Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
39
Morgunblaðið/Júlíus
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIN, lendir með vélsleðamanninn, Vilhelm Ágústsson, á lóð Borgarspít-
alans.
Vélsleðamaður slasast mikið við Gæsavötn:
Féll niður 20 metra snar-
bratt gil og flaut 60—80
metra í ísköldu jökulvatni
Tæplega þrjár klukkustundir liðu frá
því tilkynnt var um slysið þar til þyrla
Landhelgisgæslunnar lenti á slysstaðnum
„ÞETTA var vægast sagt hrikalegt slys og það er kraftaverki Ukast
að Vilhelm skyldi lifa það af. Hann féll nánast lóðrétt niður í 20
metra djúpt gil ofan í ískalt jökulvatn og flaut með því 60-80 metra
áður en einum samferðamanna hans tókst að stökkva til hans og
halda honum upp úr vatninu," sagði Sigurjón Hannesson, einn úr
hópi vélsleðamanna sem voru við Gæsavötn norðan Vatnajökuls á
Iaugardagskvöldið, þegar þaulvanur vélsleðamaður, Vilhelm Ágústs-
son frá Akureyri, féll á sleða sínum ofan í 20 metra djúpt snarbratt
gil og kom niður á Rjúpnabrekkukvísl. Vilhelm slasaðist mikið, en
er nú á batavegi og taldi Sigurjón að hjálmur á höfði hans hefði
bjargað miklu. Vilhelm hélt meðvitund allan tímann frá þvi slysið
átti sér stað milli klukkan 10.30 og 10.45 þar til þyrla Gæslunnar
lenti á slysstaðnum klukkan 01.40, eða um þremur klukkustundum
síðar.
Vilhelm var á ferð með þremur
félögum sínum frá Akureyri og var
leiðinni heitið að gistiskála við
Gæsavötn, þar sem sleðamennimir
ætluðu að hitta félaga sína frá
Reykjavík. Áttu þeir 5-8 kílómetra
ófama að skálanum þegar óhappið
varð. „Tveir félagar Vilhelms höfðu
farið yfir kvíslina nokkm norðar,
og því hefur Vilhelm líklega verið
gmnlaus um að hætta væri á ferð-
um,“ lýsti Sigurjón aðdragandan-
um. „Hæðarmunur og birtuskilyrði
hafa orðið til þess að Vilhelm sá
ekki gilið fyrr en um seinan. Hann
var á vesturleið undan sólu og snjó-
bakkinn sem hann renndi sér á var
um 5 metmm lægri en gilbrúnin,
svo erfítt var að sjá hana úr
fjarska," sagði Siguijón
Siguijón sagði að samferðamenn
Vilhelms hefðu bmgðist fljótt og
rétt við: „Strax eftir að Vilhelm
fellur stekkur félagi hans niður í
gilið og nær að grípa til hans og
halda honum upp úr vatninu. Annar
kom skjótlega að, en sá fjórði fór
í skálann til að sækja hjálp. Það
hefur verið um 15 mínútna keyrsla,
því við komum á staðinn rúmum
hálftíma eftir að slysið átti sér stað.
Þrátt fyrir að á annan tug manna
væm komnir á staðinn til hjálpar
gekk mjög erfíðlega að ná Vilhelm
upp úr gilinu. Þama var maður sem
var vel að sér í skyndihjálp og bjó
hann Vilhelm undir flutninginn.
Síðan þurfti að klöngrast með hann
upp snarbratta þriggja mannhæða
snjóhengju, og þá tók við brött 15
metra löng snjóskriða. Þetta tókst
þó og við fundum og undirbjuggum
lendingarstað fyrir þyrlu Laindhelg-
isgæslunnar, sem kom þó ekki fyrr
en tveimur tímum og fjömtíu mín-
útum eftir að tilkynnt var um slys-
ið, sem mér fínnst fyrir neðan allar
hellur," sagði Siguijón Hannesson.
Vantaði flugvirkja
Páll Halldórsson flugrekstrar-
stjóri Landhelgisgæslunnar var
annar tveggja flugmanna sem fór
í þetta björgunarflug á þyrlunni
TF-SIF. Páll sagði að vissulega
hefði allt of langur tími liðið frá
því slysið var tilkynnt þar til þyrlan
fór á loft. Þar væri mörgu um að
kenna, en fyrst og fremst því að
vakt Fluggæslunnar stæði aðeins í
12 tíma, frá átta á morgnana til
átta á kvöldin, og því gæti stundum
verið erfítt að ná í menn. Þetta
hefði þó gengið óvenju seint, því á
frívakt tæki venjulega vel innan við
klukkustund að komast í loftið frá
því tilkynning bærist til þeirra.
