Morgunblaðið - 21.08.1986, Page 56
SEGÐU
RNARHÓLL
ÞEGAR
ÞÚ EERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833------
wgmiÞliifetfe
FIMMTUDAGUR 21. AGUST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Fjögur félög í Hafnarfirði semja við bæinn:
Hópur bæjar-
starfsmanna
fær 10% hækkun
FELAGAR í fjórum verkalýðsfélögum í Hafnarfirði, sem vinna
hjá bænum eða stofnunum hans og fyrirtækjum, fengu allt
að 10% sérstaka launahækkun frá 1. ágúst sl. Samningur um
þetta, sem gerður var milli Hafnarfjarðarbæjar og félaganna
fjögurra í síðustu viku og gildir til áramóta, tekur til á annað
hundrað starfsmanna.
„Mest um vert þykir mér, að
gert er ráð fyrir að á næsta samn-
ingstímabili, sem á að hefjast 1.
janúar 1987, geri þessi félög sam-
eiginlegan rammasamning við
bæinn, eins og hefur gefíst vel í
j^Straumsvík," sagði Sigurður Tr.
Sigurðsson, varaformaður Verka-
mannafélagsins Hlífar í Hafnar-
firði, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins í gær. Hiíf er eitt
félaganna, sem gerðu samninginn
en hin eru Verkakvennafélagið
Framtíðin, Félag jámiðnaðar-
manna og Félag byggingariðnað-
armanna í Hafnarfírði.
„Þá er það einnig nýlunda í þess-
um samningi, að gert er ráð fyrir
>að allir fái sérstaka desembempp-
bót, en slíks hefur aðeins hluti
bæjarstarfsmanna notið hingað
til,“ sagði Sigurður. „Þessi uppbót
er tveggja vikna laun samkvæmt
byrjunarþrepi 17. launaflokks, en
það gerir nú 8.456 krónur. Þessi
upphæð er innifalin í þeim tæpu
10%, sem við teljum til launahækk-
unar,“ sagði hann.
Guðríður Elíasdóttir, formaður
Framtíðarinnar, kvaðst vera
ánægð með þann árangur, sem
náðst hefði með þessum samningi
við bæjarfélagið, enda hefði ekki
veitt af að lagfæra kjör hinna iægst
launuðu í Hafnarfirði. Konur í
Framtíðinni, sem fengu með þess-
""’um hætti 9-10% kauphækkun ti)
viðbótar við ASÍ/VSI-samninginn
frá í febrúar, em á milli 60 og 70
en að auki fékkst 3% launahækkun
til Sóknarkvenna, sem vinna á elli-
og hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
Þær konur munu einnig vera á
milli 60 og 70.
Sigurður Tr. Sigurðsson kvað
mikla vinnu nú vera framundan
við undirbúning þess sameiginlega
rammasamnings, sem stefnt væri
að á næsta samningstímabili. Hann
sagði ekki ákveðið hvort sá samn-
ingur yrði gerður til viðbótar
væntanlegum heildarsamningi Al-
þýðusambands íslands og samtaka
atvinnurekenda eða hvort samið
yrði alfarið innanbæjar.
Ekki náðist í Guðmund Árna
Stefánsson, bæjarstjóra í Hafnar-
firði, til að fá umsögn hans um
þennan samning. Fyrir fáum vik-
um tókst samkomulag um tals-
verðar kauphækkanir til opinberra
starfsmanna í bænum, félaga í
Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar-
bæjar.
Ríkisstjórnin
ræðir fjárlög
á Þingvöllum
SÉRSTAKUR ríkisstjórnarfund-
ur um fjárlög næsta árs verður
haldinn á Þingvöllum í dag. Þar
munu ráðherrar og nokkrir emb-
ættismenn fara yfir þau drög að
fjárlögum, sem fyrir liggja.
Árlega er haldinn sérstakur
ríkisstjómarfundur um fjárlögin en
síðan er Qárlagafrumvarp fjár-
málaráðherra rætt í ríkisstjóminni
eftir þörfum þar til það hefur ver-
ið lagt fram í þingi og afgreitt
þaðan.
Þetta mun vera fyrsti vinnu-
fundur ríkisstjómarinnar af þessu
tagi, sem haldinn er á Þingvöllum.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Bitiðítakt
Ekkert raskar ró hrossanna þar sem þeir bíta grænt grasið.
Vextir
afurðalána
lækka
VEXTIR afurðalána í dollurum
lækka í dag um 0,57o, úr 8,25% í
7,75%. Þá lækka einnig lán í SDR
úr 8% í 7,75%.
Búast má við að vextir afurðalána
í pundum og þýskum mörkum lækki
einnig þegar líður á árið. Það kann
svo að hafa áhrif á aðra vexti hér
á landi.
Sjá nánar Viðskiptablað, B-l.
