Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 _ mmmn © 1986 Universal Press Syndicate „ J?ú fxr5 ck.ki nóg kalsíum úrfxéunni." ... að veita verð- laun. TM Rag. U S. Pat. Off—all rlghts reservtd e 1983 *-0s Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Hafið þið séð breiðskifuna sem ég var að spila í gærdag? HÖGNI HREKKVlSI „ Plr'NAN HAM5 ER. þjÓFAVARlN-" Mun helmingnr íslensku þjóðar- innar horfa á Maradona í sjón- varpinu? Fótbolti eða geislamælar 6522-2086 hringdi: „Ég vil láta í ljós óánægju með grein „Dísu“ í Velvakanda 16. maí sl., þar sem hún segir skyn- samlegra að kaupa geislunarmæla en beinar útsendingar frá heims- meistarakeppninni í fótbolta í sumar. I fyrsta lagi er það fé, sem sjón- varpið fær til umráða, algerlega óskylt kaupum á einhveijum geislamælum. Einnig get ég full- vissað bréfritara um það, að a.m.k. helmingur þjóðarinnar á eftir að fylgjast með stjömum á borð við Maradona, Platini, Rummenigge, Robson o.fl. Að lokum: Ef kjamorkustríð yrði á annað borð, yrði gjöreyðing og geislunarmælar kæmu fyrir lít- ið.“ Knattspyrnuáhugamaður hringdi: „Vegna bréfs frá „Dísu“ í Vel- vakanda 16. maí sl., þar sem hún segir að nær væri að kaupa geisl- unarmæla en beinar útsendingar frá heimsmeistarakeppninni í knattspymu í Mexíkó í sumar, vil ég benda henni á það að ekki hafa verið svo margar beinar útsending- ar frá heimsmeistarakeppni í knattspymu, og er þetta því mikill fengur fyrir knattspymuáhuga- menn nú. Ef „Dísa“ hefur mikinn áhuga á að vera í landi þar sem geislunar- mælingar em með miklum blóma, getur hún sem best flutt til Noregs eða Svíþjóðar. Þar fær hún ömgg- lega alla þá geislunarmæla sem hún vill. Að lokum vil ég þakka Bjama Felixsyni fyrir gott framtak í þágu knattspymuáhugamanna og allar þær beinu útsendingar sem hann hefur kríað út á undanfömum ámm.“ Þakkir Poppkorns- menn 131170 hringdi: „Mig langar að þakka stjómend- um Poppkorns fyrir frábæran þátt 12. maí sl. Ég hvet þá til þess að sýna fleiri myndbönd með Prince og Madonnu, og ég er viss um að margir taka undir það. Þá var einnig sýnt afbragðs myndband með Cljff Richard og The Young Ones. Ég vil líka hvetja strákana til þess að sýna fleiri þætti af lögum sem hafa verið vinsæl, en ekki einskorða sig við lög sem eiga eftir að verða vinsæl. Tónlistar- happdrætti Velvakandi. í Morgunblaðinu 13. þ.m. var spurst fyrir um vinninga í happ- drætti Samtaka um byggingu tón- listarhúss. Dregið var í happdrættinu 12. október 1985. Fréttatilkynning um vinningsnúmer var send öllum dagblöðum og birtist hún í Morgun- blaðinu 27. október. Auk þess vom vinningsnúmer birt með auglýsingu í fjómm dagblöðum, í Morgunblað- inu 30. október. Símsvari gaf upplýsingar um vinningsnúmer til 13. febrúar á þessu ári. Síðan hafa upplýsingar verið veittar í síma 29107, sem er skráður sími Samtaka um byggingu tónlistarhúss (opiðkl. 14—18). Þess skal að lokum getið, að allir útdregnir vinningar hafa þegar verið sóttir. Við viljum nota þetta tækifæri til að þakka landsmönnum ágætar viðtökur við happdrættinu. F.h. happdrættisnefndar, Bragi Jónsson Dularfull hjálp- arbeiðni frá Filippseyjum Velvakandi góður Mér hefur borist bréf frá konu á Filippseyjum. Hún segir frá bágind- um sínum og biður um aðstoð. Nú er mér hulin ráðgáta hvar hún hefur fengið nafn mitt og heim- ilisfang, og dettur mér helst í hug að hér séu á ferðinni skipulagðar hjálparbeiðnir. Bréfíð er greinilega ekki skrifað af konu, sem býr við þær aðstæður sem lýst er, og það erekki frímerkt, heldur stimplað. Velvakandi góður, nú þætti mér vænt um að þú komir þessu á fram- færi og fólk gæti látið þig vita ef fleiri hafa fengið slík bréf. Björg Bogadóttir, 1257-3758 Víkverji skrifar Víkveiji notaði góðviðrið um helgina til að skoða sig um í Reykjavík og nágrenni. Víða var verið að