Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
Hvað segja þau um úrslit sveitarstjórnarkosninganna:
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Nýr meirihluti á Ólafsfirði.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Ólafsfirði, sem náðu meirihlutanum af vinstri mönnum; frá
vinstri: Birna Friðgeirsdóttir, Sigurður Björnsson, Óskar Þór Sigurbjörnsson og Þorsteinn Ás-
geirsson.
kosningar en líklega hefðu óvinsæl-
ar aðgerðir ríkisstjómarinnar átt
sinn þátt í að hafa áhrif á kjósendur
að þessu sinni. Hann sagðist samt
vilja forðast að reyna að gefa ein-
hveijar skýringar á þessari útkomu
D-listans, það hefði tapast einn
fulltrúi frá því sem áður var og
skýringar á því gætu verið margvís-
legar.
Aðspurður um hvort meirihluta-
viðræður einhverra flokka væru
þegar hafnar sagði hann að ekki
hefði verið rætt við Sjálfstæðis-
menn um þau mál að svo stöddu
en kvað það bæði ábyrgt og eðlilegt
að leitað væri til þeirra um meiri-
hlutasamstarf.
Palvík:
Trausti Þorsteinsson,
D-lista:
„Attum ekki
von á svo góðum
árangri“
„VIÐ hljótum að vera ánægðir
með það traust sem okkur hefur
verið sýnt,“ sagði 'Trausti Þor-
steinsson, efsti maður á D-listan-
um á Dalvík. Sjálfstæðisflokkur-
inn þar fékk þijá menn kjörna,
en aðeins einn í síðustu kosning-
um.
„Kjósendum hlýtur að hafa fallið
þau mál, sem við ræddum um, í
geð. Mér finnst kosningabaráttan
hafa verið lengri nú en hún hefur
oft verið áður. Fjölmiðlar komu fyrr
inn í baráttuna og kynningarstarf
var allt vel af hendi unnið. Það
hefur eflaust haft sín áhrif á nýaf-
staðnar kosningar."
Meirihlutinn á Dalvík féll í kosn-
ingunum og eru þeir möguleikar
nú fyrir hendi þar að D-listinn
myndi meirihluta annaðhvort við
B- eða G-lista, eða þá að B- og
G-listi myndi meirihluta sín á milli.
Trausti sagðist halda að yngri kjós-
endur hefðu stutt D-listann vel og
dyggilega að þessu sinni. „Við
vorum líka með ungt fólk á listan-
um. Við áttum alls ekki von á
þessum góða árangri nú. Við reynd-
ar bjuggumst við því að meirihlut-
inn myndi faila, en ekki að við
fengjum í staðinn allt það fylgi sem
raun varð á.“
Guðlaug Björnsdóttir,
B-lista:
„Algjörlega
sigruð“
„VIÐ ERUM svona frekar von-
svikin með kosningaúrslitin, en
miðað við þann áróður, sem
rekinn var fyrir kosningar af
mótsframbjóðendum um að mjög
óæskilegt væri að hreinn meiri-
hluti eins flokks réði rikjum, þá
hljótum við að vera ánægð á
meðan vilji fóiksins á staðnum
nær fram að ganga,“ sagði
Guðlaug Björnsdóttir, efsti mað-
ur á B-Iistanum á Dalvík.
„Ég reikna alls ekki með því að
farið verði fram á við okkur að
mynda meirihlutastjóm með D-list-
anum þar sem við komum út úr
kosningunum sem algjörlega sigr-
uð. Við sjáum ekki fram á annað
en að Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðubandalagið fari saman í starfið.
Óháðir á Dalvík, sem eru flestir
alþýðuflokksmenn og buðu fram
með Sjálfstæðisflokki á Dalvík, eru
á þeirri skoðun að D-listinn hafi
verið með óháð framboð vegna þess
að bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins úr
bæjarstjóminni skipaði fjórða sæti
D-listans fyrir kosningamar og vilja
óháðir halda því á loft að fylgi
D-listans hafi notið góðs af bæjar-
fulltrúa þeirra manna þar sem víð-
ast hvar annars staðar hefði Al-
þýðuflokkurinn bætt mikið fylgi
sitt,“ sagði Guðlaug.
Guðlaug sagði að mannlíf á
Dalvík hefði verið gott og atvinna
hefði blómstrað á sl. kjörtímabili
svo það væri ekki annað að sjá en
fólki hafi verið talin trú um fyrir
þessar kosningar að meirihluta-
stjóm eins flokks í bæjarstjóm
væri nokkuð sem ekki ætti að eiga
sér stað. „Við höfum hreinlega
ekkert á samviskunni. Það er okkar
álit að fólkið vilji hafa þetta svona
þó svo að innansveitarmál, sem ég
vil ekki fara að riija hér upp, bland-
ist inn í dæmið," sagði Guðlaug.
