Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
3
„Ég hlakka til að
taka við starfinu“
- segir Bogi Nilsson nýskipaður
rannsóknarlögreglustj óri ríkisins
BOGI Nilsson, sýslumaður Suður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Eski-
firði, var í gær skipaður rannsóknarlögreglustjóri. Forseti íslands
skipaði í stöðuna að tillögu dómsmálaráðherra, Jóns Helgasonar.
„Eg hlakka til að takast á við
þetta verkefni," sagði Bogi. „Það
má vissulega búast við að nokkur
munur sé á þessu starfi og starfi
sýslumanns, því verkefni rannsókn-
arlögreglunnar eru afmarkaðri. Mér
hefur líkað mjög vel í starfi mínu
og ég á eftir að sakna fólksins hér,
en það er hins vegar ágætt fyrir
menn að skipta um starf.“
Bogi Nilsson tekur við stöðu
rannsóknarlögreglustjóra af Hall-
varði Einvarðssyni, sem lét af
störfum 1. júlí sl. til að taka við
stöðu ríkissaksóknara. Bogi er 45
ára gamall og útskrifaðist hann frá
lagadeild Háskóla íslands árið
1968. Þá varð hann fulltrúi sýslu-
manns og bæjarfógeta á Akureyri
og aðalfulltrúi þar frá ársbyrjun
1973 til ársloka 1975. Hinn 1. jan-
úar 1976 tók Bogi við embætti
sýslumanns í Suður-Múlasýslu og
bæjarfógeta á Eskifirði, eins og
áður er getið. Hann tekur við starfi
rannsóknarlögreglustjóra 1. októ-
ber nk. Bogi er kvæntur Elsu
Petersen.
Þrír umsækjendur voru um stöð-
una auk Boga, þeir Amgrímur
Isberg, fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík, Ásgeir B. Friðjónsson,
sakadómari í ávana- og fíkniefna-
málum og Þórir Oddsson, vararann-
sóknarlögreglustjóri.
„Vonsvikinn að
fá ekki stöðuna“
- segir Þórir Oddsson
vararannsóknarlögreglustjóri
„Eg varð vissulega fyrir verulegum vonbrigðum þegar ég frétti
að ég fengi ekki stöðu rannsóknarlögreglustjóra," sagði Þórir
Oddsson, sem var settur I embættið er Hallvarður Einvarðsson
lét af störfum hinn 1. júlí sl.
„Mér fínnst auðvitað sem fram-
hjá mér sé gengið, ég hef starfað
hérna frá því að rannsóknarlög-
regla ríkisins var stofnuð árið
1977,“ sagði Þórir. „Hinn 1. júlí
árið 1977 réðst ég hingað, en var
þá búinn að vinna um tíma að undir-
búningi stofnunar embættisins
ásamt Hallvarði Einvarðssyni fyrr-
um rannsóknarlögreglustjóra. í
apríl 1978 var ég skipaður vara-
rannsóknarlögreglustjóri, en hafði
áður verið aðalfulltrúi og gegnt
störfum rannsóknarlögreglustjóra í
fjarveru hans eða forföllum. Ég
varð því fyrir vonbrigðum með að
fá ekki stöðuna,“ sagði Þórir að
lokum.
Þórir Oddsson hefur fallist á að
taka setningu í embætti rannsókn-
arlögreglustjóri til 1. október nk.
en þá tekur Bogi Nilsson við.
Borgarráð:
Samkeppni
BORGARRÁÐ samþykkti á
síðasta fundi sínum 12. ágúst að
efna til samkeppni um tillögur
að ráðhúsi fyrir Reykjavík. Ráð-
húsinu er ætluð lóð á horni
Tjarnargötu og Vonarstrætis við
Tjörnina. Á fundinum var frest-
að afgreiðslu á beiðni um leyfi
til að rifa húsin við Vesturgötu
10 og lOa.
Dómnefnd vegna fyrirhugaðrar
samkeppni skipa Davíð Oddsson
borgarstjóri, Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi og Þorvaldur S. Þor-
valdsson forstöðumaður Borgar-
skipulags, ásamt þeim Þorsteini
Gunnarsyni arkitekt og Guðna Páls-
syni arkitekt, sem skipaðir eru af
arkitektafélagi íslands.
