Morgunblaðið - 18.07.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986
21
PLO-leiðtogar deila
uin aðgerðir Husseins
Túni*borg. Amman, AP.
PALESTINSKIR leiðtogar, sem
nú funda í Túnis, hafa ekki enn
komið sér saman um svar við
þeirri ákvörðun Husseins Jórd-
aníukonungs að loka Jórdaníu-
skrifstofum A1 Fatah, stærstu
Ítalía:
Skilar Andreotti
fylkingarinnar innan Frelsis-
hreyfingar Palestínu, PLO.
Þekktur leiðtogi úr hópi Pal-
estínumanna í ísrael segir
meirihluta þjóðbræðra sinna
vilja ganga lengra til móts við
ísraela í friðarsamningum en
forysta PLO.
umboði sínu til
stj órnarmyndunar?
Róm, AP.
FORMAÐUR flokks kristilegra demókrata sagði í gær að hugsan-
legt væri að einhver annar flokksmaður en Guilio Andreotti yrði
forsætisráðherra í stjóm með sósíaiistum og öðram smáflokkum.
Samt hélt Andreotti áfram stjóraarmyndunartiiraunum sínum, enda
þótt sósialistar hafi lýst yfir því að þeir muni ekki taka sæti í ríkis-
stjóra undir forsæti hans.
Varaformaður sósíalista, Claudio
Martelli, sagði í gær að best væri
að taka upp þráðinn að nýju frá
því stjómin féll fyrir þremur vikur,
og gaf hann í skyn að Andreotti
hefði mistekist að mynda stjóm.
Andreotti ræddi í gær við leiðtoga
þriggja smáflokka, sem ásamt
sósíalistum og kristilegum demó-
krötum skipuðu stjóm Benito
Craxis, en hann sagði af sér 27.
júní sl.
Andreotti hugðist einnig hitta
leiðtoga atvinnurekenda og verka-
lýðsfélaga, og er búist við að hann
muni greina Francesco Cossiga for-
seta frá gangi stjómarmyndunar-
viðræðnanna í dag, fostudag.
Hussein og leiðtogi PLO, Yassir
Arafat, hafa deilt um, hvaða skil-
yrði beri að setja fyrir friðarsamn-
ingum við ísrael og er Hussein
sáttfúsari. Segir konungur, að
„þögull meirihluti" íbúanna á vest-
urbakka Jórdanár sé sammála sér
og væntir hann þess, að þeir velji
sér fulltrúa til friðarviðræðna, þrátt
fyrir afstöðu Arafats.
Palestínumaðurinn Rashad Al-
Shawwa, sem hefur gegnt stöðu
borgarstjóra í Gaza, tók á miðviku-
dag í sama streng og Hussein og
taldi Palestínumenn á hemumdu
svæðunum geta sætt sig við friðar-
samninga, sem byggðu á ályktun
Sameinuðu þjóðanna númer 242.
Ályktunin hvetur til þess, að friður
verði saminn á grundvelli þess, að
ísraelar dragi herlið sitt á brott frá
Hussein Jórdaníukongur.
hemumdu svæðunum.
A1 Shawwa segir, að ekki sé
raunhæft að ræða um sjálfstætt
ríki Palestínumanna, fyrr en álykt-
un 242 hafi verið hmndið í fram-
kvæmd.
Hann telur fjölda fólks á her-
numdu svæðunum vera hrætt við
að segja hug sinn af ótta við hefnd-
araðgerðir öfgasinna og bendir á,
að honum sjálfum hafi verið sýnd
tíu banatilræði síðastliðin fimmtán
ár.
A1 Shawwa gagnrýndi harkalega
aukna búsetu Israela á hemumdu
svæðunum og sagði friðartal ísra-
elsstjómar hjáróma, meðan stjómin
léti landnemana fara sínu fram.
Búsetuþróunin væri helsti þrándur
í götu friðarsamninga.
Líbanon:
Sprengdi
bíl í borg
kristinna
Beirút, AP.
STÚLKA ók í gær bíl, hlöðnum
sprengiefni, inn á aðaltorgið í
borginni Jezzine, helstu borg
kristinna manna i Suður-Líban-
on, og sprengdi síðan bílinn i
loft upp. Sjálf fórst hún og þrir
vegfarendur slösuðust.
Vinstrisinnuð skæruliðasamtök,
SSNP, lýstu ábyrgð á hendur sér
fljótlega eftir sprenginguna. Sam-
tökin era studd af Sýriendingum,
en era einnig tengd PLFP, marx-
istasamtökum Palestínumanna
undir stjóm Georges Habash. Hvor-
tveggju samtökin segjast hafa
staðið á bak við tilraun nokkurra
skæraliða nýlega til að laumast á
land á norðurströnd ísraels í síðustu
viku. Tilraunin mistókst og flórir
skæraliðar féllu í bardaga á strönd-
inni.
Herflokkar kristinna manna hafa
töglin og hagldimar í Suður-
Líbanon, og hafa þeir nána sam-
vinnu við Israela.