vinna í görðum og á tveim- ur stöðum að minnsta kosti heyrðist í sláttuvél, þannig að garðsláttu- menn vita hvað til síns friðar heyrir á næstunni. Að vísu virtist ekki mikið sprottið, þar sem vélamar voru dregar yfir grasflatimar. Þurrkarnir að undanfömu teíja fyrir sprettunni, en í gær byijaði að rigna. Hvergi sjást merki yfirvofandi kosninga þegar farið er um borgina. Kannski eiga stjómmálaflokkarnir eftir að festa upp áróðurspjöld og myndir af frambjóðendum eða þeir em alveg hættir að eyða peningum í slíkt. Aðeins á einum stað hefur Víkveiji séð kosningaborða, það er í Austurstræti beint framan við ritstjómarskrifstofur Morgunblaðs- ins. Þar hefur Kvennalistinn hengt upp áminningu til vegfarenda um tilvist sína. í Evrópulöndum eru það myndir af frambjóðendum og stutt slagorð á spjöldum, sem helst minna almenning á kosningar. Setja þess- ar auglýsingar svip sinn á borgir og þjóðlönd síðustu vikumar, sem barist er um fylgið. í stað þess að hengja áróðurinn á hús og staura hafa stjórnmála- flokkamir hér valið þá leið að festa hann á stuðningsmenn sína. Fólk sést með alls kyns barmmerki til staðfestingar á því, hvaða flokki það fylgir. ótt kosningaspjöldin vantaði, hafði Víkveiji nóg að skoða á ferðum sínum um borgina um helg- ina. Hann hafði til dæmis ekki áttað sig á því áður, að smábátaeign er orðin jafn mikil og sjá má í hinni sérstöku höfn fyrir þessa báta í Elliðaárvogi. Minnti sjónin helst á bátahafnir við Miðjarðarhaf eða Adríahaf. Þó var ekki unnt að hafa langa viðdvöl þama, því að mold- rokið var svo mikið. Vegur hefur verið malbikaður í áttina að höfn- inni en umhverfis hana sjálfa vantar vegi og stéttir. Undrar það Víkveija alltaf, hvers vegna skilið er við verk af þessu tagi án þess að fullljúka þeim. Hraðinn í vexti borgarinnar er kannski svo mikill, að aldrei gefst tími til að leggja lokahönd á verk. Við Skúlagötuna vom menn að girða af stóra spildu meðfram sjón- um með vímeti og tvöföldum gaddavírsstreng þar fyrir ofan. Varla er verið að hefta ferðir sjávar- dýra með þessum framkvæmdum? En okkar ágætu borgaryfirvöld ráð- ast ekki í framkvæmdir af þessu tagi af ástæðulausu. Er ekki að efa, að þetta skýrist fyrir kjördag. XXX Af spumingum þeim, sem birst hafa í Morgunblaðinu og beint er til Davíðs Oddssonar, borgar- stjóra, í tilefni af kosningunum, má ráða, að háttvirtir kjósendur séu mest með hugann við sitt næsta nágrenni, þegar þeir velta fyrir sér, hveijum þeir ljá fylgi í kosningun- um. Að borgarstjóri skuli sitja fyrir svörum með þessum hætti er ein- hver besta staðfesting, sem unnt er'að fá á mikilvægi þess, að einum flokki sé treyst fyrir stjóm borgar- innar. Engum datt í hug, að það væri til nokkurs gagns, að einhver forystumanna vinstri flokkanna sæti þannig fyrir svömm, þegar þeir höfðu meirihluta í Reykjavík 1978 til 1982. Er ekki að efa, að þá hefði það gerst oftar en einu sinni, að skuldinni hefði verið skellt á einhvem samstarfsflokkanna í erfiðum málum. Engum slíkum „vömum“ er unnt að koma við, þegar aðeins einn flokkur fer með stjóm borgarmála; ábyrgðin er skýr og ótvíræð. Líklega stendur það stjórn lands- mála og virðingu Alþingis hvað mest fyrir þrifum, að einum stjóm- málaflokki skuli aldrei hafa verið trúað fyrir meirihluta á þingi. Deil- an um Þróunarfélagið, þar sem forsætisráðherra segist í raun ekki treysta fjármálaráðherra fyrir því að fara með fé ríkisins, er skýrt dæmi um það, hvemig menn geta misnotað pólitískt samstarf. Á meðan Reykvíkingar bera gæfu til að kjósa einn flokk til ábyrgðar, geta þeir verið næsta ömggir um skipulega stjóm og markviss við- brögð við þeim vanda, sem upp kann að koma. Reynslan af stjóm Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kennir þeim það að minnsta kosti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.