Morgunblaðið - 03.06.1986, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.06.1986, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986 19 sanna að fjöldi þeirra er fær um það og sú aðgreining sem tíðkast hefur, hefur beinlínis staðið fötluð- um fyrir þrifum. Hvemig eiga „eðli- legir" borgarar að fá tækifæri til að læra að umgangast þá samborg- ara sína sem eru fatlaðir? Þetta er afar mikilvægt því fordóma og vandamál í samskiptum fatlaðra og hinna svokölluðu „eðlilegu" borgara má oftast rekja til síðarnefnda hópsins. „raiilegir" borgarar þurfa tækifæri til að vinna bug á fordóm- um sínum gagnvart fötluðum. Skól- ar og aðrar menntastofnanir hafa þar mikilvægu hlutverki að gegna. Utanbókarlærdómur Blaðamaðurinn telur að þriðja „firran" í starfi kennara sé sú „að utanbókarlærdómur, staðreynda- nám og miðlun þekkingar eigi að víkja fyrir „umræðu" nemenda og kennara, sjálfsnámi og hópvinnu og þjálfún og undirbúningi fyrir „virka þátttöku" í lýðræðisþjóð- félagi". Við teljum að utanbókarlærdóm- ur, staðreyndanám og miðlun þekk- ingar fari fram í öllum skólum í meira eða minna mæli. Sömuleiðis, að ekki hafi verið hvatt til að þessir þættir víki fyrir öðrum, heldur að aukin áhersla verði lögð á bættar aðferðir við nám og kennslu. Utan- bókarlærdómur á vissulega rétt á sér í námi bama, en aðeins í réttu samhengi. Utanbókarlærdómur á staðreyndum án skilnings og sam- hengis á lítið sameiginlegt með Raunverulegri menntun. Það er orðið nokkuð langt síðan Þórbergur Þórðarson lagði orð í belg varðandi slíkt nám, en það sem hann sagði um staðreyndanámið Ingibjörg Ásgeirsdóttir sem slitið er úr eðlilegu samhengi er enn í fullu gildi: „Hvers vegna er verið að sólunda tíma okkar í svona lagað minnishrat? Hvem andskotann kemur þetta lífi okkar við? Og hvað situr eftir í manni, þegar vindar nýrra áhrifa hafa feykt þessu msli burt? Enginn nýr skilningur á heiminum. Ekki heldur aukin dómgreind. Því síður nein djúphyggja. Þar situr ekkert eftir annað en sama gróðurlausa auðnin, sem þyrsti í fjóvgandi skúrir, áður en þessi ítroðsluþyrrkingur byrj- aði.“ (Ofvitinn 1940, bls, 35.) Erfltt er að skilja af hverju blaða- maður kallar það „firru" að reynt sé að búa nemendur undir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfelagi. Finnst honum þjóðfélagið sem við Sigrún Guðmundsdóttir búum í svo einfalt að það sé ástæðu- laust að búa fólk undir virka þátt- töku í því? Eða finnst honum það „firra" að þegnarnir taki virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi? Samþættíng Fjórða „firran" í skólastarfinu er sú að „skil milli námsgreina eigi að vera sem minnst og „samþætta" beri námsgreinar eins og tök em á“. Skil milli námsgreina í gmnn- skóla og skil milli fræðigreina eins og við þekkjum þau í deildum há- skóla em ekki og hafa aldrei verið í föstum skorðum. Greinamar þró- ast vegna þess að viðfangsefnin breytast ört. Heimspekingar hafa um langan aldur glímt við að skipta þekkingunni í greinar eða svið, en það er langt frá því að menn hafi orðið á eitt sáttir um eðlilega skipt- ingu. Það er því ekki rétt að sníða námsgreinum í gmnnskóla ákveð- inn, þröngan stakk sem sé algild ogeilíf ígangsflík. En það er hægt að „samþætta" á margan hátt, líka þannig að skil milli hefðbundinna greina séu virt, en að þær tengist í ákveðnum við- fangsefnum. I öðm lagi er hægt að samþætta þannig að ákveðið þema tengi saman þekkingaratriði af mörgum sviðum. Að lokum má nefna námsþætti eins og t.d. kyn- fræðslu og fræðslu um eiturlyf sem falla ekki undir neina hefðbundna námsgrein og óhugsandi virðist að kenna án þess að samþætta t.d. heilsufræði, siðfræði, félagsfræði o.fl. Af þessu má ljóst vera að það er varla hægt að tala um sam- þættingu um eitthvert eitt fyrirbæri sem beri að forðast, án þess að skilgreina nánar hvað við er átt. Ótrúlegt er t.d. að Guðmundur Magnússon geti kennt sögu af ein- hveiju viti án þess að fara nokkum tíma inn á hefðbundin svið landa- fræði, félagsfræði, heimspeki eða annarra greina. Stafsetning Þótt blaðamaður telji ekki upp fleiri grillur í tölusettri röð, þá heldur hann áfram ásökunum sín- um á hendur kennurum. Hann álítur að léleg stafsetningarkunnátta stafi af því að víða sé hætt að kenna stafsetningu og málfræði og vill gjarnan vita í hvaða skólum svo sé ástatt. Við vitum ekki um neina slíka skóla og hjá Námsgagnastofn- un fengum við þær upplýsingar að allir grunnskólar í landinu panta árlega fjölbreytt efni til móðurmáls- kennslu. Auk þess hefur stofnunin á undanfömum árum sífellt verið að auka og bæta efni á þessu sviði. Ólíklegt er að skólamir óski eftir þessu í miklu magni ár eftir ár án þess að það sé notað. Lokaorð Lítið hefur verið um rannsóknir og kannanir á skólastarfí á íslandi, skrifar blaðamaðurinn. Við tökum undir þau orð og að þar þurfi úr- að bæta. Slíkar rannsóknir gætu komið í veg fýrir jafn órökstuddar fullyrðingar og kennarar hafa und- anfarið þurft að sitja undir. Við leggjum áherslu á að það em nemendur, kennarar og aðrir sem starfa að skólamálum auk áhuga- samra foreldra sem hafa hvað besta innsýn í störf grunnskólanna. Full ástæða er því til að vara fólk við að taka alvarlega fullyrðingar blaðamanns sem tekur munninn fullan um leið og hann lýsir yfir að sýn hans yfír skólastarf á íslandi sé takmörkuð. Guðmundur Magnússon hefði getað sparað sér þá yfirlýsingu. Þessi takmarkaða sýn hans á skóla- málum kemur skýrt fram í öllu sem hann skrifar um þau mál. Ingibjörg Ásgeirsdóttir er kennari og starfar hjá Námsgagnastofnun. Sigrún Guðmundsdóttir er kenn- ari og stundar framhaldsnám í kennslufræði og kennaramennt- un. Margra ára reynsla sannar gæði þakmálningunar frá Málningu hf. ÞOL er sérframleidd alkýðmálning, sem innlend reynsla hefur skipað í sérflokk vegna endingar og nýtni. ÞAKMÁLNING SEM ENDIST ÞOL er framleitt í fjölbreyttu litaúrvali. Handhægt litakort auðveldar valið á réttum lit. ÞOL tryggir þér fallegt útlit og góða endingu. málning'f
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.