Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 60
60
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
+
Maðurinn minn,
KRISTINN EINARSSON
kaupmaður,
Laugavegi 25,
andaöist á Öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b, laugardaginn
31. maí.
Fyrir mína hönd og barna okkar,
Ella Marie Einarsson.
t
Sonur minn og bróðir okkar,
JÓN GRÉTAR GUÐMUNDSSON,
Gnoðarvogi 70,
andaðist 1. júní.
Ásta Jónsdóttir,
Hllmar Guðmundsson,
Heiðrún Guðmundsdóttir,
Inga Dóra Guðmundsdóttir.
+
Eiginkona mín og móðir,
ÁSDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR,
er látin.
Hannes Pálsson,
Guðlaug Ágústa Hannesdóttir, Bragi Hannesson.
+
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÁGÚSTU HALLMUNDSDÓTTUR,
Grettisgötu 20a,
fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30. Jarösett
veröur f kirkjugarðinum við Suðurgötu. Þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Fríkirkjuna í Reykjavík.
Guðmundur Hjörleifsson,
Margrét E. HJörleifsdóttir, Bernharð Guðnason,
Hjörleifur G. Bernharðsson,
Ágústa G. Bernharösdóttir,
Bernharð M. Bernharðsson.
+
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
LEIFS GUÐMUNDSSONAR,
Rauöageröl 10,
fyrrv. forstjóra Mjólkurfólags Reykjavfkur,
verður gerö frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 3. júní, kl. 13.30.
Ragnheiöur Guðbrandsdóttir,
Hlff Leifsdóttir, Theódór Þorvaldsson,
Guðmundur Leifsson, Helga Gunnþórsdóttir,
Valdimar Leifsson, Bryndfs Kristjánsdóttir,
og barnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, tengdasonar, föður, tengdaföður og afa,
EINARS TÖNSBERG
framkvæmdastjóra,
Glæsibæ 13, Reykjavfk
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 3. júní, kl. 15.00.
Ingibjörg Tönsberg, Sigríður Bjarnadóttir,
Hermann Tönsberg, Kristín Arnardóttir
og barnabörn.
+
Útför
ÖNNU MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR,
Hlíðarbyggð 13, Garðabæ,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. júní kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennnar er bent á Krabbameinsfélag
fslands.
Ómar Ingólfsson.
Minning:
Einar Tönsberg
framkvæmdastjóri
Fæddur 13. janúar 1910
Dáinn 23. maí 1986
Einar Tönsberg fæddist í Kaup-
mannahöfn 13. janúar 1910 og lést
í Landakotsspítala 23. þ.m. Hann
verður jarðsettur í dag, 3. júní, frá
Fossvogskapellu kl. 3.
Að lokinni skólagöngu kynnti
hann sér garðyrkjustörf og kyn-
bætur í alifuglaræktun. Hann flutt-
ist til íslands 1930 og tók að sér
forystuframkvæmdir við kynbóta-
aliftiglabú í Grindavík og var þar í
8 ár. Árið 1941 réðst hann til
Bakarameistarafélags Reykjavíkur
sem framkvæmdastjóri við ali-
fuglabú sem þá var verið að stofna
á vegum félagsins.
Einar Tönsberg giftist eftirlif-
andi konu sinni, Ingubjörgu Jó-
hannesdóttur, 5. október 1941. Þau
eignuðust einn son, Hermann, sem
er framkvæmdastjóri hér í borg.
Kona hans er Kristín Amardóttir.
Einar og Ingibjörg bjuggu 25
fyrstu hjúskaparár sín í Sogamýr-
inni, síðustu árin í Glæsibæ 13,
Árbæjarhverfi.
Einar Tönsberg fékk strax áhuga
á að læra íslensku sér að gagni, sem
var nokkuð ólíkt mörgum löndum
hans. Honum tókst það líka svo vel
að hann varð snemma altalandi og
skrifandi á íslensku og fékk íslensk-
an ríkisborgararétt. Hann starfaði
nokkuð að félagsmálum, svo sem í
Det danske selskab, var í stjóm
eggjaframleiðanda í 30 ár og einnig
í stjóm Mjólkurfélags Reykjavíkur
o.fl.
Fljótt var okkur bakarameistur-
um ljóst, að Einar Tönsberg var
dýrmætur starfsmaður við alifugla-
búið vegna þekkingar sinnar og
mannkosta. En við óttuðumst að
honum gæti dottið í hug að skipta
um stöðu og starfa og yfírgefa
okkur. Þá hugsaðist okkur að bjóða
honum betri kjör og að gerast
meðeigandi í búinu sem hann
stjómaði. Hann gekk að þessu boði
og samstarfíð stóð í rúm 40 ár.
Einar var hinn ágætasti félagi í
allri umgengni, trúr og tryggur
starfsmaður og mátti ekki vamm
sitt vita. Ingibjörg kona hans er
einnig vel að sér um alifuglarækt
og naut búið einnig sérþekkingar
og starfskrafta hennar.
Árlegir aðalfundir sem haldnir
vom á heimili þeirra hjóna vom
okkur ævinlega tilhlökkunarefni.
Persónulega er ég Einari Tönsberg
innilega þakklátur fyrir vinsemd
hans á langri ævi. Einnig leyfist
mér fyrir hönd Bakarameistarafé-
lags Reykjavíkur að flytja hér alúð-
arfyllstu þakkir fyrir samstarfíð og
aðstandendum hans innilegustu
samúð.
