Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986
Héldu upp á afmælisdaginn saman;
Fæddustöll #
sama dag fyrir
20 árum
TIU BORN fæddust á Islandi
16. maí árið 1966. Þessi tíu
börn voru öll saman komin á
einum stað á tvítugsmæli sínu
á föstudaginn í boði Karnabæj-
ar, sem einnig átti 20 ára
afmæli í gær.
Afmælishófið var haldið í Kvos-
inni og mættu afmælisbörnin
aðeins á undan öðrum veislugest-
um til að skera tertuna og bera
saman stjömukort sín, sem Gunn-
laugur Guðmundsson, stjömu-
spekingur, afhenti þeim í afmælis-
gjöf. Guðlaugur Bergmann for-
stjóri Karnabæjar tók á móti
afmælisbörnunum og hafði á orði
að öll væm þau myndarböm, enda
Naut, eins og Kamabær. Haft var
samband við afmælisbömin eftir
Guðlaugur sker tertu fyrir eitt afmælisbarnið.
Afmælisbörnin ásamt Guðlaugi Bergmann, forstjóra Kamabæjar,
og konu hans Guðrúnu Guðjónsdóttur í afmælishófinu i Kvosinni.
að leitað hafði verið í þjóðskrá að
, tvítugum íslendingum á þessum
degi, og öll tíu sáu sér fært að
koma í afmælisboðið. Er ólíklegt
að í annan tíma hafi allir einstakl-
ingar, fæddir sama dag og sama
ár, komið saman á tvítugsaf-
mælinu sínu.
Afmælisbörnin vom öll afskap-
lega róleg og Gunnlaugur stjömu-
spekingur kvað það vera mest
j áberandi einkennið sem lesa
■ mætti úr stjömukortum þeirra.
—i „Naut em varkár gagnvart
ókunnugum, og jafnvel feimin en
hafa seiglu þegar á reynir," sagði
Gunnlaugur.
Afmælisbömin tíu em búsett
víðs vegar á landinu. Þau em:
Ámi Ámason Reykjavík, Auður
Freyja Kjartansdóttir Reykjavík,
Daníel Haukur Snorrason Reykja-
vík, Margrét Skúladóttir ísafirði,
Hrafn Þórðarson Hafnarfirði,
Þórarinn Helgi Bergsson Patreks-
firði, Hildur Amardóttir Reykja-
vík, Helga Melkorka Óttarsdóttir
Kópavogi, Ellen María Einars-
dóttir Reylq'avík og Eggert
Tryggvason Akureyri.
Leikararnir níu í Týndu teskeiðinni
Morgunblaðid/Magnús Reynir Jónsson
Seyðisfjörður:
Leikfélagið sýnir
Týndu teskeiðina
Seyðisfjörður.
FOSTUDAGINN 18. apríl síðast-
liðinn frumsýndi Leikfélag Seyð-
isfjarðar Ieikritið Týndu teskeið-
ina eftir Kjartan Ragnarsson i
félagsheimilinu Herðubreið hér
á Seyðisfirði.
Síðan var önnur sýning sunnu-
daginn 20. apríl, su þriðja hér í bæ
var svo 1. maí. I millitíðinni var
farið til Neskaupsstaðar og Eski-
fjarðar, sýnd var ein sýning á hvor-
um stað. Síðan em áformaðar sýn-
ingar á Borgarfirði eystra og Egils-
stöðum. Ásókn hefur verið góð og
undirtektir áhorfenda ágætar.
Leikarar em níu, þau Sigurður
Jónsson, Guðrún Kjartansdóttir,
Snorri Emilsson, Hrafnhildur Borg-
þórsdóttir, Stefán Haukur Jónsson,
Siguijón Þórir Guðmundsson, Dóra
Mutsue Takefusa, María Guð-
mundsdóttir og Magnús Einarsson.
Svið og leikmuni hönnuðu Krist-
jana Bergsdóttir og Sigríður Oddný
Stefánsdóttir. Ljósameistarar eru
Pétur Kristjánsson og Emil Guð-
mundsson. gerði Þóra Guðmunds-
dóttir hannaði búninga en Guðný
Jónsdóttir sá um að sauma þá. Um
förðun sér Auðbjörg Bára Guð-
mundsdóttir. Leikstjóri er Guðjón
Ingi Sigurðsson en aðstoðarmaður
hans er Ljósbrá Guðmundsdóttir.
Guðjón Ingi hefur sviðsett mörg
leikrit víðsvegar úti á landsbyggð-
inni, meðal annars hér á Austur-
landi. Þetta er þriðja sviðsetning
hans á þessu leikári, hinar em „Ást-
in sigrar" eftir Olaf Hauk Símonar-
son hjá leikhópnum Vem á Fá-
skrúðsfirði og „Oklahoma" eftir
Rogers og Hammerstein hjá Leik-
félagi Vestmannaeyja.
Garðar Rúnar
”Gáíiialjósin”
Kertastjakar úr hreinum og tærum
kristal frá Kosta.
Sendum í póstkröfu.
[KostaíBodaI
S'— ------✓ V_______J
Bankastræti 10, sími 13122
Garöakaupum, Garóabæ, sími 651812.