Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
ftrjgtmdiifetfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. Ilausasölu 40 kr. eintakið.
Urslit
kosninganna
Sjálfstæðismenn héldu meiri-
hluta sínum í Reykjavík og
juku fylgi sitt frá kosningunum
1982. Þetta er glæsilegur árangur,
ekki síst þegar litið er til þess, að
fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst
saman í þéttbýlinu á suðvestur-
homi landsins, frá Akranesi til
Vestmannaeyja, ef Mosfellssveit er
undanskilin. Sigur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík er jafnframt
mikill persónulegur sigur fyrir
Davíð Oddsson, borgarstjóra. Hlut-
fallslegt fylgi sjálfstæðismanna,
52,7%, er sambærilegt við það, sem
best hefur orðið hjá flokknum á
síðustu áratugum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er bakhjarl flokksins um
land allt. Fylgisaukningin í höfuð-
borginni nú leiðir til þess, að sjálf-
stæðismenn gera minna en ella úr
tapi sínu í öðrum sveitarfélögum,
einkum á suðvesturhomi landsins.
Þar hefur orðið nokkur sveifla frá
Sjálfstæðisflokknum, hann tapar
meirihluta í Njarðvík og Vest-
mannaeyjum, sem hann vann í
kosningunum 1982. Á hinn bóginn
ná sjálfstæðismenn meirihluta í
Ólafsfirði og Grundarfírði, þeir
styrkja stöðu sína verulega á
ísafírði og í Dalvík og halda sínu
og meira en það á Akureyri.
Fylgissveiflan er mest til Al-
þýðuflokksins, sem bætir við sig
4,7% atkvæða sé litið á landið í
heild miðað við sveitarstjómar-
kosningamar 1982. Árangur
flokksins er hvað glæsilegastur í
Keflavík, þar sem hann nær hrein-
um meirihluta, og í Hafnarfírði, þar
sem hann verður á ný stærsti flokk-
urinn. Er unnt að bera þessa fylgis-
aukningu Alþýðuflokksins nú sam-
an við það, sem gerðist í kosningun-
um á árinu 1978, en þá dalaði Sjálf-
stæðisflokkurinn einnig töluvert
með þeim afleiðingum hér í Reykja-
vík, að hann missti meirihlutann. Á
árinu 1978 var Sjálfstæðisflokkur-
inn í ríkisstjóm og stóð að óvinsæl-
um aðgerðum til að draga úr verð-
bólgu. Ekki er ólíklegt, að óánægja
vegna efnahags- og atvinnuástands
eigi þátt í minnkandi fylgi flokksins
nú eins og þá. Víða er urgur í fólki
vegna afkomu og launa; undan
þeirri staðreynd verður ekki vikist.
Hitt er auðvitað ljóst, að líta verður
til aðstæðna á hveijum stað til að
fá rétta mynd af því, sem þar
gerðist.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins
minnkaði í heild um 2,5% frá sveit-
arstjómarkosningunum 1982. Ef
aðeins er litið á fylgi flokksins í
kaupstöðunum, virðist það í meðal-
lagi, sé tekið mið af sveitarstjómar-
kosningum síðustu 20 ár eða síðan
1966. Ifylgi sjálfstæðismanna hélst
tiltölulega stöðugt 1966 og 1970,
mikil fylgisaukning varð 1974.
fylgið minnkaði 1978, jókst 1982
og er nú svipað og 1966 og 1970.
Framsóknarmenn töpuðu 2,9% á
landsvísu og hlutu víða slæma
kosningu. Minnir staða Framsókn-
arflokksins nú orðið á þá erfíðleika,
sem Alþýðuflokkurinn var kominn
í eftir 15 ára stjómarsetu 1971.
Framsóknarmenn hafa setið í ríkis-
stjóm síðan 1971. Flokkurinn er
ekki síst orðinn veikburða á þétt-
býlasta svæði landsins. Þótt fram-
sóknarmenn í Reykjavík huggi sig
við það, að þeir hafí sótt í sig
veðrið og unnið sigur miðað við
niðurstöður skoðanakannana, töp-
uðu þeir 2,5% atkvæða í höfuð-
borginni. Framsóknarflokkurinn er
nú minnstur flokka í Reykjavík
fyrir utan Flokk mannsins, sem
fannst það sigur að komast í gegn-
um „l%o-múrinn“. Meira að segja
á Akureyri lenti Framsóknarflokk-
urinn í þriðja sæti á eftir Sjálfstæð-
isflokki og Alþýðuflokki og fram-
sóknarmenn töpuðu meirihluta sín-
um á Dalvík.
