Morgunblaðið - 15.08.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
47
Urslitum bikarkeppninnar
f restað vegna kæru á ÍA?
- hvert kærumálið hefur rekið annað á undanförnum árum
vegna óljósra reglna um félagaskipti og leikbönn
VALSMENN funduðu í gær um
það hvort þeir ættu að kæra
bikarundanúrslitaleikinn á
Akranesi og þó engin formleg
ákvörðun hafi verið tekin bendir
atlt til þess að Valur leggi fram
kæru í málinu í dag. Það veldur
því að úrslitaleikurinn í Mjólkur-
bikarnum, sem fyrirhugaður er
31. ágúst, kemst f uppnám, því
litlar líkur eru á því að hægt
verði að dæma endanlega f
málinu á tveimur vikum. Að
minnsta kosti ein vika fer í að
fjalla um málið í héraðsdómi á
Akranesi og að öllum líkindum
ekki skemmri tfmi í að fjalla um
málið hjá dómstóli ÍSÍ verði því
áfrýjað, en það má heita öruggt
samkvæmt venju. Og þar sem
félögin þurfa að minnsta kosti
þrjá til fjóra daga til að undirbúa
sig fyrir úrslitaleik sem þennan
má telja ólíklegt að úrslitaleik-
urinn geti fari fram á fyrirfram
ákveðnum tfma.
Mál Póturs Péturssonar er því
miður ekki einsdæmi. Hvert
kærumálið hefur rekið annað í
íslensku knattspyrnunni á undan-
förnum árum og varpað á hana
algjörlega óþörfum skugga. Regl-
ur sem eru jafnóljósar og raun
beri vitni eru einfaldlega ekki
nógu góðar reglur. Þetta á ekki
aðeins við um reglurnar um fé-
lagaskipti heldur ekki síður um
þær reglur og starfsaðferðir sem
viðhafðar eru við að setja menn
í leikbönn.
Kærumál ár eftir ár
Sumarið 1982 logaði knatt-
spyrnan hér í deilum vegna máls
Alberts Guðmundssonar, sem
kom frá Kanada og lék tvo leiki
með Val. Valsmenn telja nú að
það mál sé mjög keimlíkt Péturs-
málinu og víst er að þeir höfðu
í höndunum nákvæmlega sams-
konar heimild frá KSI um að
Albert væri löglegur og Skaga-
menn hafa um Pétur núna. En
Valur tapaði kærunum — og fjór-
um stigum — og glötuðu þar með
öllum möguleikum á að ná topp-
sætum í deildinni, hafi hann verið
fyrir hendi fyrir.
Sumarið 1983 gerðu Vest-
manneyingar og Breiðabliks-
menn jafntefli í leik í fyrstu deild.
Fyrir einhver óljós mistök, til
komin vegna undarlegs orðalags
á skeyti frá KSÍ, létu forráða-
menn Eyjaliðsins Þórð Hallgríms-
son leika þennan leik, en hann
hafði verið dæmdur í leikbann
sem hann átti að taka út í hon-
um. Þetta hefðu Eyjamenn að
sjálfsögöu aldrei gert ef skilaboð-
in frá KSÍ um leikbannið hefðu
náð til þeirra sem völdu í liðið,
því niðurstaðan var sú að þeir
voru dæmdir til að leika i annarri
deild á næsta keppnistímabili á
eftir. Klúðrið kostaði þá fyrstu-
deildarsæti.
Knattspyrnuáhugafólki er
eflaust i fersku minni „Jónsmál-
ið" svokallaða, en það var ekki
ósvipað Vestmannaeyjamálinu.
Skeyti um að Jón G. Bjarnason
ætti að taka út leikbann í fyrsta
leik KR sumarið 1985 var sent
heim til formanns knattspyrnu-
deildarinnar, sem var erlendis.
Þróttur kærði leikinn og vann
málið eftir að það hafði velkst í
dómskerfi íþróttahreyfingarinnar
mestallt sumarið.
í ár eru það svo Sigurðarmál-
ið, sem er enn eitt leikbanns-
klúðrið, og Pétursmálið, sem er
félagaskiptamál. Óþarft er að
rekja þau hér, en niðurstöður
dómstóla um þau skipta alveg
sköpum um það hvernig staðan
í fyrstu deild verður þegar upp
er staðið — á botni fyrstu deild-
ar, á toppi fyrstu deildar og í
bikarkeppninni. Ef Víðir vinnur
málið, sem flestir telja nánast
öruggt, þá eru þeir nánast komn-
ir úr fallhættu, og um leið verða
möguleikar Keflvíkinga á Evr-
ópusæti hverfandi. Ef FH vinnur
kæruna gegn ÍA vænkast hagur
þeirra í botnbaráttunni sömuleið-
is verulega, en Skagamenn sitja
eftir um miðja deild. Og ef Valur
kærir og vinnur málið þá skekur
það sjálfan úrslitaleik bikar-
keppninnar.
Reglunum verður
að breyta
Öll þessi kærumál koma til
vegna þess að starfshættir eða
reglur KSÍ eru óljósar. En þaö
væri of auðveldlega sloppið hjá
félögunum að skella allri skuld-
inni á KSÍ, því það eru auðvitað
félögin sem mynda KSÍ, fulltrúar
félaganna velja og sitja í stjórn
og fulltrúar allra félaganna sam-
þykkja reglurnará aðalfundi KSÍ.
