Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
Hvað segja þau um úrslit sveitarstjórnarkosninganna:
„Ekki mikil
áhrif á lands-
málapólitíkina“
- segir Þorsteinn
Pálsson
„ÉG Á ekki von á því, að úrslitin
í þessum kosningum hafi mikil
áhrif á landsmálapólitíkina. Satt
að segja breyta þessi úrslit ekki
miklu þegar á heildina er litið,“
sagði Þorsteinn Pálsson, formað-
ur sjálfstæðisflokksins.
„Við Sjálfstæðismenn getum verið
nokkuð ánægðir með heildamiður-
stöður kosninganna. Mest er um
vert hinn mikli sigur okkur í
Reykjavík, sem er óumdeilanlega
mikið pólitískt afrek. Því er ekki
að leyna, að við urðum fyrir von-
brigðum með úrslit víða úti á lands-
byggðinni, þar sem _ við töpuðum
sums staðar fylgi. Á móti vegur
fylgisaukning á öðrum stöðum. Það
var ánægjulegt, að endurheimta
meirihluta í Grundarfírði og Ólafs-
firði, en þeir sigrar sýna mikinn
styrk flokksstarfsins á þessum stöð-
um. Við unnum einnig á í Þorláks-
höfn, Hveragerði, Mosfellssveit,
ísafirði, Patreksfirði, Dalvík og
Akureyri og víðar. Á heildina litið
getum við vel við unað.“
Þorsteinn kvaðst telja, að lands-
málin hefðu ekki haft mikil áhrif á
kosningaúrslitin og benti á hversu
misjöfn þau væru frá einum stað
til annars. Vera mætti þó, að hinar
ákveðnu aðgerðir til að kveða niður
verðbólgu drægju eitthvað úr fylgi
stjómarflokkanna, og væri það út
af fyrir sig eðlilegt. Hann benti á,
að stjómarandstaðan hefði ekki
unnið verulega á í kosningunum.
Alþýðubandalagið hefði tæplega
unnið um það fylgi sem Kvennalist-
inn tapaði, en í síðustu kosningum
hefði fylgi Kvennalistans verið jafn
mikið og tap Alþýðubandalagsins.
Velgengni Alþýðuflokksins yrði að
skoða í ljósi þess að Bandalag jafn-
aðarmanna hefði ekki boðið fram,
og heildarútkoman væri því ekkert
sérstök. Þó væri fylgisaukningin á
Suðumesjum verulegur ávinningur
fyrir flokkinn.
„Sé ekki kosn-
ingar í haust“
- segir Steingfrímur
Hermannsson
„ÉG SÉ ekki, að þessi úrslit hafi
nein áhrif á stjórnmálin á lands-
vísu,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins.
Hann kvað stjórnarflokkana
hafa gengið til samninga við
verkalýðshreyfingu og vinnu-
veitendur og niðurstöður kosn-
inganna breyttu engu um þá. Þð
væri skylda stjómarflokkanna
að standa við samningana. „Ég
sé þvi ekki kosningar i haust,“
sagði forsætisráðherra.
Steingrímur sagði, að þegar á
heildina væri litið væm kosningaúr-
slitin viðunandi fyrir Framsóknar-
flokkinn. í skoðanakönnunum hefði
flokkurinn verið í mikilli lægð sl.
tvö ár og honum spáð mjög litlu
fylgi í Reykjavík, en úrslitin hefðu
orðið önnur. „Það var mjög slæmt
að missa mann í Kópavogi og
Hafnarfirði," sagði Steingrímur, en
benti á að á nokkmm öðmm stöðum
hefði flokkurinn fengið ágæta kosn-
ingu eða haldið sínu og vegið þannig
upp á móti tapinu.
„Mesti sigur
í sveitarstjórn-
ar kosningum“
- segir Jón Baldvin
Hannibalsson
„ÞETTA er að mínu mati mesti
kosningasigur Alþýðuflokksins í
sveitarstjóraarkosningum á lýð-
veldistímanum," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins. Hann kvað árang-
urinn nú heldur betri en í kosn-
ingum 1978, ef tekið væri mið
af hlut Alþýðuflokksins í fram-
boðslistum með öðrum aðilum
víða um land og því, að sam-
kvæmt skoðanakönnunum hefði
um helmingur væntanlegra kjós-
enda Alþýðuflokksins í þing-
kosningum kosið Sjálfstæðis-
flokkinn í borgarstjórnarkosn-
ingunum.
„Þetta þýðir, ef við hugsum til
framhaldsins, að Alþýðuflokkurinn
getur gert sér vonir um mun meiri
fylgisaukningu í þingkosningum og
að munurinn á okkur og Alþýðu-
bandalaginu upp á 2% er ekki
marktækur," sagði Jón Baldvin.
