Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986 25 Þriðja ráðs mál freviur funda Selfossi. %J mundsdóttir Vörðunni Keflavík, gjaldkeri landssamtaka málfreyja á Islandi. Á fundinum tók við ný stjóm þriðja ráðs málfreyja og er hún þannig skipuð næsta ár: Forseti Björg Stefánsdóttir Mel- korku, 1. varaforseti Anna Halla Jóhannsdóttir Melkorku, 2. varafor- seti Gréta Sigurðardóttir Emblu, ritari Guðfínna Ólafsdóttir Seljum, gjaldkeri Jóhanna Guðmundsdóttir Emblu, þingskapaleiðari Halldóra Armannsdóttir Seljum. í kynning- amefnd Selja em Inga Ingadóttir formaður, Hjördís Ásgeirsdóttir og Ingibjörg Kristjánsdóttir. Sig. Jóns. ÞRIÐJA ráðs málfreyjur héldu fund í Inghóli á Selfossi 3. mái sl. Á fundinum var veitt fræðsla um störf embættismanna deilda í umsjá stjórnar þriðja ráðs og um nefndarstörf. í þriðja ráði málfreyja eru mál- freyjudeildimar Björkin Reykjavík, Embla Stykkishólmi, Fífa Kópa- vogi, Hafrót Vestmannaeyjum, Melkorka Reykjavík, Ösp Akranesi og Seljur Selfossi. Umsjónarmaður fundarins var María Hauksdóttir Seljum og stef forseta var „Sá er hygginn sem þekkir aðra, hinn er vitur sem þekkir sjálfan sig“. Heiðursgestur var Sæunn Guð- Dr. Þorkell Jóhannesson konumyndarinnar þar með þetta huga. Höfundur er prófessor við Há- skóla íslands. SUÐURVER26 MAI * 3jövikna námskeið 2 xeða 4 x Mkty Allirfin'há ff©kj| við<sitt hæff fráj.S.B UIMARF þær sem þurfa og Innrilun er hafin ^pni Ó3730 V \ V P-.P.S. isTú jará í-sparibyrrtn‘gfr>n, Sjá(jnr*s^ Bára.Anna'@igg*á--Mágga og ctfo. . / .. _ - • .. í 9 • • • Verðugur full- trúi „Mörtu- ímyndarinnar“ eftir Þorkel Jóhannesson Hr. ritstjóri. Ég er ekki vanur að grípa penna við lestur dagblaða. A bls. 52 í Morgunblaðinu í dag birtast hins vegar tvær smágreinar eftir þjóð- kunna menn, sem mér fínnst rétt að árétta og hnykkja aðeins á. Fyrri greinin er eftir dr. Sigurð Pétursson, gerlafræðing, er ég átti kost að starfa með í Atvinnudeild- inni gömlu á námsámm mínum. Sigurður víkur í greininni að frá- sögninni um Mörtu og Maríu í Lúk- asarguðspjalli, sem lærðir sem leikir hafa löngum reymt að kryfja til mikillar visku um hinn „góða hlut“ Maríu við fótskör meistarans. Frá því biblíusögum var troðið í mig lít- inn dreng hef ég aldrei skilið þessa sögu og því verr eftir því, sem ég verð eldri. „Maríur" geta vissulega verið góðar og nauðsynlegar, en ég get alls ekki skilið, hví „Mörtur“ eru settar þrepi lægra hjá meistar- anum. Ég er því alveg sammála dr. Sigurði í áliti hans á fyrmefndri sögu. Raunar hefur stundum læðst að mér sá grunur, að vel mætti vera, að texti sögunnar væri brengl- aður í Lúkasarguðspjalli! Síðari greinin er eftir Halldór Jónsson, verkfræðing. Halldór hef- ur margt skrifað í Morgunblaðið og flest vel. Þó hefur Halldór oftar en ekki sett mál sitt svo fram, að mönnum hefur ekki alls kostar þótt sem taka ætti hann alvarlega. Með grein sinni um minnisvarða um Thor Jensen í Morgunblaðinu í dag hittir hann þó alveg í mark. Meðal framkvæmdarmanna hér á landi á þessari öld á Thor Jensen engan sinn líka. Hann reis yfír flatneskj- una meira en nokkur annar meðal athafnamanna og á fremur skilið minnisvarða en allir aðrir úr þeirra hópi. Thor Jensen lést fyrir næstum 40 árum og sá styrr, sem um hann stóð í lifandi lífí, er löngu hjaðnað- ur. Því fínnst mér tillaga Halldórs í