Morgunblaðið - 21.08.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
31
Mynd/Guðlaugur Sigurgeirsson
íbúar við Túngötu snæða matinn sem þeir grilluðu nú á dögunum þegar þeir efndu til útihátiðar
á götunni.
íbúarTúngötu
halda útihátíð
Vestmaunaeyjum.
IBUAR við Túngötuna tóku sig til laugardaginn 16. ágúst og efndu
til mikillar útihátíðar í götunni á einu veðursælasta kvöldi sumars-
ins. Fengu íbúarnir leyfi til að loka götunni þessa kvöldstund
fyrir allri bílaumferð og undi fólkið sér í góðri stemmningu fram
til miðnættis.
Guðlaugur Sigurgeirsson, einn
íbúanna við Túngötuna, tjáði
fréttaritara Morgunblaðsins að
hugmyndin að þessari útihátíð
hefði kviknað í nágrannaspjalli á
Þjóðhátíðinni. Hefði þar verið fast-
mælum bundið að halda hátíðina
aðra helgi þaðan í frá, því þá yrði
veður örugglega gott til slíkra at-
hafna. Og það stóðst, veðurblíðan
á laugardaginn var einstaklega
mikil, blankalogn og hiti. Guðlaug-
ur sagði að þátttaka íbúanna hefði
verið ótráleg góð, allir sem á ann-
að borð voru í bænum þessa helgi
hofðu mætt, alls 58 manns. 17 hús
eru við götuna, íbúarnir mættu
með grillin sín og tóku til við að
grilla stórsteikur og pylsur fyrir
Mrnin. Varðeldur var tendraður
og upphafinn mikill söngur með
góðu glensi. Sagði Guðlaugur að
fólk hefði glaðst saman í góðum
félagsskap fram að miðnætti að
hver hélt glaður til síns heima.
Hefði almenn ánægja verið með
þessa u|>pákomu.
-hkj
Jacques Chapuis leik-
ur „Myndir á sýningu“
SVISSNESKI píanóleikarinn
Jaques Chapuis heldur í kvöld,
fimmtudag, tónleika í sal Tónlist-
arskólans í Reykjavík, Skipholti
33, kl. 20:30. Chapuis mun þar
leika tónverkið „Myndir á sýn-
ingu“ eftir Modest Moussorgsky
og jafnframt talar hann um verk-
ið.
Jacues Chapuis heldur um þessar
mundir námskeið í tónlistaiuppeldi
fyrir íslenska tónlistarkennara í
Félagsstofnun stúdenta.
Chapuis hlaut menntun sína í
Sviss en er nú búsettur í Frakk-
landi. Hann kennir eftir aðferð
Edgars Willem og veitir forstöðu
tónlistarskóla í Lyon sem byggir á
þeirri aðferð. Auk þess sem hann
starfar sem píanóleikari kennir
hann við Konservatoríið í París og
heldur árlega fjiilmiirg námskeið
víða um heim.
Norrænir verkalýðs-
foringjar í Reykjavík
STJÓRN Norræna verkalýðs-
sambandsins, Nordens Fackliga
Samorganisation, heldur fund í
Reykjavík í dag. Á fundinum
eru formenn alþýðusambanda
allra Norðurlandanna og nokkr-
ir embættismenn, alls 28 útlend-
ingar auk nokkurra Islendinga.
Aðalefni fundarins í dag er
stefna í launamálum á Norður-
löndum og hefur Stig Malm,
formaður sænska alþýðusam-
bandsins (LO), framsögu um það
mál. Einnig verður fjallað um ut-
anríkismál, sérstaklega hugsan-
legar sameiginlegar aðgerðir gegn
stjórninni í Suður-Afríku.
í stjórn NFS eiga sæti af ís-
lands hálfu þeir Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASI, og Kristján
Thorlacius, formaður BSRB.
Stjórnunarfélag íslands hefur ákveðið að efna til alhliða endurmenntunarnám-
skeiðs. Námskeiðið er einkum hugsað fyrir þa sem hyggjast breyta um starf eða
eru að hefja störf að nýju eftir lengra eða skemmra hlé. Fjölbreytt námsefni og
mjög hæfir leiðbeinendur sem eru sérfræðingar hver á sínu sviði.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja afla sér hagnýtrar þekkingar á sviði verslunar
og viðskipta. Æskilegt er að þátttakendur hafi góða grunnmenntun og/eða
starfsreynslu.
Kennsla skiptist í 4 svið:
1. Sölu- og markaðssvið 2.
a. Sölutækni a.
b. Markaðssókn b.
c. Skjalagerð c.
d. íslensk haglýsing d.
e.
3. Tölvusvið f.
a. Grunnnámskeið á tölvur
b. Ritvinnsla 4.
c. Gagnagrunnur a.
d. Áætlanagerð b.
Stjórnunarsvið
Stjórnun og samskipti við starfsmenn
Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
Viðtalstækni
Verðútreikningar og tilboðsgerð
Bókfærsla
Skjalavistun
Málasvið
Ensk verslunarbréf
Enska í viðskiptum og verslun
MEGINÁHERSLA VERÐUR LÖGÐ Á TVÖ FYRSTU SVIÐIN
Kennsla hefst 8. september nk. og stendur til 24. október, alls 7 vikur.
Kennt verður alla virka daga frá kl. 8.00 til 15.00
í húsakynnum SFÍ að Ánanaustum 15.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
ÍSÍMA 91-621066
Stjórriunðrfélag
íslands
Ánanaustum 15 • Simi: 6210 66