Páll sagði að sér hefði verið til-
kynnt um slysið klukkan 11.25 og
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að komið verði fyrir hraðahindr-
unum á samtals 10 stöðum við
Framnesveg, Brekkustíg,
Bræðraborgarstíg, Ægisgötu og
Garðastræti.
íbúasamtök Vesturbæjar og
Foreldra- og kennnarafélag Vestur-
bæjarskóla sendu umferðamefnd
Reykjavíkurborgar bréf sem dag-
sett var 15. mars sl. þar sem lagt
er til að hraðahindrunum verði
hann, Benóný Ásgrímsson flug-
maður og læknir Borgarspítalans
Stefán Karlsson hefðu verið komnir
niður á völl fáeinum mínútum síðar.
„Hins vegar gekk mjög erfíðlega
að ná í flugvirkja, sem þarf að líta
yfir þyrluna og búa hana til flugs.
Auk þess leit á tímabili út fyrir að
það þyrfti að hífa manninn upp á
spili, og slíkt þarf undirbúning.
Ennfremur fínnst mér að Slysa-
vamafélagið hafí dregið það of lengi
að láta okkur vita um slysið, því
við teljum ekkert eftir okkur að
undirbúa flug þótt ekki liggi ljóst
fyrir að okkar sé þörf," sagði Páll
Halldórsson.
Þyrlan fór í loftið klukkan 00.40
og var um klukkustund á leiðinni
vegna mikils mótvinds. Síðan tók
það lækninn um 50 mínútur að búa
Vilhelm undir flugferðina og því var
ekki lagt af stað til Reylcjavíkur
fyrr en klukkan 02.30. Heimferðin
gekk hraðar fyrir sig og var lent á
lóð Borgarspítalans klukkan 3.10.
Jóhannes Briem var á vakt hjá
Slysavamafélagi íslands þetta
kvöld. Hann sagði að sér hefði
borist tilkynning um slysið um
klukkan 11.00 á laugardagskvöldið.
Tilkynningin kom í gegnum Gufu-
nesradíó frá snjóbfl, sem var á leið
frá gistiskálanum til slysstaðarins.
„Vegna þess hve sambandið var
lélegt og hve litlar upplýsingar lágu
yfír um slysið ákvað ég að bíða
með að ræsa út flugáhöfnina þar
til snjóbíllinn kæmi að slysstaðnum.
Það tók um 20 mínútur og kynnti
ég mér á meðan hveijir væm á
bakvakt hjá Fluggæslunni," sagði
Jóhann Briem.
komið fyrir á samtals 40 stöðum i
Vesturbænum, norðan Hringbraut-
ar. Katrín Fjeldsted og Guttormur
Þormar fulltrúar í umferðamefnd
ræddu við fulltrúa íbúasamtakanna
og varð að samkomulagi að leggja
til að hraðahindranir verði settar
upp á samtals 10 stöðum við áður-
nefndar götur. Sú tillaga var sam-
þykkt á fundi í umferðamefnd 7.
maí síðastliðinn. Tillagan var síðan
lögð fyrir borgarráð sem samþykkti
hana á fundi sínum á þriðjudaginn.
Borgarráð:
Tíu hraðahindrunum kom-
ið fyrir í Vesturbænum
GEGN kísilskán og öðr-
um óhreinindum.
FYRIR vaska, baðker,
sturtubotna, flísar, salernis-
skálaro.fl.
HREINSIR
(NUDDI)
íslenskir leiðbeinlngar._
Fæst í flestum verslunum. sem
selja ræstivörur, í Reykjavik,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnar-
firði, á Akranesi, Hellu, Hvols-
velli, Selfossi. Húsavík, svo og
á öllum bensínstöðvum ESSO.
Hreinlætisþjónusta hf.
Sími 27490.
ER BILLINN
ILAGI
KÚPLINGSDISKAR OG PRESSUR
Original japanskir
varahlutir í flesta
japanska bíla.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 6B7BOO
ÁGÓÐUVERÐI -
ACDelco
Nr.l
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
SÍUR
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-brófaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaðri vinnu. Þú stundar námið heima
hjá þér á þeim hraða sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þérgefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færð
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiðin eru öll áensku.
□ Tölvuforritun
□ Ratvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almenntnám
□ Bifvélavirkjun
□ Nytjalist
□ Stjórnun
fyrirtœkja
□ Garöyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaöamennaka
□ Kælitækni og
loftræsting
Nafn:........................................................
Heimilisfang:................................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
Bladburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Samtún Grenigrund
JlfofgiiiiÞIiiMfe