Morgunblaðið - 18.07.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986
45
Fáránlegir for-
dómar gegn sauðfé
Fyrrverandi fjárbóndi og
hestavinur skrifar:
„Níðskrif gegn sauðfé hafa birst
alloft undanfarnar vikur í Velvak-
anda og eru höfundum sínum síst
til sóma. Eru þeir hver öðrum
brjóstumkennanlegri og hlægilegri,
útvarpa fáfræði sinni og hleypidóm-
um gegndarlaust og vita lítið hvað
þeir eru að skrifa um. Þar fer lítið
fyrir sanngiminni og fá ábyrgir
sauðfjáreigendur ekki að njóta
sannmælis. Vanþekking bréfritara
og forheimskandi ofstæki leynir sér
ekki. Stöðugt eru notuð niðrandi
orð eins og t.d. „vargur", „rollu-
karl“, „gróðurböðull" svo eitthvað
sé nefnt af þessari lágkúru. For-
dómar þrífast hvergi betur en í
fáfræði.
Mesta beitarálagið á Reykjavík-
ursvæðinu er vegna hrossa en ekki
kinda, enda hefur hrossum ijölgað
gífurlega. Sauðfé er aftur á móti
orðið svo fátt á þessum slóðum að
ekki er hætta á að það valdi of-
beit. Ær eru ólíkt fyrirferðarminni
skepnur en hestar og t.d. hundar.
Öllu alvarlegri vandamál tengjast
hestamennsku borgarbúa en sauð-
ijárhaldi, svo sem hrikaleg gróður-
spjöll í sumum hestagirðingum og
óvarkámi stöku hestamanna þegar
þeir ríða með 2 til 3 hesta í taumi,
jafnvel öjvaðir, á ijölfömum vegum
þannig að umferðarhætta skapast
af. En það er sjaldan minnst á slíkt.
Hverjum dytti í hug að leggja það
til að banna ætti alla hestaeign í
þéttbýli vegna framkomu sumra
hestamanna? Það virðist ekki vera
Hver er munur-
inn á opinberri
og óopinberri
heimsókn þjóð-
höfðingja?
Bergþóra Sigurðardótttir
skrifar:
„Mér leikur forvitni á að vita
hver sé munurinn á opniberri og
óopinberri heimsókn þjóðhöfðingja.
Em allir vissir um að Danadrottn-
ing hafi viljað ferðast með halarófu
af fólki á eftir sér og sitja veislur?
Mikið get ég vorkennt þessu fyrir-
fólki að fá aldrei um ftjálst höfuð
að stijúka. Það er kannski ekki allt-
af svo auðvelt að koma því kurteis-
lega áleiðis að það vilji ekki allt
þetta umstang — ef það felst ekki
í því að heimsókn sé óopinber."
sama hver í hlut á. Hestamönnum
hefur alltaf verið gert hærra undir
höfði en sauðfjáreigendum, því til
er nokkuð sem heitir hrossasnobb.
Sama má segja um hunda sem í
sumum tilvikum virðast vera nokk-
urs konar stöðutákn i þéttbýli. Þó
að fólk sé bitið og flutt á sjúkrahús
er reynt að þagga slíkt niður. Fæst
slysanna eru kærð. Það þykir bara
fínt að hafa grimman, sígjammandi
hund við dymar hjá sér eins og í
útiöndum. En ef kind kemst óboðin
inn í garð eða skógarreit og sést
narta í blóm eða hríslu ætlar allt
vitlaust að verða og fólk hringir á
lögregluna í dauðans ofboði. Þessu
er ég þó alls ekki að mæla bót því
að lausagangur búfjár í þéttbýli á
ekki að þekkjast. Með góðu skipu-
lagi er auðvelt að hafa stjóm á
þeim málum þannig að allir megi
vei við una. En öfgamar gera eng-
um gott.“
HaM ávallt viðurkanndan örygg-
isbúnaA tiltaakan.
Sinnið viðhakM á bátnum hvanaar
aam timi gafat Hafið um borð
varaárar og riaði, tóg, lagufaari og
austurtrog. Einnig (jóa, flautu og
blys til markiagjafa.
Áfangi má ALDREt hata um hðnd I
bátafarðum. Bakkua ar óhaiH
hvarri áhðfn og má aldrai aitja
undir atýri.
Fjórar járnbentar
sem hitta í mark
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Rainbow
Finyl vynil
Það var svo sem auðvitað að
ekki væri hægt að láta Rainbow
liggja of lengi ósnerta í gröfínni.
Hálft annað ár er nú liðið frá því
sveitin hélt sína hinstu tónleika
og hálft þriðja ár er liðið frá því
síðasta plata sveitarinnar kom út.
Dánarorsök Rainbow var endur-
fæðing Deep Purple eins og allir
vita sem eitthvað fylgjast með í
rokkinu.
Þetta tvöfalda albúm Rainbow
er þó betra um flest en margar
sambærilegar plötur, sér í lagi
vegna þess að á henni er að fínna
fágætar tónleikaupptökur auk
upptaka úr hljóðveri sem aldrei
voru þrykktar í plast. Það verður
því ekki með sanni sagt að hér
sé um líkræningjahugsunarhátt-
inn að ræða eins og svo oft vill
verða í sambærilegum tilvikum.
