Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
5
Tjörnin í Reykjavík:
Viðgerð á
gosbrunni
og hreins-
un lokið
„ÞAÐ var ákveðid að gera
þessar viðgerðir núna, áður
en ungarnir færu á stjá. Til
þess að tjömin yrði nokkurn
veginn sómasamleg í sumar
varð að hreinsa hana núna
því mikið af drasli hafði
safnast saman í henni. I leið-
inni var gert við rafmagns-
leiðslur út í gosbrunninn
sem vom bilaðar," sagði
Jóhann Pálsson garðyrkju-
stjóri í samtali við Morgun-
blaðið.
Viðgerðinni á rafmagnsleiðslun-
um er lokið fyrir nokkru og hreins-
un Tjarnarinnar lauk í gærkvöldi.
í nótt átti að setja lokur aftur í
Tjömina og þá á hún að fyllast
aftur af vatni.
Jóhann sagði að í framhaldi af
þeirri gagnrýni sem fram hefði
komið í sambandi við þessar við-
gerðir væri rétt að taka fram að
þrátt fyrir að smádýr og gróður í
Tjörninni væri mjkilvæg fæða fyrir
andarunga og aðra unga væri
margt fleira sem skipti máli fyrir
þá eins og til dæmis ránfuglar og
kettir sem væru í kringum Tjörn-
ina. Hann sagði að það væru ekki
svo fáir andarungar sem höfðu lent
í klónum á þeim. Aftur á móti hefði
ekki enn frést af andarunga sem
hefði dáið úr hungri.
„Eitt vistkerfí er samsett úr svo
óskaplega mörgum þáttum að ekki
er hægt að taka einn út úr og gera
hann einan að algjörum örlaga-
valdi," sagði Jóhann „Ég vona að
Tjörnin verði heldur snyrtilegri.
Hún er ekki eingöngu vistkerfí sem
ekki má hreyfa við heldur er hún
líka hluti af borgarmyndinni. Þetta
er aðeins bráðabirgðaviðgerð. Það
stendur til að byggja gamla hluta
Tjarnarinnar meira og minna upp
og þá verður hún undirlögð í langan
tíma. Það getur verið óhjákvæmi-
legt að fuglalíf raskist eitthvað við
það. Ég vona bara að endur og
menn geti notið komandi sumars í
svolítið snyrtilegra umhverfi,"
sagði Jóhann að lokum.
Aðalfundur
SH haldinn
á Akureyri
AÐALFUNDUR Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna
verður haldinn á Akureyri á
fimmtudag og föstudag.
Þetta verður í fyrsta sinn,
sem fundurinn er haldinn
utan Reykjavíkur. Fundur-
inn verður haldinn á Hótel
KEA.
Aðalfundurinn hefst klukkan
14.00 á fímmtudag og lýkur á
föstudagskvöld. Þar verður gerð
grein fyrir rekstri SH á síðasta ári
og söluhorfum á þessu svo eitthvað
sé nefnt. Erindi flytja meðal ann-
arra Jón Ingvarsson, formaður
stjórnar SH, Friðrik Pálsson, for-
stjóri, framkvæmdastjórar SH og
stjórnendur sölufyrirtækja og
verksmiðja erlendis. Þá mun Matt-
hías Bjarnason, viðskiptaráðherra
ávarpa fundarmenn. Auk fundar-
halda munu fundarmenn skoða
Utgerðarfélag Akurevrinfro
„Heimilistæki
brjótast
upp miðjuna með
heimsmeistaraverð
á Philips Trendset
sjónvörpum -
aðeins kr. 32.400.-
Nýttu þetta ágæta tilboð í tilefni
HM í Mexico. Frábært 20 tommu Philips
Trendsetsjónvarpfyriraðeins kr. 32.400,-
staðgreitt!
í Mexico er Philips einum treyst fyrir
upptöku og útsendingu allra leikjanna í
heimsmeistarakeppninni. Heimilistæki
bjóða þér Philips Trendset sjónvarp til að
taka á móti leikjunum — í réttum litum.
Þú getur valið um 14, 16, 20, 22 eða 26
tommu sjónvarpstæki. Eins og alltaf erum
við sveigjanlegir í samningum og bjóðum
^ lága útborgun.
* # Jfip Philips Trendset
v - spennandi nýjung,
Ammmé rótföst í reynslu tímans.
Þú missir ekki af einum einasta leik með Philips
myndbandstæki. Þetta eru góð tæki sem nýtast
þér lengi. Verðið er gott, frá kr. 48.800.- staðgreitt.
Nú hefur þú aldeilis
Ijómandi ástæðu
fyrir að kaupa Philips
■» myndbandstæki.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 27500
G0TT FÖLK / SÍA