Morgunblaðið - 15.08.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
Barnabrúð-
kaupum fjölgar
á Indlandi
Nýju Dehlí, AP.
BARNAGIFTINGAR eru í vexti í þremur norðlægum fylkjum
Indlands, þrátt fyrir að giftingar barna hafi verið bannaðar með
lögum á Indlandi. Aðstoðardómsmálaráðherra Indlands, H. R.
Bharadwaj, skýrði þinginu frá þessu á þriðjudag.
Það eru fylkin Gujarat, Rajast- einu séu 30 þúsund börn gift ár-
han og Madhya Pradesh, sem hlut
eiga að máli, en þar eiga trúarhrögð
hindúa dýpstar rætur. Á árunum
1977—79 voru 500 sinnum höfðuð
mál vegna barnagiftinga í tíu fylkj-
um Indlands, þar af 390 sinnum í
Gujarat-fylki. Bharadwaj fullyrti að
vandinn hvað þetta snerti færi vax-
andi, en rökstuddi mál sitt ekki
með tölum.
Áætlað er að í fylkinu Rajasthan
lega, þrátt fyrir lögin sem banna
það, en þessum lögum er sjaldan
framfylgt. Þúsundir ólæsra og hjá-
trúarfullra íbúa Norður-Indlands
fylgja þeim forna sið að gifta
stúlkubörn 4—5 ára gömul, því að
öðrum kosti muni bölvun fylgja
þeim.
Stúlkur mega lögum samkvæmt
giftast 16 ára gamlar á Indlandi
og piltar 18 ára.
Ný rannsókn:
„Pillan“ ekki talin
valda brjóstkrabba
Boston, AP.
í SKÝRSLU sem birt var á
fimmtudag kemur fram að eftir
langar rannsóknir hafi læknar
ekki fundið neina fylgni milli
brjóstkrabba og notkunar P-
pillunnar svonefndu, sem notuð
er sem getnaðarvörn.
Á undanfömum árum hafa
heyrst getgátur um að tengsl kunni
að vera milli inntöku „pillunnar"
Sri Lanka:
Dani
myrtur
Kólombó, Sri Lanka, AF.
ÖFGAMENN tamíla skutu á
laugardaginn til bana Dana í
Tricomalee-borg. Maðurinn var
í ökuferð með konu sinni, þegar
tveir menn gerðu honum fyrirsát
og myrtu hann. Daninn starfaði
við þýska útvarpsstöð.
Ekki er nánar kunnugt um til-
drög morðsins. Tamílskiröfgamenn
beijast fyrir sjálfstæðu ríki tamíla
á Sri Lanka. 4 þúsund manns hafa
látið lífíð á undanförnum þremur
árum í baráttu þeirra við sinhalesa,
sem er hinn ráðandi kynþáttur á
eyjunni.
og brjóstkrabba, en rannsóknirnar
leiddu ekkert slíkt í ljós. Bijósta-
krabbatíðni var ekki meiri hjá
konum, sem tekið höfðu „pilluna"
í 15 ár, jafnvel þótt að bijóstkrabbi
hefði gert vart við sig í ijölskyld-
unnni.
Dr. Richard Sattin, sem stjómaði
rannsókninni, sagði að meira en
9.000 konur hefðu verið rannsakað-
ar og að niðurstöður hennar væru
mjög ánægjulegar. Skýrslan var
birt í læknaritinu The New England
Joumal of Medeein og birtist í blað-
inu forystugrein um skýrsluna, eftir
Dr. Samuel Shapiro. Dr. Shapiro
benti á að enn væri mörgum spurn-
ingum um „pilluna" ósvarað. Talið
er að notkun hennar kunni að auka
hættu á lifrarkrabba og að blóð
hlaupi í kekki. Slíkt mun þó mjög
sjaldgæft.
í rannsókninni vom 4.711 konur
með bijóstkrabba rannsakaðar og
voru þær á aldrinum 20 til 54 ára
gamlar. Þær voru bomar saman
við 4.676 konur, sem voru valdar
af handahófi. Dr. Sattin sagði að
niðurstöður eldri rannsókna þyrfti
að endurskoða þar sem að rannsókn
hans væri mun víðtækari og ná-
kvæmari. Hann tók þó fram að
rannsóknin upplýsti ekki hvort
notkun „pillunnar" hefði áhrif á
bijóstamyndun unglingsstúlkna og
að þar sem að „pillan" hefði fyrst
verið tekin i notkun 1960 væri óvíst
um langtímaáhrif hennar.
Frumlegur kjóll
Eitt þúsund 50 punda seðlar fóru í þennan kjól sem fyrirsætan
Julie Stevens klæddist er hún afhenti bingóvinning upp á rúm-
lega 3,2 milljónir íslenskra króna í London nýlega.
Risaveldin:
Brunei:
Langar
nafn-
giftir
^ New York, AP.
Á MIÐVIKUDAG afhenti sendi-
herra Brunei aðalritara Samein-
uðu þjóðanna, Javier Perez De
Cuellar, trúnaðarbréf sitt. Það
eitt og sér væri varla i frásögur
færandi, en nafn sendiherrans
hefur vakið athygli, en aldrei
hefur maður með jafnlangt nafn
komist á skrá SÞ yfir sendimenn
aðildarríkja þeirra.