Eins og gefur að skilja eru
upptökumar, sem hér em dregnar
fram í dagsljósið, býsna ólíkar —
sumar frábærar, aðrar þess eðlis
að þær hefðu betur verið geymdar
í kistunni. En á heildina litið er
þetta ómissandi gripur fyrir for-
fallna aðdáendur Ritchie Black-
more. Aðrir sannir rokkarar ættu
líka að hafa lúmskt gaman af.
Menn sem
ekki bregðast
Van Halen
5150
Það fara fáir f skóna þeirra
Van Halen-drengja. Það er ekki
það, að þeir séu svona smá- eða
stórfættir, heldur hitt að hér er á
ferð einhver allra besta rokksveit
nútímans. Skilningurinn á milli
meðlima kvartettsins er ótrúlegur
og þar veit hver upp á hár hvað
honum ber. Hver hefði annars
trúað því að óreyndu að 5150
væri frumraun söngvarans
Sammy Hagar með Van Halen?
Það er hreint ekki að heyra að
sveitin sakni David Lee Roth hið
minnsta.
En að Sammy Hagar slepptum
er það Eddie Van Halen, gítar-
snillingurinn hollenskættaði, sem
allt snýst um í þessari sveit og
skal nokkum undra? Leikni hans
er slík að mér er til efs að nokkur
gítarleikari rokksins standist hon-
um snúning.
Vissulega hefur tónlist Van
Halen slípast með árunum en
sveitin heldur þó bersýnilega enn
fast í rætur sínar. Dægurlög á
borð við Why can’t this be love
og Jump (af 1984) eru fljótt fyrir-
gefín í ljósi annars efnis. 5150
er hágæðaplata — ekkert minna.
Á bak við lás
og slá
Dokken
Under lock and key
n Dokken er einhver frambæri-
legasta þungarokkssveitin vestan
hafs um þessar mundir og þessi
nýjasta plata Don Dokken og fé-
laga staðfestir það. Þó er ekki
laust við að yfirbragðið sé heldur
mildara en var á eldri plötum
sveitarinnar.
í Dokken leynist einhver efni-
legasti gítarleikarinn í þunga-
rokkinu í dag, George Lynch.
Menn á borð við Vivian Capmbell
í Dio (er reyndar nýhættur þar)
segjast fylgjast grannt með Lynch
til þess eins að læra af honum!
Under lock and key hefur að
geyma nokkur prýðisgóð lög en
þess á milli finnst mér herslumun-
inn vanta. Bestu lög: The Hunter,
Lightning strikes again og Till the
livin’end.
Heimtir úr
helju
Aerosmith
Done with mirrors
Það hlýtur að teljast kraftaverk
að hafa heimt Aerosmith úr helju
eftir margra ára dásvefn. Þannig
túlka ég a.m.k. eigin viðbrögð við
þessari nýjustu plötu fímmmenn-
inganna. Hún er í einu orði sagt.
frábær.
Eftir fádæma velgengnisskeið
um miðjan síðasta áratug sem
náði líkast til hámarki með plöt-
unni Rocks 1976, tók að halla
undan fæti hjá Aerosmith og að
endingu leystist sveitin upp. Hún
tók saman á ný 1982 en þá vant-
aði enn Joe Perry og Brad
Whitford af upprunalegu meðlim-
unum fímm. Þeir eru báðir með
á Done with mirrors og árangur-
inn er skotheldur.
Tónlist Aerosmith hefur lítið
breyst frá því hún var á toppnum
fyrir áratug. Lögin eru kraft-
mikil, drifín áfram af hugmynda-
ríkum hljóðfæraleik og afbragðs
söng. Það fara ekki margir í fót-
spor Steve Tyler. Hafi menn
saknað Aerosmith er týndi sauð-
urinn snúinn aftur. Done with
mirrors er sjálfkjörin i safn rokk-
arans.
Ferðafólk heim-
sækir Hólminn
Stykkishólmi.
Undanfarið hefur verið góð-
viðri hér um slóðir og hafa menn
notað sér góða veðrið i auknum
mæli. Ferðir um Breiðafjörðinn
eru nú tíðar, bæði hvað Baldur
áhrærir og eins Brimrúnu, sem
fer daglega skemmti- og skoðun-
arferðir og vekja þær mikla
ánægju enda farið um sérkenni-
lega og forvitnilega staði.
Fólk kann alltaf betur og betur
að nota sér þjónustu þessa og skoða
leyndardóma BreiðaQarðar. Það
hefur verið mikið að gera á hótelinu
héma, þó sérstaklega um helgar.
Tjaldstæðin hafa verið mikið notuð
enda öll aðstaða þar hin ákjósanleg-
asta og fólk lýsir ánægju sinni
óspart yfír dvöl þar. Stykkishólms-
hreppur hefur vandað val tjaldstæð-
isins, sem er á fögrum stað í útjaðri
Stykkishólms. Bflastæði eru þar
malborin og rúmgóð og öll snyrtiað-
staða vel úr garði gerð. Þá er hótelið
þama skammt frá og þjónusta þar
öll hin ákjósanlegasta.
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla