Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986
37
IK
Anna eftir Gunnar Þorstein Hall-
dórsson, Aspadista og erfðagóss
eftir Ingunni Steinsdóttur, David
Bowie heimsækir Elliheimilið Grund
eftir Helga Má Barðason, Elskend-
umir í sveitinnni eftir Svein Einars-
son, Endurkoma eftir Svövu
Jakobsdóttur, Fagrafold eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur, Himnabrúður
eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur, Isis
eftir Vilhelm Emilsson, Slossmæjer
eftir Viktor Arnar Ingólfsson og
Örugglega langur tími eftir Ómar
Þ. Halldórsson.
Næsti liður opnunarhátíðar
Listahátíðar var svo opnun sýning-
arinnar „Exposition inattendue“ á
verkum Pablo Picasso að viðstaddri
ekkju hans Jacqueline Picasso.
Opnunarathöfn Listahátíðar lauk
með opnun sýningar „Reykjavík í
myndlist".
A laugardagskvöld var opnaður
á Hótel Borg listahátíðarklúbbur.
Klúbburinn er opinn gestum Lista-
hátíðar og er hann opinn hvert
kvöld sem hátíðin stendur til kl. 3
að nóttu. Meðlimakortið kostar
1.200 krónur, og gildir út hátíðina.
A sunnudagkl. 15 varyfirlitssýn-
ing á verkum Karls Kvaran opnuð
í Lisatasafni íslands. Klukkan 16
var dagskrá í Iðnó um Doris Lessing
rithöfund, og flutti hún þar fyrir-
lestur.
Flamenco-flokkurinn hélt sýn-
ingu á Broadway á sunnudags-
kvöld, og síðari sýning flokksins var
svo í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. í
kvöld verða tónleikar í Norræna-
húsinu þar sem flutt verður tónlist
eftir Jón Nordal.
rú Vigdís Finnbogadóttir, gekk með frú Picasso um sýninguna.
cy lék þijú islensk þjóðlög eftir Hafliða Hallgrímsson við setningu
Ekkja Pablo Picasso, Jacqueline Picasso, var viðstödd opnun sýningarinnar á verkum Picasso. Lítill
drengur færði henni blóm og Hrafn Gunnlaugsson, formaður framkvæmdastjómar Listahátíðar, fylgist
með.
Morgunblaðið/RAX
Það er ekki furða þótt Jóna Finnsdóttir brosi sinu breiðasta til eiginmannsins, Sveinbjöms I. Baldvins-
sonar, enda var hann nýbúinn að taka við fyrstu verðlaunum í smásagnasamkeppni Listahátíðar þegar
þessi mynd var tekin.
Sveinbjörn I. Baldvinsson fékk 1. verðlaun
í smásagpnasamkeppni Listahátíðar:
„Kom mér gjörsam-
lega í opna skjöldu“
„ÞESSI úrslit koma mér gjör-
samlega i opna skjöldu. Ég átti
varla einu sinni von á þvi að vera
einn af þessum 14 sem njóta þess
heiðurs að fá sögu eftir sig í
þessa bók, hvað þá að ég hlyti
fyrstu verðlaun," sagði Svein-
björn I. Baldvinsson i samtali við
Morgunblaðið eftir að hann hafði
tekið við fyrstu verðlaunum úr
hendi breska rithöfundarins
Doris Lessing á Kjarvalsstöðum
sl. laugardag.
Sveinbjörn sagði að sér hefði þótt
það út af fyrir sig stórkostlegt,
þegar hann frétti af því að hans
saga, Icemaster, yrði ein þeirra 14
sagna sem Listahátíð gaf út í bók,
en þessar 14 sögur voru valdar úr
hópi þeirra 370 smásagna sem bár-
ust í keppnina.
Sveinbjörn var tregur til þess að
upplýsa blaðamann um efni sögu
sinnar, en sagði þó: „Þetta er saga
um mann sem ekki vitjar fortíðar
sinnar, heldur vitjar fortíðin hans.“
Verðlaunaupphæðin var 250 þús-
und krónur, en með verðbótum fer
verðlaunaféð yfir 300 þúsund krón-
ur. Sveinbjörn var spurður á hvaða
hátt hann hygðist veija verðlauna-
fénu: „Það verður mjög auðvelt að
koma þessum peningum í lóg,“
sagði Sveinbjöm, „því að ég er að
fara til náms í Los Angeles, og þar
verð ég ásamt konu minni og böm-
um, þannig að þessir peningar eiga
örugglega eftir að koma sér vel
fyrir okkur."