Hann kvaðst sérstaklega ánægður
með hinn mikla árangur úti á landi.
Þar væri Alþýðuflokkurinn nú næst
stærsti flokkur þjóðarinnar, en
Framsókn minnsti. „Ég minni á að
eftir flokksþingið 1984 hef ég reynt
fyrir mitt leyti að leggja rækt við
landsbyggðina og hef varið mínum
tíma þar einna mest. Þar með er ég
ekki að þakka mér árangurinn,
heldur aðeins að láta í ljós von um
að þetta hafi hjálpað til við uppsker-
una.“
„Ef við stöldrum við úrslitin í
Reykjavík finnst mér að fjölmiðlar
hafi rangtúlkað eða misskilið ár-
angurinn þar. Hann er vissulega
takmarkaður og minni en víða úti
á landi. Engu að síður þá bættum
við stöðuna hér verulega. Við jukum
fylgið um rúmlega 1.300 atkvæði,
sem er um 20% aukning. Við styrkt-
um stöðuna þannig að frá því að
vera minnsti flokkurinn í borgar-
stjórn erum við nú þriðji stærsti.
Sérstaklega tel ég að við höfum náð
miklum árangri í kosningabarátt-
unni hér í Reykjavík, því í upphafi
voru kosningaspámar mjög hrak-
legar.
Ég styðst bæði við talnaleg rök
og sögulega reynslu þegar ég segi
að á grundvelli þessara kosningaúr-
slita tel ég líkur Alþýðuflokksins á
meiri háttar kosningasigri í þing-
kosningum mjög góðar," sagði hann
að lokum.
„Vor í lofti
fyrir
vinstri menn
- segir Svavar
Gestsson
„VIÐ bættum við okkur um 4.000
atkvæðum yfir landið, förum úr
um 20.000 atkvæðum í um 24.000
og erum afgerandi næst stærsti
flokkur landsins og stærsti and-
stöðuflokkur íhaldsins. Fram-
sóknarflokkurinn er orðinn sá
minnsti af þessum gömlu fjóru
flokkum og fær þannig alveg
nýjan sess í sveitarstjórnum hér
á Iandi,“ sagði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins.
Svavar kvað það mjög athyglis-
vert í sambandi við útkomu Al-
þýðubandalagsins, að í sveitarfélög-
um í Reykjavík og nágrenni, s.s.
Kópavogi, Seltjamamesi og Mos-
fellssveit, væri flokkurinn með milli
21 og 22% fylgi, en Alþýðuflokkur-
inn með milli 11 og 12%. Þetta
sýndi kannski betur en annað hve
breytingamar væm mismunandi
eftir svæðum, því annars staðar á
suðvesturlandi væm Alþýðuflokks-
menn mjög sterkir, en útkoma
Alþýðubandalagsins ekki nógu góð
nema í Grindavík og Sandgerði.
Svavar benti á, að á Suðurlandi
bætti flokkurinn vemlega fylgi sitt
í öllum byggðarlögum, þar sem
boðið var fram. Samtals hefði flokk-
urinn aukið fylgi sitt í 18 sveitarfé-
lögum og sums staðar mjög glæsi-
lega, s.s. á Akranesi, Bolungarvík,
Hvammstanga og Vopnafirði. „Við
emm sæmilega hress eftir að hafa
virt þessa útkomu fyrir okkur,"
sagði hann.
„Ég tel að það sé vor í lofti fyrir
vinstrimenn í landinu eftir þessi
kosningaúrslit,“ sagði Svavar enn-
fremur. „Úrslitin fela í sér fyrirheit
um tímamót í íslenskum stjóm-
málum. Hægri sveiflan, sem var í
hámarki 82 og 83 er gengin yfir.
Þess vegna tel ég eðlilegt og sjálf-
sagt, að í framhaldi þessara úrslita
leggi félagshyggjuöfl í landinu, sem
einkum er að finna í Alþýðubanda-
laginu, Alþýðuflokknum og
Kvennalistanum, áherslu á að vinna
meirihluta í næstu alþingiskosning-
um. Ég tel það ekki eins fjarlægan
möguleika og áður eftir þessi kosn-
ingaúrslit að vinna slíkan meiri-
hluta."
Konum fjölgar í
s veitar slj órnum
í bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningunum á laugardaginn
var kosið um 416 fulltrúa.
Samsvarandi tala í kosningun-
um 1982 var 415. Að þessu sinni
náðu 109 konur kjöri eða 26,2%
kjörinna fulltrúa. 307 karlar
voru kjörnir sem er 73,8% full-
trúa.
