Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986
Davíð Oddsson borgarstjóri ræðir við þátttakendur i ferðinni.
Reykjavík:
Rúmlega 600 manns í skoð-
unarferð sjálfstæðismanna
RUMLEGA sexhundruð manns
fóru í skoðunarferð með fram-
bjóðendum Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík um höfuðborg-
ina sl. mánudag. Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna, og hverfafé-
lög Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík höfðu umsjón með
ferðum þessum og var þátttak-
endum boðið upp á kaffiveit-
ingar í Valhöll að ferðalokum.
Að sögn Maríu E. Ingvadóttur,
formanns Hvatar, tókust ferðimar
mjög vel. Lagt var af stað frá
Valhöll og var ekið um öll helstu
hverfi borgarinnar. Eldri borgur-
um var boðin sérstök þjónusta og
var þeim ekið heim að loknum
kaffíveitingum og mæltist það vel
fyrir.
María sagði, að almenn ánægja
hefði verið á meðal þátttakenda
með ferðimar og flestir verið
sammála um að oftar þyrfti að
bjóða upp á ferðir af þessu tagi
með borgarfulltrúum flokksins. Boðið var upp á kaffiveitingar í Valhöll.
Bóndi í Flóanum;
Kærir út-
hlutun á
mjólkur-
kvóta
BÓNDI einn í Flóanum hefur
kært Framleiðsluráð landbúnað-
arins fyrir brot á reglugerð um
stjórnun mjólkurframleiðslunn-
ar þegar 5% af mjólkurkvótanum
var úthlutað til bænda í Ámes-
sýslu. Hann sendi kæruna til
sýslumannsins á Selfossi fyrir
nokkru. Hjá sýslumanni fengust
þær upplýsingar í gær að málið
yrði skoðað á næstunni.
Umræddur bóndi, Þorsteinn
Ágústsson á Syðra-Velli í Gaul-
veijabæjarhreppi, sagði í gær að
töluverð óánægja væri meðal
bænda vegna úthlutunar 5% mjólk-
urkvótans sem. Framleiðsluráð út-
hlutaði bændum innan sýslunnar
að fengnum tillögum nefndar
heimamanna. Hann sagði að menn
töluðu um þetta sín á milli en gerðu
svo ekkert í málinu. Hann vildi hins
vegar láta á þetta reyna og taldi
þetta bestu leiðina.
Þorsteinn sagði að þannig hefði
verið staðið að úthlutun 5 prósent-
anna að fyrst hefði einhveiju verið
úthlutað til þeirra sem töldu sig
eiga rétt á viðbót samkvæmt reglu-
gerðinni og sótt um en síðan hefði
afganginum verið jafnað hlutfalls-
lega á alla bændur. Þama hefðu
ýmsir fengið óvænta viðbót, menn
sem hefðu verið ánægðir með sitt
og ekki talið þörf á að sækja um
viðbót. í sumum tilvikum hefðu
bændur sem ekki sóttu um aukn-
ingu fengið meiri kvóta úr 5%-
pottinum en menn sem verið hefðu
í vandræðum og sótt um aukningu.
Þorsteinn sagði að þama hefðu
möguleikar til úrlausnar fyrir þá
sem á þurftu að halda ekki verið
nýttir og túlkuðu margir það sem
brot á reglugerðinni.
Sjá einnig fréttir um
greiðslu Framleiðnisjóðs
fyrir umframmjólk á blað-
siðu 17 og viðtal við bónda
sem er að Ijúka við kvótann
sinn á blaðsíðu 64.
Laun hækka 0,6% meira en samningarnir gerðu ráð fyrir:
Meginmarkmið kjara-
samninganna óhögguð
- verðbólgan á árinu 8—8,5% segir í forsendum Launanefndar ASÍ og VSÍ
LAUN munu almennt hækka um 3,06% frá næstu mánaðamótum en
ekki 2,5% eins og gert var ráð fyrir í samningum aðila vinnumarkaðar-
ins í lok febrúar. Ástæðan er sú, að visitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 3,06% frá 1. janúar til 1. mai en í samningunum var
gert ráð fyrir 2,5% hækkun. Launanefnd ASÍ og VSÍ komst einróma
að þessari niðurstöðu á fundum sinum fyrir helgina, að því er hag-
fræðingar ASÍ og VSÍ sögðu á fundi með fréttamönnum í gær.
Samskonar nefnd BSRB og ríkisins komst að sömu niðurstöðu. Launa-
nefnd ASÍ og VSÍ reiknar með að verðbólga á árinu verði 8-8,5% í
stað 7-7,5% eins og talið var í lok febrúar. Engu að síður standi
óhögguð meginmarkmið kjarasamninganna varðandi verðlags- og
kaupmattarþroun.
í úrskurði nefndarinnar segir að
öðru leyti um forsendur hans:
„Lækkun bandaríkjadollara á
alþjóða gjaldeyrismarkaði hefur leitt
til nokkurs gengissigs íslensku krón-
unnar gagnvart helstu útflutnings-
myntum. Umframhækkun vísi-
tölunnar má að verulegu leyti skýra
með þessum gengisbreytingum.
Gengisskráning krónunnar hefur
verið í samræmi við markaða stefnu
í gengismálum og byggt er á því
að þeirri stefnu verði fylgt áfram.
Þrátt fyrir lækkun á gengi banda-
ríkjadollara hafa viðskiptakjör ekki
versnað frá því sem reiknað var með
við gerð kjarasamninganna, þar sem
olíuverð hefur lækkað meira en búist
var við.
Lækkun á gengi bandaríkjadoll-
ara hefur valdið tekjutapi hjá físk-
vinnslu. Sé litið á botnfískveiðar og
vinnslu í heild er það tekjutap vegið
upp með lægra olíuverði.
Ekki er fyrirsjáanleg breyting á
þjóðartekjum frá því sem Þjóðhags-
stofnun gerði ráð fyrir í aprílspá
sinni.
Miðað er við að innstreymi af
erlendu Iánsfé verði ekki meira en
fyrirliggjandi áætlanir í peningamál-
um, lánsfjármálum og ríkisfjármál-
umjfera ráð fyrir.
Aætlanir benda til þess að verð-
lagsbreytingar á árinu verði um 1%
umfram það, sem miðað var við í
kjarasamningunum, eða að fram-
færsluvísitalan hækki um 8-8,5% á
árinu. Meginmarkmið kjarasamn-
inganna varðandi verðlags- og kaup-
máttarþróun standa óhögguð,“ segir
í úrskurði nefndarinnar. I henni eiga
sæti Vilhjálmur Egilsson og Ólafur
Davíðsson fyrir hönd VSÍ og þeir
Björn Björnsson og Hólmgeir Jóns-
son fyrir hönd ASÍ.
í launanefnd BSRB og ríkisins
eiga sæti Bjöm Arnórsson frá
BSRB, Guðmundur Bjömsson frá
ríkinu og Hallgrímur Snorrason
hagstofustjóri.
Bústaðakirkja:
Tónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur á
KAMMERSVEIT Reykjavík-
ur heldur tónleika í Bústaða-
kirkju næstkomandi sunnu-
dag klukkan 20.30. Verða
það síðustu tónleikar sveit-
arinnar á yfirstandandi
starfsári.
sunnudag
Á tónleikunum flytur
Kammersveitin sinfóníu númer
7 í e-dúr eftir Anton Bruckner
í útsetningu fyrir kammer-
sveit. Stjórnandi verður Paul
Zukofsky.