á 14. kafla hegningarlaganna. “ Matthías Bjamason, banka- og viðskiptamálaráðherra, sagði að sér þættu þetta vera „mikil ótfðindi. Skýrsla skiptaráðanda um viðskipti Hafskips og Útvegsbankans hefur ekki verið send til mín þannig að ég get ekkert um þetta mál sagt,“ sagði hann. Einvarðsson gat þess þó, að f þeim kafla væri meðal annars Qallað um flárdrátt og skilasvik. Það voru Qórtán rannsóknarlög- reglumenn, sem fóru til heimila sjö forráðamanna Hafskips f gærmorg- un. Sex þeirra voru handteknir, og húsleit gerð hjá þremur þeirra, en sá sjöundi var f útlöndum. Rann- sóknarlögreglustjóri kvað ekki hafa verið reynt að hafa upp á honum ytra. Sexmenningamir vora færðir til höfuðstöðva RLR og stóðu linnu- lítið í allan gærdag yfirheyrslur, skýrslutökur og athuganir á þeim gögnum, sem hald var lagt á. Snemma f gærdag var ákveðið að gera kröfu um gæsluvarðhald yfir tveimur mannanna og þegar leið á daginn var ákveðið að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim þriðja. Undir kvöld var ákveðið að gera samskonar kröfu um hina þrjá. Hallvarður Einvaiðsson sagði f gær að hinn 7. þessa mánaðar hafi rfkissaksóknari sent sér skýrslu borgarfógetanna Markúsar Sigur- bjömssonar og Ragnars Halldórs Hall frá deginum áður varðandi rannsókn skiptaréttar Reykjavfkur á gjaldþroti Hafskips hf. Síðan þá hefðu starfsmenn embættis rann- sóknarlögreglustjóra ríkisins kynnt sér efiii skýrslunnar. Hún hafi verið send embætti ríkissaksóknara samkvæmt 4. tölulið 88. greinar gjaldþrotaskiptalaga frá 1978 en þar segir, að telji skiptaráðandi að þrotamaður eða aðrir kunni að hafa gerst sekir um refsivert athæfi skuli hann tilkynna það ríkissaksóknara, sem kveður á um rannsókn málsins, að sögn Hallvarðar. „I skýrslunni er greint frá mörg- um atvikum, sem vekja gran um að forráðamenn og starfsmenn Hafskips hf., svo og einhver eða einhveijir starfsmenn Útvegsbanka íslands, kunni að hafa gerst sekir um stórfellt misferli skv. almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Mælir ríkissaksóknari í bréfí sínu fyrir um opinbera rannsókn í máli þessu og er RLR falin sú rannsókn. Rannsóknarefnin era sfðan mörkuð mjög skilmerkilega af hálfu ríkis- saksóknara á grundvelli skýrslu skiptaráðanda og er ljóst, að fram- undan er viðamikil rannsókn á sakarefnum máls þessa af hálfu RLR,“ sagði Hallvarður Einvarðs- son. Það era dómarafulltrúamir Ágúst Jónsson og Hjörtur O. Aðal- steinsson, sem munu úrskurða um gæsluvarðhaldskröfur Rannsóknar- lögreglu rfkisins f dag. Tómatar lækkaum fjórðung ÍSLENSKIR tómatar lækk- uðu um fjórðung i gær. Heild- söluverð var lækkað tun úr 235 krónum i 175, eða um 25,5%. Samsvarar það lækkun smásðluverðs um 70-80 krón- ur, úr um það bil 300 krónum i 225-230 hvertkfló. Nfels Marteinsson sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna sagði f gær að góð uppskera væri nú komin hjá garðyrkju- mönnum, ekki sfst vegna mikill- ar sólar undanfama daga, og því hefði þessi fyrsta lækkun tómatanna f sumar verið ákveð- in til að reyna að auka söluna. Hann sagði ekki vitað hvort þetta verð héldist eða ekki, það færi eftir uppskeramagni. í fyrra var heildsöluverð tómata 80 krónur stóran hluta sumars- ms. Níels gat þess að nú væra íslenskar gulrætur, ræktaðar í gróðurhúsum, komnar á mark- að. Morgunblaðið/Júlfut HREINSUN Tjamarinnar lauk i gærkvðldi ogi nótt átti að setja lokur í Tjðrnina og á hún þá að fyllast á ný. Ekki