Sendiherrann heitir Awang Ah-
mad Bin Pehin Orang Kaya
Digadong Seri Diraja Dato Laila
Utama Awang Haji Mohammed
Youssof. Hann er 42 ára gamall
og er annar sendiherra Brunei við
SÞ. Brunei varð aðildarríki SÞ í
september 1984.
Bmnei er lítið ríki á norðvestur-
strönd Bomeó. Langar nafngiftir
virðast vera landlægar þar, því að
höfuðborgin heitir Bandar Seri
Begawan, en opinberlega heitir
þjóðhöfðinginn Duli Yang Maha
Mulia Paduka Seri Baginda Sultan
And Yang Di-Peituan Negeri Bru-
nei Awang Muda Hassanal Bolkiah
Mu’izzaddin Waddaulah Ibni Duli
Yang Teramat Mulia Paduka Seri
Begawan Sultan Awang Muda
Omar Ali Saifuddin Sa’adul Khairi
Waddin. Dags daglega er hann
nefndur Hassanal Bolkiah.
Viðræðum verður hald-
ið áfram í Washington
Kotlikovo, AP.
VIÐRÆÐUM risaveldauna lauk
á þriðjudag og hefur fréttaleynd
hvílt yfir því hvort árangur náð-
ist bæði hvað afvopnun og næsta
leiðtogafund varðar. I banda-
ríska dagblaðinu Washington
Post var haft eftir ónafngreind-
um, bandarískum embættis-
mönnum að sendinefndir
Sovétmanna og Bandarikja-
manna hefðu ákveðið að hittast
aftur í Washington í lok þessa
mánaðar eða upphafi september.
Þjónustustúlka Nancy Reagan, forsetafruar Bandaríkjanna:
Ákærð fyrir aðild
að vopnasmygli
Washington, AP.
PERSONULEG þjónustustúlka Nancy Reagan, forsetafrú-
ar Bandaríkjanna, hefur verið ákærð fyrir að hafa átt
hlut að áætlun um að smygla skotfærum til Paraguay,
að sögn embættismanna. Samkvæmt ákærunni á hún að
hafa túlkað fyrir tvo menn frá Paraguay, sem einnig eru
ákærðir. Þá á hún að hafa keypt 10 þúsund hleðslur í
skotvopn með litla hlaupvídd.
Þjónustustúlkan, Anita Cast- Yfirvöld komust á snoðir um
elo, var látin víkja úr starfi málið, er lagt var hald á 50 þús-
tímabundið 7. ágúst síðastliðinn
vegna þessa máls. Hún heldur
fram sakleysi sínu í málinu og
hefur verið látin laus úr haldi
gegn 50 þúsund Bandaríkjadala
tryggingu.
und hleðslur í riffla af hlaupvídd
22 í flutningaskipi í eigu ríkis-
stjómar Paraguay, þar sem það
lá við festar í Richmond. Að sögn
yfirvalda er ennþá ekki ijóst
hversu víðfemt smyglið er.
Anita Castelo
I blaðinu var vitnað í embættis-
menn nátengda bandarísku sendi-
nefndinni og sagt að árangur hefði
ekki verið mikill af viðræðunum;
sendinefndirnar hefðu verið að
þreifa fyrir sér. Líklegra væri að
næsti fundur bæri ávöxt.
Nokkrir helstu sérfræðingar
Bandaríkjamanna og Sovétmanna
um afvopnunarmál sitja í samn-
inganefndunum og ræddu þeir
saman í ellefu klukkustundir í húsi
sovéska utanríkisráðuneytisins
nærri þoipinu Kotlikovo skammt
suður af Moskvu.
Samningsaðiljar hafa ekki gefið
út yfirlýsingar um fundina, sem
haldnir voru til að undirbúa leið-
togafund milli Ronalds Reagan,
forseta Bandaríkjanna, og Mikhails
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna,
og ræða afvopnunarmál.
People Express:
Tapið aldrei
meira
Newark, New Jersey, AP.
TAP á rekstri bandaríska flug-
félagsins People Express á
öðrum ársfjórðungi þessa árs,
nam 74,5 milljónum Bandaríkja-
dala, um það bil 3 milljörðum
dala. Hefur tap á rekstri félags-
ins ekki orðið jafn mikið áður.
Tapið á fyrsta ársQórðungi þessa
árs var 58 milljónir dala. Félagið
hætti nýlega að bjóða lág fargjöld,
þar sem engin þjónusta er innifalin,
til þess að bæta fjárhagsstöðuna.
Japan:
Stálrör til
Sovétríkjanna
Tókkyó, AP. ^
SOVÉTMENN munu á næstunni kaupa um 400,000 tonn af stálrörum
af fjórum japönskum stórfyrirtækjum, að því er starfsmaður Nippon
Steel Co. sagði í Tókýó sl. miðvikudag. Verða rörin notuð við flutn-
ing á jarðgasi í Síberíu.
Talsmaðurinn vildi ekki gefa upp
verð, en sagði að Sovétmenn myndu
greiða í jenum og dollurum og stað-
greiða helminginn st.rax. Samn-
ingaviðræðum Nippon Steel,
Nippon Kokan, Sumitomo Metal
Industries, Kawasaki Steel og Sov-
étmanna lauk á laugardag í Moskvu
og mun afhending röranna fara
fram í árslok. Japanskir stálfram-
leiðendur hafa undanfarin 10 ár,
framleitt ýmis konar búnað fyrir
Sovétmenn vegna jarðgasvinnslu
þeirra í Síberíu.