Frakkland:
Lausn gíslamáls
loks í siónmáli
ParSs AP. w
UTANRÍKISRÁÐHERRA Frakka, Jean-Bernard Raimond sagði í
viðtali við Le Fignro að líklega ;
Líbanon sleppt samtimis, en alls
Raimond varaði við of mikilli
bjartsýni, þar sem málið væri mjög
viðkvæmt.
Varaforseti Sýrlands, Abdel Hal-
im Khaddam er nú í París, og sagði
Raimond að ríkisstjórn Sýrlands
ætti mikinn þátt í lausn málsins,
en bætti við að fleiri kæmu við sögu.
Talið er að Raimond hafi átt við
ríkisstjórn írans, en sambúð
ríkjanna hefur farið batnandi að
ollum fronsku gislunum sjo
• óvíst hvenær af því verður.
undanförnu.
Khaddam tók þó fram að gíslam-
ir væra ekki í Bekaa-dal, eins og
álitið hefur verið, en yfir honum
ráða Sýrlendingr að mestu leyti.
Hann sagði að þeir væra á yfírráða-
svæði líbanskra skæraliða, og leiddi
getum að því að þeir væra í vestur-
hluta Beirút, en tók fram að
Sýrlendingar hefðu engar nákvæm-
ar upplýsingar um verastað þeirra.
Greenpeace:
Ekki ákveðið hvort mót-
mælt verður hér í sumar
„ÉG GET ekkert sagt til um á þessu stigi hvort Greenpeace-samtök-
in munu senda skip til íslands i sumar til að mótmæla hvalveiðum
Islendinga i vísindaskyni," sagði talsmaður Greenpeace í London,
Jess Canian í viðtali við Morgunblaðið í gær.
Canian sagði að ákvörðun um
þetta hefði ekki enn verið tekin, og
vissi hann ekki hvenær það yrði
gert.
Canian kvaðst harma þann at-
burð þegar færeysku lögreglunni
og áhöfn skipsins Sea Shepherd
lenti saman við Færeyjar á laugar-
dag. Lagði hann áherslu á að
Greenpeace væri í engum tengslum
við Sea Shepherd og skipstjóra þess
Paul Watson. „Við mundum aldrei
beita ofbeldi, enda er það eitt af
höfuðmarkmiðum samtakanna.
Annars vil ég ekki leggja dóm á
hvor aðilinn átti sök á átökunum
við Færeyjar, þar sem ég hef aðeins
við fréttir úr blöðum að styðjast,"
sagði Canian.
Aspurður sagði hann að Green-
peace-samtökin hefðu ekki enn
hafíð herferð í Bandaríkjunum og
öðram löndum í því skyni að fá
almenning til að hætta að kaupa
íslenska vöra, en vildi að öðra leyti
ekki tjá sig um málið.
Demókratar vilja
Iacocca í framboð
Washingfton, AP.
NOKKRIR stjórnmálaráðgjafar
innan Demókrataflokksins, hafa
hrundið af stað herferð fyrir því
að Lee Iacocca, framkvæmda-
stjóri Chrysler-bílaverksmiðj-
anna, bjóði sig fram sem
forsetaefni Demókrata í kosn-
ingunum 1988.
„Þorri Bandaríkjamanna þekkir
Iacocca og yfirgnæfandi meirihluta
þeirra líkar vel við hann,“ sagði
Terrence O’Connell, en hann er einn
nefndarmanna og auk þess einn af
frammámönnum Demókrataflokks-
ins. Persónuvinsældir Iacocca era
miklar og hafa frekar aukist en
hitt að undanfömu, en Iacocca var
formaður framkvæmdanefndar,
sem stóð að viðgerðum á Frelsis-
styttunni, fyrir 200 ára afmæli
hennar.
Þrátt fyrir þetta þarf nefndin að
ryðja mörgum hindranum úr vegi,
m.a. Iacocca sjálfum, en hann hefur
margsagt að hann hafi engan
áhuga á embættinu. Aðstoðarmenn
hans íterekuðu þá afstöðu, eftir að
fréttin um nefndina spurðist út.
SUMAR á Vesturlandi
Vöruhús Vesturlands Borgarnesi sími 93-7200
Veiðimenn
Það kemur fyrir bestu veiðimenn að missa af þeim stóra en
réttur útbúnaður eykur möguleikana á vel heppnaðri veiðiferð.
Við hjá VÖRUHÚSI VESTURLANDS missum aldrei af þeim
stóra enda höfum við réttan búnað.
í RAFTÆKJA- OG SPORTVÖRUDEILD VÖRUHÚSS VEST-
URLANDS höfum við á boðstólum allar veiðivörur og leggjum okkur
fram um að þjóna þeim veiðimönnum sem stunda íþrótt sína.
í MATVÖRUDEILDINNI fá veiðimenn allan mat.
Á þjónustusvæði VÖRUHÚSSINS eru sumar
bestu veiðiár landsins og því teljum við skyldu
okkar að sinna þeim sem þangað
leggja leið sína.
Við viljum að lífið sé leikur.
<B