Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 1
80SÍÐUR B STOFNAÐ1913 109. tbi. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Her Sri Lanka hættir aðgerðum í Jaffna: Stj órnin vill friðmælast Kólombó. AP. STJÓRNIN á Sri Lanka sagði að aðgerðum gegn skœrulið- um í borginni Jaffna hefði verið hætt í bili og voru aðskiln- aðarsinnar Tamila hvattir til samninga um lyktir blóðugra átaka, sem staðið hafa í þijú ár. Leiðtogar aðskilnaðarsinna sögðu það rangt vera að stjómar- herinn hefði hætt aðgerðum því herflugvélar og þyrlur hefðu varpað sprengjum og haldið uppi hörðum árásum á skotmörk á skaga, sem kenndur er við Jaffna, nyrst á Sri Lanka. Stjómarherinn lét til skarar skríða gegn aðskilnaðarsinnum í Jaffna á laugardag. Aðgerðimar koma í kjölfar þess að 27 menn a.m.k. biðu bana í sprengingum f Kólombó. Aðskilnaðarsinnum er kennt um sprengingamar. Staðfesti stjómin að 28 menn hefðu fallið í átökum í Jaffna, en aðskilnaðarsinnar segja að 100 menn a.m.k. hafí beðið bana. Jaffna er að langmestu leyti byggð Tamílum og hafa aðskiln- aðarsinnar hreiðrað þar vel um sig. Em þeir vel vopnum búnir og viðurkenndi stjómarherinn að sér hefði orðið lítt eða ekkert ágengt í Jafftia. Hefði verið ákveðið að hætta aðgerðum í bili Sigraði íCannes Brezki kvikmyndaleikstjórinn Roland Joffe með Gullpálm- ann, sem honum var veittur fyrir beztu myndina á kvik- myndahátíðinni í Cannes f Frakklandi. Joffe hlaut Gull- pálmann fyrir mynd sína Trú- boðsstððin (The Mission). Sjá nánar um kvik- myndahátfðina f Cannes ábls. 32. því lengra yrði ekki komizt nema mikið mannfall yrði meðal óbreyttra borgara. Stjóm Sri Lanka hefur lagt nýtt sáttatilboð fram f deilunni við aðskilnaðarsinna. Indveijar hafa reynt að miðla málum og koma samningaviðræðum af stað. Indverskir leiðtogar hafa gagnrýnt aðgerðimar í Jaffna og talið er að þær verði ekki til að flýta fyrir sáttum á Sri Lanka. AP/Símamynd Stjórnarhermenn á Sri Lanka með brugðin vopn i bænum Trim- comalee f norðurhluta landsins. Stjómarherinn hóf mikla sókn um helgina gegn aðskilnaðarsinnum, sem krefjast sjálfstæðs ríkis Tamíla á norðurhluta Sri lanka. Botha ver árásir stj órnarhersins Jóhannesarborg. AP. P.W.BOTHA, forseti Suður-Afríku, varði árásir stjómarhersins á meintar stöðvar skæruliða afrfska þjóðarráðsins (ANC) f Zamb- íu, Zimbabwe og Botswana á mánudag. Aðgerðimar hafa sætt mikilli gagnrýni. Botha sagði árásimar hafa verið nauðsynlegar þar sem friðsamlegar tilraunir til að fá skæruliða til að láta af skemmdarverkum í Suður- Afríku hefðu reynst árangurslaus- ar. Botha sagði ANC ekki heyja svonefnda frelsisbaráttu heldur væri tilgangur samtakanna að leggja suður-afrískt samfélag f rúst. Leiðtogi stjómarandstöðunnar, Col- in Eglin, sagði aðgerðimar meiri- háttar pólitísk afglöp, þar sem þær yrðu til að spilla enn frekar fyrir Suður-Afríku á alþjóðavettvangi. Fulltrúar Samveldisríkja, sem reynt hafa að miðla málum f Suður- Afríku, sögðu árásimar hafa spillt stórlega fyrir umleitunum sínum, en öll von væri samt ekki úti enn. Árásimar vom fordæmdar víðast hvar á Vesturlöndum en ólíklegt var talið að þær yrðu til þess að gripið yrði til sérstakra refsiað- gerða. Margaret