Morgunblaðið - 21.08.1986, Síða 41
þegar Einar missti heilsuna, en
hann var þá innan við sjötugt, og
þau höfðu þá búið í tæp 40 ár.
Halla sýndi best hver maður bjó í
henni með því hve frábærlega hún
annaðist mann sinn í langvarandi
og erfiðum veikindum hans, en
hann andaðist í október 1984 tæpra
76 ára. Hans var sárt saknað af
öllum aðstandendum og vinum, en
mestur var þó missirinn hjá Höllu,
en hún á þó áreiðanlega dýrmætar
minningar, sem hlýja huganum og
styrkja geðið á erfiðum stundum.
Ég vil einnig þakka henni hve
vel hún annaðist móður mína
síðustu árin sem hún lifði og einnig
vil ég þakka fyrir mig og okkur
hjónin og bömin okkar, alla tíð til
þessa dags.
En eins og ég sagði hér áður,
þá hefúr Höliu auðnast að njóta
mikillar hamingju í lífinu á margan
hátt. Hún giftist mikilhæfum manni
sem dáði hana og elskaði og þeim
tókst í sameiningu að byggja upp
heimili sem var sannkallaður rausn-
argarður og jafnframt gjöfult
menningarheimili, sem bömum
þeirra og heimilisvinum öllum þykir
gott að hugsa til með gleði og þakk-
læti.
Kæra Halla, þakka þér þitt góða
ævistarf og ég trúi því að hamingj-
an fylgi þér áfram um mörg ókomin
ár, því það átt þú svo sannarlega
skilið.
Hjalti Gestsson
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
41
Holland:
Heróínsmygl
í sovésku skipi
Rotterdam, AP.
SAMKVÆMT lögregluyfirvöld-
um ^ var 220 kg af afgönsku
heróíni smyglað inn til Hollands
með sovésku skipi, en þau vildu
ekki gefa upp heiti þess, þar sem
það kynni að tefja rannsókn
málsins. .
Frá þessu var greint á mánudag,
samdægurs skýrði dagblaðið De
Telcgraaf frá því að skipið nefndist
Tomson kapteinn og væri frá Riga.
I skrám tryggingafélagsins Lloyd’s
í London var það nafn þó ekki að
fmna.
Lögreglan sagði að enginn úr
áhöfn sovéska skipsins hefði verið
handtekinn eða yfirheyrður, enda
skipið látið úr höfn þegar upp
komst.
Heróínið var falið í gámum, en
það kom frá Afganistan. Vitað er
að það var flutt um borð í bifreiðum
og járnbrautarvögnum þaðan til
Riga, en ekki er víst hvar eða hve-
nær það var falið í gámunum.
Hc-óínið er talið vera um 900 millj-
óna ísl. króna virði.
Sovéskar hersveitir gerðu árás á
Afganistan árið 1979 og hefur það
verið hemumið æ síðan.
IKEA ÚTSALAN HEFST í DA6
Pakistan:
ALLT AÐ HELMIN6S AFSWTTUR
Fjallgöngu-
menn frjósa í hel
Islamabad, Pakistan, AP.
SEX fjallgöngumenn, sem hugð-
ust klífa næst hæsta fjallstind í
heimi, frusu í hel eftir að hafa
verið fastir í snjóstormi í viku.
Tveir Austurríkismenn komust
lifandi til byggða og skýrðu frá
afdrifum félaga sinna.
Tveir Austurríkismenn, tveir Pól-
verjar og tveir Bretar týndu lífi á
fjallstindinum K2 í Himalajafjöllum,
sem er næst hæsti tindur jarðar á
eftir Everest-fjalli.
Leiðangursmennirnir átta lentu í
snjóstormi þann sjöunda þessa
mánaðar og neyddust þeir til að
láta fyrir berast í búðum, sem þeir
komu upp. Stormurinn stóð yfir í
rúma viku. Matarbirgðir þeirra
þraut en auk þess þjakaði frost og
súrefnisskortur mennina. Fimm
þeirra létust í búðunum.
Austurríkismennimir tveir og
pólskur félagi þeirra ákváðu að
freista þess að komast til byggða.
Pólveijinn lét lífið á leiðinni en fjall-
göngumenn frá Suður-Kóreu fundu
Austurríkismennina illa á sig
komna. Þyrla frá flugher Pakistans
flutti mennina til Skardu í norður-
hluta landsins.
Berlín:
Tveir hermenn
flýja í frelsið
Berlín, AP.
TVEIR austur-þýskir landamæra-
verðir komust yfir Berlínarmúrinn
alræmda á sunnudagskvöld. Þetta
er fyrsta flóttatilraunin sem vitað
er um frá því að afmælis múrsins
var minnst síðastliðinn miðviku-
dag.
Verðirnir tveir stóðu vörð í varð-
tumi í Austur-Berlín, en til hans sést
ekki frá öðrum varðtumum. Fyrir
þremur árum flúðu aðrir tveir verðir
á sama stað við múrinn.
I flóttanum á sunnudag biðu verð-
imir færis og stóð annar á öxlum
hins, en rétti síðan félaga sínum
hjálparhönd þegar upp var komið.
Þá hentu þeir vélbyssum sínum og
skammbyssum yfir múrinn og stukku
yfir í frelsið.
Bandaríkin:
Slanga á bata-
vegi eftir aðgerð
t
Gainesville, Flórída, AP.
RÚMLEGA metra löng slanga gekkst undir uppskurð á föstu-
dag og voru fjarlægðar tvær 15 kerta ljósaperur, sem hún hafði
gleypt.
Sá sem framkvæmdi uppskurð-
inn sagði hann hafa gengið að
óskum. Aðspurður sagðist hann
hafa nokkra reynslu af aðgerðum
sem þessari því hann hefði fyrir
fáeinum ámm skorið upp slöngu,
sem gleypt hafði tvær golfkúlur.
Hjón, sem stunda hænsnarækt,
fundu slönguna og sáu þegar tvö
stór kýli á kvikindinu. Þau þreifuðu
á því og sáu fljótt hver meinsemd-
in var. Hjónin nota 15 kerta pemr
í hænsnakofanum og er þeim
fleygt út í garð þegar þær em
útbmnnar. Bóndinn telur líklegt
að slangan hafi ruglast á ljósaper-
unum og hænueggjum, sem munu
vera mikil eftirlætisfæða skrið-
kvikinda ýmiss konar.
Fjölmargir nemendur í dýra-
lækningum fylgdust með aðgerð-
inni og gáfu þeir slöngunni nafnið
„G.E." eftir hinu þekkta fyrirtæki
„General Electric".
Innan þriggja vikna mun slang-
an aftur geta tekið til við fyrri
iðju og skriðið um berangur jarðar.
Leöursófar
Furu hillusamstæóur
Sumar húsgögn
Hnotubrúnar hurðir
á eldhúsinnréttingar
Furuhurðir
é eldhúsinnréttingar
Grindur í grunna skápa
Hnífapör
Álpottar
Út itsgölluð húsgögn
50 °/ afsláttur
30 /o afsláttur
30 í afsláttur
50 °/o afsláttur
50 /o afsláttur
30 / afsláttur
40 / afsláttur
40 / afsláttur
50 /afsláttur
0PIÐTIL KL.20 FÖSTUDA6
OSMIA