Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986
Davíð o g hús-
næðismálin
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fi.
Danfoss VLT hraða-
breytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt að 150 hö.
Hraðabreytingin er
stiglaus frá 0-200% og
mótorinn heldur afli við
minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga
í söludeild.
= HEÐINN =
VÉLAVERSUDN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞUÓNUSTA
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Hver er steftia þeirra flokka í
húsnæðismálum sem nú bjóða fram
í borgarstjómarkosningunum?
Hvað hyggst íhaldsmeirihluti Dav
íðs Oddssonar gera í húsnæðismál-
um ráði hann ferðinni í borgarmál-
um að loknum kosningum? Á sama
húsnæðisstefna að ráða þá ferðinni
eins og síðasta kjörtímabil? Hver
var stefnan? í hnotskum að skilja
þá verst settu eftir út í kuldanum.
Lítum á aukningu á leiguhúsnæði
borgarinnar á kjörtímabilinu:
1983: 12 íbúðir
1984: Engin
1985: 2 íbúðir
1986: 7 íbúðir
Biðlistinn eftir leiguhúsnæði sem
Davíð skilur eftir í lok kjörtímabils-
ins er um 350 manns.
Davíð svari
Afrekaskrá Davíðs Oddssonar í
húsnæðismálum borgarbúa fyrir
síðasta kjörtímabil liggur fyrir.
Hvers mega þeir 350 einstaklingar
og Qölskyldur þeirra vænta ráði
Davíð áfram ferðinni á næsta kjör-
tímabili. Hvað ætlar Davíð að gera
næstu 4 árin tit að leysa húsnæðis-
vanda borgarbúa?
Þessar Qölskyldur og aðrir sem
er um megn að standa undir þeirri
greiðslubyrði sem fylgir því að
eignast húsnæði eiga á því kröfu
að Davíð svari þeirri spumingu.
Stefna Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn hefur einn
flokka sett fram skýra stefnu í
húsnæðismálum nú fyrir þessar
sveitarstjómarkosningar
Alþýðuflokkurinn hefur sett fram
raunhæfan valkost um byggingu
600 kaupleiguíbúða á hveiju ári
næstu 10 árin. Þar hefur fólk val
um leigu eða kaup slíkra íbúða.
Kjósi fólk að Ieigja yrði leigugjald
4.670 krónur á mánuði fyrir lág-
launafólk og fyrir aðra 7.180 krón-
ur. Þessi greiðsla færi til að greiða
niður lán úr Byggingasjóði ríkisins
og verkamanna, sem lánuðu 80%
af kaupverði kaupleiguíbúða. Kjósi
fólk að eignast slíka fbúð greiðir
það viðbótargjald, sem er frá 2.084
kr. í 4.909 krónur allt eftir því hvað
það kýs að eignast íbúðina á Iöngum
tíma. Viðbótargjaldið færi til að
greiða niður hlut framkvæmdaaðil-
ans sem geta verið sveitarfélög og
eða félagasamtök, en hlutur þeirra
í fjármögnum kaupleiguíbúða væri
20%.
Þegar viðkomandi hefur með
viðbótargjaldi greitt niður hluta
sveitarfélagsins fær hann afsal fyrir
íbúðinni og yfirtekur eftirstöðvar
lána við byggingarsjóðinn.
Hér er um raunhæfan valkost
að ræða. Kaupleiguíbúð getur lág-
launafólk eignast á 30 ámm með
fastri mánaðargreiðslu að upphæð
6.754 kr. og aðrir á sama tíma með
9.264 kr. mánaðargreiðslu. Enga
útborgun þarf — engin hlaup milli
bankastofnana og viðkomandi þarf
hvorki að sækja um lífeyris- né
húsnæðislán.
Framlag Reykja-
víkurborgar
Og hvemig á Reykjavíkurborg
að standa undir fjármögnun kaup-
leiguíbúðanna. Ef gert er ráð fyrir
að Reykjavíkurborg byggði eða
keypti 300 kaupleiguíbúðir af þeim
600 sem framkvæmdaáætlunin
gerir ráð fyrir á landinu öllu á
hverju ári þá yrði hlutur borgarinn-
ar 136 milljónir á ári. Þar sem hér
er um mjög hagstæðan kost að
ræða í húsnæðismálum verður að
gera ráð fyrir að launþegasamtök
eða önnur félagasamtök hefðu
áhuga á að gerast samstarfsaðilar
með Reykjavíkurborg um kaup-
leiguíbúðir. Sé um fleiri fram-
kvæmdaaðila að ræða minnkar
hlutur Reykjavíkurborgar sem því
nemur. Að auki má benda á að
útgjöld borgarinnar árlega á næstu
10 ámm vegna byggingar 300
kaupleiguíbúða minnkar árlega í
hlutfalli við endurgreiðslu viðbótar-
gjalds frá þeim sem kaupa íbúðim-
ar.
Alþýðuflokkurinn gerir líka í sínu
tillögum ráð fyrir því að leggja á
stighækkandi eignarskatt í tvö ár
á félög og fyrirtæki og nettóskuld-
lausar eignir yfír 7 milljónir króna
sem rynni til húsnæðismála. Það
gefur 600 milljónir hvort árið um
sig. Alþýðuflokkurinn vill að 2—300
milljónir af því fjármagni renni til
sveitarfélaganna til að auðvelda
þeim að hrinda af stað fram-
kvæmdaáætlun um byggingu eða
kaup á 6000 kaupleiguíbúðum á
næstu 10 ámm.