Skreiðarútflutningur:
Fannur til Níg’eríu án
greiðslutryggingar
Landsbankinn tilkynnti viðskiptamönn-
um sínum að ábyrgðin væri þeirra
LANDSBANKI Islands hefur
sent skeyti til þeirra viðskipta-
manna sinna sem eiga skreið um
borð í skipi á leið til Nígeríu á
vegum Islensku umboðssölunnar
hf. og tilkynnt þeim að þessi út-
flutningur væri á þeirra eigin
ábyrgð vegna þess að bankanum
hefði ekki borist fullnægjandi
greiðslutrygging frá kaupendum
ytra, en bankarnir eiga veð í
skreiðinni vegna afurðalána.
Fram hefur komið hér í blaðinu
að um er að ræða 40 þúsund
pakka af skreið.
Björgvin Vilmundarson banka-
stjóri Landsbankans staðfesti þetta
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Allt að 2500 grafa
viðbót við Foss-
vogskirkjugarð
Tekin í notkun að ári
ÞESSA dagana er verið að Ijúka við stækkun á Fossvogskirkju-
garði út í Öskjuhlíðina til vesturs. Er gert ráð fyrir að eftir
um það bil ár verði hægt að taka í notkun um 2.000 grafa við-
bót við núverandi garð, að sögn Ásbjörns Björnssonar, forstjóra
Kirkjugarða Reykjavíkur.
Kirkjugörðunum var úthlutað
viðbótarlandi, hálfum þriðja hekt-
ara, í Öskjuhlíð fyrir nokkrum
árum en þá reyndist iandið of
grunnt og ekki grafartækt, að því
er Ásbjöm sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær. „Þá var
ákveðið að leyfa húsbyggjendum
að aka moid úr lóðum sínum í
landið en þegar átti að fara að
hefja undirbúning að frágangi
þessarar viðbótar við garðinn
reyndist hafa komið of mikið stór-
giýti með moldinni. Á síðasta ári
tókst samkomulag við Reykjavík-
urborg um skiptingu kostnaðar
við að flytja gijótið burtu, nokkur
hundruð bflhlöss," sagði hann.
í vor var lokið við skipulagn-
ingu garðsins og verkið síðan
boðið út. Ætlunin var að því yrði
lokið fyrir 1. september en nú er
talið vafasamt að það takist, því
enn á eftir að ganga frá götum
og gangstígum. „Það er á að giska
eitt ár þangað til hægt verður að
fara að nota_ þennan hluta garðs-
ins,“ sagði Ásbjöm.
Hann sagði að í garðinum
myndu rúmast 2.000-2.500 graf-
ir. í Reykjavíkurprófastsdæmi em
árlega grafnir um 1.000 einstakl-
ingar en þar sem ýmsir eiga
frátekin grafstæði við hlið maka
sinna og ástvina í eldri hlutum
garðsins og í nýja kirkjugarðinum
í Gufunesi taldi hann að þessi við-
bót myndi duga talsvert lengur
en í tvö ár.
Hann sagði að bankinn hefði ekki
gefið leyfi fyrir þessum útflutningi
og reyndar ekki frétt af honum
fym en búið var að skipa skreiðinni
út. Hann sagði að bankinn hefði
sent viðskiptamönnum sínum skeyt-
ið til að þeim væri það alveg ljóst
að þeir yrðu að standa í skilum
með þau afurðalán sem á skreiðinni
hvíldu, hvort sem þeir fengju vör-
una greidda eða ekki.
Halldór Guðbjarnason banka-
stjóri Utvegsbanka íslands sagði
að Útvegsbankinn hefði ekki sent
sínum viðskipamönnum sérstaka
tilkynningu varðandi þennan
skreiðarútflutning eins og Lands-
bankinn. Hluti eigenda skreiðarinn-
ar og útflytjandinn eru í viðskiptum
þar. Halldór sagði að öllum aðilum,
þar á meðal Seðlabanka, Lands-
banka, Útvegsbanka, viðskipta-
ráðuneyti og flestum eða öllum
eigendum skreiðarinnar hefði verið
ljóst með hvaða hætti skreiðin væri
flutt út. Um næstu mánaðamót
rynnu út innflutningsleyfí fyrir
skreið í Nígeríu og gætu liðið ár
og dagar þar til þau fengjust aftur.
Eigendur skreiðarinnar og útflytj-
endur hefðu viljað koma skreiðinni
inn í landhelgi Nígeríu áður en leyf-
in rynnu út til að lokast ekki inni
með hana, þó ekki hefði verið búið
að ganga frá greiðslutryggingu.
Skreiðin væri í raun í höndum út-
flytjandans þar til henni yrði skipað
upp og það yrði væntaniega ekki
gert fyrr en menn hefðu fullvissu
fyrir greiðslu, en á meðan væri
unnið að því að fá tryggingar.