Sigutjón Pétursson borgarfull-
trúi (Aþb.) óskaði eftir að bókað
yrði að tilnefning minnihiutans í
borgarráði um fulltrúa í dómnefnd
um ráðhús
fyrir byggingu ráðhúss væri af hans
hálfu ekki ákvörun um að ráðhús
verði meðal næstu verkefna
Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarfulltrúi (V) lét
einnig bóka að hér væri ekki tekin
ákvörðun um næsta verkefni á veg-
um borgarinnar.
1050 tonnum
af loðnu
landað í gær
TVEIR loðnubátar lönduðu í
gærkvöld samtais 1050 tonnum
af loðnu.
Súlan EA landaði í Krossanes-
verksmiðjuna á Akureyri og Fífill
GK landaði í Raufarhöfn. Ekkert
loðnuskip hafði tilkynnt um loðnu-
afla í gærdag.
Vinsældalisti rásar II:
Skriðjöklar á toppnum
NOKKRAR breytingar hafa
orðið á vinsældalista rásar tvö
frá fyrri viku. Skriðjöklarnir
tróna í fyrsta sæti með Hestinn
og Greifarnir falla niður í
fimmta sæti, en annars er list-
inn á þessa leið:
1. (2 ) Hesturinn/Sknðjöklar
2. (3 ) Götustelpan/Pálmi Gunnarsson
3. (7 ) The Glory of Love/Peter Setera
4. (4 ) Papa don’t Preach/Madonna
5. (1 ) Útihátíð/Greifamir
6. (13) What’s the Colour of Money/
Hollywood Beyond
7. (17) Með vaxandi þrá/Geirmundur
og Ema
8. (8 ) Fimmtán ára á föstu/Pétur og
Bjartmar
9. (18) Lady in Red/Chris Debugh
10. (9 ) Hunting High and Low/A-Ha
Aukafundur í borgarstjórn:
Samkeppni um
framtíð Viðeyjar
Bogi Nilsson sýslumaður, sem í
gær var skipaður í stöðu rann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins.
Á 200 ára afmælisdegi Reykja-
víkur 18. ágúst er boðað til
aukafundar í borgarstjórn
Reykjavíkur í Skúlatúni 2 kl.
10:20.
í upphafi fundarins flytur Davíð
Oddsson borgarstjóri ávarp en síðan
verður borin upp sameiginleg tillaga
allra flokka og samtaka sem eiga
fulltrúa í borgarstjóm. Tillagan
hljóðar svo: „Borgarstjórn Reykja-
víkur samþykkir að færa Alþingi
og ríkisstjórn þakkir fyrir ákvörðun
þeirra um, að mannvirki og land-
spilda ríkisins í Viðey skuli fram-
vegis vera eign Reykvíkinga. Af því
tilefni er tekið fram: að stefnt er
að því, að viðgerðum á Viðeyjar-
stofu ljúki á árinu 1988, að viðgerð-
um á Viðeyjarkirkju ljúki ekki síðar
en 1990, að á kjörtímabilinu verði
efnt til hugmyndasamkeppni um
framtíðarskipulag og nýtingu eyjar-
innar í þágu Reykvíkinga og
þjóðarinnar allrar.“
Dagskránni lýkur með ávarpi frú
Vígdísar Finnbogadóttur forseta
íslands.
VIÐIR.
Reykjavík 200 ára!
Gleðjist
i með
góðri steik!
w Úrbeinað -m -m •
Lambalæn
IllÍðfS-00
Toppdjús
Kryddað og tilbúið
í ofninn eða á grillið
Úrbeinaður,
, kryddaður og tilbúinn
pr.kg.
í ofninn eða á grilliö
1 líter
Kynnum í Mjóddinni
Matarkrásir:
63’00 Reykta kjúklinga
Dofri
frá isfugli - tilbúna til neyslu!
Ljúffengar
Lamba
frampartur
298
Sólkjarnabrauð
56,0°
Marmarinkaka
,00
pr.kg.
hreingerningalögur Sjávarréttabökur X18,0°
1 líter
52
IVA 2,3 kg.
þvottaelni
185 •”
Salatbar
Skemmtilegu girnilegur
í Mjóddinni
Sunkist
appelsínur
Safaríkar og sætar
,00 °g rækjurúllur
frá MARSKA
Egils grape
( - sem ginið er við!)
**£&i**g
*W'
ar' W
VIÐIR
AUSTURSTRÆTI 17 - MJÓDDINNI
Opið til kl.
21 í Mjóddinni
en tilkl.19 í
og Austurstræti.