ÁTTUNDA námskeiðið sem
Borgarspítalinn og Rauði kross
íslands efndu til fyrir sjúkra-
flutningamenn var haldið í Borg-
arspítalanum dagana 7. til 18.
apríl sl.
Fólkið velji sjálft
Sú lausn sem hér hefur verið lýst
í húsnæðismálum um kaupleigu-
íbúðir felur í sér róttækustu umbæt-
ur í húsnæðismálum allt frá því
lögin um verkamannabústaði vom
sett. Komist hún til framkvæmda
mun hún marka algjört tímamót í
húsnæðismálum íslendinga. Fólki
verður gert kleift að koma sér þaki
yfir höfuðið án vinnuþrældóms og
skuldabasls. Þetta er raunhæfur
valkostur í húsnæðismálum. Val-
kostur sem snýst um frelsi fólksins
til að velja sér eignarform eða leigu
ef það svo kýs.
Ihaldinu sem tíðrætt er um frelsi
einstaklingsins — vill ekki gefa fólki
val í húsnæðismálum. Það vill
miðstýra og þvinga fólk nauðugt
viljugt út í eignarstefnuna. Vanda
láglaunafólksins í borginni telur
Davíð nægja að leysa á heilu kjör-
tímabili með 5 leiguíbúðum á ári.
Davíð og
forgangsmálin
Davíð fannst allt í lagi að leggja
20 milljónir í hljómflutningstæki
vegna afmælis Reykjavíkurborgar.
En Davíð taldi borgina ekki aflögu-
færa um 1—2 milljónir til að auð-
velda unglingum og öldruðum að-
gang að félagsmiðstöðinni í Frosta-
skjóli.
Ölfusvatns- og ísbjarnarævintýr-
ið kostaði borgina svipaða Qárhæð
og hlutur borgarinnar í 600 kaup-
leiguíbúðum.
En það þjónaði betur pólitískum
vilja Davíðs að leysa frekar íhalds-
Námskeiðið sóttu að þessu sinni
11 nemendur frá ýmsum stöðum á
landinu. Námskeiðinu stýrði Krist-
inn Guðmundsson heila- og tauga-
skurðlæknir Borgarspítalans. Á
námskeiðinu leiðbeindu alls rúm-
„Alþýðuflokkurinn hef-
ur sett fram raunhæfan
valkost um byggingu
600 kaupleiguíbúða á
hverju ári næstu 10 ár-
in. Þar hefur fólk val
um leigu eða kaup
slíkra íbúða.“
íjölskyldur úr skuldasúpunni. Reyk-
víkingar voru látnir greiða 200
milljónir í ísbjamarævintýrið, þar
sem eigendumir stóðu eftir með
allt sitt á þurru.
Og Reykvíkingar vom látnir gefa
íhaldsfjölskyldu 60 milljónir (nú-
viröi 72 milljónir) fyrir jörðina á
Ölfusvatni sem er metin á 400 þús.
krónur.
En Davíð vantaði pólitískan vilja
til að styðja tillögu borgarfulltrúa
Alþýðuflokksins, Sigurðar E. Guð-
mundssonar, um 90 millj. króna
framlag til kaupleiguíbúða.
Afrekaskrá Davíðs á sl. kjörtíma-
bili í húsnæðismálum borgarbúa
staðfestir það að íhaldsmeirihlutan-
um er ekki treystandi til að leysa
húsnæðisvanda Reykvíkinga.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Aiþýðufiokkinn.
lega 30 kennarar og fyrirlesarar.
Námskeiðið stóð alla dagana frá
kl. 8 til kl. 17. Skipulag námskeiðs-
ins var með svipuðum hætti og í
fyrra.
Sjúkraflutninganámskeið 7.-18. aprík 1986. Kennarar i fremri röð, nemendur í aftari röð. Fremri röð
frá vinstri: Friðrik Þorsteinsson, Þórarinn Siggeirsson, Sigríður Hjaltadóttir, Kristinn Guðmundsson,
Lilja Harðardóttir, Ragnar Finnsson og Sigurður Sveinsson. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Baldursson
F. B.S. V-Hún, Jón Arngrímsson Hólmavik, Jón G. Knutsen Akureyri, Heiðar Jónsson Selfossi, Haraldur
G. Hlöðversson Vestmannaeyjum, Guðmundur Fylkisson ísafirði, Fnðgeir Hjaltalín Grundarfirði, Vig-
fús H. Jónsson Egilsstaðöðum, Sigmundur Þorgrímsson Húsavík og Ásgerður Þórisdóttir aðalskrifstofa
RKÍ.
Námskeið fyrir sjúkraflutningamenn
COMBI CAMP er lausnin að vel-
heppnuöu sumarleyfi, veiðiferö eða
heimsókn til fjarstaddra vina og
vandamanna.
COMBI CAMP er ein fljótlegasta
lausnin á tjöldun er býöst. Aöeins 15
COMBI CAMP hefur trógólf í svefn-
og íverurými er dregur úr jarökulda
og raka.
COMBICAMP
Benco hf.
Bolholti 4. Simi: 91 -21945.
Verðkr. 135.000
Staðgreitt
COMBI CAMP hefur góða lokun á
öllum samskeytum vagns og tjalds
er eykur enn á notagildi við erfiö
skilyrði.
COMBI CAMP er rúmur og þægilegur
fjölskylduvagn er hentar vel til feröa-
laga hvar sem er.
COMBI CAMP er á hagstæöu veröi
og kjörum. Hafið samband. Sjón er
sögu rikari.
COMBICAMP
Verð kr.
121.500
Staðgreitt