Morgunblaðið - 15.08.1986, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
Efnavopn Sovétríkjanna
eftir Hallgrím
Oskarsson
I lok sjöunda áratugarins setti
Richard Nixon, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, bann gegn fram-
leiðslu allra efnavopna í þeirri von
að Sovétmenn gerðu slíkt hið sama.
Það gerðu þeir ekki og standa Sov-
étmenn nú langtum fremst allra
þjóða í heiminum á sviði stórhættu-
legra efnavopna, og hafa fyrirliggj-
andi mikið magn þeirra. Þessir
yfírburðir Sovétríkjanna hafa leitt
til þess að hernaðarlegt jafnvægi
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna er
ekki sem skyldi á þessu sviði og
1 því er eðlileg sú ákvörðun Banda-
ríkjastjómar, sem tekin var nýlega,
að hefja aftur framleiðslu efna-
vopna þannig að hernaðarlegt
jafnvægi aukist á milli stórveld-
anna.
Sovétmenn hafa lengi notað ýmis
efnavopn í stytjöldum sem þeir hafa
háð. Má þar sem dæmi nefna í
Afganistan, Laos, Víetnam og í
Kambódíu. Vopn þessi eru hryllileg
og afléiðingar þeirra enn verri. Er
ætlunin hér á eftir að segja nokkuð
frá þessum vopnum sem Sovétríkin
eiga og hafa tilbúin til notkunar.
í lok síðari heimsstytjaldarinnar
hertóku Sovétmenn þýskar verk-
smiðjur sem framleiddu efnavopn
** og komust þannig yfír miklar birgð-
ir efnavopna og tæki til framleiðslu
þeirra. Tvær stöðvar rifu þeir nið-
ur, fluttu til Sovétríkjanna og settu
saman þar. Á þessum grunni hafa
Sovétmenn þróað sína framleiðslu
efnavopna jafnframt því sem þeir
hafa byggt framleiðslustöðvar vítt
og breitt um Sovétríkin. Það var
þó ekki fýrr en upp úr 1960 sem
Sovétmenn fóru í raun og veru að
stunda rannsóknir á efnavopnum,
en síðan þá hefur æ meiri áhersla
verið lögð á þennan hluta vopna-
framleiðslunnar. Ein stærsta
rannsóknarstöð á sviði efnavopna í
Sovétríkjunum er kölluð Shikhany
(The Shikhany Chemieal Warfare
Proving Ground). Hún var byggð í
kringum 1925 þar sem Sovétmenn
stunduðu lítillega prófanir á efna-
vopnum fram að lokum fjórða
áratugarins.
Sovétmenn geyma efnavopn sín
í vörugeymslum og gámum víðsveg-
ar um Sovétríkin. Frá mörgum
stöðvum liggja járnbrautarteinar
þannig að hægt er á skömmum tíma
að flytja mikið magn efnavopna til
hafna eða flugstöðva. Þeir hafa
þróað margar gerðir efnavopna og
aðferðir við að nota þau. Þeir hafa
einnig tilbúnar áætlanir um notkun
á ófriðartímum og í þeim felast
árásir á:
• kjamorkustöðvar
• flugstöðvar
• flotastöðvar
• stjórnstöðvar á landi
• geymslustöðvar og vöruskemmur
• fangabúðir
• stórskotasveitir
• jurtir og dýr
• menn, t.d. landgönguliða eða
almenning
Hluti sovésku efnastöðvanna er
nú þegai' tilbúinn ef til átaka kem-
ur. Ef sovésk hersveit þyrfti að
fara yfir svæði sem hefði þegar
verið úðað t.d. með eiturgasi, hafa
Sovétmenn þjálfað sérstakar hjálp-
arsveitir sem aðstoða hersveitir með
hlífðarfötum, grímum og öðru til
að komast yfir hættusvæði. Ef sov-
ésk herdeild hefur orðið fyrir árás
með efnavopnum, hafa Sovétmenn
einnig ýmis sérhönnuð tæki sem
hreinsa öll hergögn svo sem skrið-
dreka, byssur, farartæki o.s.frv.
Eitt slíkt tæki er TMS-65-þotan
sem ætluð er til úðunar með eitur-
Hallgrímur Óskarsson
„Sovétmenn hafa lengi
notað ýmis efnavopn í
styrjöldum sem þeir
hafa háð. Má þar sem
dæmi nefna í Afganist-
an, Laos, Víetnam og í
Kambódíu. Vopn þessi
eru hryllileg og af leið-
ingar þeirra enn verri.“
eyðandi lausn yfir ákveðið svæði.
Frá því að Sovétmenn byijuðu
að þróa efnavopn hafa þeir fram-
leitt margai- tegundir til mismun-
andi notkunar. Þær gerðir
efnavopna sem vitað er með vissu
að Sovétmenn hafi framleitt eru
eftirfarandi:
• ýmis taugaefni t.d. sarín og
sóman
• eiturefni sem brennir hörund
manna og dýra við snertingu
(mústrad, Lewis-sýrur og
blanda af báðum efnum).
Mústrad var nokkuð notað í
fyrri heimsstyijöldinni.
• hydrogen síaníð
• fosgen
• einnig tvö önnur efni sem hafa
ekki verið nafngreind en orsaka
meðvitundarleysi í eina klst. eða
meira. Þessi efni hafa mikið
verið notuð í Afganistan.
