Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 7
wn T8TJ0Á .rsr ír?roA(7rJTKvr? oMAjaiíuoíroM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
3
7
200 ára afmæli Reykjavíkur:
Sænskur sérfræðingur að-
stoðaði við flugeldasýningu
Heildarkostnaður rúmar 500 þúsund krónur
SÆNSKUR flugeldasérfræðingur, Björn Söderberg, var kvaddur
sérstaklega hingað til lands til að vera Hjálparsveit skáta innan
handa við framkvæmd flugeldasýningarinnar í lok hátiðardagskrár
á Arnarhóli á 200 ára afmæli Reykjavíkur á mánudagskvöld. Hefur
Söderberg starfað við flugeldasýningar undanfarin 20 ár og sett
upp fjölmargar stórsýningar víða um heim.
Björn Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparsveitar skáta,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að Hjálparsveitin hefði verið í við-
Ráðist
á fullorð-
inn mann
skiptum við sænska fyrirtækið
„Hanson Phyro Teknik" í Gauta-
borg síðan á þjóðhátíðarárinu 1974,
en þá var Hjálparsveitarmönnum
einnig falið að annast framkvæmd
flugeldasýningar. Að sögn Bjöms
var sú sýning hin önnur stærsta sem
sett hefur verið upp hér á landi, á
eftir sýningunni nú á mánudags-
kvöld. Síðan þá hefði Hjálparsveitin
átt mikil viðskipti við hið sænska
fyrirtæki og hefði sænski sérfræð-
ingurinn komið hingað á þess
vegum.
Björn Hermannsson sagði að
heildarkostnaður við flugeldasýn-
inguna nú hefði verið á bilinu 500
til 600 þúsund krónur og hefðu
Hjálparsveitarmenn unnið allt sitt
í sjálfboðavinnu. „Við gerðum ítar-
lega könnun á verði og tilboðum frá
fyrirtækjum víða um heim og var
þá ljóst að hagstæðast yrði að halda
áfram viðskiptum við sænska fyrir-
tækið. Vegna viðskiptatengsla
okkar við það náðum við kostnaðin-
um langt niður fyrir það sem eðli-
legt er á þessum markaði, en sýning
eins og þessi sem við sáum á mánu-
dagskvöldið kostar í raun vel yfir
eina milljón króna. Við emm því
mjög ánægðir með hvemig til tókst
og erum stoltir af þessari sýningu,"
sagði Bjöm Hermannsson.
Morgunblaðið/Brynjar Ragnarsson
Kveiktí við Sundahöfn
Af og til er kveikt í rusli sem safnast inn á lóð Sindrastáls við
Sundahöfn. Er þetta gert til að eyða öllu því sem brunnið getur
svo ekkert standi eftir nema jámhrúgur einar. Borgarbúar
hafa gjarnan flykkst að brennu þessari i þeirri trú að hér væri
um stórbrana að ræða. En því er nú sem betur fer á annan veg
farið.
MAÐUR um sjötugt var barinn
og rændur seðlaveski er hann
var á gangi í Austurstræti á
þriðja tímanum í fyrrinótt. Hlaut
hann höfuðáverka og var fluttur
á slysadeild, en meiðsli hans voru
ekld talin alvarleg.
Árásarmaðurinn, 25 ára gamall
Reykvíkingur, náðist skömmu síðar
skammt frá árásarstaðnum. Að
sögn lögreglu var hann ekki ölvað-
ur, en talinn vera í annarlegu
ástandi og var hann fluttur í fanga-
geymslur lögreglunnar.
Fjögur tilboð
í Víðishúsið
FJÖGUR tilboð bárast í verkstæð-
ishús þrotabús Trésmiðjunnar
Víðis hf. í Kópavogi, en frestur
til að skila inn tilboðum rann út
hinn 15. ágúst síðastliðinn. Iðn-
þróunarsjóður, Iðnaðarbankinn
og Iðnlánasjóður keyptu húsið á
nauðungaruppboði í maí sl. fyrir
73,5 milljónir og auglýstu þessir
aðilar eftir tilboðum í húsið.
Steingrímur Eiríksson, lögfræð-
ingur Iðnaðarbankans, sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekki
væri unnt á þessu stigi að greina
frá tilboðsaðilum né tilboðsfjár-
hæðum, þar sem enn hefði ekki verið
fjallað um tilboðin af þeim aðilum
er málið varðar. Steingrímur sagði
að búist hefði verið við fleiri tilboðum
í húsið, en ekki hefði verið tekin
ákvörðun um hvort tilboðsfrestur
yrði framlengdur eða hvort eitthvert
þeirra tilboða, sem borist hefðu, teld-
ist fullnægjandi.
Mikið um
að vera á
flughátíðinni
Á FLUGHÁTÍÐINNI sem nú
stendur yfir var margt um að
vera í gær. Má þar nefna listflug
Magnúsar Nordal, svifflug á veg-
um Svifflugfélagsins, fallhlífar-
stökk var í gangi og Doraier
sýndi vél sína, sem gagngert kom
hingað vegna þess að nú er
minnst 50 ára afmælis flugs á
fslandi.
I dag verður listflug yfir
Reykjavíkurflugvelli kl. 17.30 og
ef til vill oftar, svifdrekamenn sýna
listir sínar og fallhlífastökkvarar
halda áfram sinni iðkan og Domier
verður áfram sýnd. Á föstudaginn
verður svipuð dagskrá auk þess sem
módelmenn sýna tæki sín. Aðal-
hátíðin verður síðan á laugardag
svo fremi sem veður leyfir, annars
á sunnudag.
Ritaraskólinn tekur til starfa 8. september.
Kennt er alla virka daga vikunnar,
þrjár klukkustundir í senn, og boðið
upp á morgun- og dagtíma. Markmið
skólans er að útskrifa sjálfstæða
starfskrafta sem hafa tileinkað sér
af samviskusemi það námsefni
sem skólinn leggur til grund-
vallar, en kröfur skólans til
sinna nemenda eru ávallt
miklar. Til þess að ljúka
prófi frá Ritaraskólanum
þarf lágmarkseinkunn-
ina 7.0 í öllum
námsgreinum.
Námsefni á íslenskubraut:
□ íslenska.............................. 76 klst.
□ bókfærsla ............................ 72 klst.
□ reikningur ........................... 36 klst.
□ tölvur .............................. 39 klst.
□ vélritun ............................. 24 klst.
□ tollur ............................... 33 klst.
□ lög og formálar....................... 12 klst.
□ enska ................................ 21 klst.
□ skjalavarsla .......................... 9 klst.
□ verðbréfamarkaður...................... 3 klst.
Námsefni á enskubraut:
□ enska ............................144 klst.
□ verslunar-enska.................. 144 klst.
□ vélritun ......................... 24 klst.
□ tölvur ........................... 39 klst.
331 klukkustunda sérmenntun
fyrir nútíma skrifstofufólk.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 10004 OG 21655
ANANAUSTUM 15
MÁLASKÓLl
RITARASKÖLI