Siglufjörður:
Kristján L. Möller,
A-lista:
Höfum ekki haft
þrjá fulltrúa
síðan 1950
Á SIGLUFIRÐI bætti Alþýðu-
flokkurinn við sig tveimur mönn-
um í bæjarstjóraarkosningunum
og hefur þvi þijá menn næsta
kjörtímabil. Kristján L. Möller
skipaði efsta sæti A-listans og
sagði hann að allt frá því að
Alþýðuflokkurinn hélt opið próf-
kjör, þar sem mönnum var gefinn
kostur á að kjósa fjóra efstu
menn listans, hefði kosningabar-
áttan einkennst af bjartsýni og
raunin hefði orðið sú að hún var
ekki ástæðulaus.
Kristján sagði að honum væri
efst í huga þakklæti til allra þeirra
fjölmörgu sem studdu listann í
kosningunum og gerðu það að
veruleika að þrír menn komust í
bæjarstjómina, en Alþýðuflokkur-
inn hefur ekki haft svo marga í
bæjarstjóm síðan árið 1950.
„Ég tel að aðferðir okkar í kosn-
ingabaráttunni hafi skilað ótvíræð-
um árangri," sagði Kristján. „Við
efndum til skoðanakönnunar þar
sem við báðum íbúa bæjarins að
segja álit sitt á því hvað væri brýn-
ast í bæjarmálunum og síðan mót-
uðum við okkar baráttumál í ljósi
þessa. Einnig virðist skýringa vera
að finna einfaldlega í því hversu
mikinn meðbyr flokkurinn hafði um
allt land. Einnig höfðum við mjög
skeleggan fulltrúa í bæjarstjóm síð-
asta kjörtímabil og held ég að
bæjarbúar hafi tekið eftir störfum
hans og metið að verðleikum."
Kristján sagði að síðustu að við-
ræður flokkanna um nieirihluta-
samstarf væru ekki hafnar og vildi
hann ekki segja annað en það að
Alþýðuflokkurinn kappkostaði að
komast í meirihlutasamstarf til að
vinna að framgangi þeirra mála sem
þeir settu á oddinn í kosningabar-
áttunni.
Ólafsf|örður:
Birna Friðgeirs-
dóttir, D-lista:
„Anægö meö
meirihlutann
eftir 12 ára
vinstristjórn“
„VIÐ ERUM í sjöunda himni yfir
þvi að vinna aftur meirihlutann
eftir tólf ára vinstristjóra,“ sagði
Birna Friðgeirsdóttir, efsti mað-
ur á D-listanum á Ólafsfirði.
„Sjálfstæðisflokkurinn var lengi
vel áður með meirihluta í bæjar-
stjóminni svo þetta var kærkomið
tækifæri aftur. Við stóðum nú vel
að vígi málefnalega séð. Það hefur
verið samdráttur í framkvæmdum
á vegum bæjarins og fólk orðið
vantrúað á breytingar. Okkar fólk
vann vel að kosningabaráttunni og
vafalaust hefur það ráðið úrslitum
að einhverju Ieyti. í fjögur efstu
sætin komu tveir nýir menn inn á
listann, en við hin tvö höfum verið
í nokkum tíma," sagði Bima.
„Við lögðum aðaláherslu í kosn-
ingabaráttunni á atvinnu- og hafn-
armál og einnig samgöngumál með
höfuðáherslu á að áætlunum um
göng í gegnum Ólafsíjarðarmúlann
verði ekki breytt. Þá leggjum við
mikla áherslu á uppbyggingu
íþrótta- og æskulýðsmála sem
okkur finnst hafa verið deyfð yfir
á undanfömum árurn."
Fyrir tveimur árum var nýr
bæjarstjóri kjörinn á Ólafsfírði og
stóðu allir fulltrúar bæjarstjómar
að því kjöri. Bima sagði að ræða
þyrfti það mál innan nýrrar bæjar-
stjómar og gæti hún því ekki tjáð
sig um það nú.
Ármann Þórðarson,
H-lista:
„Vissum að mjótt
yrði á munumim“
„VIÐ misstum meirihlutann í
hendur Sjálfstæðismanna nú
eftir að hafa haldið honum sl.
12 ár,“ sagði Armann Þórðarson,
efsti maður á H-listanum í Ólafs-
firði, sem er listi vinstrimanna.
„Sjálfstæðisflokkurinn lagði
mikla áherslu í kosningabaráttunni
á að breyta til og þá fá þeir sam-
kvæmt því að spreyta sig næst. Það
munaði að vísu ekki miklu á at-
kvæðunum — aðeins sjö atkvæðum.
Við áttum alls ekki von á því að
tapa en við vissum að það yrði
mjótt á mununum þegar upp yrði
staðið. Þeir sem tapa verða auðvitað
fyrir vonbrigðum. Sjálfstæðismenn
lögðu mikla áherslu á að ná meiri-
hlutanum og börðust fyrir þvi,“
sagði Ármann.
________Húsavík:________
Kristján Ásgfeirsson,
G-lista:
„Fail meirihlutans
uppstilling-
unni að kenna“
„G-LISTA fólkið er mjög ánægt
með kosningarnar,“ sagði Krist-
ján Ásgeirsson, efsti maður á
G-listanum á Húsavík, en G-list-
inn bætti við sig einum manni
frá því i síðustu kosningum. „Við
voram síðast í meirihluta 1974-
78, þá einnig með þijá fulltrúa.