Flest sovésk skotvopn, allt frá
fallbyssum og til langdrægra flug-
skeyta, eru þannig samræmd að
auðvelt er að nota hvaða efnavopn
(sem eru til í formi flugskeyta) sem
fyrirliggjandi eru, hvort sem um er
að ræða sjóher, landher, eða flug-
her. Sovétmenn hafa nú þegar á
tölvutæku formi tilbúnar upplýsing-
ar sem notaðar eru til útreikninga
við árásir með efnavopn. Þar er
hægt að segja til um á skömmum
tíma hvaða efnavopn skulu notuð,
hvernig skal þeim skotið/dreift mið-
að við veðuraðstæður og ástand á
vígvelli o.fl. Sovétmenn halda einn-
ig áfram að þróa stærri og öflugri
kerfi fyrir notkun efnavopna, sem
eru einnig nákvæmari og öruggari
í notkun.
Vinnslu efnavopna í Sovétríkjun-
um er stjómað af hópi (Headquart-
ers Chemical Troops) í sovéska
vamarmálaráðuneytinu. Hún er
eins og áður hefur komið fram mjög
víðtæk og t.d. em um 45.000 her-
menn í landher Sovétríkjanna sem
sjá einungis um efnavopnin. Fjöldi
þessi sem og á öðmm stöðum er
talinn munu tvöfaldast á ófriðartím-
um.
Talið er, að þeir, sem annast
framleiðslu og athuganir á efna-
vopnum, hafi einkum þessum
skyldum að gegna:
• tæknileg ráðgjöf og þjálfun not-
enda í heijum Sovétríkjanna
• sjá um áætlanir vegna rann-
sókna og þróunar
0 tryggja framleiðslu og ömgga
geymslu efnavopna
• annast nægar varnir gegn efna-
vopnum
• æfingar hermanna til undan-
komu á eitmðu svæði
• starfræksla skóla fyrir efna-
verkfræðinga og aðra þá sem
um framleiðslu efnavopna munu
sjá í framtíðinni.
Nú í dag em um 200 staðir víðs
vegar um Sovétríkin sem útbúnir
hafa verið sérstaklega fyrir æfingar
með efnavopn, sem eru byggðar upp
á raunvemlegri notkun efnavopna.
Enn eitt vamartæki Sovétmanna
gegn gagnárás með efnavopnum
em eins konar verndarsíur fyrir
skip, bíla og skriðdreka sem gera
það að verkum að þeir sem í farar-
tækjunum em geta athafnað sig
að fullu leyti í umhverfi þar sem
efnavopn hafa verið notuð.
Af þessu öllu sést að kraftur
sovéskra efnavopna er mjög mikill.
Á þessu sviði em Sovétmenn lang
fremstir í heiminum en það getur
ávallt skapað hættu ef ein þjóð
skarar svo langt fram úr á sviði
hemaðar. Það getur telft friði í
tvísýnu. Því er nauðsynlegt svo að
hemaðarlegt jafnvægi stórveldanna
haldist, að eitthvað mótvægi fáist
frá hendi Bandaríkjanna. Það er
því að vissu leyti góð frétt að
Bandaríkjamenn hafi ákveðið að
heija framleiðslu efnavopna á ný
eftir u.þ.b. 18 ára hlé, þó að maður
voni heils hugar að notkun þeirra
verði bönnuð af báðum stórveidun-
um í framtíðinni.
Höfundur stundar nám á eðlis-
fræðibraut Menntaskólans á
Akureyrí.
4
| raðauglýsingar — radauglýsingar — radaugiýsingar
Skipasala Hraunhamars
Til sölu 15 tonna plastbátur byggður í Bret-
landi 1983 með stórri og góðri vél og vel
búinn tækjum.
Vantar 20-100 tonna báta á söluskrá.
Sölumaður Haraldur Gíslason, kvöld- og
helgarsími 51119.
Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72, Hf.,
sími 54511.
húsnæöi öskast |
íbúð óskast
Ung hjón utan af landi, sem bæði eru í námi
og eiga eitt barn óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð
til leigu.
Upplýsingar í síma 616235 eftir kl. 18.00.
Skrifstofuhúsnæði m. síma
í Reykjavík
óskast í eina viku frá og með 18. ágúst-22.
ágúst. Tilboð sendist augldeild Mbl. strax,
merkt: „S — 18-22“.
Skrifstofuhúsnæði
- Miðbær
Til leigu er nýtt skrifstofuhúsnæði í mið-
bænum alls 262 fm. Húsið er jarðhæð,
miðhæð og ris sem leigist út sem ein heild
eða í hlutum.
Tilboð óskast sent á augldeild Mbl. eigi síðar
en þriðjudaginn 19 ágúst merkt: „L — 291 “.
Dregið
hefur verið
í happdrætti Landsmóts hestamanna 1986.
Vinningar komu á miða nr.:
6072 — hestur altygjaður.
5000 — ferðavinningur frá Úrval.
667 — hnakkur og beisli.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Lands-
sambands hestamanna, Bændahöllinni í
símum 91-19200 og 29899.
Framkvæmdanefndin.
Útboð
2. áfangi íþróttahúss
á Siglufirði
Tilboð óskast í að reisa límtrésboga, ganga
frá vegg- og þakklæðningu að utan, að ein-
angra húsið og ganga frá vegg- og loftklæðn-
ingu að innan.
Boðið er upp á tvo byggingarmöguleika.
Annars vegar uppbyggingu á hefðbundinn
hátt en hins vegar framleiðslu og frágang á
vegg- og þakeiningum.
Áður auglýstur tilboðsfrestur er framlengdur
til mánudagsins 25. ágúst nk. og verða tilboð
opnuð þann dag kl. 14.30 í Ráðhúsi Siglu-
fjarðar.
Tilboðsgögn eru til afhendingar á bæjarskrif-
stofunum á Siglufirði og á Verkfræði- og
teiknistofunni sf., Kirkjubraut 40 á Akranesi.
Skilatrygging er kr. 5000.
Siglufjarðarkaupstaður.