Alþýðubandalagið gerði kröfu til
þess í kosningabaráttunni hér í
Reykjavík, að litið yrði á það sem
helsta keppinaut Sjálfstæðisflokks-
ins. Var flokkurinn í forystu vinstri-
sinna í borginni. Undirtektir reyk-
vískra kjósenda voru ekki í sam-
ræmi við gorgeir Þjóðviljans. Al-
þýðubandalagsmenn juku fylgi sitt
um 1,3% í höfuðborginni, en
Kvennalistinn tapaði þar 2,8%. Á
landsvísu jók Alþýðubandalagið
fylgi sitt um 1,8%, en Kvennalistinn
tapaði 1,9% um land allt. Telja
verður, að Alþýðubandalaginu hafí
mistekist ætlunarverk sitt í þessum
kosningum. Því tókst ekki að laða
til sín það fylgi, sem fór frá stjóm-
arflokkunum. Flokkurinn sýnist
ekki höfða til þess fólk, sem skiptir
um flokka á milli kosninga, ef
þannig má að orði komast. Er lík-
legt, að eftirleikur kosninganna
verði hvað erfíðastur innan Al-
þýðubandalagsins.
Á heildina Iitið getur Alþýðu-
flokkurinn best unað úrslitum
kosninganna. Hann er að því er
virðist helsta aðdráttarafl þeirra
kjósenda, sem hverfa frá stuðningi
við Sjálfstæðisflokkinn. Enginn
forystumaður vinstri flokkanna
hefíir rætt jafn oft og mikið um
vilja til samstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn í ríkisstjóm og Jón Baldvin
Hannibalsson, hvað sem hann gerir
svo, þegar á hólminn er komið.
Næstu kosningar verða einmitt um
það, hvetjir skuli stjórna landinu.
Úrslit sveitarstjómarkosninganna
gefa ekkert einhiítt svar um það,
þótt allt bendi til þess, að skynsam-
legt sé fyrir framsóknarmenn að
líta í eigin barm og endurskipu-
leggja starf og stefnu utan ríkis-
stjómar.
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra setti Listahátíð í Reykjavík 1986.
Fjölmenni við opn-
un Listahátíðar
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 1986
var sett á Kjarvalsstöðum af
Sverri Hermannssyni mennta-
málaráðherra sl. laugardag, að
viðstöddu fjölmenni. Martin
Berkofsky lék einleik á píanó,
þijú íslensk þjóðlög eftir Hafliða
Hallgrímsson. Lögin voru Aust-
ankaldinn á oss blés, Ljósið
kemur langt og mjótt og Gríms-
eyjargæla.
Því næst voru afhent verðlaun í
smásagnasamkeppni Listahátíðar,
en alls bámst 370 smásögur í
samkeppninni. Fyrstu verðlaun
hlaut Sveinbjöm I. Baldvinsson
fyrir sögu sína Icemaster. Hann
hlaut peningaverðlaun að upphæð
250 þúsund. Önnur verðlaun 100
þúsund krónur hlaut Guðmundur
Andri Thorsson fyrir sögu sína
Afmæli og 3. verðlaun 50 þúsund
krónur hlaut Úlfur Hjörvar fyrir
sögu sína Sunnudagur. Það var
breski rithöfundurinn Doris Lessing
sem afhenti verðlaunin.
Auk þessara verðlaunasagna
valdi dómnefndin 11 aðrar sögur úr
þeim sem bárust og hafa þær ásamt
verðlaunasögunum verið gefnar út
á bók undir heitinu Smásögur Lista-
hátíðar 1986. Sögumar eru Aðal-
björg eftir Ólaf Hauk Símonarson,
Breski rithöfunurinn Doris Lessing ræðir við Nóbelsskáldið Halldór Laxness og frú
hans, Auði. Birgir Sigurðsson rithöfundur fylgist með.
Forseti íslands, f
Doris Lessing afhendir Sveinbimi I. Baldvinssyni 1. verðlaun í smásagnasamkeppni
Listahátíðar.
Martin Berkofsl
Listahátíðar.