Hlutfall kjörinna karla og
kvenna innan flokka er þannig
að á A-lista eru karlar 76,2% en
konur 23,8%, á B-lista eru karlar
75,7% en konur 24,3% á D-lista
eru karlar 75,8% en konur 24,2%,
á G-lista eru karlar 63% en konur
26,3%, á V-lista eru eingöngu
konur og á öðrum listum eru
karlar 79,6% en konur 20,4%.
í kosningunum 1982 náðu 72
konur kjöri í kaupstöðum og
kauptúnahreppum eða 17,34%
kjörinna fulltrúa og hefur þeim
því fjölgað um tæp 9%.
______Képavogur;_______
Richard Björgvinsson,
D-lista:
„Landsmálin
höfðu áhrif“
„ÞAÐ ER auðséð að landsmálin
hafa haft áhrif á gengi fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins
því almennt tap er hjá flokknum
á suðvesturlandi, allt frá Akra-
nesi til Vestmannaeyja, með ein-
staka undantekningum," sagði
Richard Björgvinsson, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi. Flokkurinn fékk
fjóra menn kjöraa en hafði fimm
á síðasta kjörtímabili.
„Hér í Kópavogi virðist það hafa
gerst að hluti af okkar flokksmönn-
um hafi ekki sætt sig við framboðs-
listann þó hann hafi verið valinn í
Qölmennu prófkjöri og mótmælt
með því að sitja heima. Léleg kosn-
ingaþátttaka virðist benda til þess.
Þetta virðist vera hluti af skýring-
unni en einnig virðist það hafa haft
einhver áhrif að áróður andstæðing-
anna beindist mjög gegn mér per-
sónulega.
Ég tel að Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag hljóti að halda sinni
samvinnu áfram í nýjum meirihluta,
en Framsóknarflokkurinn detti út
úr þeirri mynd. Hann yrði áhrifa-
laust aukahjól undir vagninum sem
þeir þurfa ekki á að halda. Ég tel
ekki líkur á öðru en að þeir haldi
samstarfinu áfram, enda boðuðu
þeir það fyrir kosningar," sagði
Richard.
Heimir Pálsson,
‘ G-lista:
„Meirihlutinn
styrkir stöðuna“
„VIÐ eram afskaplega ánægð
með okkar hlut og þá einnig með
hlut meirihlutans í bæjarstjóm.
Það gerist ekki viða að meirihluti
styrki stöðu sína eins og hér
gerðist," sagði Heimir Pálsson
efsti maður á lista Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi. Flokkurinn
fékk þijá menn kjöraa, bætti við
sig einum.
„Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur missa einn mann
hvor flokkur og er augljóst að þeir
tapa á þátttöku í ríkisstjóminni sem
menn fá ekki allt of gott orð af að
sitja í. Við höfum oft séð að þegar
Sjálfstæðisflokkurinn á aðild að
óvinsælli ríkisstjóm færist fylgi til
Alþýðuflokksins. Það virðist hafa
gerst hér. Við gætum aftur á móti
hafa fengið fylgi frá Framsóknar-
flokknum.
Þessi úrslit styrkja þann meiri-
hluta sem hér er við völd og á ég
von á því að hann haldi áfram,
enda lögðum við málið þannig upp
fyrir kosningamar. Enn hefur þó
ekkert verið rætt um hvort Fram-
sóknarflokkurinn verður með eða
ekki, samstarf A-flokkanna einna
er mögulegt," sagði Heimir.
HafnarfjörAur:
Guðmundur Arni
Stefánsson, A-lista:
„Úrslitin krafa
um breytingar“
„VIÐ áttum von á umtalsverðri
aukningu, en úrslitin komu samt
sem áður á óvart. Ýmsar ástæður
eru vafalaust fyrir þessum sigri.
Við vorum með sterkan fram-
boðslista og mál sem höfðuðu til
kjósenda," sagði Guðmundur
Arai Stefánsson, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði. Alþýðuflokkurinn fékk
fimm fulltrúa i bæjarstjóraina,
en hafði aðeins tvo áður.
„Það kemur vafalaust einnig til
að meirihlutinn er orðinn þreyttur.
Kjósendur gera kröfu um breyting-
ar og hafa litið til Alþýðuflokksins
sem var eini framboðsaðilinn sem
getur knúið fram breytingar á
stjóm bæjarins.
Við erum tiibúnir til að stjóma
bænum og ég tel líklegast að við
óskum eftir viðræðum við Alþýðu-
bandalagið um myndun nýs meiri-
hluta, enda er það eðlileg framvinda
eftir þessi úrslit. Það þarf að fara
langt aftur í tímann til að finna
sambærilega útkomu hjá okkur og
kominn tími til að Alþýðuflokkurinn
láti til sín taka í Hafnarfírði á nýjan
leik. Kjósendur em þessu greinilega
sammála. Við munum vinna skipu-
lega að þeim fjölmörgu málum sem
við emm með á oddinum. Það em
þó engar galdraofsóknir í aðsigi og
vonumst við eftir góðri samvinnu
allrar bæjarstjómarinnar.
