Morgunblaðið - 03.06.1986, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNl 1986
atvinna
■ atvinna
atvinna — atvinna —
atvinna — atvinna
Atvinna óskast
Ég er 22 ára stúdent af viðskiptabraut og
óska eftir vinnu. Get tekið að mér mikla
aukavinnu ef góð laun eru í boði.
Upplýsingar í síma 54125 eftir kl. 19.00.
Vélstjóri - frystihús
Vélstjóri óskast strax við gæslu frysti- og
ísvéla.
Hraðfrystistöðin i Reykjavík hf.,
Mýrargötu 26, sími21400.
Atvinna
Viljum ráða bílstjóra með meirapróf til sumar-
afleysinga strax. Upplýsingar gefur Guð-
mundur Árnason í síma 99-1000.
Kaupféiag Árnesinga.
Rakara- eða
Hárgreiðslusvein
vantar. Nemi kemurtil greina.
Rakarastofa Garðabæjar,
Goðatúni 2,
Heimasími 50583.
Hárgreiðslu-/
Hársveinn
Okkurvantar þig,
sem fyrst.
Stúdíó Hallgerður.
Skrifstofustarf
Stúlka óskast til símavörslu og almennra
skrifstofustarfa, einhver bókhaldskunnátta
æskileg.
Aldur 35-40 ára. Þarf að geta hafið störf
fljótlega.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni á milli kl.
13.00 og 15.00 miðvikudaginn 4. júní.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Formprent,
Hverfisgötu 78.
Rafvirkjar —
rafeindavirkjar
Okkur vantar rafvirkja sem fyrst vanan raf-
lögnum og viðhaldi í fiskvinnslu og bátum.
Einnig rafeindavirkja til almennrar viðgerðar-
vinnu á radíóverkstæði.
Munum aðstoða við útvegun húsnæðis og
greiðum flutningskostnað á búslóð.
Uppl. gefur Óskar Eggertsson í síma 94-
3092.
Meðmæla eða einkunna verður óskað.
Póllinn hf.,
ísafirði.
Tölvunarfræðinemi
óskar eftir vinnu í júní og júlí. Hefur fengist
við forritun, garðyrkju og fl. Allt kemur til
greina.
Uppl. hjá Ingimari í síma 84693.
Veitingastaður í
miðbænum
óskar eftir að ráða konu ekki yngri en 25 ára
til afgreiðslustafa frá kl. 2-7 virka daga.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 7. júní
merkt: „I —1054“.
Hárgreiðslu- eða
hárskeranemi
óskast á nýja hársnyrtistofu. Svar sendist
augld Mbl. fyrir 10 júní, merkt:
„Studio Hallgerður"
Sérkennari
Langar þig til að komast í hressandi uppeld-
isátak samfara kennslu við lítinn notalegan
sérskóla í Reykjavík?
Hafðu þá samband við mig (Karl S. Bene-
diktsson) í síma 33000 (Bústaðaskóli) eða
33628 (heima).
Lausar stöður
á Fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis eru
eftirtalin störf laus til umsóknar.
1. Starf skólasálfræðings.
2. Starf deildarstjóra kennsludeildar.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist undirrituðum sem einnig veitir
allar nánari uppl. fyrir 30. júní nk.
Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis.
Meinatæknir
sölustarf
Fyrirtækið er rótgróið innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík.
Starfið felst í sölu og kynningu á rannsókna-
efnum og tækjum.
Viðkomandi starfsmaður mun hljóta þjálfun
innan fyrirtækisins og að hluta til erlendis.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé lærður
meinatæknir og hafi haldgóða starfsreynslu
á því sviði. Einnig þarf viðkomandi að hafa
góða ensku- og dönskukunnáttu og geta
starfað sjálfstætt.
Vinnutími er samkomulag.
Umsóknafrestur er til og með 4. júní nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og rádnmgaþionusta /»
LiÓsauki hf. W
Skólavörðustig \a - 101 Reykjavik - Simi 621355
Hárgreiðslusveinar
Hárgreiðslusveinar óskast til starfa í Bergen
íNoregi.Góðlaun.
Umsóknir sendist til:
Garðar Sigurgeirsson,
Alvermarka 38, 5100 ísdalstö, Noregi.
Verkstjórar
Stórt hraðfrystihús á Vesturlandi vill ráða
verkstjóra til starfa nú þegar. Starfsreynsla
æskileg. Húsnæði og góð launakjör fyrir rétt-
an mann. Þeir, sem hafa áhuga á starfinu,
vinsamlegast sendi nafn ásamt upplýsingum
til auglýsingad. Morgunblaðsins fyrir 10. júní
nk. merkt: „Verkstjóri — 075“.
Au pair
íslensk hjón búsett á Bastansvæðinu í
Bandaríkjunum óska eftir stúlku ekki yngri
en 18 ára til að gæta 2V2 árs telpu og vinna
létt heimilisstörf(verður að hafa bílpróf).
Umsókn með helstu upplýsingum sendist
augld. Mbl. merkt: „Au pair — 5938“ fyrir
7. júní.
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra hjá Landmælingum
íslands er laus til umsóknar.
Menntun og reynsla á sviði stjórnunar á
bókhaldi, áætlanagerð og tölvuvinnslu nauð-
synleg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 20. júní 1986.
Landmælingar íslands.
Laugavegi 178.
Blaðamaður
Frjálst framtak hefur í hyggju að ráða blaða-
mann. Leitað er að karli eða konu, til að vinna
við Nýtt líf og einnig önnur tímarit fyrirtækisins.
Hjá umsækjendum verður leitað eftirfarandi:
1. Viðkomandiséunguroghress.
2. Miklum áhuga á blaðamennsku og þá
einkumtímaritum.
3. Einhverri reynslu í blaðamennsku.
4. Næmi fyrir því, sem er að gerast f þjóð-
félaginu hverju sinni.
Frjálst framtak gefur út 12 tímarit reglulega
og hefur á þremur árum þrefaldað útgáfu-
magn tímaritaútgáfu sinnar. Er fyrirtækið
skemmtilegur og áhugaverður vinnustaður
fyrir blaðamenn. Öllum á ritstjórn er greitt
fyrir vinnu í hlutfalli við afköst og gæði.
Þeir, sem áhuga hafa á að sækja um starfið
eru vinsamlegast beðnir að leggja inn skrif-
lega umsókn, sem tilgreini þau atriði, sem
til greina gætu komið við mat á hæfni. Með
allar umsóknir verður farið sem algjört trún-
aðarmál og öllum verður svarað.
Frjálst framtak
ritstjórn,
Ármúla 38, austurenda,
108 Reykjavík.
Símí91-685380.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi óskast
Hjón utan af landi
óska eftir að taka á leigu 3ja-4ra herb. íbúð
í Hafnarfirði frá 15. ágúst í 6 mánuði.
Uppl. í síma 94-2553.
Stangveiðimenn
Til sölu nokkur laxveiðileyfi í júlí og ágúst í
Flekkudalsá.
Upplýsingar í síma 93-2000 og síma 93-1951
eftir kl. 5.00.
Til sölu laxveiðileyfi
í Staðarhólsá og Hvolsá í Dölum. Fjórar
stangir seljast allar saman. Mjög gott veiði-
hús. Uppl. í síma 77840 frá kl. 8.00-18.00
alla virka daga.