Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
27
Réttur kjósenda
til listabreytinga
eftír Guðmund Jónsson
Þann 16. aprfl sl. voru samþykkt
á Alþingi ný sveitarstjómarlög.
Verulegur ágreiningur var um af-
greiðslu þessa máls og munaði
raunar mjög litlu, að meginhluti
frumvarpsins væri felldur nema
ákvæðin um 18 ára kosningaaldur
og kjördaga. Það er þó ekki ætlunin
að rekja þessa sögu nánar, heldur
verður hér aðeins vakin athygli á
einu nýmæli, sem lögin hafa að
geyma. Það er að finna í 17. gr.
laganna, sem hljóðar svo:
„Til þess að finna hveijir fram-
bjóðendur hafa náð kosningu á
hverjum lista skal kjörstjóm reikna
frambjóðendum atkvæðatölu á
þennan hátt:
Kjörstjóm tekur saman þá kjör-
seðla þar sem engin breyting hefur
verið gerð á listanum. Þar telst
efsta nafn listans vera í fyrsta sæti,
næsta nafn í öðru sæti o.s.frv.
Næst tekur kjörstjóm alla þá kjör-
seðla þar sem kjósendur hafa gert
einhveijar breytingar á röð fram-
bjóðenda og telur atkvæði hvers
frambjóðanda í hvert sæti listans.
Nöfnum frambjóðenda á listan-
um er nú raðað þannig að sá sem
hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti,
skv. næstu mgr. hér á undan, hlýtur
það sæti. Sá frambjóðandi, að þess-
um slepptum, sem hlotið hefur flest
atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt,
hlýtur 2. sætið o.s.frv. uns raðað
hefur verið í sæti svo mörgum
frambjóðendum listans að ljóst sé
hveijir teljast fulltrúar hans og
hveijir varafulltrúar."
Samkvæmt þessu er réttur
manna til breytinga á röðun fram-
boðslista rýmkaður verulega frá
því sem nú er og er upphaf þessarar
breytingar að rekja til nýrra laga
um kosningar til Alþingis, sem
samþykkt voru í kjölfar stjómar-
skrárbreytingarinnar 1983 og með
lögum nr. 68/1984 voru þessi
ákvæði einnig látin ná til sveitar-
stjómarkosninga.
Samkvæmt þessu nýja ákvæði
er röðun frambjóðenda á kjörseðli
aðeins tillaga, sem kjósendur listans
geta annað hvort samþykkt eða
hafnað, og þeir sem hafna röðuninni
geta í staðinn valið einhveija aðra
röðun að eigin vild.
Nú er það svo eins og mörg
dæmi sanna, að röðun á lista getur
stundum verið talsvert vandamál
framboðsaðila og ef ekki nást sættir
verður nýtt framboð stundum
þrautalending þess hóps, sem telur
sig hafa farið halloka. Má þar t.d.
nefna framboð Einars Þ. Mathiesen
í Hafnarfirði nú. Innan Sjálfstæðis-
flokksins þar virðist aðeins vera
persónulegur ágreiningur en ekki
málefnalegur og þá má spyija,
hvort ekki hefði verið heppilegra
að ná samkomulagi um einn fram-
boðslista og leyfa síðan kjósendum
að kveða upp sinn endanlega hæsta-
réttardóm um það, hvaða sæti list-
ans Einar skyldi hljóta.
Svo má nefna annað dæmi. Próf-
kjör Alþýðuflokksins vegna borgar-
stjómarkosninganna í Reykjavík sl.
vetur vakti mikla athygli, en borg-
arfulltrúi flokksins, Sigurður E.
Guðmundsson, náði þá ekki kjöri,
en í 1. sæti var valinn Bjami P.
Magnússon og í 2. sæti Bryndís
Schram. Sigurður var ósáttur við
þessi úrslit og gerði athugasemdir
við framkvæmd prófkjörsins. Taldi
hann, að Bjami P. Magnússon og
Bryndís Schram hefðu gert með sér
kosningabandalag og dró í efa, að
slíkt væri heimilt samkvæmt regl-
um flokksins. Naumast er þó nokk-
ur leið fær til að útiloka slíkt.