En væri ekki ráð að stokka
reglurnar um félagaskipti algjör-
lega upp og gera þær miklu
einfaldari. Hvernig væri að leyfa
frjáls félagaskipti á hverju vori
t.d. til 1. júlí, og loka þá á öll
félagaskipti — svipað og gert er
víöa erlendis. Leikmenn gætu þá
skipt um félög framan af keppn-
istímabilinu og fyrir það með t.d.
þriggja daga biðtíma, i stað
tveggja mánaða, eins og nú.
Varðandi þá sem leika erlendis —
og erlenda leikmenn: Mætti ekki
einfaldlega leyfa öllum að leika
hér sem vilja, svo framarlega
sem þeir hafi dvalið hér á landi
í t.d. 3 vikur, til að tryggja að
ekki verði keyptir hingað leik-
menn í einstaka leiki. Með öðrum
orðum opna dyrnar fyrir atvinnu-
mönnum sem hér vilja dvelja og
leika.
Með þessu móti myndi reyna
meira á þroska félaganna, þjálf-
aranna og leikmannanna, og
þetta myndi eflaust leiða til þess
að félögin gerðu einhverskonar
formlega samninga við leikmenn
sína strax að vori. Það væri
tvímælalaust af hinu góða. Lítil
hætta væri á að leikmenn stund-
uðu mikið flakk á milli liða eftir
að keppnistímabilið byrjaði —
þeir sem reyndu það fengju fljót-
lega á sig slæmt orð og ólíklegt
að félög, og þeir leikmenn sem
fyrir eru, kærðu sig um slíka
menn. Með þvi að loka á öll fé-
lagaskipti á miðju sumri væri
síðan lokað fyrir þann möguleika
að lið kaupi til sín leikmenn i ein-
staka mikilvæga leiki þegar nær
dregur úrslitum og taugaspenn-
an eykst.
-GA
1. deild kvenna:
Valur
tryggði
sér
titilinn
VALSSTÚLKURNAR tryggðu sér
endanlega íslandsmeistaratitil-
inn i knattspyrnu kvenna þegar
þær sigruðu lið KR auðvedlega í
KR-vellinum f gærkvöldi með
fimm mörkum gegn engu.
Valur hefur á að skipa áberandi
besta kvennaliði landsins á þessu
sumri, og hefur mikla yfirburði í
deildinni. Það var aldrei spurning
í leiknum í gærkvöldi hvort liðið
myndi sigra. Valsstúlkurnar sóttu
allan tímann en þurftu þó aöstoð
KR-inga við fyrsta markið — sjálfs-
mark sem kom undir lok fyrri
hálfleiks. í þeim síðari gerði Ingi-
björg Jónsdóttir tvö mörk, Ragn-
heiður Víkingsdóttir eitt og
Bryndsís Valsdóttir eitt.
Þau keppa
„fyrir
ísland
FJÖGUR íslensk ungmenni taka
þátt í Norðurlandakeppni ungl-
ingalandsliða, sem fram fer í
Kristiansand i Noregi 23.-24.
ágúst nk. ísland og Danmörk tefla
fram sameiginlegu liði.
Þau sem náðu tilskildum lág-
marki og keppa af hálfu íslands
eru: Svanhildur Kristjónsdóttir
UMSK, Gunnlaugur Grettisson KR,
Sigurjón Valmundsson UMSK og
Steinn Jóhannsson KR.
• Grímur og Ólafur, Selfyssingarnir sem æfðu með Essen.
Gáfu Essen
8 kg stein!
TVEIR ungir handknattleiksmenn
á Selfossi, þeir Grímur Hergeirs-
son og Ólafur Einarsson, dvöldu
á dögunum í Vestur-Þýskalandi
við æfingar hjá Tusem Essen, lið-
inu sem Jóhann Ingi Gunnarsson
þjálfar, og Alfreð Gíslason leikur
með.
Að sögn Jóhanns Inga stóðu
þeir sig mjög vel við æfingarnar,
en sérstaka athygli leikmannanna
og framkvæmdastjóra Essen vakti
gjöf sem þeir höfðu meðferðis að
heiman. Það var átta kílógramma
þungur steinn sem í voru grafin
þakklætisorð til félagsins. Fram-
kvæmdastjóri Essen, sem yfirleitt
þiggur ekki gjafir sem þessar, var
svo hrifinn að hann tók steininn
heim til sín, og leysti Selfyssingana
út með gjöfum.
Fjölmörg fyrirtæki á Selfossi
tóku höndum saman go styrktu
þá Grím og Ólaf til fararinnar, en
þeir eru meðal allra efnilegustu
handknattleiksmanna bæjarins.
Framhaldsaðalfundur
Aðalfundur Knattspyrnufélags Vals verður haldinn
að Hlíðarenda fimmtudaginn 21. ágúst kl. 20.00.
Fundarefni: Lagabreytingar.
Stjórnin
Opna (&£(l'(r)c$í mótlð
fyrsta opna golfmót
landsins 25 ára
Opna Coca Cola mótið verður
haldið 16. og 17. ágúst hjá Golf-
klúbbi Ness. Leiknar verða 36
holur með og án forgjafar.
Sá þátttakandi er fyrstur fer holu
í höggi á 3. braut hlýtur í verð-
laun 200 kassa af hressandi Coca
Cola. Einnig verða þeim veitt
verðlaun er slá næst holu á 3.
braut og lengsta teigarhögg á 2.
braut og verða þau bæði veitt í
kvenna og karlaflokki.
Skráning er þegar hafin og fer
fram í öllum golfklúbbum
landsins. _
Þátttaka er opin ölium kylfingum,
innlendum sem -erlendjafn sam-
kvæmt reglugerð St. Amlrews, en
takmarkast þó við 9§rkeppendur.
skrAsett vörumeru
*