Við vitum ekki ennþá hveijir
koma til með að starfa með
okkur — það era til allir mögu-
leikar í þessu núna.“
Kristján sagðist álíta að framboð
Víkveija hafi haft áhrif á alla hina
flokkana sem buðu fram svo kosn-
ingamar að þessu sinni hafi verið
mjög tvísýnar frá byijun. „Það
munaði litlu á þriðju mönnum B og
G og á öðrum manni A. Baráttan
var tvísýn þar sem menn vissu lítið
um hversu mörgum atkvæðum
Þ-listinn myndi sópa að sér eða
hversu mikil áhrif hann hefði á
kosningamar. Ég held að flestir
hafi reiknað með að þeir fengju
a.m.k. einn mann inn í bæjarstjóm.
Kristján sagði að Alþýðubanda-
lagið hefði búist við að það ætti
ekkert síður von í þriðja manni
heldur en Alþýðuflokkur að halda
tveimur. „Maður taldi nú síður að
Framsóknarflokkurinn væri í jafn
mikilli hættu hér og raun varð á. Ég
tel að fall Framsóknarflokksins
hafí fyrst og fremst verið uppstill-
ingu listans að kenna og e.t.v. má
segja hið sama um uppröðun Sjálf-
stæðisflokksins, en þar kom einnig
til skjalanna hið nýja framboð Vík-
veija, þar sem efsti maður á lista
var fyTrverandi sjálfstæðismaður.
Þá hafa menn sennilega ekki verið
nógu ánægðir með stjóm mála í
bænum eins og henni hefur að
undanfömu verið háttað — kjósend-
um hefur líklega fundist allt á
botninn hvolft og lítil gróska," sagði
Kristján.
Katrín Eymundsdóttir,
D-lista:
„Víkveijar
sundruðu frjáls-
lyndu öflunum“
„ÞAÐ er ekki hægt að horfa
fram hjá því að okkar listi og
listi samstarfsflokksins, Fram-
sóknarflokksins, í meirihluta-
stjórn töpuðu báðir manni og var
það reyndar fyrirfram vitað að
þegar þessi nýi, þverpólitiski
flokkur Víkveija ákvað að bjóða
fram, myndi það höggva inn í
raðir okkar Sjálfstæðismanna,“
sagði Katrin Eymundsdóttir,
fyrsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Húsavík. Sjálfstæðis-
flokkurinn á Húsavík tapaði
einum manni í nýafstöðnum
kosningum.
„Efsti maður Víkveija var reynd-
ar flokksbundinn sjálfstæðismaður
áður og mín persónulega niðurstaða
er sú að Víkveijum tókst að sundra
fijálslyndu öflunum á Húsavík og
leiða Álþýðubandalagið til öndvegis.
Það kom aldrei fram nein óánægja
eða sundrungur innan okkar raða
áður en sérframboðið kom til svo
við vitum ekki ennþá af hveiju þeir
fóru þessa leið þar sem málaflutn-
ingur Víkveija hefur verið á mjög
líkum nótum og við höfum boðað
okkar pólitík."
Katrín sagði að undanfarið hefði
átt sér stað samdráttur á Húsavík
og trúlega væri bæjarstjóminni
kennt um það að vissu leyti, en þó
sagðist hún halda að framboð Vfk-
veija hefði gert stærsta strikið í
reikning þeirra sjálfstæðismanna í
nýafstöðnum kosningum.
Esklfjörður;
Hrafnkell Jónsson,
E-lista:
„Viljikjós-
enda skýr“
„ÉG GET að sjálfsögðu ekki
verið annað en ánægður fyrir
hönd okkar óháðra en jafnframt
kom útkoman þægilega á óvart,“
sagði Hrafnkell Jónsson, efsti
maður á E-Iistanum, lista óháðra
kjósenda á Eskifirði.
Hrafnkell átti að skipa efsta
sæti Sjálfstæðisflokksins sam-
kvæmt uppröðun fyrir kosningam-
ar en vegna óánægju sinnar með
þá tilhögun að ekki skyldi fara fram
prófkjör, ákvað hann að slíta sig
frá flokknum og bjóða fram sér.
„Það var ákaflega ofarlega í mér
að hvíla bæði mig og Eskfirðinga
á bæjarstjómarsetu minni, en ég
sat sl. kjörtímabil í bæjarstjóm fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins. Síðan
fínnst mér ekki fara nægilega vel
saman að vera formaður stéttarfé-
lags og kjörinn fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins. Það verða oft á tíðum
ákveðnir árekstrar sem erfitt er að
leysa, ekki síst þegar flokkurinn er
í ríkisstjóm nú og þarf að standa
að óvinsælum aðgerðum m.a. í
kjaramálum. Vegna dræmrar þátt-
töku í prófkjöri var hætt við það á
síðustu stundu. Ég gat illa sætt