reyndist vanþörf á að hreinsa Tjömina þvi mikið hafði safnast i hana af drasli. í gærkvðldi unnu stórvirkar vinnuvélar við þetta verk. Á bls. 5 er viðtal við Jóhann Pálsson garðyrkjustjóra borgarinnar. Smáey strandaði FISKISKIPIÐ Smáey frá Vest- mannaeyjum strandaði á laugar- dagskvöld i innsiglingunni til Isa- fjarðarhafnar. Engar skemmdir urðu á skipinu. Stakkanes ÍS dró Smáey af strandstað. Smáey tók niðri rétt við flug- völlinn og náði hún sér ekki á flot að nýju af eigin rammleik. Stakka- nes kom þá til hjálpar og tókst að ná Smáeynni út, en tók við það niðri Ifka, en losnaði af sjálfsdáðum. Skip- in héldu sfðan áleiðis á veiðar, en vora kölluð inn til skýrslugerðar af bæjarfógetanum á fsafirði. Þau héldu út aftur að lokinni skýrslugerð. Þyrlan skaut ökumönnum skeik í bríngn: Ók af stað en gleymdi konunni ENGIN alvarleg slys urðu f umferðinni um hvítasunnuhelgina að sögn lögreglunnar, þrátt fyrir fjórar bílveltur og gijóthrun á bifreið við Strákagðng. Umferðin var ipjög mikil en dreifðist jafnt yfír helgina. Eftirlit var haft með umferðinni á Suður- og Vestur- landi úr þyrlu Landhelgisgæslunnar og var læknir frá Borgarspít- alanum um borð ef slys bæri að hðndum. Bifreið valt niður 80 metra brekku í Jórukleif við Hestvík í Grafningi og köstuðust ökumaður og farþegi úr bifreiðinni á leiðinni niður hlfðina. Að sögn lögreglunn- ar á Selfossi vora báðir fluttir á slysadeildina á Borgarspítalanum en ekki urðu alvarleg meiðsl. í Grfmsnesi valt bifreið á veginum milli Borgar og Svínavatns þegar ökumaður missti vald á bifreiðinni. Femt var f bifreiðinni en enginn slasaðist. Að morgni annars í hvftasunnu missti ökumaður vald á bifreið sinni um 2 km austan við Gljúfra- stein. Bifreiðin fór tvær veltur og er talin gjörónýt. Tvennt var í bifreiðinni og sluppu nær ómeidd. Aðfaranótt annars í hvftasunnu valt bifreið á ísafírði eftir að hafa ekið á miklum hraða á ljósastaur við Verslunarmiðstöðina á Skeiði. Femt var í bifreiðinni og vora tveir, sem reyndust vera með minniháttar meiðsl, fluttir f sjúkrahús. Bifreið á leið til Sigluflarðar varð fyrir gijóthruni vestan við Strák. Gijótið lenti á hægri fram- hurð og er hún ónýt. Engin slys urðu á mönnum. Kannað var hvort frekari hætta væri á grjóthrani við göngin og eins við Mánaár- skriður, eins og oft vill verða í leysingum um þetta leyti árs, en svo reyndist ekki vera, að sögn lögreglunnar á Siglufirði. Baldvin Ottósson varðstjóri sagði það vegfarendum til hróss að umferðin hefði gengið greið- lega. Ökumenn hefðu yfírleitt ekið með jöftium eðlilegum hraða og minna um að menn söfnuðu löng- um röðum á eftir sér. Hann sagði að eftirlit úr þyrlu hefði auðveldað löggæslu til muna meðal annars vegna þess hversu fljót hún er í föram. Mörgum ökumanninum hefði komið það á óvart að hægt væri að mæla ökuhraða úr þyrlu með ratsjá og vora þó nokkrir, sem þannig vora stöðvaðir á ólöglegum hraða. Þyrlan reyndist og vel við eftir- lit með vegum inni á hálendi en Vegagerðin hafði lokað þeim fyrir allri umferð vegna aurbleytu. Þrátt fyrir bann höfðu þó nokkrir lagt leið sína þangað. „Ég get nefnt þér dæmi um hjón sem vora stödd á ónefndum vegi á hálend- inu. Þau vora stödd fyrir utan bifreiðina þegar þyrluna bar að og þegar bóndinn sá þyrluna koma varð honum svo mikið um að hann hljóp að bifreiðinni og ók af stað en gleymdi konunni," sagði Bald- vin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.