Ég þakka kjósendum það traust
sem þeir hafa sýnt okkur, við von-
umst til að reynast þess trausts
verðir," sagði Guðmundur Ámi.
Einar Þ. Mathiesen,
F-lista:
„Fólk vill
velja bæjarfull-
trúana“
„ÉG TÚLKA úrslitin þannig að
fólkið vilji fá að velja bæjarfull-
trúana sjálft. Þeir listar sem eru
fylgjandi prófkjöri, eins og við,
eða hafa notað það, eins og
Alþýðuflokkurinn, eru sigurveg-
arar kosninganna," sagði Einar
Þ. Mathiesen, efsti maður á lista
Frjáls framboðs í Hafnarfirði
sem bauð fram í fyrsta skipti og
fékk einn mann kosinn í bæjar-
stjórn.
„Þeir flokkar sem verið hafa að
þrengja val frambjóðenda inn í
smærri klíkur, eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn, Félag óháðra borgara
og Framsóknarflokkurinn, guldu
hins vegar afhroð í kosningunum.
Það er líka athyglisvert að sjá hvað
listi Sjálfstæðisflokksins fær lítið
fylgi, kjósendur hafna þessum lista.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins
og Félags óháðra borgara er fallinn.
Alþýðuflokkurinn er orðinn stærsta
bæjarmálaaflið og má því búast við
að hann hafi forystu um myndun
nýs meirihluta. Ég sagði það fyrir
kosningar að menn yrðu að axla
þá ábyrgð sem fylgir því að sitja í
bæjarstjóm, meðal annars að vera
með opinn huga gagnvart samstarfi
við alla. Ég stend við þetta, en tel
þó líklegast að Alþýðubandalag og
Alþýðuflokkur ræði saman um nýj-
an meirihluta, enda vora þessir
flokkar saman í meirihluta fyrir
nokkram áram.
Ég tel að við hjá Fijálsu framboði
höfum náð góðum árangri, sérstak-
lega ef litið er til þess hvað hart
var höggvið að okkur. Það var
samstilltur hópur sem vann að
þessu framboði og er ég afar þakk-
látur fyrir stuðninginn," sagði Ein-
ar.
Arni Grétar
Finnsson, D-lista:
„Mjögsvo
óvæntúrslit“
„ÞETTA eru mjög svo óvænt
úrslit, en ég hef ekki skýringam-
ar á reiðum höndum. Alþýðu-
flokkurinn vann sigur og hlýtur
því að hafa forystu um myndun
nýs meirihluta. Hvað síðan tekur
við í bæjarfélaginu get ég ekki
fullyrt um,“ sagði Arai Grétar
Finnsson efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði. Sjálfstæðisflokkurinn fékk
4 menn kjöraa i bæjarstjórn,
tapaði einum.
„Félag óháðra borgara missti
báða bæjarfulltrúa sína og fellur
þar með út úr bæjarstjóminni. Þeir
hafa átt fulltrúa í bæjarstjóm
Hafnarfjarðar í 20 ár og verið í
meirihluta allan þann tíma og unnið
mjög gott verk. Sjálfstæðismenn
hafa lengi !átt gott samstarf við
fulltrúa óháðra borgara og hafa
þeir átt sinn þátt í þeim árangri sem
hér hefur náðst. Mitt mat er það
að bænum hafi verið mjög vel
stjómað og staða hans góð við
upphaf nýs kjörtímabils.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði ein-
um bæjarfulltrúa, en heldur að
mestu atkvæðamagni sínu þrátt
fyrir klofningsframboð eins af fyrr-
verandi bæjarfulltrúum flokksins
sem höfðaði fyrst og fremst til kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins. Alþýðu-
flokkurinn vinnur á víða í Reykja-
neskjördæmi, að hluta til á kostnað
Sjálfstæðisflokksins. Með tilliti til
klofningsframboðsins hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn haldið sínum hlut
nokkuð vel í Hafnarfirði, enda var
vel unnið fyrir kosningamar,“ sagði
Ámi Grétar.
________Garðabaar;_________
Agnar Friðriksson,
D-Iista:
„Meirihlutinn
stendur vel“
„ÁSTÆÐAN er vafalaust sú að
við unnum mjög óvænt mann í
síðustu kosningum og með litlum
mun. Við töpuðum honum aftur
núna með litlum mun. Þegar um
er að ræða að hafa fimm fulltrúa
af sjö er ekki nóg að hafa góðan