Thatcher, forsæt- isráðherra Bretlands, kvaðst van- trúuð á að slíkar aðgerðir yrðu til þess að auka líkur á að stjómvöld í Suður-Afríku féllust á að setjast að samningaborði með fulltrúum blökkumanna. Kenneth Kaunda, forseti Zambfu, gaf til kynna að Zambfumenn segðu sig úr Samveldinu. Hann sagði það öfugmæli að eiga aðild að samtök- um þar sem foiysturíki þeirra (Bret- land) tæki svo opinskátt afstöðu með óvini flestallra aðildarrikjanna. Árásunum var víða mótmælt heimafyrir og vegna þeirra stór- lækkaði gjaldmiðill Suður-Afriku í verði. Kom vfða til átaka lögreglu og mótmælenda og vom a.m.k. 13 menn handteknir. Allan Boesak, kirkjuleiðtogi, sagði árásimar út- hugsað bragð, sem ætlað væri að spilla fyrir friðammleitunum og spáði því að f kjölfarið myndu fylgja keðja ofbeldisverka heima fyrir. P.W. Botha, forseti Suður-Afrfku. Sjá nánar frétt um árásirnar á bls. 31. Fangaskíptí framundan? Bonn. AP. NÚ STANDA yfir samningar milli stórveldanna um fanga- skipti og er talið að sovézki andófsmaðurinn Andrei Sak- harov sé einn þessara fanga. Lubbers spáð tapi í þing’kosningunum Haag.AP. HOLLENZKIR kjósendur ganga að Igörborði f dag og kjósa sér nýtt löggjafarþing. Skoðanakannanir að undanfömu benda til þess að stjórn Ruuds Lubber tapi þingmeirihluta. Kosningamar snúast að mestu um þá ákvörðun stjómarinnar að leyfa uppsetningu nýrra banda- rískra stýriflauga í Hollandi, niður- skurð á fjárframlögum til félags- mála og um orkumál. Stjómarflokkamir hafa 79 þing- menn af 150 en samkvæmt skoð- anakönnunum fá þeir 74 þingsæti í kosningunum í dag og verða því f minnihluta. Um 12% kjósenda hafa ekki gert upp hug sinn og gætu þau haft úrslitaáhrif fyrir stjómarflokkana, sem sækjast eftir nýju umboði til að „ljúka“ efnahags- legri endurreisn, sem þeir hófu fyrir fjórum ámm. Falli stjóm Lubbers gæti það þýtt að Joop den Uyl, leiðtoga Verka- mannaflokksins, yrði falin stjómar- myndun. Spáð er að þingmönnum flokksins fíölgi úr 47 í 55. Ólíklegt er talið að samkomulag takizt með verkamannaflokknum og Kristileg- um demókrötum (CDA) um stjóm- armyndun. Lfldegast er talið að núver- andi stjómarflokkar gangi til sam- starfs við Demókrataflokkinn (D66) um stjómarmyndun eftir kosningar. Vestur-þýzka blaðið Bild skýrði frá því f gær að samningar af þessu tagi stæðu yfir og að auk fulltrúa stórveldanna tækju þátt í þeim vestur-þýzkir og suður-afrískir embættismenn. Blaðið segir ekki frá því hvenær þessir samningafundir hófust eða hvar þeir áttu sér stað. Það segir ekki hvaðan það hefur heimi'dir sínar. Talsmaður utanríkisráJu- neytisins í Bonn vfsaði fréttinni á bug og sagði blaðið hafa birt sam- hljóða fréttir margsinnis undan- fama mánuði. Bild varð fyrst fjöl- miðla til að skfra frá þvf að sovéski andófsmaðurinn Anatoly Shcharan- sky yrði látinn laus er stórveldin skiptust á föngum í janúar sl. Bandarllgamenn leggja mikla áherzlu á að Sakharov verði leyft að fara til Vesturlanda. Hann var á sínum tfma dæmdur til útlegðar í borginni Gorkí. Bild segir að jafn- framt þessu reyni Bandaríkjamenn að fá lausa „marga bandarfska njósnara, sem sitji f sovézkum fang- elsum“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.