Gisli Ólafsson
Einar Tönsberg framkvæmdastjóri
lést þ. 23. maí sl. 76 ára að aldri.
Hann hafði ekki gengið heill til
skógar síðustu 2 til 3 árin og annað
slagið dvalið á sjúkrahúsum sér til
hressingar. í þetta skipti átti hann
ekki afturkvæmt.
Einar var fæddur þ. 13. janúar
1910 í Kaupmannahöfn, ólst þar
upp og lauk þar stúdentsprófí.
Einar var einn þeirra dönsku
manna sem komu til íslands með
sérfræðikunnáttu í landbúnaðar-
fræðum, ílentist hér og gerðist góð-
ur íslendingur. Hann kvæntist ís-
lenskri konu Ingibjörgu Jóhannes-
dóttur frá Hömmm í Grímsnesi sem
er kennari að menntun. Þau hjónin
eignuðust einn son en bamabömin
em nú orðin sjö að tölu.
Einar kom til landsins í nóvember
1930 og var þá ráðinn að hænsna-
búi Einars í Krosshúsum í Grinda-
vík en hann hafði stofnað bú þetta
árið áður. Einar stýrir þessum
+
Hjartanlega þökkum við öllum sem sýndu okkur samúð og kær-
leika við andlát og útför systur okkar, mágkonu og frænku,
SIGRÍÐAR SVEINBJARNARDÓTTUR,
frá Ysta-Skála,
Eyjafjöllum.
Guö blessi ykkur öll.
Systkinl hinnar látnu
og fjölskyldur þelrra.
Lokað
Vegna útfarar LEIFS GUÐMUNDSSONAR fyrrverandi
framkvæmdastjóra verður skrifstofa, verslun og vöruaf-
greiðsla okkar lokuð eftir hádegi í dag.
Mjólkurfélag Reykjavíkur.
Lokað
Vegna útfarar EINARS TÖNSBERGS framkvæmda-
stjóra verður skrifstofa, verslun og vöruafgreiðsla okkar
lokuð eftir hádegi í dag.
Mjólkurfélag Reykjavíkur.
Lokað
Verður miðvikudaginn 4. júní vegna útfarar ÖNNU
MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR.
Guðmundur Jónsson hf.,
Bolholti 6, Reykjavík.
Lokað
Verður miðvikudaginn 4. júni vegna útfarar ÖNNU
MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR.
Vélar og verkfæri hf.,
Bolholti 6, Reykjavík.
rekstri í 8 ár en fer þá til Reykjavík-
ur og tekur upp ýmis konar störf
bæði við fuglarækt og garðyrkju-
störf m.a. í Hafnarfírði, Reykjalundi
í Grímsnesi, að Reykjum í Mosfells-
sveit og víðar. Haustið 1941 er
hann fastráðinn við alifuglabú
bakarameistara í Reykjavík og
verður það hans æfístarf, en hann
var framkvæmdastjóri þess í yfir
40 ár samfleytt.
Einar var mjög félagslyndur og
tók fljótlega þátt í félagsskap er
varðaði starf hans. Hann varð fé-
lagsmaður í samtökum fuglabænda
í Reykjavík 1942. Hann var kjörinn
í stjóm Sambands Eggjaframleið-
enda um 1950 og var gjaldkeri
þessara samtaka til 1983, er starf-
semi félagsins breyttist. Einnig
gekk hann í Mjólkurfélag Reykja-
víkur, verslaði þar með fóður fyrir
bú sitt lengst af, og starfaði sem
deildarfulltrúi frá 1958. Einar var
kosinn í stjórn MR 1973 og varafor-
maður 1978 þar til hann lést.
Ég kynntist Einari fyrst í Sam-
bandi Eggjaframleiðenda og störf-
uðum við þar saman í stjóm í nær
tvo áratugi, og nú siðasta áratuginn
höfum við verið nánir samstarfs-
menn í stjóm Mjólkurfélags Reykja-
víkur. Einar var vel gefínn maður
og fær á mörgum sviðum en þó
einkum á sviði bókhalds og reksturs
fyrirtækja og með honum var gott
að starfa. Þetta tækifæri vil ég
nota til þess að þakka honum gott
samstarf og árangursríkt, en hann
var ávalt viðbúinn að rétta hendi
og margir nutu greiðvikni hans og
velvildar.
Þá starfaði Einar í „Det danske
selskab í Reykjavík og Dannebrog
og gegndi þar ýmsum trúnaðar-
störfum. Frá 1955 var hann í stjóm
veiðifélags Úlfarsár og var það til
dauðadags.
Einar var vænn maður og vel
látinn. Óvini átti hann enga, en
eignaðist þvert á móti marga vini
á vegferð sinni í hinum ýmsu félags-
málastörfum sínum. Hann skilaði
æfístarfí sínu hér á íslandi, varð
' góður og gegn þegn, en gleymdi
þó aldrei uppruna sínum og fyrra
föðurlandi. Áð leiðarlokum skulu
Einari færðar þakkir fyrir sam-
fylgdina og ættingjum færum við
samúðarkveðjur. Minningin lifir.
Jón M. Guðmundsson.
Blómastofa
Fnðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.