Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986
Gangstéttarframkvæmdir í Stykkishólmi
Stykkishólmi.
Á VEGUM Stykkishólmshrepps er
nú unnið að því að leggja vegkanta
og gangstéttir við þær götur bæjar-
ins sem enn hafa ekki fengið þessi
þægindi og fagurt útlit. Er það
Véltækni hf. sem hefír veg og vanda
af aðalverkinu, en svo er það starfs-
lið hreppsins sem aðstoðar. Högni
Bæringsson verkstjóri hreppsins
tjáði mér að miklar framkvæmdir
væru framundan bæði í gangstétt-
argerð, holræsagerð o.fl.
Stykkishólmshreppur á nú vél
sem hreinsar götumar og hefír hún
óspart verið notuð í vor og er unnið
að því að hrein torg og hreinar
götur verði í Hólminum um hvíta-
sunnu og auðvitað áfram því það
er mikils virði að halda bænum
hreinum.
Unglingar unnu á vegum hrepps-
ins í fyrra að hreinsun bæjarins og
mun sami háttur á hafður nú.
Arni.
Sumarstarf
fyrir börn og unglinga “ÉQOC
í Reykjavík
Innritun í sumarstarf íþrótta- og tómstundaráös
hófst þriðjudaginn 20. maí að Fríkirkjuvegi 11
og í félagsmiðstöðvunum.
Foreldrum er bent á að kynna sér með börnum sínum
bæklinginn „Sumarstarf fyrir börn og unglinga 1986“
sem hefur verið dreift til nemenda í grunnskólum
Reykjavíkur nú i maí.
Ársel — Bústaðir
simi 78944 sími35119
Fellahellir — Frostask íól
sími 73550 sími 622120 *
Tónabær — Próttheimar
________simi 35935 __________simi 39640
Sumarstarf í KytinísfCrð Sumarstarf í
Austurbæjarskóla f SVeít Seljahverfi
m _
Nauthólsvík
Reibskóli
í Saltvík
111 ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ
Upplýsingax
um sumarstarf
eruveittar ísímum
15937 og 21769.
Fríkirkjuvegur 11
Sími á skrif stofu
íþrótta- og
tómstundaráös
er 62 22 15
Páskakórínn, stjórnandi Tómas Jónsson.
Morgunblaðið/Hulda
„Syngjandi pásk
ar“ á Þingeyri
Þingeyri.
ÞINGEYRINGAR hafa til
skamms tíma ekki legið hallir
undir titlatogi, heldur hafa
margir sjálfskipaðir „kóngar"
ríkt hér svo langt sem ég man
og gott betur. Þó er haft eftir
mætri frú í Mýrahreppi „Heið-
ur þeim, sem heiður ber, en
hinum ekki,“ er til tals kom
fyrir mörgum árum að titla
allt kvenfólk frú. Já, sitt sýnist
hveijum.
Mig rak í „rogastans", er ég
las í bók, að Þingeyringar væru
ógestrisnir eða hefðu verið og
haft eftir (einum) mætum manni,
er bjó hér 5 ár. Sá „kóngur“ hefur
ekki borið gæfu til að eignast
neina hirð (og) eða sætt sig við
að verða hirðmaður afa míns, Jóa
gamla Ólafssonar, er þá var einn
af sjálfskipuðum kóngum söngs-
ins með meiru, ásamt mörgum
fleiri kóngum. Það virðist nokkuð
ríkjandi hefð hér, hugsunarháttur
landnámsmannanna að una ekki
ofríkis eins manns jafnt þó við
höfum blandað blóði við ýmsar
aðrar þjóðir austan og vestan
hafs. Nei, það er eitt af því, sem
Einn kvartettanna á „Syngj-
andi páskum". Stjórnandi Tóm-
as Jónsson.
við teljum okkur til ágætis, svo
að ekki sé meira sagt.
Einn okkar kónga í dag er
Tómas Jónsson og hirð hans er
skipuð syngjandi og leikandi Dýr-
firðingum eins og þessar myndir
sýna. Áhangendur hirðarinnar,
sem hvorki syngja né leika á hljóð-
færi - leika bara við hvern sinn
fíngur og njóta góðs af þeim, sem
„brillera".
- Hulda
„Harmónikukarlarnir11 í ár. Stjórnandi Guðmundur Ingvarsson
oddviti með meiru.
Neskaupstaður:
Framboðslisti óháðrakjósenda
Neskaupstað.
BIRTUR hefur verið Listi óháðra
kjósenda i Neskaupstað við bæj-
arstjórnarkosningarnar 31. maí
nk.
Listann skipa: 1. Brynja Garðars-
dóttir kennari, 2. Haraldur Óskars-
son kennari, 3. Heiðbrá Guðmunds-
dóttir sjúkraliði, 4. Þorgrímur Þor-
grímsson vélvirki, 5. Stefanía Jóns-
dóttir verslunarmaður, 6. Sveinn
Magnússon vélvirki, 7. Katrín D.
Ingvadóttir, húsmóðir, 8. Magni B.
Sveinsson rafvirkiameistari, 9.
Ólína FreybteiiisUouir nemi, 10. Jón
Svanbjömsson pipulagningarmeist-
ari, 11. Elín A. Hermannsdóttir
verkamaður, 12. Þorgerður Malm-
quist lyfjatæknir, 13. Klara Jó-
hannsdóttir verslunarmaður, 14.
Margrét Sigurðardóttir verslunar-
maður, 15. Sigurveig Björnsdóttir
nemi, 16. Þórhildur Freysdóttir
verkamaður, 17. Sveinbjöm Sig.
Tómasson verkamaður og 18. Gest-
ur Janus Ragnarsson framkvæmda-
stjóri. Sigurbjörg