Einnig þóttist Sigurður hafa
„ástæðu til að ætla, að prívat kosn-
ingamaskínur einstakra sjálfstæðis-
manna hafi verið teknar í notkun,
ein eða fleiri, og það e.t.v. í tengsl-
um við viss knattspymufélög."
Enginn dómur verður á það lagð-
ur hér, hvort þessi fullyrðing Sig-
„Tilgangur þessarar
greinar er að benda
kjósendum á, hvaða
rétt þeir hafa og þeir
eig ekki að hika við að
nota sér hann, þegar
þeim finnst það rétt og
hafa þar með aukin
áhrif á úrslit kosninga
og gang mála.“
urðar hefur við rök að styðjast, en
vissulega leikur stundum gmnur á,
að hópur manna taki þátt í prófkjöri
einhvers aðila en ætli síðan ekki
að styðja væntanlegan framboðs-
lista. Slíkt verður þó að telja mjög
óheiðarleg vinnubrögð.
Sem dæmi má nefna, að fyrir
síðustu Alþingiskosningar höfðu
sjálfstæðismenn í Suðurlandskjör-
dæmi prófkjör. Þá talaði einn fram-
bjóðandinn við mig, sem þetta skrif-
ar, og óskaði eftir stuðningi. Ég
svaraði málaleitan hans þannig, að
ég byggist ekki við því, að ég myndi
styðja flokkinn í kosningunum og
þess vegna vildi ég ekki taka þátt
í prófkjörinu.
En víkjum nú aftur að borgar-
stjómarkosningunum í Reykjavík.
Lásti Alþýðuflokksins var skipaður
í samræmi við úrslit prófkjörsins,
þannig að Bjami hlaut 1. sætið og
Bryndís 2. sætið. Svo féllst Sigurður
á að skipa neðsta sæti listans. Ef
nú allir stuðningsmenn Sigurðar
styðja lista flokksins í kosningunum
og flytja hann um leið upp í efsta
sæti listans, þá gæti svo farið, að
röðin breyttist og Sigurður næði
kjöri. Ef slíkt gerðist, þá væri það
sterk vísbending í þá átt, að í fram-
kvæmd prófkjörsins hafí verið
maðkar í mysunni.
Tilgangur þessarar greinar er að
benda kjósendum á, hvaða rétt þeir
hafa og þeir eigi ekki að hika við
að nota sér hann, þegar þeim finnst
það rétt og hafa þar með aukin
áhrif á úrslit kosninga og gang
mála.
Að lokum má geta þess, að stöku
sinnum gerist það, að einn listi er
í framboði og verður sjálflq'örinn.
Slíkt gerðist t.d. í 6 hreppum 1982.
Samkvæmt núgildandi lögum em
kjósendur sviptir rétti til breytinga
á röð lista í slíkum tilfellum. Þess
vegna væri rétt að láta kosningu
fara fram, þótt aðeins einn listi
væri í kjöri.
Höfundur er bóndiá Kópsvatni i
Hrunamannahreppi.
Tíu þúsund fé-
lagar í Krabba-
meinsfélaginu
FJÓRIR samstarfsaðilar fengu
formlega aðild að Krabbameins-
félagi Islands á aðalfundi félags-
ins sem haldinn var 9. maí sl.
Félagsmenn Krabbameinsfélags-
ins eru því orðnir 10 þúsund
talsins í 28 aðildarfélögum. Um
60 manns eru í stjórn og nefndum
félagsins.
Þeir aðilar sem fengu aðild að
félaginu eru fjögur samtök krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, Samhjálp kvenna, Stóma-
samtökin, Ný rödd, og Samhjálp
foreldra.
Mvikur
•sérfræðingur Plastprents er öllum þeim til
■ÉjiUJka vilja hagkvæmni og þróa pökk-
aukið örygg
framleiðir ápréhtaða og óáprentaða poka til
ar. Afgreiðslufrestur er aðeins 3-5 vikur og
lágmarkspöntunarmagn lægra en þekkst hefur.
Pökkunaraðferð framtíðarinuar
Minni
Lofttæming eykur geymsluþol og verðmæti stórlega og
þeim framleiðendum fjölgar stöðugt er nota lofttæmdar
umbúðir til að styrkja markaðsstöðu sína.
Brautryöjandi é sviði pökkunar
Plastprent hf
Höfðabakka 9,sími 685600
9
OCTAVO/SiA 26.01