hæsta máta tímabær og óska honum góðs gengis. En, Halldór, maðurinn var ekki einn! Hvarvetna kemur skýrt fram í skrifum um Thor Jensen, að án konu sinnar var hann ekki hálfur. Hann hefur látið festa á blað ský- lausar lýsingar á því, hve kona hans örvaði hann til dáða, tók af honum bakföll, þegar illa gekk, tók þátt í gleði hans, þegar vel gekk, ól honum fjöld mannvænlegra barna og var sívinnandi við hlið hans í áratugi. Því kemur ekki annað til greina en minnisvarði verði um þau hjón bæði. Eftir lestur greinar dr. Sigurðar um gildi Mörtu flýgur mér í hug, að ekki sé auðfundin verðugri full- trúi „Mörtuímyndarinnar" en Margrét Þorbjörg, kona Thors Jenssen. Ef minnisvarði þeirra hjóna kemst upp, mun ég leyfa mér að líta af Vesturlandsveginum til Haf narfj örður: Sjálf stæðismenn efna til „vordaga“ SJÁLFSTÆÐISMENN í Hafnar- firði gangast fyrir vikulangri dagskrá í Hafnarfjarðarbíói undir heitinu „Vordagar í Hafn- arfirði“, og hófst hún í gær- kvöldi. í frétt frá sjálfstæðismönnum um þessa dagskrá segir m.a.: „Miðvikudagskvöldið er við hæfi eldri borgara, fimmtudagskvöldið fyrir unga kjósendur, föstudags- kvöldið aftur með léttri, blandaðri dagskrá og loks á laugardag verður barnaskemmtun í bíóinu klukkan tvö eftir hádegi. Það er von sjálfstæðismanna, að þessi menningarvika geti orðið ár- legur viðburður í hafnfirsku bæjar- lífi. Vel er til allra skemmtiatriða vandað og leitast við að hafa þau flest hafnfírsk. Aðgangur er ókeyp- is og allir velkomnir á meðan hús- rúm leyfir. Dagskráin er breytileg milli daga, en allar hefjast kvöldskemmt- anirnar klukkan 8.30. Meðal skemmtiatriða sem boðið er uppá má nefna Kór Víðistaðakirkju, söngkvartettinn Emil, Túnfíska Öldutúnsskóla, nemendur úr Tón- listarskóla Hafnarfjarðar undir stjórn Þorvaldar Steingrímssonar, hljómsveit Elvars Berg, karlakórinn Þresti, Magnús Kjartansson, Björg- vin Halldórsson, Bjössa bollu og háðfuglana Ladda og Ómar Ragn- arsson. Á föstudagskvöld verða spilaðar sex umferðir af bingói og gestum afhent ókeypis bingóspjöld við innganginn. Þó að Sjálfstæðisflokkurinn standi að skemmtunum þessum verða stjórnmálaumræður litlar sem engar, tvö eða þtjú örstutt ávörp frá frambjóðendum flokksins látin nægja hvert kvöld. Þá má einnig geta þess, að Hafnarfjarðarbíó stendur öllum opið þessa sömu daga frá klukkan fímm til sjö. Heitt verður á könn- unni og myndefni á skjánum við hæfi barna á meðan hinum eldri gefst færi á að ræða kosningamar sem framundan eru.“ Nýr kjörstjóri í Hollandi í fréttatilkynningu utanríkis- ráðuneytisins nýlega var Eugene Vinke aðalræðismaður Islands í Amsterdam auglýstur sem kjör- stjóri í atkvæðagreiðslu utan kjör- funda erlendis vegna sveitarstjóm- arkosninganna 31. maí og 14. júní 1986. Vegna forfalla hefur utan- ríkisráðuneytið ákveðið að í hans stað verði kjörstjóri Robert Eduard van Erven Dorens, ræðismaður ís- lands í Amsterdam. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur farið fram á þeim stað og tíma sem hér segir: HOLLAND Amsterdam: 21.—22. maí eða eftir samkomu- lagi vegna kosninganna 31. maí. 2.-3. júní eða eftir samkomulagi vegna kosninganna 14. júní. Ræðismaður: Robert Eduard van Erven Dorens Reved Intemational, Herengracht 176 1016 BR Amsterdam (020) 248 958 eða 249 037
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.